Frjáls verslun - 01.08.2000, Síða 167
Spyrlarnir voru þrír: Stefán Jón Hafstein, eigandi íslands ehf, Guðmundur Heiðar Frímannsson, deildarstjóri við Háskólann á Akureyri, og
Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar.
Uppreisn gegn ráðandi ötlum Tryggvi Felixson var á öðru
máli. Hann taldi umhverfismál flókin og vandamálin þyrfti að
viðurkenna og leysa. Hann áleit málflutning Lomborgs af sama
meiði og umhverfisverndarandstæðinga í Bandaríkjunum, -
hann væri nokkurs konar uppreisn gegn hinum ráðandi öflum.
Kjarni málsins hjá Lomborg væri þessi: Ungabörn deyja „ekki
lengur eins og flugur“, mannkynið hefur meira að borða en
áður, skógurinn er ekki horfinn, mannkynið er hvorki að verða
orkulaust, hráefnislaust né vatnslaust, loftmengun iðnríkja hef-
ur minnkað, sorp er ekki jafn mikið vandamál og áður hefur
verið talið og ósonlagið er ekki lengur vandamál.
Tölfræðisöfnun Lomborgs taldi Tryggvi ágæta en nokkur
mistök væru gerð við vinnslu bókarinnar eins og við væri að
búast þar sem um víðtækan málaflokk væri að ræða. Stærsti
veikleiki bókarinnar væri sá að Lomborg teldi sig segja „sann-
leikann" um umhverfismálin. „Eg held ekki að einhver einn
einstaklingur hafi forsendur til þess að segja sannleikann um
stöðuna í umhverfismálum. Yfirleitt þarf hóp fólks í langan
tíma til að vinna að skýrslum um stöðu umhverfismála," sagði
Tryggvi og benti á að Lomborg veldi úr þær tölur sem hann
vildi nota og liti framhjá hinum. Hann legði stundum áherslu á
meðaltöl þegar það ætti ekki við.
Hvaða hagsmuni? Eftir framsögu létu Guðmundur Heiðar
Frímannsson, deildarstjóri við Háskólann á Akureyri, Jón G.
Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, og Stefán Jón Hafstein,
eigandi Islands ehf., spurningarnar dynja á Lomborg. Umræð-
unum verða ekki gerð full skil hér en í upphafi fundaríns gagn-
rýndi Stefán alhæfingar í málflutningi Lomborgs. Þegar Guð-
mundur spurði að því hvaða hagsmuni Lomborg hefði í um-
hverfismálum og hvers vegna menn ættu að trúa honum frek-
ar en öðrum, t.d. umhverfisverndarsamtökum, sagðist
Lomborg ekki geta sannað að hann hefði engra hagsmuni að
gæta. Hann kvaðst hafa akademískan metnað og hvetja stúd-
enta sína til að skrifa í blöðin ef ástæða væri til. Þegar fé fengist
til rannsókna þyrfti að skila jwí til baka til samfélagsins í formi
upplýsinga. „Þegar við finnum gott efhi eigum við að birta það
og gera það aðgengilegt öðrum,“ sagði hann og kvaðst hafa
skrifað bókina af eigin hvötum en það gæti hann ekki sannað.
Finnum ódýrari orku „Bæði hagfræðingar og stjórnmálamenn
hafa áhyggjur af því að olíulindir endurnýist ekki og háir skatt-
ar hafa verið lagðir á eldsneyti til að draga úr eftirspurn. A hinn
bóginn segir þú að mikið af ónýttum lindum eigi eftir að finn-
Hroki og virðingarleysi
„Mér virðist Lomborg gera sig að vissu leyti sekan um hroka og virðingarleysi
eða eins og hann segir: „Hafið ekki áhyggjur, ég er búinn að kortleggja hið sanna
ástand heimsins." Enginn á mínum uppvaxtarárum hefði dirfst að koma með slíka
yfirlýsingu,“ sagði Jón Bjarnason alþingismaður.
167