Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.10.1994, Qupperneq 8

Helgarpósturinn - 13.10.1994, Qupperneq 8
8 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 iðskiptablaðið, undir ritsjórn Óla BjöRNS Kárasonar, hefur fram að þessu verið til húsa í Kópavogin- um, í húsi Almenna bókafélagsins. í næstu viku mun blaðið flytja starf- semi sina í Síðumúla 14 cn það hús hefur meðal annars hýst Vísi, Dag- blaðið, Vikuna og DV. Á morgun, föstudag, verður svo haldinn hlut- hafafundur hjá Viðskiptablaðinu. Fyrir fundinn liggur tillaga sem heimilar aukningu á hlutafé, minnst fimm milljónir króna og mest átta milljónir króna. MORGUNPÓSTUR- INN hefur öruggar heimildir fyrir því að tillagan verði samþykkt og er bæði um að ræða aukið hlutafé og nýja hluthafa... SlGURÐUR TÖMAS BjÖRGVlNSSON, framkvæmdastjóri Alþýðuflokks- ins, hefur lengi verið skráður rit- stjóri Alþýðublaðsins þótt lítið sem ekkert sjáist til hans á ritstjórninni. Nú hefur verið ákveðið að Hrafn JÖKULSSON taki við ritstjórn blaðsins og hefur hann störf strax á mánudaginn eftir helgi. Fyrir á blaðinu eru þeir Jón Birgir Pétursson, Sæmundur Guðvinsson og StefAn Hrafn Hagalín. Hrafn fær fullt umboð til þess að stýra blaðinu og er búist við einhverjum breytingum á ritstjórninni og jafn- vel fjölgun. Ráðning Hrafns er hugsuð til bráðabirgða fram yfir kosningar, en vel er inni í myndinni >. að hann verði ráðinn til frambúðar. J Alþýðublaðsmenn eru enn að gæla við stækkun blaðsins og hugsa sér jafnvel að fara upp í tólf síður dag- lega. Forsmekkurinn af því birtist föstudaginn 28. október þegar 40 síðna afmælisblað verður gefið út í tilefni þess að þann 29. á blaðið 75 ára afmæli. Varðandi ráðningu Hrafns í stól ritstjóra má rifja það upp að um síðustu áramót ritaði Hrafn Sigurði opið bréf í Pressunni sálugu, þar sem hann svaraði fyrir mcint skot í sinn garð. Um var að ræða „Guccigreinina“ frægu um Önnu Ólafsdóttur Björnsson. Þar lætur Hrafn að því Jiggja (svo vægt sé til orða tekið) að Sigðurður Tóm- as sé hálfgerður pappírsritstjóri („meintur ritstjóri“) og gefur í skyn að Sigurður Tómas þurfi fyrr en seinna að finna sér annan starfa. I'etta gæti bent til þess að Hrafn sé forspár... Dr. Helgi Gunnlaugsson félagsfræðingur Ótti Islendinga við glæpi fer vaxandi Þótt afbrot á Islandi hafi ekki færst í aukana undanfarin fimm ár óttast æ fleiri íslendingar glæpi. Yf- ir 90 prósent þeirra telja afbrot mikið vandamál á Islandi. „Islend- ingar hafa orðið ekki minni áhyggj- ur af afbrotum en nágrannar þeirra í Vestur- Evrópu," segir Dr. Helgi Gunnlaugsson lektor í félagsfræð- um. íslendingar hafa löngum stært sig af því að búa í landi þar sem menn geta svo að segja gengið óhultir um göturnar. Samanborið við önnur lönd er glæpatíðni á Is- landi - í það minnsta af alvarlega taginu - enn með því lægsta sem gerist. En þótt glæpir hafi ekki færst í aukana undanfarin ár, samkvæmt nýrri samanburðarkönnun, sem Helgi vann í samvinnu við Félags- vísindastofnun Háskóla íslands á málum sem komið hafa inn á borð Rannsóknarlögreglu ríksins, telja tæp 90 prósent