Helgarpósturinn - 13.10.1994, Side 32

Helgarpósturinn - 13.10.1994, Side 32
■ Skattrannsókn á hœlunum á Steen Johansen ■ Fíknó malaði fangana og lögmennirnir líka ■ Frikki Soph. fórfýluferð í Madrid ir að er ekki ein báran stök, sem ríður yfir heilbrigðisráðuneytið og starfsmenn þar á bæ þessar vikurn- ar. Fyrir fáeinum vikum stormuðu inn í ráðuneytið fílefldir menn, sem tóku til við að rótast í tilteknum hillum og skúffum þar innandyra. Starfsmenn vissu í fyrstu ekki hvaðan á þá stóð veðrið, en málið upplýstist þó innan skamms. Á ferð voru menn frá skattrann- sóknarstjóra, sem eitthvað vildu grauta í pappírum sem Steen Jo- hansen kynni að hafa skilið eftir þegar hann lét af störfum í ráðu- neytinu. Eins og menn muna sá Ste- en þessi um kynningarmál fyrir Guðmund Árna Stefánsson og háar greiðslur til hans voru eitt af þvi fáa, sem ráðherrann viðurkenndi sem mistök í um- deildum emb- ættisrekstri sínum í ráðu- neytinu... Fyrir nokkru fór fram árleg viður- eign milli liðs fanga á Litla-Hrauni og lögreglumanna í fíkniefnadeild- inni. Fregnir herma að þeir síðar- nefndu hafi rótburstað fangana með tíu mörkum gegn fimm. Eins og ekki hafi verið nóg að gert, fylgdu lögmenn í kjölfarið og settu þrjú mörk gegn engu fanganna. Haft var á orði að verkaskiptingin á vellinum hafi verið sú sama og í réttarkerfinu — fyrst sá löggan um sitt verk og síðan tóku lögmennirnir við. Engum sögum fer af því hverjir voru dómarar í leikjunum, hvort þeir komu frá dómstólunum eða annars staðar frá... em kunnugt er þávarfjöldiráða- manna í Madrid í síðustu viku á þingi Alþjóðabank- ans. Þar var meðal annars Fridrik Sophusson fjármálaráðherra og þótti fréttamanni Ríkisútvarpsins í Madrid, Kristni R. Ólafssyni, kjör- ið að fá hann i viðtal um stefnu og strauma í alþjóðafjármálum. Var Friðrik bcðinn að koma niður í bæ í stúdíó Kristins en þar átti viðtaiið að fara fram. Aksturinn þangað tók 45 mínútur hvora leið og lét ráð- herrann sig hafa það. Mörgum fannst hins vegar skrýtið að ekki fannst tími til að útvarpa viðtalinu hér heima. Ferð ráðherrans var því erindisleysa... Blúsbræðurnir Bubbi og Bjöggi „í gasrkvöld var haldið útgáfuteiti á Kaffi Fteykjavík í tilefni af haust- og jólaplötuútgáfu Skífunnar. Fjöldi listamanna steig á svið við þetta tækifæri og Bjöggi og Bubbi tóku meðal annars Segulstöðvarblús þess síðarnefnda. Eftir að þeir höfðu lokið sér af söng Diddú aríu við mikinn fögnuð boðsgesta en hún átti einnig komment kvöldsins þegar hún sagði „Jesús, þakka þér fyrir elskan" við móttöku á gullplötu fyrir framlag sitt á ís- landslögum 2 sem Skífan gaf út í tilefni lýðveldisafmælisins. Veislunni lauk síðan með því að hljómsveitirnar Scope og The Boys tóku hvor sitt lagið en plata fermingardrengjanna, The Boys 2, var gefin út í vikunni sem leið. Silfurskottumaðurinn hengdur upp Silfúrskottumaðurinn er upphaf- lega afkvæmi þeirra Steingríms Ey- fjörð Kristmundssonar og Sjón, en síðar bættist Torfi Franz Ólafs- son í feðrahópinn og gæddi hann nýju lífi, líkt og álfamærin gerði fyrir spýtustrákinn Gosa fyrir margt löngu. Á laugardaginn klukkan 16:00 opna þeir Steingrímur og Torfi installation með Silfurskottu- manninum á Kaffi List við Klappar- stíginn. I fréttatilkynningu frá þeim segir meðal annars: „Silfurskottu- maðurinn er teiknimyndasaga sem byggir á viðburðaríku lífi sam- nefndrar sögupersónu en hún hefur alið ævi sína á stöðum sem sumir hverjir eru ekki lengur til eins og Vestur-Þýskaland, Pressan og Ein- tak. Persónuleiki Silfurskottu- mannsins byggir á hugmyndum pólsk-þýska heimspekingsins Fried- rich Nietzsche um ofurmennið sem ekkert aumt má sjá og heldur hinu sammannlega sakleysi og tær- leika hvað sem á dynur.“ Og á laug- ardaginn kemur hann sem sagt fram á Kaffi List í formi frumteikninga Steingríms á veggjum og þrívíðra hreyfimynda Torfa á sjónvarps- skjám. Gestir sýningarinnar geta einnig upplifað bæði kjól og búning kappans, sem ku vera miklar ger- semar, enda saumaðar af þeim Ástu og Möggu. Þeir Sjón, Hallgrímur Helgason og Haraldur Jónsson munu mæta í kaffið og vera Silfúr- skottumanninum til halds og trausts og öðrum gestum til nokkurrar skemmtunar, en þeir ætla að lesa upp úr jólabókunum sínum. Það verður ekkert lesið eftir Nietzsche, en ef við megum trúa boðbera ofúr- mennisins, þá hefur þessi sýning far- ið fram áður. Og á eftir að fara fram aftur. En það er engin ástæða til að mæta ekki á hana núna. Eða öllu heldur ástæða til þess að mæta núna. Aftur. æöj Veðurhorfur næsta sólarhring: Lægðardrag er yfir landinu, víð- ast alskýjað og úrkoma, slydda norðan til en súld eða rigning sunnan til. Hiti 1-10 stig. Horfur á föstudag: Norðaustan átt á Vestfjörðum og Norðurlandi, yfirleitt fremur hæg og slydda eða snjóél. Annars staðar á land- inu verður suðvestlæg átt. Hiti 0- 6 stig. Horfur á laugardag: Úrkomulaust um mest allt land og víða léttir til. Hiti 2-7 stig. Horfur á sunnudag: Útlit fyrir vax- andi suðaustan átt og sunnan- lands og vestan fer að rigna. Veðrið um helgina Kjörkassinn MORGUNPÓSTURINN hefur sett á laggirnar Kjörkassann, símsvara þar sem almenningur getur svarað brennandi spurningum dagsins í dag. Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á spurninguna og ' greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á símtækinu þínu. Á sunnu- daginn verður síðan talið upp úr Kjörkassanum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS. Spurningin er... Finnstþérað þroskaheftir megi eignastböm? Greiddu atkvæði 1 6 1 / Hlustum allan sólarhringinn 39,90 krónur minútan 2 1900

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.