Alþýðublaðið - 24.12.1969, Side 11

Alþýðublaðið - 24.12.1969, Side 11
JOLABLAÐ 1969 11 Hvað vantar þig mikið góði? Hvenær geturðu borgað það? . Við skulum reyna það, góði? f — Já, það er mikill munur á I kjörunum. — Svo mikill munur að nú- lifandi fólk af yngri kynslóðinni hefur enga hugmynd um hvað það var á búa á íslandi. Þetta er allt annar heimur, allt annað líf. Það hefur í för með sér bæði plús og mínus, sorg og gleði, sumir verða meira og minna mislukkaðar manneskjur fyrir að vera of mikið, alveg einsog sumir liðu fyrir að hafa of lítið áður og mislukkuðust á þann .veg. í — Þú ert að fást við peninga mál alla daga, geturðu sagt mér: eru ekki flestir Reykvíkingar blankir eftir jólin? — Jú, margir, og þeir eru lík lega nokkuð lengi að jafna sig ’ eftir jólin, fjármálalega séð. Það er eðlilegur hlutur. Margir hafa alls ekki úr of miklu að spila. ; Ef menn hafa nóga peninga geta þeir náttúrlega notað þá einsog þeim sýnist, en mín reynsla er sú að þeir sem hafa eitthvert fé handa á milli fari betur með það en hinir sem lítið eiga. Það er þessi gamla regla að það er miklu þægilegra ’fyrir mann að safna eftir að hann er búinn að eignast fyrstu tíu þúsundin heldur en ef hann ' hefur ekki neitt nema kaupið Sitt. Þetta er salrænt. Þeim sem á lítið eða ekkert er sama þótt hann eyði þessu litla sem hann fær; það munar samt ekkert um það, finnst honum. — Er það þú ráðlegging þín til fólks að eiga eitthvað í spari sjóði? — Já, rétt er það, en þá kom um við að merkilegu spursmáli^ I sambandi við velferðarríkið. Sú spurning hlýtur að vakna hjá okkur þegar velferðarríkið er komið á laggirnar til hvers verið er að þessu. Við skulum segja að blásnauður maður og milljón ari séu saman a gangi á götunni, þeir þekkjasí, sem betur fer þekkjast ríkir menn og fátækir á þessu landi, og það kemur bíll og ekur á þá og þeir fara báðir ú sjúkrahús. Svo einkenni- lega vill til að báðir eru á sömu stofunni, klæddir í sömu spítala fötin, þeir hafa sama lækni og sama hjúkrunarkonan annast þá. Munurinn er bara sá að ef það er eitthvað sem gera þyrfti umfram það sem sjúkrasamlag og tryggingar borga þá getur ríki maðurinn veitt sér það, en nú er komið svo að einhver annar aðili mundi líklega greiða þann kostnað líka fyrir fátæka manninn. Og þá er spurningin: hvers vegna eiga menn að vera að safna peningum ef þeir hafa raunverulega ekkert með þá að gera? Velferðarþjóðfélagið skaff ar manninum það sama hvort sem hann er ríkur c-ða fátækur. En svp komum við að hinu, það er þessi skratti sem í mannin- um sjálfum býr þegar hann fæð ist, löngunin til að eignast eitt- hvað, þörfin fyrir að vita að hann eigi eitthvað í bankabók- inni eða kistuhandraðanum, einsog það var kallað í gamla daga, þörfin fyrir að vita af því að hann þurfi ekki að vera uppá aðra kominn. Sumt gamalt fólk, og þarf ekki gámalt fólk til, er stundum að brjóta heilann um hvort það sé ekki rangt að sækja tryggingarféð sitt. En það á þetta, það er búið að leggja inn fyrir þessu kannski í mörg ár. — Greiðsla til trygginganna er bara sameiginlegur skyldu- sparnaður allrar þjóðarinnar, það eiga þetta allir og fá allir að njóta þess. — Auðvitað, það er ekkert annað. En það eimir samt eftir hjá fólki að því finnst það vera að taka frá öðrum. Velferðar- þjóðfélagið hefur sína kosti og sína galla. Það er ákaflega elsku legt að maður sem ekkert á til að kaupa hluti, til að kaupa heilsuna, kaupa lífið, skuli ekki þurfa að óttast neitt. En svo kemur hitt: hvers vegna eiga menn að neita sér um að kaupa alls 'konar lífsþægindi, skemmt anir og ferðalög til þess að spara og eignast peninga? Til hvers á maður að vera að leggja fyrir peninga? Velferðarríkið kemur því inn hjá mönnum að þeir þurfi þess ekki. En samt bygg- ist velferðarríkið á því að pen- ingar séu lagðir fyrir. — Já, það er rétt, velferðar- ríkið krefst mikillar félags- hyggju, mikils þegnskapar af borgunum. — Akkúrat, og maðurinn sem sparar peninginn, sparifjáreig- andinn er burðarásinn í þjóð- félaginu. Hann skaffar þjóðfé- laginu það fjármagn sem það þarf til að geta verið velferðar- þjóðfélag. Ef hann gerir það ekki, ja hvað þá? Þá fer allt í hönk. — Svo þú heldur að fólk mundi fara betur með peninga ef það ætti svolítið. — Það er mín reynsla eftir áratuga starf við sparifé, í sam- skiptum við fólk og í samskipt- um við sparifé. — Þá vil ég spyrja að öðru: hvað eru það mörg prósent þjóð