Alþýðublaðið - 24.12.1969, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 24.12.1969, Qupperneq 3
JOLABLAÐ 1969 3 Þess vegna eru Stjörnur vors- ins eiginlega eina bókin mín þarsem nafnið er ekki í föst- um tengslum við eitthvert kvæði. — Og það hefur aldrei birzt? —■ Nei, það hefur aldrei birzt, ég er óánægður með það ennþá, vil ekki birta það enn. — Ég held mikið uppá lítið kvæði eftir þig sem heitir Sorg- in, mér finnst það einstaklega viturlegt og sanngjamt í garð sorgarinnar, sanngjarnara en flest sem um hana hefur verið sagt. — Já, það er smá-kvæði. Ég veit ekki hvemig þetta kom, mér er það óljósit, mér hefur alltaf verið óljóst hvernig þetta byrjaði. Þetta mótíf fór bara •einhvern veginn að syngja í huga mér. Það varð til ein- hvern veginn smámsaman, kom held ég alveg af sjálfu sér. Ég .gekk með þetta í huganum af- jskaplega lengi áðuren ég festi það á blað. - —En þjóðvísan sem er kannski þitt frægasta ljóð? —Já, það er það kannski. Þar kemur einmitt þetta sem ég hef aldrei verið sáttur við. Þeir eru margir sem líta á það sem kallað er raunvemleiki, hinn ytri raunvemleiki, sem einasta veruleikann í lífinu. Ég hef aldrei getað sætt mig við það sjónarmið vegnaþess mér finnst ég hafa rekið mig á að kannski er eins margt sem verulegu máli skiptir fyrir manninn — sem hann lifir og lifir raunverulega alls ekki á þessu sviði, sviði hinna áþreif- anlegu hluta. Þetta kvæði, þjóð vísa, var eiginlega tilraun til að lýsa mjög raunverulegri upplifun sem skeður í hugskoti manns, reynslu sem er alveg eins raunvemleg og hvað ann- að, en hlítir þó öðrum lögmál- um. Þatta er innri upplifun, eða mér finnst ég hljóti að mega segja það. —Fljótið helga? — Já, um það gildir að ýmsu leyti hið sama og um kvæðið Eftirmála. Eftirmáli er við- skilnaður við ákveðið tímabil. En Fljótið helga er eiginlega uppgjör við lífið á víðara sviði. Ég hafði mikla þörf fyrir að yrkja það kvæði af því þann- ig stóð á með sjálfan mig, með- al annars var heilsa mín veil um þær mundir, ég bjóst við að ég væri að fara þá og þeg- ar. — Þú hefur verið að gera upp sakirnar við tilveruna. — Já, mér fannst ég þurfa þess. — Ég hef heyrt þig segja og þótti merkilegt að of mikið sé uppúr því lagt að skáldið yrki ljóðið, það megi alvegeins segja að ljóðið yrki skáldið. Hvað viltu segja um þessa athyglis- verðu staðhæfingu? — Þetta er hugsun sem er ákaflega gömul hjá mér. Ég veit hún er gömul því hún er komin inní ljóð sem ég orti fyrir mjög mörgum árum og ég hef aldrei birt. Það er kannski ekki svo auðvelt að gera þetta alveg skiljanlegt. En það er hægt að nálgast spurs- fnálið eftir skiljánlegum leið- LJÓÐIÐ YRKIR SKÁLDIÐ | um, til dæmis það að ástundun einhvers hlutar getur tekið ráð in af manninum. Þess eru dæmi úr bókmenntasögunni og hvar- vetna annars staðar. í þessu sambandi hefir mér oft komið í hug Kristján skáld Jónsson, það ágæta skáld, hann byrjar að yrkja sín bölsýniskvæði á tvítugsaldri. Að vissu leyti lá það alveg beint fyrir honum, þetta var á tímabili þegar þungt var yfir þjóðinni, hún tekur þessum ljóðum opnum örmum, hann finnur að þetta á mikinn hljómgrunn með þjóðinni. En hann varar sig ekki á því að smámsaman fara þessi kvæði að taka ráðin af honum, þann- ig verða það kvæðin sem yrkja honum örlög og svo er oft. — Þetta þykir mér meira en lítið athyglisvert. Má ég búa til eftir þér eftirfarandi stað- hæfingu: Skáld verður það sem það yrkir? — Ætli megi ekki orða það svo. — Og þarafleiðandi: ef skáld temur sér að yrkja um göfug efni . . . — Það