Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 13.10.1994, Qupperneq 26

Helgarpósturinn - 13.10.1994, Qupperneq 26
26 MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 Yfirlitssýningu Magnúsar Páls- sonar á Kjarvalsstöðum. Ein af eftirminnilegustu listviðburðum ársins. Salon 1994 samýning fjölmargra listamanna í Gallerí Greip. Jenny Hozer sýnir verk á Mokka kaffi. Lind Völundardóttur i Gallerii Sævars Karls. „Fallegasti óður til kaffibollans innan islenskrar mynd- listar fram að þessu. “ Gunnar Örn opnar i Gallerí Borg á laugardag. Gerður Steinþórsdóttir, Her- mann Friðfinnsson, Ingileif Thorlacius, Niels Hafstein og Hörður Nielsson opna öll, en þó hvert i sinu lagi, nema þeir tveir síðastnefndu, sýningar í Nýlista- safninu á laugardag. Rut Malinowski opnar sýningu i Norræna húsinu á laugardag. I anddyrinu eru til sýningar danskar teiknimyndaseríur. Allt er þetta undiryfirskriftinni danskir haust- dagar. Aðrar sýningar Magdalena Margrét Kjartans- dóttir í Galleri Úmbru. Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir í galleri Slunkaríki. Anna Jóhannsdóttir i gallerí Sólon Islandus. Spessi sýnir Ijósmyndir i Borgar- kringlunni. Ólafur Lárusson sýnir fram á laug- ardag i Nýlistasafninu. Alda Ármanna Sveinsdóttir opnar sýningu i Sparisjóði Garðabæjar á laugardag. Hún var meðal þeirra er sýndu list sina á Nordisk Forum. Magnús Theódór Magnússon. Kallaður Teddi, sýnir ÍRáðhúsinu. Magrét Þ. Jóelsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Dröfn Guð- mundsdóttir sýna i Hafnarborg. Arnfinnur R. Einarsson erísóf- anum i Nýlistasafninu. Ólöf Einarsdóttir sýnir listvefnað i Stöðlakoti. Árni Rúnar Sverrisson sýnir i Ás- mundarsal. Kristján Steingrimur Jónsson enn igallerii Birgis Andréssonar. Valgerður Hafstað sýnir i Lista- safni ASÍ. Samsýning fjögurra listakvenna í Galleri Art-hún. World Press Photo siðasta sýn- ingarhelgi iKringlunni. Stefáns Hilmars- sonar-vandi Sonur minn, fjórtán ára, er orðinn heltekinn af Stefáni Hilmarssyni. Hann liggur uppi í rúmi alla daga og hlustar á sólóplötuna sem hann gaf út fyrir jólin í fyrra, myndir af Stef- áni hanga uppi um alla veggi, dreng- urinn hefúr látið klippa sig eins og Stefán, og það sem verra er, hann er farinn að ganga og hreyfa sig eins og Stefán. í hvert sinn sem hann tjáir sig skýtur hann saman hnjánum, setur augabrúnirnar f spíss og fettir upp á hendurnar á sér. Þegar þetta gerist finnst mér eins og föðurást mín á drengnum sé í haettu. Ég á bágt með að trúa að þessi drengur sé búinn til úr mínum genum. Ég verð að viðurkenna að ég var hrifinn af Björgvini Halldórssyni urn árið - en drottinn minn dýri - ég trúi því ekki að Bjöggi hafi haft helminginn af væmninni sem kemst fyrir í þessum Stefáni. Hvað á ég að gera til að geta átt eðli- leg samskipti við drenginn? Ég veit að á þessum árum er hætt við að feður og synir fjarlægist. En ég á erf- itt með að sætta mig við að horfa á eftir syni mínum hverfa inn í Stefán Hilmarsson. 