Frjáls verslun - 01.08.2000, Síða 170
Sigurður flrnar Jónsson,
Intrum á íslandi
Eftir ísak Öm Sigurðsson
Sigurður Arnar Jónsson
er framkvæmdastjóri In-
trum á Islandi, sem er
hluti af Intrum Justitia,
stærsta innheimtufyrirtæki í
Evrópu. „Helsta hlutverk mitt
hjá íyrirtækinu í dag er að
stýra mjög örum vexti fyrir-
tæksins. Starf mitt hjá Intrum
hefur tekið gríðarlegum
breytingum frá því ég hóf
störf þar fyrir rúmum þremur
árum, enda hefur fyrirtækið á
því tímabili vaxið úr einu og
hálfu stöðugildi í 22,“ segir
Sigurður Arnar.
„Fyrsta árinu mínu hjá Intr-
um varði ég að stórum hluta i
innleiðingu á sérhönnuðum
innheimtuhugbúnaði sem við
fengum frá Intrum Justitia.
Þessi hugbúnaður sinnir lykil-
hlutverki í allri starfsemi okk-
ar. Við lögðum upp með að
bjóða upp á betri þjónustu fyr-
ir lægri kostnað en áður hafði
tíðkast í þessari starfsemi, en
sjálfvirknin, sem þessi hug-
búnaður býður upp á, ásamt
sérþekkingu Intrum Justitia,
eru okkar helstu vopn í þeirri
baráttu. Annað árið mitt fór að
mestu í að sinna sölumálum
og kynningu á fyrirtækinu og
hugmyndafræði þess, en í dag
hef ég átta manna söludeild
sem sinnir þessu hlutverki.
Eftir því sem ég hef ráðið mér
fleira aðstoðarfólk hefur vaxt-
arhraði fyrirtækins aukist og
starf mitt sífellt snúist meira
um beina stýringu á vextin-
um, enda hefur fyrirtækið
meira en tvöfaldast á hveiju
ári síðastliðin þrjú ár.
Intrum á Islandi býður fyr-
irtækjum og stoínunum mark-
vissar heildarlausnir á sviði
innheimtumála þar sem mjúk-
ar aðferðir eru í hávegum
hafðar og fyllsta virðing er
borin fyrir skuldunautum.
Hugmyndafræði Intrum felst
meðal annars í því að skuldari
skuli greiða innheimtukostn-
að sem er sem næst þeim
raunkostnaði sem af vanskil-
um hans hlýst. Einnig leggur
Intrum áherslu á að gjaldtak-
an af kröfuhafa fyrir þjónust-
una sé að mestu árang-
urstengd og þannig ákveðið
hlutfall af innheimtufé.
Við teljum þetta fyrirkomu-
lag á gjaldtöku fyrir innheimtu
mjög mikilvægt þar sem hags-
munir kröfuhafa og inn-
heimtufyrirtækis fara að fullu
saman á þennan hátt því báðir
aðilar standa uppi tómhentir
ef innheimtuaðgerðir bera
ekki árangur og báðir aðilar
hagnast ef innheimtan gengur
vel. Þetta er alveg öfugt við
það sem tíðkast hefur í þessari
atvinnugrein, þar sem kröfu-
hafar hafa þurft að greiða inn-
heimtuaðila eins konar skaða-
bætur ef ekki hefur náðst að
innheimta kröfu og þannig í
raun verðlaunað innheimtuað-
ilann fyrir árangursleysið."
Sigurður Arnar er fæddur
á Egilsstöðum árið 1972.
Hann gekk í grunnskólann á
Egilsstöðum og síðar í
Menntaskólann á Egilsstöð-
um þaðan sem hann útskrifað-
ist af viðskipta- og hagfræði-
braut árið 1992. Að hausti
sama ár hóf Sigurður Arnar
nám í viðskiptafræði við Há-
skóla Islands og útskrifaðist
þaðan af endurskoðunar- og
reikningshaldssviði vorið
1996. „Eg útskrifaðist síðast-
liðið vor með löggildingarpróf
í verðbréfamiðlun frá Endur-
menntunarstofnun Háskóla
Islands.
FÓLK
Æskunni varði ég að stór-
um hluta í æfingar og keppni í
ýmsum hópíþróttum, en þar
fór mest fyrir knattspyrnuiðk-
un og handknattleik í íþrótta-
félaginu Hettí á Egilsstöðum."
Samhliða námi starfaði Sig-
urður Arnar í hjá Ungmenna-
og íþróttasambandi Austur-
lands (UIA) við framkvæmda-
stjórnun og ýmis rekstrar-
tengd sérverkefni. Síðasta
árið í Háskóla Islands starfaði
Sigurður samhliða námi við
endurskoðun hjá Deloitte &
Touche. Hjá Deloitte &
Touche starfaði Sigurður í eitt
ár að lokinni útskrift fram tíl
þess tíma er hann tók við
ffamkvæmdastjórastarfi hjá
Intrum á Islandi. „Eg tel að
starf á endurskoðunarskrif-
stofu sé ómetanlegur skóli fyr-
ir alla sem ætla að takast á við
fyrirtækjarekstur og það hent-
ar sérstaklega vel sem viðbót
við nám í Háskóla íslands þar
sem kennsla er að stórum
hluta í fyrirlestraformi. Mér
fannst ég hinsvegar búa yfir of
mikilli framkvæmdaþörf og
sköpunargleði til að geta
ílengst við það að velta mér
upp úr fortíð annarra sem
stunda atvinnurekstur en í því
felst endurskoðunarvinnan að
töluverðu leyti," segir Sigurð-
ur Arnar.
Sigurður á þrjú börn og er í
sambúð með Hlín Osk Þor-
steinsdóttur, innheimtufulltrúa
hjá Lögheimtunni hf. Helstu
áhugamálin eru íþróttaiðkun
og hverskonar hreyfing auk
þess sem ferðalög og önnur
tómstundaiðkun með fjöl-
skyldunni eru ofarlega á vin-
sældalistanum. „Það má segja
að ég hafi gaman af flestu sem
felur í sér hreyfingu og líkam-
lega áreynslu. Eg hef alltaf
þurft að hafa töluvert mikið
fyrir stafni og líður í raun best
þannig. Það hentar mér því
mjög vel að starfa fyrir fyrir-
tæki í hraðri uppbyggingu,
eins og Intrum, jiví þar er alltaf
mikið um að vera og að mörgu
að hyggja," segir Sigurður
Arnar að lokum.SH
170