Islendinga afbrot mikið vandamál hérlendis. Það er töluvert hærri prósenta en taldi af- brot mikið vandamál á íslandi árið 1989. Samanborið við 1989 hefur fjölg- að mjög í hópnum sem finnst af- brot á Islandi mjög mikið vanda- mál, eða um 20 prósent. Árið 1989 töldu 12 prósent íslendinga afbrot mjög mikið vandamál, en 32 pró- sent gera það í dag. Sami fjöldi, eða 56 prósent, taldi afbrot frekar mikið vandamál á árunum ‘89 og ‘94 en á móti kernur að fækkað hefur veru- lega í þeim hópi sem finnst afbrot á Islandi frekar lítið vandamál. Að- eins 12 prósent Islendinga telja af- brot lítið vandamál í dag saman- borið við 31 prósent árið 1989. Einstök Ijótari mál En hverja mætti telja skýringuna á aukinni hræðslu almennings við afbrot á Islandi? „Þegar ég kom að utan úr námi frá Bandaríkjunum árið 1987, og allt til haustsins 1989, var engin sér- stök ofbeldisumræða á Islandi. Það var ekki fyrr en um haustið sem of- beldisumræða tröllreið öllu í fjöl- miðlum. Hún náði meira segja inn í borgarstjórn. Umræðan gekk svo langt að rætt var unr að koma fyrir videóupptökuvélum í miðbænum. Síðan þá hefur reglulega komið upp umræða um ofbeldi, í það minnsta einu sinni á ári. Það kemur því ekki á óvart að viðhorfm til af- brota hafi tekið breytingum. I eðli sínu má líka segja að ofbeldisumr- æðan hafi breyst. Við fáum kannski einstök ljótari mál sem fá meiri umfjöllun, samanber málið þegar ungíingsstúlka sparkaði í kynsystur sína í miðbænum nreð skelfilegum afleiðingum, fyrir tæpum tveimur árum. Þessi ljótu mál gætu ef til vill mýkt þennan mun sem fram kem- ur varðandi aukinn ótta almenn- ings. Skýringin gæti verið sú að ein- stök mál sitja meira í fólki, þótt ekkert bendi til þess að afbrot hafi farið vaxandi, samkvæmt saman- tekt minni um fjölda og eðli mála frá RLR. Á hinn bóginn hafa fréttir tengdar afbrotum aukist, til dæmis í Morgunblaðinu. En árið 1989 voru 264 afbrotafréttir að finna í Morgunblaðinu en 1994 voru fréttir af afbrotum í sama blaði 409 tals- ins.“ Líkt hjá RLR og Reykja víkurlögreglunni Af samantektinni um eðli og (jölda mála frá RLR að dæma, virð- ist sem innbrotum hafi lítillega fjölgað á þessu tímabili. Helgi segir hins vegar að ofbeldismálum hafi fækkað. Kemur það á óvart ef höfð er í huga aukin umfjöllun fjölmiðla um ofbeldi. „Hjá Reykjavíkurlög- reglunni virðist nokkuð svipað uppi á teningnum og hjá RLR. En Guðmundur Guðjónsson, sem meðal annars hefur skrifað um þessi mál á opinberum vettvangi, hafði ekki ósvipaða tilfinningu gagnvart Reykjavíkurlögreglunni þegar hann hlýddi á fyrirlestur um þessi mál hjá mér.“ Aðrir málaflokkar standa svo að segja í stað milli ára hjá RLR og einnig sá málafjöldi sem komið hefur inn á borð fíkniefnalögregl- unnar. Aukning ofbeldismála í samfélaginu kemur hins vegar nok- uð heim og saman við aukna hræðslu almennings við ofbeldi, en frá 1989 hefur þeim sem óttast of- beldi mest fjölgað úr 14 prósentum í 30 prósent. Á móti kemur að færri virðast líta á fíkniefnavandann senr rnesta vandann. Þeim sem það gera hefur fækkað úr 40 prósentum í 31 prósent. Umræður á villigötum