43 ára verslunarmaður Það er ekkert eðlilegra en að fjórtán ára drengir séu í uppreisn gegn for- eldrum sínum og stundum tekur þessi uppreisn á sig sérkennilegustu myndir. Þú getur ekki kveðið upp- reisnina niður en þú getur haft áhrif á birtingarform hennar. Fjórtán ára drengir óttast ekkert meir en að líkj- ast feðrum sínum og gera þeim eitt- hvað til geðs. Ráð mitt er því eftirfarandi: Láttu greiða þér eins og Stefán Hilmars- son, fáðu þér föt í hans stíl og láttu taka af þér mynd á ljósmyndastofú. Stilltu henni síðan upp á áberandi stað svo sonur þinn sjái hana örugg- lega — ofan á sjónvarpinu, til dæm- is. Píndu þig síðan til að hlusta á Stefán Hilmarsson í tíma og ótíma. Hafðu kassettu með honum í bíln- um, settu plötuna hans á fóninn þegar drengurinn er í þann mund að sofna og syngdu lögin hans í baði. Eftir örfáa daga mun sonur þinn verða afhuga Stefáni og líkast til breytast í þungarokkara. Frú Fjóla Skrifið frú Fjólu: Utanáskriftin er: Frú Fjóla Vesturgötu 2,101 Reykjavík Olafur Einarsson formaður F.I.F.L. er alveg gallharður á því að „Hringborð dauðans" hafi fátt eitt með fé- lagið að gera. Klorningur í F.I.F.L og félagið í fæðingarhríðum FlFLertil í umfjöllun MORGUNPÓSTSINS um félagsskap nokkurn sem gengur meðal annars undir nafninu „Hringborð dauðans“, kom fram að í burðarliðnum væri stofnun Fé- lags íslenskra fjöllistamanna. Þetta félag er þegar til og var skráð hjá Hagstofu 8. apríl 1994. Skömmu eftir birtingu greinarinnar höfðu Ól- afur Einarsson og Jóhann Valdi- marsson samband við blaðið, töldu að þarna væri aldeilis verið að fara með rangt mál og kynntu sig sem forsvarsmenn þessa félags. Þeir vilja einnig meina að gáleysislega haft verið farið með F.I.F.L. og framsetn- ingin ekki í anda stefnu félagsins. ilvað er það sem stangaðist á við meiningar ykkar? „I fyrsta lagi þótti okkur það fremur óviðurkvæmilegt að við, sem forsvarsmenn þessa félags, vorum hvergi nefndir á nafn. Auk þess finnst okkur þessi fyrsta opinbera ffásögn af félaginu ekki í takt við þá ímynd sem við viljum skapa.“ Er þetta svona virðulegt félag? „Nei, en svona einstrengingsleg birting er ekki heppileg til þess að stuðla að vexti félagsins. Það er stofnað handa þeim sem eru utan félaga en starfa samt á vettvangi lista. Það er rétt að hefja starfsemi og megin markmið er til dæmis að auðvelda aðföng fyrir þá sem starfa innan listasviðanna með því að veita félagsmeðlimum afslátt á þeim stöð- um sem listamenn skipta helst við. í framhaldi af því verður gefið út blað sem sér um að kynna félagsmeðlimi, hvort sem þeir eru ljóðskáld, tónlist- armenn, myndlistarmenn og svo framvegis, með myndbirtingum og kynningu á verkum þeirra.“ Hvað er á döfinni? „Það er náttúrlega kynning á fé- laginu og meiriháttar undirbúnings- vinna. Það verður engin sprenging þannig séð — engin „grandör opn- un“ eins og „Dr. Fritz" talaði um. En þegar tími kemur þá verður vissu- lega haldin uppákoma á vegum fé- lagsins til að sýna það að við erum komnir til að vera.“ JBG Góður staður en enginn fastastaður Kaffi Reykjavík Vesturgötu 2 ★★★ Drykkjumaður MORGUNPÓSTSINS var svo latur um daginn að hann komst ekki lengra en á Kaffi Reykja- vík, en svo heppilega vill til að staður- inn er á jarðhæðinni fyrir neðan rit- stjórnarskrifstofur málgagnsins. Þar sem áður var höndlað með sérkenni- lega ullarvöru er nú selt kaffi, vínar- brauð, brennivin og bjór. Stað- setningin er hreint prýði leg - svona burtséð fr á nálægðinni við MORG- UNPÓSTINN - enda ræð- ir hér um nafla heimsins, að minnsta með hliðsjón af því af því að öll götunúmcr í Reykjavík miðast við innganginn á staðnum. í fremri salnum, þeim sem veit út að götu, hcfur ágætlega tekist til að búa til huggulegasta sal með siðmennt- uðu yfirbragði. Umhverfis flennistór- an barinn skiptast á djúpir sófar og hægindastólar og hefðbundin kaffi- borð (glæný, en