verður þá að mínum dómi pósitífari maður en ella mundi. — Þú gazt þess áðan að kvæð ið Stjörnur vorsins væri enn óbirt, og eins sagðirðu að þessi hugsun að ljóðið yrki skáldið hefði komið fram í ljóði sem þú ortir fyrir löngu en aldrei hefur birzt. Nú langar mig til að spyrja þig; áttu ekki mikið af óbirtum ljóðum? Mega ekki íslenzkir ljóðaunnendur von- ast eftir að sjá nýja bók frá þér innan skamms? Jú, ég hef alltaf ort öðru hverju, en þetta er mál útaf fyrir sig. Mér hefur alltaf þótt einna dapurlegast við það að yrkja að þurfa að gefa kvæðin út. — Þú ert ekkert hrifin af því. — Nei, það er með kvæði alveg einsog með unglinga sem maður sendir frá sér útí ver- öldina og eiga að standa straum af sér sjálfir. Örlög kvæðisins eru ekki lengur á valdi skáldsins þegar það hef- ur verið birt. Það verður að standa straum af sér sjálft, og það getur hvarflað að manni að vorkenna því. í annan stað hef ég aldrei haft miklar mæt- ur á að láta mikið liggja eftir mig. — Það er auðséð að þú legg- ur meiri alúð við gæðin. — Ég hefði meiraaðsegja heldur kosið að þetta væri minna sem eftir mig hefur birzt, að ekki alveg allt hefði birzt sem komið hefur í bókum mín- um. Það getur hvarflað að mér þegar ég kem í bókasöfn og lít yfir þessar þungu hillur full ar af ritsöfnum og ritverkum hvers vegna menn eru að senda frá sér þessi ósköp af bókum. Mér líður þá stundum einsog ég sé að ganga um kirkjugarð og finnst sem það hafi verið óþarflega mikið skrifað. En það líður að því að eitthvað meira komi. — Ég má þá segja frá því, að það líði að því að þú sendir frá þér nýja bók. — Já, þú mátt það, það líður að því. — Hvað viltu segja um ljóða gerð ög ljóðaáhuga í dag? —Maður vonar bara að skáld haldi áfram að yrkja og fólk hafi áfram gaman af ljóðum, hafi gagn af að lesa ljóð, svo framarlega sem mannkynið á einhverja framtíð fyrir sér á jörðinni. — Ertu svartsýnn á það? — Dálítið. Ég sá þess ný- lega getið í svissnesku bláði að einhver prófessor sem talihn var merkur maður hefði í fyrir lestri sagt ekki alls fyrir lön'gu að jafnvel þótt ekki yrði neín- um nýjum styrjöldum til að dreifa þá gæti mannkynið ekki átt örugga von um að lifa meira en fjórar til fimm kynslóðir ef ekki yrðu sérstaklega mikl- ar breytingar á háttum manns- ins og afstöðu hans til lífsins. Það sem mér fannst þó kannski eftirtektarverðast var að þetta spursmál sem sannarlega virð- ist vera talsvert þýðingarmik- ið var í þessu blaði undir smæstu fyrirsögn alveg einsog þetta sé daglegt brauð eða smá- vægilegur hlutur. —Og hvað mundirðu telja að gera þyrfti? —Ætli það verði ekki að taka upp gersamlega annað lífs viðhorf, pósitívara lífsviðhorf-. — Hvað finnst þér um skáld- skap ungra manna í dag, þess- ara ungu manna sem eiga að erfa heiminn? — Ég hef séð skáldskap eft- ir ungt fólk sem mér þykir mjög skemmtilegur, mjög at- hyglisverður. Það sem kannski meðal annars fælir lesendur frá er að manni finnst svo dimmt yfir skáldskap þessara ungu manna. Það stendur aúðvitað í sambandi við hvernig tilver- an er. Menn þurfa ekki annað en opna útvarpið eða sjónvarp- ið til að vera minntir á hvern ig ástatt er í þessum efnum. Okkar kynslóð fæddist í afskáp lega fábreyttum heimi, en þ&ð var heimur sem átti sér vdn. En þessi unga kynslóð sem er að byrja að yrkja í dag, hún er fædd í miklu auðugri og fjöl breyttari heimi, en heimi eem Frh. á 44. síffus r a a Ijóðið unz jbað er sem jboð hefði orðið til í einni andrá w/ Vw> • 1. trJ' W •

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.