Eins og kom fram í frétt MORG- UNPÓSTSINS á mánudag úr sömu könnun - er, þrátt fyrir að Island sé með hvað minnstu fangatíðni í heiminum, jafn hátt hlutfall sí- brotafólks hér á landi og í Banda- ríkjunum. En þar í landi er hvað hæsta hlutfall síbrotafólks að finna í heiminum, jafnvel þótt refsingar séu mun harðari í Bandaríkjunum. Segjast yfir 80 prósent aðspurðra nú á dögum, samanborið við 70 prósent fýrir fimm árum, telja refs- ingar of vægar. „Varðandi þessi svör er auðvitað spurning hvort menn séu að hugsa um tiltekin brot eða almenn brot. Það er hugsanlegt að menn hafi í huga kynferðisaf- brot gangvart börnum, nauðganir og ofbeldisbrot, þegar þeir svara þessari spurningu. En eins og flest- Telur þú að afbrot séu mikið H Hvert af eftirtölduin afbrot- eða lítið vandamál hér á landi? H um telur þú mest vandamál I hér á landi? Hvert af eftirtöldu telur þú mikilvægasta ástæðu þess að fólk leiðist út í afbrot? Vægar refsingar Dr. Helgi Gunnlaugsson lektor í félagsfræðum „íslendingar hafa orðið ekki minni áhyggjur af afbrotum en nágrannar þeirra í Vestur- Evrópu.“ um er kunnugt hafa umræður um of vægar refsingar verið tengdar slíkurn brotum upp á síðkastið.“ Einnig hefur komið fram að harðari refsingar hafa ekki dugað til að fækka síbrotafólki í Bandaríkj- unum. Við nánari athugun á síaf- brotahópnum hérlendis hefur komið á daginn, hjá til dæmis þeim sem koma við sögu fíkniefnalög- reglunnar, að það er meira og minna fólk sem á í miklum félags- legum vanda. „Þetta er hópur sem virðist fremur þurfa stuðning en harða refsingu,“ segir Helgi. Er það álit hans, að líkt sé konrið fyrir umræðunni um að notkun fíkniefna orsaki ofbeldi, og umræð- unni um að ofbeldi í sjónvarpi valdi ofbeldi á götum úti; þetta séu um- ræður á villigötum. En til dæmis landlæknir hefur borið það á borð opinberlega, og fleiri, að ofbeldis- myndir orsaki ofbeldi á götum úti. Vandinn eigi sér mun dýpri rætur. „Þetta er mjög yfirborðsleg túlk- un. Til staðfestingar á þessari sam- Eru refsingar við afbrotum hér á landi of strangar, hæfilegar eða of vægar? félagslegu sýn á orsökum ofbeldis má benda á að félagsleg einkenni, til dæmis síbrotaunglinga, meðal annars þeirra sem beita ofbeldi, hafa iðulega tilhneigingu til að fel- ast í brotnum fjölskyldutengslum þar sem ofbeldi hefur viðgengist, skólaganga verið í molurn og efna- hagsleg kjör bág,“ segir Helgi, en bætir svo við. „En svo er aftur ann- að mál að misnotkun vímuefna getur verið fylgifiskur þessa fólks og ofbeldismyndir haft meiri áhrif á þennan hóp en aðra í samfélaginu. Þetta er hins vegar ekki orsökin.“ Dauðarefsingar Tengt refsingunum er annað sem vekur athygli í þessari könnun, þótt ekki hafi það breyst frá 1989, en 10 prósent Islendinga virðast hlynntir því að taka upp dauðarefsingar. „Það er þó ekki há prósenta sam- anborið við hve margir eru hlynnt- ir dauðarefsingum, til dæmis í Bandaríkjunum. Þar í landi er stuðningur við dauðrefsingar mjög mikill. I nánast hverju fylki er orð- inn meirihlutastuðningur við dauðrefsingar sem hefur sýnt sig í því að á síðustu 10 til 20 árum hefur hvert fylkið á fætur öðru verið að taka upp dauðarefsingar. Ég held að hér á landi sé óvenjumikil and- staða við dauðarefsingar saman- borið við önnur lönd, en ég get þó ímyndað mér að við séum ekki óra- fjarri hinum Norðurlöndunum. Þar er kannski ívið meiri stuðning- ur. Það, sem er hins vegar athyglis- vert við þessi 10 prósent sem hlynnt eru dauðarefsingum, er að þar er í meirihluta ungt fólk.