Helgarpósturinn - 13.10.1994, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 13.10.1994, Blaðsíða 5
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 5 I FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 Óánægja íbúa Ólafsvíkur vegna sameiningar sveitarfélaga á utanverðu Snæfellsnesi Byggð á misskilningi ÁKMÁ SUPRÁ HVERFISGÖTU 64, SÍMI 622 322 Gunnar Már Kristófersson, fynverandi sveitarstjórí Neshrepps utan Ennis, skrifar. Síðastliðinn mánudag birtist í Morgunpóstinum frétt sem rekja má til bæjarstjóra Snæfellsbæjar þar sem rætt er um að mikil óánægja sé meðal íbúa Ólafsvíkur vegna sameiningar sveitarfélaganna Neshrepps utan Ennis, Ólafsvíkur, Staðarsveitar og Breiðuvíkur- hrepps. Undirritaður telur að sé um einhverja óánægju að ræða hljóti hún að vera byggð á misskiln- ingi, og sér sig því knúinn til að leiðrétta þann misskilning. Fréttin, eða viðtalið við bæjar- stjórann, ber það raunar með sér að um misskilning sé að ræða, en þar segir meðal annars að nettóskuldir við sameininguna hefi verið kr. 93 þúsund á íbúa í Ólafsvík, en kr. 77 þúsund í Neshreppi. Hið rétta er hins vegar að nettóskuldir í Ólafs- vík voru kr. 94 þúsund á íbúa en kr. 74 þúsund í Neshreppi eða kr. 20 þúsund á hvern íbúa verri í Ólafs- vík. Hvað heildarskuldir sveitarfélag- anna fyrrverandi varðar þá skuld- uðu íbúar Ólafsvíkur kr. 219 þús- und á hvern íbúa en íbúar Nes- hrepps kr. 142 þúsund á íbúa eða kr. 77 þúsund verri staða í Ólafsvík. Vegna stöðu Ólafsvíkurkaup- staðar var um það rætt í viðræðum um sameininguna að skuldajafnað yrði, þær upphæðir sem talað var um í því sambandi voru að mínu mati ásættanlegar fyrir íbúa Nes- hrepps, Staðarsveitar og Breiðavík- urhrepps. í viðtalinu, eða fréttinni, er sagt að gert hafi verið ráð fyrir að skuld- ir Neshrepps væru mun lægri en raun varð á. Það er auðvitað ekki rétt. Þegar viðræður um samein- ingu þessara sveitarfélaga hófust í alvöru í september 1993 var ákveðið að taka mið af fyrirliggjandi árs- reikningum sveitarfélaganna þar til ársreikningar ársins 1993 lægju fyr- ir. Það var auðvitað vitað að íjár- hagsstaða Neshrepps mundi versna á árinu 1993, og frá því skýrt, og kom þar tvennt til. Framkvæmdir í sveitarfélaginu að upphæð kr. 27 milljónir og að tekjur sveitarfélags- ins lækkuðu að raunvirði um kr. 8 MORQUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 10. OKTÚBER tt I a bönnuð börnunr yngri eo 16. ara. BI0B0RGIN syncl l<l 4W - 6[)l} - 9 - 1Æ Myndin er strang kSAGA-BIO - ■ íi cl ld 9 o g m sýnd í Sagabíó í THX synd i Bioborginm i Digital D^J^L Veruleg óánægja í hinu nýja sameinaða sveitarfélagi Snæfellsbæ Vilji fýrir að slrta samslarfinu SkukSr Neshœpps miklu meiri en áætíað var og msarar nyg&a*™* 2E3s»« A< í;J> ríaióna N'ííhiuVÍ'4 milljónir. Ársreikningar sveitarfélaganna fyrir árið 1993 lágu fyrir í febrúar og á fundi í mars voru öllum sveita- stjórnarmönnum á svæðinu kynnt- ir þessir reikningar. Mér var ljóst að skuldir hins nýja sveitarfélags yrðu mikiar og svig- rúm til framkvæmda yrði því ekki mikið fyrsta árið. Það var um það talað fljótlega í viðræðum um sam- einingu þessara sveitarfélaga að nauðsynlegt væri að lækka greiðslubyrði hins nýja sveitarfé- lags. Það var meira að segja um það rætt að tii þess þyrfti um 200 millj- ónir kr. til lengingar á lánum og greiðslu á skammtímaskuldum. Ég fagna því auðvitað að tekist hefur að fá kr. 40 milljónir vonandi hag- stætt lán til þeirra hluta. En betur má ef duga skal, ekki aðeins vegna stöðu fyrrverandi Neshrepps held- ur einnig vegna stöðu fyrrverandi Ólafsvíkurkaupstaðar. Hvað ráðningu endurskoðanda varðar er staðreyndin sú að endur- skoðunarskrifstofa Sigurðar Stef- ánssonar hefur endurskoðað árs- reikninga Neshrepps frá 1974 eða síðastliðin 20 ár. Hagskil hefur end- urskoðað reikninga Ólafsvíkur frá árinu 1988. Ég veit ekki til að at- hugasemdir hafi verið gerðar við störf þessara fyrirtækja, en auðvitað er rökrétt að það fyrirtækið sem starfað hefur lengur á svæðinu yrði ráðið í endurskoðun fyrir hið nýja sveitarfélag. Við sameiningu sveitarfélaga, sem ég vona að verði meira af í framtíðinni, er og verður erfitt, ef ekki óframkvæmanlegt, að velja saman sveitarfélög sem eru fjár- hagslega, þjónustulega og félags- lega eins stödd. Það hélt ég að all- ir vissu. Ég var einn af þeirn sem var mikill áhugamaður um santein- ingu sveitarfélaga og er enn. Ég tel að sameining sveitarfélaganna á utanverðu Snæfellsnesi hafi ver- ið og sé þessu svæði nauðsynleg og að allar forsendur séu fyrir hendi til að þessi sameining geti tekist vel, en það er mjög slæmt ef í upphafi á að fara að deila um hver sé að borga fyrir hvern. Undirritaður telur tímanum bet- ur varið í að sameinast um að þrýsta á stjórnvöld til að standa við þau fyrirheit sem þau gáfu fyrir sameiningu sveitarfélag- anna. Ég trúi því að fljótlega fari íbú- ar í hinu nýja sveitarfélagi á utan- verðu Snæfellsnesi að sjá þann ávinning sem af sameiningunni mun leiða. Ég óska bæjarstjóra og bæjarstjórn velfarnaðar í starfi. Gunnar Már Kristófersson fyrrverandi sveitarstjóri Neshrepps utan Ennis GENUINE ARMY SURPLUS

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.