Alþýðublaðið - 24.12.1969, Page 25

Alþýðublaðið - 24.12.1969, Page 25
JOLARLAÐ 1969 25 ■4 DJINGIS KAN mongólski sfríBsgammurinn óttalegi sem lagði undir sig heiminn „ÞÓTT frásagnir af öllum bardögum öðrum en þeim, er Djingis-Kan háði um sína daga, væru þurrkaðir út af spjöld- um sögunnar, mundu herfor- ingjar okkar tíma samt sem áður eiga aðgang að ótrúlega auðugri fróðleiksnámu um her- stjórnartækni og hernað“, seg- ir ameríski hershöfðinginn, Douglas MacArthur. Það er skoðun MacArthurs, að hermaðurinn geti ekki lært sína lexíu með æfingunni einni saman. Vopnin breytast, en samt verður hann að líta um öxl til liðinna tíma til þess að skilja óumbreytanlegar grund- vallarreglur hemaðarlistarinn- ar. Hvergi er þá um auðugri garð • að gresja en í sögu mongólska herkonungsins, sem óafmáanlega risti nafn sitt með blóðugum rúnum á blöð mann- kynssögunnar fyrir 750 árum. Með misskunarlausu vopna- valdi myndaði Djingis-Kan víð- lendasta ríki, sem veröldin hef- ur nokkru sinni litið. Það teygði sig alla leið frá Kyrrahafi vest- ur í miðja Evrópu og spann- aði mestan hluta gamla heims- ins auk þess að standa yfir höf- uðsvörðum meira en helmings af öllum íbúum hans. Karakor- um í Innri-Mongólíu var vold- ugasta höfuðborgin í austri, og veldi Djingis-kan ógnaði ger- völlum kristna heiminum. Vegur Napóleons endaði í niðurlægingu. Djingis-kan varð aldrei sigraður í neinni meiri- háttar orustu. Hann náði há- um aidri. Þegar hann dó, stóð hann á hátindi frægðar sinn- ar, og ríki hans var enn í stöð- ugri útþenslu. Cesar og Alex- ander mikli áttu báðir fyrir- rennurum sínum mikið að þakka, sem höfðu skapað róm- verska herinn og makedóniska herdeildaskipulagið. Mongólski stríðsgammurinn smíðaði sjálf ur sína hernaðarvél. Herir hans voru næstum alltaf fámennari en andstæðinganna. Sennilega hefur hann aldrei haft á að skipa meira en 200.000 manna liði, en með þeim litla liðstyrk malaði hann undir sig milljóna- ríki. Með fullum rétti má því telja hann sigursælasta hers- höfðingja veraldarsögunnar. „Djingis-kan“ þýðir ef til vill „voldugasti vopnahöfðinginn“. Hann valdi sér sjálfur nafn þetta. Á yngri árum bar hann nafnið Temudjin. Þegar Temudjin var 13 ára, var faðir hans drepinn á eitri. Drengurinn var þá samt sem áður þegar orðinn eins stór og sterkur og fullorðinn maður. Hann gat setið allan daginn á hestbaki og handleikið boga sinn með ósvikna krafta í köggl um. Og vilji hans var einnig sterkur. Hann var fastákveð- inn að verða eftirmaður föður síns sem höfðingi hirðingja- þjóðflokksins, sem lifði við skorinn skammt á hrjóstrug- um hásléttum Asíu. En hirð- ingjar þessir kærðu sig ekkert um hann, og aðrir höfðingjar ákváðu að ryðja þessum unga keppinaut úr vegi. Þeir eltu Temudjin eins og flýjandi dýr um gresjurnar, tóku hann hönd um, settu þungt tréok um háls honum og fjötruðu þar við hendur hans. Nótt eina sló hann fangavörð sinn með okinu og hljóp að því búnu sína leið milli raða sofandi hirðingjanna. Hann faldi sig niðri í fljóti einu, meðan óvinir hans riðu fram og aftur um bakka ár- innar í leit að honum. Síðan skreið hann upp úr ánni og tókst að fá veiðimann einn, sem hann rakst á, til þess að losa sig við okið. Gamlar sagnir um unglings- ár hans herma frá því, að oft- sinnis hafi hann naumlega bjargast frá bráðum bana vegna svika og ofsókna óvinanna, en hann hélt stöðugt fast við þá ákvörðun að berjast til höfð- ingjatignar í þjóðflokknum. Ein hverju sinni lá Temudjin á gaddfreðinni gresjunni skámmt frá bækistöðvum fjandmann- apna með djúpt örvarsár á háls ínum. Stríðsfélagi hans einn saug þá blóð og óhreinindi úr sárinu og klæddi sig því næst úr fötunum og breiddi yfir vin sinn. Að því búnu laumaðist hann inn í hreiður óvinanna, þar sem hann stal mjólk handa Temudjin og tókst loks að flytja hann á öruggan stað. Smám saman fjölgaði áhang- endum hans, og fylgismenn föður hans tóku að safnast um hann. Innan við tvítugsaldur var hann orðinn höfðingi. Þeg- ar því takmarki var náð, tók hann að leggja