Frjáls verslun - 01.07.1993, Blaðsíða 18
FORSIÐUGREIN
Breytingar á tekjum einstakra hópa á árinu 1992
Sömu einstaklingarnir í hópunum kannaðir bæði árin 1991 og 1992
Forstjórar Stjórn. banka
stórfyrirt. og fjármálast.
g®%
Forstjórar
rikisfyrirt.
Kunnir Næst æðstu
athafnam. stjórnendur Sveitarstjórnar-
Lögfræðingar
I9®%
Opinb.
embættism.
“iKig 4J%
Vilmundarson
KÖNNUN FRJÁLSRAR VERSLUNAR Á TEKJUM MANNA ALDREIVERIÐ UMFANGSMEIRI
TOPPstjórnendur
- TEKJUR FÓGETA MINNKUÐU MEST Á SÍDASTA ÁRI
Tekjur toppstjórn-
enda og kunnra at-
hafnamanna jukust um
3 til 4% umfram hækk-
un launavísitölu á síð-
asta ári. Þetta er meðal
annars niðurstaðan í
árlegri könnun Frjálsr-
ar verslunar á tekjum
manna sem fram-
kvæmd var í byrjun
ágúst. Könnunin hefur
aldrei verið eins viða-
mikil og nú. Birtar eru
skattskyldar tekjur 517
einstaklinga í 22 hóp-
um og er hvergi að finna
á einum stað svo viðam-
iklar upplýsingar nema
þá í sjálfri skatt-
skránni.
Aðrar helstu niðurstöður
eru þær að tekjur tann-
lækna í tannréttingum juk-
ust mest allra í könnuninni á
síðasta ári eða um 20,9%
umfram verðbólgu. Tekjur
fógeta og sýslumanna
minnkuðu hins vegar mest
allra í könnuninni eða um
26,4% umfram verðbólgu.
Þá má geta þess að tekjur
almennra tannlækna, verk-
fræðinga og forráðamanna
auglýsingastofa minnkuðu
einnig verulega, sam-
kvæmt könnuninni.
Tekjuhæsti forstjórinn á
síðasta ári var Guðjón B.
Ólafsson, fyrrverandi for-
stjóriSambandsins. Hörður
Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, var næsthæstur.
Þorvaldur Guðmundsson í
Síld og fisk var tekjuhæstur
athafnamanna eins og fyrri
daginn. Björgvin Vilmun-
darson var tekjuhæstur
bankastjóra og Indriði Páls-
son var tekjuhæstur stjórn-
armanna í fyrirtækjum.
Könnunin byggist á
álögðu útsvari einstakling-
anna eins og það var í skatt-
skrám sem lágu frammi
fyrsta hálfan mánuðinn í
ágúst. Allar upplýsingar á
listanum eru þaðan komn-
ar. Út frá útsvarinu eru
skattskyldar tekjur reikn-
aðar. Blaðamaðurinn og
lögfræðineminn, Lúðvík
Örn Steinarsson, vann allar
tölulegar upplýsingar úr
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON 0G LÚDVÍK ÖRN STEINARSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON 0G FL.
18