“ -GK Upplýsingar um ráðstöfunarfé Ólafs G. Ekkert um 1993 Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra hefur enn ekki veitt sundurliðaðar upplýsingar um hvernig ráðstöfunarfé ráðherrans var varið á síðasta ári. MORGUNPÓST- URINN hefur í hálfan mánuð beðið um sundurliðaðar upplýsingar um þennan fjárlagalið hjá ráðuneytinu án árangurs. Öll önnur ráðuneyti hafa veitt þessar upplýsingar. Ólafur sendi í gær frá sér upplýs- ingar um hvernig ráðstöfunarfé hef- ur verið varið það sem af er á þessu ári. Þar kemur meðal annars fram að Samtök íþróttafréttamanna fá 200 þúsund krónur vegna starfsemi fé- lagsins, Jón Ólafsson fréttamaður fær 300.000 krónur fyrir rannsókn- arstörf í Moskvu og Nýja bíó fær 700.000 krónur fyrir kaup á sýning- arrétti á „Öruggara kynlíf'. Kór Garðakirkju er í bæjarfélagi ráðherr- ans og fær hálfa milljón króna í styrk og íslendingafélagið í Kaupmanna- höfn fær eina milljón króna vegna útitafls þann 17. júní, en stórmeistar- arnir okkar tóku þátt í mótinu. Alls eru þetta 12,4 milljónir sem ráðherr- ann hefur veitt af ráðstöfunarfé árs- ins 1994. Ráðherrann hefur sagt að ffekari sundurliðun verði ekki gefin upp. Eins og áður, bárust upplýsing- ar með símriti eftir lokun ráðuneyt- isins og ekki reyndist unnt að fá sam- band við ráðherra. Ráðherrann svar- aði heldur ekki skilaboðum á heimili sínu. Menntamálaráðuneytið hefur langhæstu upphæðina til ráðstöfun- ar eða 18 milljónir króna árlega. -Pj Sá sem helst er grunaður um að hafa myrt Valgeir Víðisson Ennþáá Sá sem helst er grunaður um að hafa myrt Valgeir Víðisson, hugði á ferð til Austurlanda síðast- liðinn sunnudag en samkvæmt heimildum MORGUNPÓSTSINS varð ekkert af þeim fyrirætlunum. Ástæðan er þó ekki sú að hann hafi verið úrskurðaður í farbann, samkvæmt upplýsingum frá Grétu Baldursdóttur, skrifstofu- stjóra hjá Héraðsdómi Reykjavík- ur. „Ég get ekkert staðfest á þessum tímapunkti,“ sagði Hörður Jó- hannesson, yfirlögregluþjónn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, þeg- landinu geirs Víðissonar var borin undir hann. Þar kom meðal annars fram að böndin bærust einkum að ein- um manni við rannsóknina og líksins hafi verið leitað í Krýsuvík. Þetta var meðal annars haft eftir heimildum innan lögreglunnar. „Við höfum yfirheyrt fullt af vitnum en engan sem grunaður er urn aðild að einhverju máli,“ sagði Hörður. „Við erum ekkert nær lausninni en við vorum í upphafi. Staðreyndin er sú að við vitum ekki hvort Valgeir hefur verið myrtur, hann hafi fyrirkomið sér eða farið úr landi." ■ Valgeir Víðisson ar frétt MORGUNPÓSTSINS síðast- liðinn fimmtudag um hvarf Val-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.