arinnar sem eiga sparifé? — Ákaflega margt fólk á sparifé. Þá langar mig til að koma að öðru: Margir halda að hinir svokölluðu ríku menn vaði í peningum uppfyrir haus. En mín reynsla að ríku mennina vanti alltaf peninga. Þeir eru í athafnalífinu, eiga allskonar eignir sem eru svo og svo mikils virði, en fjármagnið hrekkur varla til að halda öllu saman gangandi. Afturámóti ef allt yrði selt og upp gert þá kæmi kannski í ljós að þeir eru flug- ríkir menn. En. þeir eru ekki með lausa peninga. Það er al- menningur sem á sparifé í bönk- um og sparisjóðum. Hitt er svo hin hrvggilega hlið á þessu máli hvernig hefur verið farið með sparifjáreigendur á umliðnum áratugum. Það er ferlegt að hugsa til þess að ekki skuli vera eftir nema tveggjeyringur af hverri krónu sem til var fyrir 30 árum. — Er það svo bágborið? — Já, ef maður miðar við vissa hluti, t. d. fasteignaverð, húsaverð hér í Reykjavík 1939, þá getur maður sagt að ekki séu eftir nema 2—3 aurar. — Telurðu þá að ekki þurfi að ráðleggja fólki að safna spari fé? — Það hefur tilhneigingu til þess, þetta er meðfætt, margt eldra fólk getur varla eytt eyri þótt það fái alla þessa sósíal hjálp, finnst einhvern veginn lífsnauðsyn að spara. — Tekur fólk út mikið spari fé fyrir jólin? — Já, það gerir það, þá kem ur það góða upp í manninum, að gleðja aðra, og njóta gleði með því að gleðja aðra. Það fólk sem er lengi að jafna sig eftir jólin, það er fólk sem ekki hefur komizt yfir fyrstu tíu þús- undin. Hinir sem komnir eru yf- ir markið gæta sín að ganga ekki ú innstæðuna of mikið. — Er meira um sparnaðar- hugsun hjá eldra fólki en yngra? — Já, ungt fólk hefur alltaf meiri tilhneigingu en eldra fólk til að skemmta sér, svo er það að koma sér fyrir svo það er eðlilegt að það geti ekki safnað sparifé. Sparifjársöfnun tilheyr- ir fremur fullorðinsárunum. Ungt fólk langar til að njóta lífsins, fara í ferðalög. Ég er ekki að tala um þá menn sem ekkert loðir við hendurnar á vegna óreglu, það er alltaf á- kveðið brot af þjóðinni þannig gert. / — Hefur það brot stækkað? — Ég held það. — Hvað hefur þú verið lengi í þessum kauphallarbissniss? — Þrjátíu og sex ár. Það eru 36 ár síðan Kauphöllin var stofnuð. Ég var ekki stofnandi hennar, en ég gekk inni hana þegar hún var þriggja mánaða. Kannski má ég geta þess að þeg ar hún var búin að starfa í þrjá manuði var hún búin að hagn- ast um tólf krónur og fimmtíu aura brúttó. Það var afrekstur- inn af þriggja manaða starfi. Og launin mín hjá fyrirtækinu fyrsta árið voru 75 krónur á mánuði. En ég vár ekki bara að hugsa um laun, heldur hitt hvort hægt væri að skapa eitthvað landinu áður. Þetta hefur heppn nýtt sem ekki hafði verið til í azt. — Og þú heldur að vandræða mönnum hafi fjölgað, þeim sem eru ábyrgðarlausir í lífi sínu og í meðhöndlun fjár. — Já, því miður, og það er eðlilegt. Gamla fólkið gat ekki eytt peningum. En nú eru freist ingarnar alls staðar. Menn fá vikukaupið sitt á föstudegi og þá standa allár dyr upp á gátt, allir vilja bjóða manninum uppá að eyða því undireins. — Að vera dyggðugur fyrir skort á freistingum, það er ekki hægt í dag. — Nei, einsog Knut Hamsun segir um konu ísaks gamla í Gróðri jarðar: Hún var dyggð- ug af því það freistaði hennar ekki neitt. Þar sem engin freist ing er er engin dyggð að vera dyggðugur. Það er margt sem hér kemur til greina, aðstaðan í lífinu, trúarskoðanir manna, áhrif á barnsaldri, samneyti við samborgarana, tíminn... — Segðu mér nú í einlægni, hvað mundirðu gera ef þú værir f jármálaráðherra á þessu landi? — Ég vona að forsjónin varð- veiti mig frá því að verða það nokkurn tíma. En ég skal segja þér að þegar menn tala um starf fjármálaráðherra þá gera þeir sér oft ekki ljóst að hann er alls ekki alvaldur í fjármálum. Hann á að ráðstafa fjármagni því sem er til ráðstöfunar og stundum jafnvel ráðstafa því sem ekki er til, en um það ræður alþingi mestu. Samt hefur hann anzi mikinn tillögurétt, hefur mikil völd í fjármálum. En ef ég væri í því embætti yrði ég sennilega að ýmsu leyti íhaldsamur fjár- málaráðherra. Ég mundi náttúr lega líta í kringum mig hvar við getum borið niður til að afla fjár til að byggja upp þetta land. Ég hef ekki farið dult með skoðanir mínar að undanförnu þótt ekki sé ég stjórnmálamað- ur, væri sennilega orðinn stjórn málamaður fyrir löngu ef ég kærði mig nokkuð um það, en

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.