smíðuð með það fyr- ir augum að virðast ævafom). Þegar innar dregur er aftur ekki sami stíll, þvi það er eins og vindurinn hafi að- eins farið úr mönnum. Þar innra er stemmningin líkari þvi, sem gerðist þegar bjórlíkispöbbamir vom fyrst að spretta upp, enda hafa gaulararnir í Hálfú í hvoru troðið þar upp án afláts. Niðri í kjallara er síðan allt plussi klætt og á hillum tróna Ijótustu stytturnar, sem fundist gátu í Kúnst eða viðlíka verslun. Til þess að toppa vitleysuna er einn ljótasti bar höfuðborgarinnar þama niðri, en hann lítur út fyrir að hafa verið hafnað af Hótel Tindastóli. Decorið miðast grcinilcga við að ná til þess kúnnahóps, sem vertinn Val- ur hafði trekkt til sin á Café Romance á sínum tima, lítilega snobbað og vemmilegt í senn. Ekki síður er þó seilst í viðskiptavini ömmu Lúar, enda veitir ekki af þegar haft er í huga að staðurinn tekur á sjötta hundrað manns. Þetta gímald er þó ekki jafn- yfirþyrmandi og ætla mætti, því stað- urinn fyllist á mjög rökrænan hátt: fyrst er uppselt í fremri salnum, svo þeim innri og loks niðri. Fyrir vikið virðist staðurinn aldrei tómur. Á daginn má finna fólk af öllum stærð- um og gerðum á Kaffi Reykjavík, enda er staðurinn þegar orðinn vin- sæU treffpunktur í miðbænum. Kaff- ið er hreint prýðUegt og meðlætið er flest ágætt. Hins vegar er maturinn ekkert sérstakur og þrátt fyrir þjóna- fjöld er þjónustan frekar slöpp með tveimur undantekningum. Þegar dregur að kveldi í miðri viku er það hins vegar fólk frá 25 ára aldri upp að þrjátíuogeitthvað, sem helst sækir staðinn í bland við bUasala á óræðari aldri. Þá er öl kneyfað af miklum móð fyrir utan einstaka sérvitringa. Um helgar er aldurssviðið mun Spjallað við Venna um djasskonsert Danskur beyki- skógardjass a sunnudag Danskri haustviku lýkur með djasstónleikum í Súlnasal á sunnu- dagskvöld. Það er kvartett bassa- leikarans Jespers Lundgaards sem leikur en djassspekingurinn Vernharður Linnet segir að hann sé arftaki Niels-Hennings í dönsku djasslífi. Með Lundgaard í bandinu eru þeir Bob Rockwell tenórsax, Jacob Fischer gítar og Alex Riel trommur. Þetta eru allt rniklir foringjar á sínu sviði enda virðist djassinn láta einkar vel við Dani: Hvar er hinn dæmigerði Dani ef ekki á kránni, fullkomlega afslappaður og „ligeglad", með einn öl, hlustandi á djass? Enda seg- ir Vernharður að Danir hafi alla tíð verið mjög góðir djassarar. „Rock- well er reyndar bandarískur og er algjört monster, hann er svo góður. Hann er einn höfuðleikari Radio- ens Big Band og einn fremsti tenór- saxisti heims. Vernharður þvertekur fyrir það að íslenskur djass sé í einhverri nið- ursveiflu. En segiði þetta ekki alltaf? „Við þurfum ekkert að segja þetta! Við höfum átt tvo, þrjá djass- leikara i gegnum tíðina sem hafa verið mjög góðir en nú eigum við fjölmarga og íslenskur djass er á toppnum núna. Sem dæmi þá hafa viðtökurnar, sem diskur Sigurðar Flosasonar, „Gengið á lagið“, hef- ur fengið erlendis, verið ótrúlegar. Rabonowitz, sem er einn mesti slátrarinn meðal krítíkera í Evrópu, segir í dómi í Politiken að á Islandi sé spilaður djass í hæsta gæða- flokki.