Alþýðublaðið - 17.11.1969, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 17.11.1969, Blaðsíða 6
6 AJþýðu'folaðið 17. nóvember 1969 Heiðlóa. — Ljósm.: Grétar Eiríksson. □ Sumarið er tími íarfuglanna á íslandi. Þeir koma hingað á vorin og fara héð&n á haustin. Aðeins til- tölulega fáar tegundir dvelja hér árið um kring, hafa aðlagazt loftslagi og landslagi, eru orðnir ífullgildir ís- lendingar. En auk farfuglanna, sem leita hingað til varpsíöðva isinna ng eyða ihér sumrinu, teru isvo far- gestir og flækingar. Fargestirnir lkoma hér'við á 'vorin á leið til annarra morðlægra landa og sömuleiðis á haustin í ‘bakaleiðinni, ien flækingarnir herast hingað frekar jaf tilviljun, lenda í íhafvillum cg 'hrekjast fyr- ir vindi upp að ströndum íslands. Þetta eru einatt forvitnilegir fuglar, ,þó ekki væri af annarri ástæðu en þeirri, að þeir eru sjaldséðir gestir á þessari (norðlægu úthafseyju. 1 í \ í því skyni að forvitnast lum sjaldséða flækinga og fargesti í vor eða haust, snerílég mér tiUtveggja fugla- áhugamanna, þeirra Jóns Baldurs Sigurðssonar, kenn ara, og Grétars Eiríkssonar, tæknifræðings, isem báð- ir ,hafa verið leiðsögumenn í íuglaskoðunarferðum af og til,/Og spurði þá, 'hvað helzt iværi tíðinda í þessum efnum. Brugðust þeir vel við og létu mér í té ýmsa markverða vitneskju, isem rakin verður í stuttu imáli hér á eftir. Heisingi á ReykjavíkurfjÖrn Jón Baldur hafði frá ýmsu ■ markverðu að segja úr fugla- lífinu. T. d. kvaðst hann hafa • séð helsingja á Reykjavíkur- tjörn 11. apríl, en hann mun ! ekki hafa sézt þar fyrr. Hann var þar síðan viðloðandi a. m. \ k. fram undir apríllok, hélt sig ' með gæsunum, var dálítið stygg ur fyrst, en þegar á leið, spekt 1 ist hann og át brauð, sem hon- um var gefið, næstum því úr —GG. hendi manns. Helsingi hefur- orpið í Breiðafjarðareyjum af og til, en mun þó ekki vera reglulegur varpfugl þar. Sömu leiðis hefur hann sézt paraður heiðagæs í Þjórsárverum. Líka sást á Tjörninni bles- gæs, og er hún algerlega nýr Tjarnarfugl. Hún var svolítið seinna á ferðinni, sást fyrst 25. apríl og síðan eitthvað næstu dagana. Þá sá Jón margæsahóp við Bessastaðanesið, um 100 talsins. Þær sjást þar á hvérju vori, að sögn Jóns, eru á leið til Grænlands, helsinginn og belsgæsin sem sáust á Tjörn- inni hafa/,sjálfsagt verið á leið þangað líka, en villzt frá hópn- um, sem þær voru í og stað- næmzt þarna. Þá kvaðst Jón Baldur hafa séð tvo gráspörva, karlfugla, fyrst vestur á Ránargötu og Stýrimannástíg og svo niður við Grjótagötu. 25. júní sáust fjór ir múrsvölungar í fjörunni við Kasthúsatjör-n á Álftanesi, þeir sjást oftast- eitthvað á hverju ári, en hafa aldrei orpið hér, svo vitað sé. • Loks sagði Jón, að lappajaðrakan og rúkragi hefðu sézt á Álftanesi í vor. Yepja Ijósmynduð Grétar Eiríksson rakst ekki á ýkjamikið af sjaldgéefum far gestum eða flækingum í sum- ar, enda alltaf nokkuð undir tilviljun komið, hvað á vegi manns verður hverju sinni, auk þess sem áraskipti eru að slík- um fuglakomum. Grétar rakst þó á rúkraga og lappajaðrak- an, og sömuleiðis komst hann í tæri við vepju hér í nágrenni Reykjavíkur í apríl síðastliðn- um. Það var aðeins einn fugl, en í marz hafði orðið vart tveggja vepja á svipuðum slóð um. Grétar var svo heppinn að ná ágætri mynd af vepjunni, líklega fyrstu mynd, sem næst af fullorðinni vepju hér á landi og var hann svo vinsamlegur að leyfa okkur að birta hana í þessum þætti. Hinsvegar náði Jón Baldur Sigurðsson mynd af fyrsta vepjuhreiðri, sem hér hefur fundizt, sumarið 1963, og sömuleiðis af vepjuunga. Hef- ur hann sagt frá því og fleiru Vepja. Ljósm.: Grétar Eiríksson. í m # wimt w sem vepjunni viðkemur í fcóð- leg’ú grein í Náttúrufræðingn- um, 3—4 hefti, 1967. Grétar sagði, að varpheim- kynni vepjunnar væru svo að segja um allt meginland Evrópu. Hingað flækist hún af og til og þá helzt frá Brétlandi, einkum þegar vetrarhörkur eru á þeim slóðum. Vepjan- hefur undanfarið fært út varpstöðv- ar sínar norður á bóginn og kynni svo að fara, að hún yrði fastur varpfugl á íslandi. Vepjan er náfrænka heiðló- unnar og svipar til hennar, hvað vaxtarlag snertir, en er ivið stærri. Hún er ákaflega auðþekktur fugl, svört að ofan og hvít að neðan og hefur lang- an fjaðratopp aftur úr hnakk- anum, sem gerir hana auðkenni lega. Hún heldur sig mikið á ræktuðu landi. Þá sagðist Grétar hafa séð hér gráhegra í fyrravor í nánd við Vífilsstaði, hann kemur hingað af og til í rióvember eða desember frá Bretlandi og er fram í marz-apríl og fer svo til Bretlands aftur, venjulega aðeins örfáir fuglar. Sama er að segja um silkitoppuna, hún kemur hingað á haustin og er hér dálítið á flækingi á vet- urna, hrekst hingað fyrir sunn anvindinum, en Grétar kvaðst ekki hafa séð hana í haust. LféshöfSaðtid á Tjöminni í fuglaþættinum hér í blað- inu 13. Séþt. s.l. var dálftiíl pistill um fuglalífið á -Tjörn- inni í Reykjavík, m. a. upptaln- ing þeirra fuglategunda, sem þar hafa aðsetur eða sézt þar einhverntímann. í þessa upp-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.