Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1993, Side 44

Frjáls verslun - 01.07.1993, Side 44
STJORNUN • „Þáttur stjórnar í stefnumót- uninni var agnarsmár. Yið sögðum við þá: þessir fundir eru opnir, (sérstakir fundir meðal starfsmanna þar sem unnið var að stefnumótun; innsk. HFÞ), þið getið kom- ið. Flestir létu aldrei sjá sig. Á lokastigi þegar verið var að kynna stjórninni stefnumót- unina og hún borin undir hana þá kunnu stjómarmenn ekki aðferðarfræðina og upphófst þá heilmikil sölustarfsemi til að selja þeim stefnumótun- ina.“ Þessi síðasta lýsing er sjálf- sagt dæmigerð fyrir einhver fyrirtæki. Selja þarf stjórninni stefnu fyrirtækisins. Það þarf auðvitað ekki að segja meira. Þetta eru ótæk vinnubrögð af hálfu stjórnar. En hvers æskja forstjórar þeirra fyrirtækja þar sem stjómimar beittu sér lítið sem ekkert, hvernig sjá þeir fyrir sér þátttöku stjórnarinnar? Er ráðning annarra en framkvæmdastjóra borin undír stjórn til ákvörðunar? Já Nei 10% 80% Fá stjórnarmenn alla jafna send gögn fyrir stjórnarfundi? Já Nei 37% 63% Hver semur við forstjóra um launakjör hans? Stjórnarformaður Stjórn 53% 47% Ef svarið er stjórnarformaður. Eru laun forstjóra trún- aðarmál milli hans og stjórnarformanns? Já Nei 78% 22% Fjallar stjórn einhvern tima um frammistööu forstjóra að honum fjarstöddum? Já Nei 47% 53% Leggur stjórnin mat á eigin frammistöðu? Já Nei 0% 100% Nokkrar spurningar í könnuninni og stjórnarmanna við þeim. FORSTJORAR: • „Stjórnarmenn ættu að hafa áhrif á stefnumótunina." • „Ég sé þetta þannig fyrir mér að stjórnin tjái sig um þá stefnu sem stjórnkerfið leggur til. En stjórnarmenn hafa hvorki að- stöðu né þekkingu til að vinna þetta, þeir eiga frekar að leggja blessun yfir þetta." Af þessu má sjá að forstjórar ættu alla jafna ekki að vera Þrándur í Götu þess að stjórnir beiti sér við stefnu- mótun, öðru nær, þeir kalla á aukin afskipti þeirra. ÞÁTITAKA STJÓRNARMANNA ER MIKILL SKÓLI FYRIRÞÁ Tínum að lokum til kosti þess að stjórn beiti sér með einum eða öðrum hætti í stefnumótuninni. í fyrsta lagi þá getur stjórnin miðlað af þekkingu þeirri og reynslu sem hún býr yfir, og lagt þannig dýrmætan skerf til stefnu fyrirtækisins. í öðru lagi þá er þátt- taka í stefnumótun heilmikill skóli fyrir stjórnina í þeim skilningi að hún kynnist mörgum eiginleikum fyrir- tækisins sem hún ella myndi ekki gera auk þess að skerpa sýnina á rekstrarumhverfið. í þriðja lagi kynn- ast stjómarmenn mörgum starfs- mönnum fyrirtækisins sem annars verða ekki á vegi þeirra á leið til venjulegra stjómarfunda. I fjórða lagi getur stefnumótunarvinnan þjappað stjórninni betur saman, gert hana samstilltari. Umræðan sem fylgir stefnumótuninni er opinská og krefst þátttöku sem flestra. Slíkt getur alið á eindrægni og gert stjórnina hæfari til að vinna saman. í fimmta og síðasta lagi þá er best að gefa einum forstjór- anum orðið því hann hittir naglann á höfuðið: FORSTJÓRISEM HITTIR NAGLANN ÁHÖFUÐIÐ • „Ef stjórnin mótar ekki stefnu, þá veit hún ekki hvert hún á að fara. Eftirlitshlutverk hennar byggir á stefnu með hverju á að fylgj- ast. Stefnan er viðmiðið sem eftirlitið miðast við.“ NAUÐSYN ÞESS AÐ STJÓRNIR SETJISÉR STARFSLÝSINGU Kveðið er á um hlutverk stjórna í lögum. Skilgreiningar hlutafélagalaga eru mjög rúmar og gefa tilefni til mismunandi út- færslu á hlutverki félagsstjóm- ar. í samþykktum félaga er jafn- an kveðið á um hlutverk stjórn- arinnar en það er iðulega nánast upptalning á ákvæðum hlutafé- lagalaga og skilgreining þess er því eftir sem áður jafn rúm. Er- lendis ber dálítið á því að stjórnir setji sér ákveðinn ramma til að vinna innan (mission statem- ent). Slíkur rammi, sem einnig mætti kalla starfslýsingu, þó blæbrigðamunur sé reyndar á þeim hugtökum, getur verið á ýmsa lund, misvíður ef svo má ör að orði komast. Tilgangur starf- slýsingar gæti meðal annars verið sá að festa í sessi ákveðna verkaskiptingu stjórnar og for- stjóra auk þess að stuðla að ein- drægni meðal stjómarmanna, þ.e.a.s. menn hafa þá sameiginleg viðmið til að starfa eftir. Einnig gæti slík starfslýsing verið leiðbeinandi um það hvort stjórnin ræki hlutverk sitt sem skyldi, þ.e.a.s. menn hafa þá einhvern mælikvarða á eigin störf. Þar sem höfundur vissi að slíkar starfslýsingar væru ekki tíðkaðar hér á landi lék honum hugur á að kanna viðhorf manna til slíks fyrirkomulags: • „Stjórnir mættu setja sér starfs- lýsingu því margir stjórnarmenn gera sér ekki grein fyrir hlutverki sínu (forstjóri). “ • „Mér hefur þótt vanta vitneskju innan stjórnar um hvert sé hlut- verk hennar, að það séu skýr mörk á milli stjórnarmanna og stjórn- enda. Með starfslýsingu yrðu vinnubrögð hnitmiðaðri, ég teldi þetta mjög til bóta.“ (forstjóri) • „Það getur verið varasamt að hafa hlutverk stjórnar of bundið. Ég er 44

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.