“ Nú gengur mýtan út á það að djassarar séu dóparar og slarkarar en ef við lítum á þessa íslensku djassara — þá eru þetta hálfgerðir ferminga- drengir í samanburði? „Já, þetta er það sem hefur gerst í breiðara, enda er þegar byrjað að kalla staðinn Veiðikofann við Vestur- götu. í raun er Kaffi Reykjavík eins og hver annar ballstaður um helgar, nema hvað ytra yfirbragð er aðeins menningarlegra og fólk dansar minna. Stóri barinn í fremri salnum er á miðju gólfi og umhverfis hann sitja menn að skrafi og drykkju. Um- hverfis hann er vel gengt og það myndast gjarnan rúntur í kringum hann. Tvær vinkonur hefja hugsan- Iega gönguna og eftir þrjá, fjóra hringi eru þær yfirleitt orðnar fimm eða sex saman. í innri salnum sitja söngfrikin, þvi þar er nær ávallt lif- andi tónlist, annað hvort einhverjir slagaraglamrarar eða djassóféti. Þangað hafa jafnvel komið sekkjap- ípuleikarar svo eðlilegu fólki er ráðið frá að dvelja lengi í salnum. Ef fremri salurinn er aðalveiðisvæðið fer að- gerðin fram í kjallaranum, þvi þar er yfirleitt mesta næðið til samræðna. En það er líka ástæða til þess að vekja sérstaka athygli karla á salemisað- stöðunni. Lýsingin er nefnilega þann- ig að ef miðpissuskálin er notuð fell- ur skuggi á skálina, sem auðveldlega vekur mikilmcnnskubrjálæði manna, jafnvel þeirra, sem prýðilega vom vaxnir niður fyrir. Kaffi Reykjavik er ágætur bar með sæmilegasta úrvali af áfengi og stundum fólki. Það er samt ekki staður, sem menn gera að fasta- stað. Til þess er hann of ópersónuleg- ur. ■ lard með kontrabassann. djassheiminum, að þessir svallarar eru horfnir og eftirsjá af þeim. Þeir lifðu djassinn í einkalífinu líka. Nú er þetta orðið meira eins og í ldass- íkinni, akademísk spilamennska, sem er á margan hátt slæmt. Þess vegna má fagna samruna rapps og djass í sýrudjassinum og ég er ein- mitt að vinna í því að fá slíka hljómsveit til landsins." Vernharður segir rétt að Guð- mundur Ingólfs sé síðasti svallar- inn í íslenskum djassi. „Hann var djassímyndin holdi klædd þó að •það væri lítið hold á honum.“ En þarf ekki bara að draga Eyþór, Sigurð, Tómas og þessa stráka á œrlegt fylleri? „Ja, ég veit nú ekki nema ein- hverjir þeirra hafi drukkið nóg. Og það er ekki það, þeir bara drekka ekki á nieðan þeir spila, fá sér bara á eftir, og það er munurinn og hið besta mál. Ég hlustaði til dæmis oft á Dexter Gordon og þekkti hann vel. Maður hefði nú stundum óskað að hann hefði ekki fengið sér alveg svona mikið. Þegar hann spil- aði í Háskólabíói þá faldi ég brenni- vínsflöskuna en hann hafði beðið mig unt að kaupa „Black Death“. Hann fór tvisvar af sviðinu fyrir hlé að leita og þegar hann fékk flösk- una í hléi tók bann niður að miða i einum teyg.“ Er munur á dönskum djassi og bandarískum? „Já, mikill. Danskur djass ber með sér hvar hann er saminn. Hann er svona beykiskógardjass: Ljúfur og yfirleitt ekki mjög hættu- legur, hann svingar, hann er léttur, leikandi, melódískur, lipur og skemmtilegur en yfirleitt ekki mjög harmrænn. íslenskur djass er þyngri, eins og þjóðin, en upp- sprettan er auðvitað í Bandaríkjun- um. En Dönum hefur flestum öðr- um fremur tekist að sameina sína tónlistarhefð djassinum.“ Vernharður lofar góðum tón- leikum og segist aldrei hafa séð annað eins og þegar Lundgaard bjargaði Hubbart, trompetstjörn- unni miklu, hér á landi í fyrra. Bassaleikarinn hans missti af vél- inni þegar þeir voru að koma til ís- lands. Það hitti svo á að þetta var eini frídagur Lundgaards og hann kom hingað, sá og sigraði. „Hann átti tónleikana og ég held að það sé enginn íslenskur djassaðdáandi sem ekki dýrkar og dáir Lundgaard sem er einn virtasti bassisti heims.“ JBG

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.