Alþýðublaðið - 13.12.1969, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 13.12.1969, Qupperneq 5
Alþýðublaðið 13. desember 1969 21 Fólk gefur líka erlendar bækur JÓLABÓKIN FÆST í Bókabúðinni HRÍSATEIG 19. FÓLK gefur líka erlendar bækur í jólagjafir eftir því sem Alþýðublaðinu er tjáð. Við röbbuðum í fyrradag við tvo bóksala í Reykjavk, sem mikið selja af erlendum bókum, *íþá Magnús Torfa Ólafsson í deild erlendra bóka hjá Máli og Menningu og Steinar Guðjóns- son hjá Bókaverzlun Snæbjarn- ar Jónssonar._________________ Magnús Torfi Ólafsson í deilcl erlendra bóka í Bókaverzlun Máls og menningar: — Mig langar til að leggja íyrir þig þá spurningu Magnús, hvort einhver brögð séu að því að menn kaupi erlendar bæk- ur til jólagjafa? — Já, nokkur brögð munu_ jvera að því þótt það sé ekkert líkt því sem gerist um íslenzk- ar bækur. Það er þó nokkuð um það að menn kaupi bækur sem eru nýkomnar út erlendis, eink- um á Norðurlöndum og Bret- Magnús Torfi ölafsson. landi, bækur sem hafa vakið mikla athygli. Þó er sérstaklega áberandi í jólasölunni að menn kaupa erlendar bækur til að gefa sjálfum sér, þegar þeir eru búnir að kaupa innlendar bæk- ur til að gefa ættingjum og vin- um, þá hafa þeir eitthvað í huga erlent sem þeir hafa á- girnd'"á sjálfir, þeir menn sem á annað borð fylgjast með bóka útgáfu f öðrum löndum. — Og hvers konar bækur eru þá mest keyptar? — Það er mjög erfitt að segja um það, mest líklega þær bæk- ur sem maður verður að kalla metsölubækur, t. d. bækur Morr ish um nakta apann og manna- dýragarðinn, líka skáldsögur sem vekja athygli, listaverka- bækur og enn fremur ævisögur og sagnfræði. — Hvers konar fólk finnst þér það vera einkum sem kýs sér slíkar jólagjafir? — Einkum fólk sem hefur dvalizt meira eða minna erlend is eða hefur komizt uppá að fylgjast með ritdómum og bóka fregnum í erlendum blöðum, og veit því hvað er að gerast á erlendum bókamarkaði. Það get ur verið fólk af öllu tæi. — Það eju þá einkum þeir ■sem hvort sem er skipta mikið við ykkur? — Já, aðallega er það. — Er meiri sala í erlendum bókum fyrir jól heldur en á öðr um tíma? — Já, hún er meiri, þótt mun urinn sé hvergi nærri einsog viðvíkjandi íslenzkum bókum. Steinar Guðjónsson: — — Kaupir fólk erlendar b^pk- ur til jólagjafa, Steinar? " — Já, það gerir það, aðallega glæsilegar bækur, fallega út- gefnar eins og listaverkabækur og hagnýtar bækur til gjafa fyr ir skólafólk. Fræðibækur um vísindi og tækni. Einnig iista- verkabækur og svo klassiskar menntir ef þær eru skemmtilega út gefnar. — Finnst þér vera mun meiri sala í erlendum bókum fyrir jól en aðra tíma árs. — Já, svolítið meiri, bóksal- an tekur öll kipp. En samtím- is dettur niður sala í þungum vísindalegum bókum. — Hvaða fólk er það einkum sem gefur erlendar bækur í jóla gjöf? — Alls konar fólk, en aðal- lega menntamenn og aðstand- endur menntamanna. Og þar að auki fólk sem hefur áhuga á að gefa vandaðar bækur. — Kaupa menn erlendar bæk ur handa sjálfum sér í jólagjöf? — Það getur verið að eitt- hvað sé um það, menn vilji tryggja sér eina góða bók til að hafa að lesa um jólin. — Er sala erlendra bóka yf- irleitt minni nú en hún var fyr- ir tveimur árum? Steinar Guðjónsson. — Nei, svipuð, líklega alveg sú sama. — Er hún kannski heldur vax andi ár frá ári, þegar litið er yfir langan tíma? — Já, það er líklega hægur vöxtur. Verð bóka er alltaf að hækka, og verðhækkanirnar draga úr eðlilegum vexti sölunn ar. — Þið hafið því ös í erlend- um bókum líka? Framhald á bls. 24 Það er isegin saga. Jólabókin fæst hjá Braga. , BÓKAVERZLUN Braga Brynjólfssonar Hafnarstræti 22. JÓLABÆKURNAR FÁST í Bókabúð Vesturbæjar Dunhaga 23. JÓLABÆKURNAR FÁST í BÓKAVERZLUN . Jóns P. Jónssonar ÁLFHEIMUM 6. ' V* } ■ : ' 1 Jón Þórarinsson. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, ævisaga. Ævisaga höfnndar lagsins viö þjóðsöng lslendinga. Brugðið upp iifandi svipmyndum frá heimilisháttum og bæjarbrag lifinu í Reykjavík á nítjándu öld. Sagt er ítarlega frá lífinu i Latínuskólanum, ýmsum merkum mönnum og einnig frá Kvöldfélaginu hinum merka Jeynifélagsskap Reykvískra menntamanna. Sveinbjörn Sveinbjörnsson átti viðburðaríka starfsævi erlendis, lagði m.a. stund á kaupsýslu og hlaut óumdeilda viðurkenningu sem tónlistarmaður. Bókina prýða 40 myndir. Félagsmannaverð kr. 685.00. ALMENNA BOKAFELAGiÐ AliSTURSTRÆTI 18 SÍMI13

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.