undir sig aðra ættflokka með ofbeldi og und- irferli. Hann var ætíð foring- inn og drap undantekningar- laust sérhvern þann, er gerði sig líklegan til að deila völd- unum með honum. Togrul hafði verið vinur föð- ur Temudjins og hjálpað synin- um, meðan erfiðleikar hans voru mestir. En þegar gamli höfðinginn vildi ekki beygja sig fyrir unglingnum, lét Temu- djin drepa hann. Á hinn bóginn launaði hann ríkulega þeim höfðingjum, sem lutu honum af fúsum vilja. Árin liðu, og hann valdi höf- uðbækistöðvar sínum stað í Karakorum — Borg svarta sandsins, sem þá var tjaldborg og áningarstaður við hina fjöl- förnu ferðamanna- og flutn- ingaleið frá austri til vesturs. Temudjin þyrmdi hins vegar flutningalestunum, því að þær voru liður í framtiðaráformum hans. Hann var stórvaxinn og kraftalega byggður, klæddur gæruskinnsfeldi og leðri, og göngulagið stirt og klunnalegt eins og þeirra, sem eyða æv- inni á hestbaki. Veðurbitið og djúphrukkað andlit hans var smurt feiti til varnar kuldan- um og nístandi næðingi há- sléttunnar. Varla er trúlegt, að hann hafi þvegið sér einu sinni á ári, hvað þá oftar. Augun sátu gleitt undir slútandi yggli brúnum umgirt rauðum hvörm- um og þrútnum af stöðugum sandmettuðum jóreyk, og í þeim speglaðist glóandi lífs- orka og ósveigjanleg. Hann tal- aði fátt og aðeins, þegar hann hafði hugsað mál sitt lengi og rækilega. Við fimmtugsaldur hafði Temudjin — Djingis-kan — barið saman ættflokkana í Mið- Asíu í eina harðsvíraða heild, þar sem hann einn réð lögum og lofum. Frægð hans barst vítt og breitt um víðáttur gresj anna. Samt er ekki líklegt, að nafn hans og saga hefði varð- veitzt til siðari tíma, ef fjand- samleg ör hefði ratað réttu leið ina í veikasta hlekkinn í her- búnaði hans um þessar mund- ir. Stórkostlegustu hernaðar- sigra sína vann hann síðustu 16 ár ævinnar. En þegar hér var komið sögu, hafði hann byggt þá hernaðarvél, er átti eftir að mala undip sig heim- inn. Og nú hófst hann handa. í austri var Kína — elzta menningarland jarðarinnar. — Það skiptist í tvö ríki, Kína og Sung. Á hinn bóginn lágu lönd múhammeðstrúarmanna, — sundurleit ríki, er vaxið höfðu upp úr landvinningum Mú- hammeðs og eftirmanna hans. Og ennþá lengra í vestri teygð ust sléttur Rússlands, sem þá var deilt í mörg smáríki, og þar vestur af Mið-Evrópulönd- in stór og smá. Djingis-kan lét fyrsta högg- ið ríða á Kína. Hann brauzt gegnum kínverska múrinn, og herskarar hans flæddu inn yf- ir víðáttur Kína eða Norður- Kína. Höfuðborgin, Jenking, sem nú heitir Peking, var tek- in herskildi, og keisarinn flúði sem fætur toguðu. Ringulreið- in var alger. Þremur árum síðar réðst Djingis-kan í vesturátt. Eftir nokkurra mánaða herför voru mongólsku hermennirnir í óða- önn að ræna hina glæsilegu höfuðborg, Samarkand, og sold dauða. Næstu árin sóttu herir Djingis-kan niður á sléttur Indlands, og þvínæst stormuðu þeir vestur Mið-Austurlöndin, áfram yfir Rússland og inn í Mið-Evrópu. Alls staðar fóru þeir eins og logi yfir akur. Ekkert fékk staðizt. Hvað olli þvílíkri sigursæld? Djingis-kan átti ósveigjanlega einbeitni, of- urmennska hrossaheilsu, and- lega og líkamlega, auk þess að vera ófyrirleitinn og tillitslaus út í yztu æsar. En yfirburða hans verður þó einnig að leita annars staðar. Óvinir hans hafa skilmerkiiega lýst því, hvern- ig stríðsvél hans starfaði. Og þar komumst við á sporin, er vísa okkur leiðina að leyndar- málum hans. Djingis-kan vílaði ekki fyrir sér að fleygja hefðbundnum venjum út i yztu myrkur, ef því var að skipta. Hann mætti vandamálunum á miðri leið og réðst að þeim frá nýjum og áð- ur óþekktum hliðum. Að vísu notfærði hann sér fornar og við urkenndar aðferðir, útbúnað og vopn. En allt þetta lagði hann í hendi sér ,svo að það þjónaði sem bezt markmiðum hans. Hann varð fyrstur til að ala upp hermenn frá blautu barns- beini, og fyrir 700 árum síðan fann hann upp „hið algera EFTIR EDWIN MULLER Teikningar eftir mong- ólska lamann Lodai

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.