Skólavarðan - 01.11.1990, Page 20
SKÓLAVARÐAN FÉLAG UM MÁLEFNI SKÓLASAFNA
LÖG
I. Nafn og markmið
1. gr.
Félagið heitir Skólavarðan: Félag um málefni skólasafna.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Markmið félagsins eru að efla íslensk skólasöfn á öllum
stigum skólakerfisins og vinna að auknum skilningi á
mikilvægi skólasafna. Markmiðum sínum hyggst félagið ná
með því að:
a) Stuðla að hagnýtingu bókasafnsfræðilegrar og
kennslufræðilegrar þekkingar í skólasöfnum;
b) Halda uppi faglegri umræðu um skólasöfn meðal þeirra
sem starfa á skólasöfnum og annarra sem áhuga hafa á
málefnum skólasafna;
c) Fylgja eftir hagsmunamálum skólasafnvarða;
d) Stuðla að bættri menntun skólasafnvarða;
e) Stuðla að samvinnu milli skólasafna og annarra
safnategunda;
f) Stuðla að samvinnu við alþjóðasamtök skólasafnvarða.
II. Aðild
3. gr.
Aðild geta þeir fengið sem starfa á skólasöfnum og aðrir
sem áhuga hafa á málefnum skólasafna. Skólasöfn geta
gerst aðilar. Skriflegar umsóknir um aðild skulu berast
stjórn félagsins. Nýir félagar verða að hljóta samþykki á
stjórnarfundi.
III. Stjórn og trúnaðarmenn
gr.
Stjórn félagsins skipa fimm aðalmenn, formaður, ritari,
gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Stjórnin skal kosin
20