Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2000, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.08.2000, Blaðsíða 8
RITSTJÓRNARGREIN Alll hefur slnn tíma A síðustu l]órum mánuðum hafa fjögur gömul og rótgróin fjölskyldufyrirtæki, Nóa- tún, Hans Petersen, Kexverksmiðjan Frón og Síld og fiskur, verið seld og salan á því fimmta, Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni sem fagnar 87 ára afmæli sínu á þessu ári, stendur nú yfir. Þessi íyrirtæki hafa verið í eigu sömu fjölskyldnanna frá upphafi, fjöl- skyldna sem núna, á því herrans ári 2000, tóku þann kostinn að hverfa úr þeim að fullu í stað þess að eiga minnihluta i þeim. Þær áttu og ráku fyrirtækin á tuttugustu öldinni en láta núna aðra um að leiða þau inn í tutt- ugustu og fyrstu öldina. Þessi þróun hófst fyrir nokkrum misserum og leggja verð- bréfafyrirtækin, bankarnir og hlutabréfamarkaðurinn grunninn að henni. Segja má að fyrrum eigendur Hagkaups hafi riðið á vaðið með því að selja FBA og Kaupþingi þá nafn- toguðu verslun en þau stofnuðu í framhaldinu nýtt fyrirtæki, Baug, ásamt Bónusfeðgum. Baugur er stærsta verslunar- samsteypa á íslandi og skipar ljórða sætið á nýjum lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fýrirtæki landsins. Vandi fjölskyldufyrirtækja Hinn öri vöxtur í sölu fjölskyldu- fyrirtækja á sér nokkrar skýringar. Hlutabréfamarkaðurinn vegur þar þyngst; hann er markaður með fyrirtæki og setur verðmiða á þau. Eignarhlutar fá verðmat og hægt er að selja þá á markaði. Þeir fjölskyldumeðlimir, sem ekki stýrðu fyrir- tækjunum og voru nánast læstir inni með hluti sína, eiga á markaði létt með að selja þá og fjárfesta í öðrum félögum og dreifa áhættunni. Þá er líka ljóst að tilfinningasemi innan fjöl- skyldna gagnvart ævistarfi forfeðranna hefur minnkað, kyn- slóð samtímans ver tíma sínum og kröftum í þau mál sem hún sjálf setur í forgang; það sem hún sjálf vill gera. Enda er það óeðlileg byrði að eiga það yfir höfði sér að þurfa að gegna sama starfi og forfeðurnir um aldur og ævi, að verða að taka við. Forystuvandi Forystuvandi hefur oftar en ekki komið upp þegar önnur og þriðja kyn- slóð í fyrirtækjum kemur til sögunnar og hlutir dreifast víða innan fjölskyldna. Spurn- ingin er auðvitað sú hver eigi að taka við. Ein- hver einn verður að taka af skarið, veita fyrir- tækjum forystu - öðruvísi lifa þau ekki af. Dæmin sanna að án forystu geta fjölskyldu- fyrirtæki orðið verðlítil á ótrúlega skömmum tíma. Þegar forystusauðurinn er fundinn eiga aðrir Oölskyldumeðlimir um það að velja að vera farþegar í aftursætinu eða að selja for- ystusauðnum sinn hlut og láta hann um reksturinn og áhættuna. An almenns markað- ar getur sala á eignarhlutum á milli systkina eða systkinabarna í lokuðum fjölskyldufyrirtækjum auðveld- lega orðið að þrætuepli, svo ekki sé nú talað um verðmyndun- ina í slíkum viðskiptum þegar kaupandinn er aðeins einn. Ennfremur hefur bólað á öðrum vanda í lokuðum fjölskyldu- fyrirtækjum, ekki ólíkum þeim sem mörg kaupfélög hafa staðið frammi fyrir. Hvar á að fá aukið Oármagn til að stækka fyrirtækin þegar ekki er hægt að fara út á markaðinn til að ná í aukið hlutafé? I raun eru þá aðeins tvær leiðir færar. Sú fyrri er að fara í næsta banka og fá lán, sú seinni er að eigendurn- ir sjálflr leggi meira kjöt í pottinn. Eigi eigendur ekki digra sjóði á lausu, þar sem þeir eru þegar með fé sitt bundið í fyr- irtækjunum, og vilji þeir ekki taka fleiri lán lenda ættarfyrir- tækin í kyrrstöðu. Það er það versta sem hendir öll fyrirtæki og er fyrsta skrefið í átt að dómsdegi þeirra. Lífsmark Aukin sala á fjölskyldufyrirtækjum og opnun þeirra fyrir nýjum hluthöfum ber vott um nýja tíma og ný tæki- færi í viðskiptalífinu. Hún ber frekar vott um lífsmark fjöl- skyldna en hnignun þeirra. Auðvitað er alltaf sjónarsviptir að stofnendum og frumkvöðlum sem daga sig í hlé - en allt hefur sinn tíma. Jón G. Hauksson Stofnuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 62. ár Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólajsson Hallgrímur Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson auglýsingastjóri blaðamaður útlitsteiknari RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson UMBROT: Hallgrímur Egilsson UTGEFANDI: Talnakönnun fif. RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSIA: ÁSKRIFTARVERÐ: 3.645 kr. fyrir 6.-11. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með kreditkorti. IAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. DREIFING: Talnakönnun, hf., sími 561 7575 FILMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafíkhf. IJTGREININGAR; Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 561 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@talnakonnun.is ISSN 1017-3544 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.