Helgarpósturinn - 12.01.1995, Blaðsíða 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
Bréf til
blaðdns
Góðar
stundirí
sumarbú-
staðnum
SigurðurÁ
Friðþjófsson skrifar
Kvefþest er landlægur andskoti á
þessum árstíma og þykir mér leitt að
eitt af næmari netjum blaðamanna-
stéttarinnar skyldi stíflast jafn kyrfi-
lega og raun bar vitni í Morgunpóst-
inum mánudaginn 9. janúar. Gunn-
ari Srnára Egilssyni, ritstjóra blapsins,
varð heldur betur á í messunni í leið-
araskrifúm þegar hann agnúast út í
orlofshúsabyggðir verkalýðsfélaganna
samtímis og hann gagnrýnir það fyr-
irkomulag sem er á útgreiðslu at-
vinnuleysisbóta.
Hér er um tvö gjörólík mál að ræða
og á ég ákaflega bágt með að skilja
hvernig hægt er að tengja þetta tvennt
saman. Endurskoðun á því fyrir-
komulagi sem haft er á greiðslu at-
vinnuleysisbóta á fullan rétt á sér,
enda á það rætur að rekja til þess tíma
sem atvinnuleysi var nánast óþekkt
hér á landi. Slík endurskoðun kallar
þó á málefnalegri umræðu en boðið
er upp á í leiðaranum þar sem verka-
lýðshreyfingin er þjófkennd án rök-
stuðnings.
Orlofshúsabyggðir samtaka launa-
fólks eru hins vega allt önnur og
miklu ánægjulegri Ella, sem gert hafa
efnalitlu launafólki kleift að njóta ís-
lenskrar náttúru án þess að þurfa að
hírast í skjóllitlum tjöldum í roki og
rigningu.
í leiðaranum talar Gunnar Smári
um að fólk sem hafi átt í mesta basli
með að láta enda ná saman í heimilis-
rekstrinum þurfi að greiða „góðar
fjárhæðir í orlofshúsasjóð og annað
sem vart er annað hægt að líta á sem
munað í kreppunni.'1 Gunnari Smára
til upplýsingar má benda á að í flest-
urn tilfeflum greiðir atvinnurekand-
inn samkvæmt samningum ákveðið
hlutfall af launum í orlofssjóð en
launamaður ekkert. Segja má sem svo
að ef atvinnurekandinn greiddi ekki
þetta í sjóðinn gæti hann greitt það
beint í umslag launagreiðandans. Þar
sem yfirleitt er um 0,25% af launum
að ræða eru þetta um 250 krónur á
mánuði til 100 þúsund króna manns-
ins og 125 krónur til 50 þúsund króna
mannsins. Síðan á skatturinn eftir að
kroppa í þessar krónur. Þetta eru
vissulega „góðar fjárhæðir" því fáar
krónur nýtast launamanninum jafn
vel og þessar.
Þótt skórinn hafi oft kreppt hef ég
aldrei séð eftir krónu sem farið hefur í
að byggja upp þessa starfsemi hjá
mínu stéttarfélagi. í sumarbústöðum
félagsins hef ég átt margar góðar
stundir með fjölskyldu minni og veit
að svo er um marga aðra sem ekki
hafa haft ráð á að reisa sína eigin
sumarhöll. Gildir það sama um félaga
í ASÍ, sem veita sér þann „munað“ í
kreppunni að fá viku í Ölfúsborgum,
eða BSRB-félaga sem hópast á hverju
surnri í Munaðarnes þrátt fyrir að
krónunum í launaumslaginu fækki
stöðugt.
Það er enginn munaður að veita
sér vikufrí á sumri fjarri skarkala
hversdagsins og gluggapósti. Það er
hverjum einstaklingi lífsnauðsynlegt
því maðurinn lifir ekki á einu saman
brauði. Með uppbyggingu orlofsbúða
hefur launafólki tekist að skapa sér
sælureiti víða um land, sem það hefur
getað nýtt fyrir fjárhæðir sem eru
langt undir því sem gengur og gerist á
almennum markaði.
Það kernur á óvart að jafn þefvís
maður og Gunnar Smári er, skuli ekki
finna eitthvað bitastæðara þegar hann
ætlar að koma höggi á samtök launa-
fólks. Bestu menn geta hins vegar
kvefast. I von um skjótan bata.
Sigurður Á. Friðþjófsson
blaðamaður og starfsmaður BSRB
Hrafn Jökulsson, ritstjóri Alþýðublaðsins, flutti fýrsta pistil sinn í þættinum í
vikulokin á Rás 1 á laugardaginn. Málflutningur hans hefur vakið mikla reiði innan
Kvennalistans og Kristín Ástgeirsdóttir hefur sent Heimi Steinssyni, Otvarpstjóra,
kvörtunarbréf vegna ummæla ritstjórans um Kvennalistann og hana sjálfa
persónulega sem hún kallar svívirðingar
Telur Hrafh
sérvi ðfjölda-
morðingja
Hrafn Jökulsson, ritstjóri Al-
þýðublaðsins, hóf störf sem reglu-
legur pistlahöfundur hjá Ríkisút-
varpinu, Rás 1, síðastliðinn laugar-
dag í þættinum í vikulokin í umsjá
Loga Bergmanns Eiðssonar.
Hrafn byrjaði sinn feril sem pistla-
höfundur hjá stofnuninni á sama
hátt og bróðir hans, lllugi Jökuls-
son, endaði sinn feril sem slíkur í
haust með því að vekja upp reiði
stjórnmálamanna sem þóttu þeir
sitja undir persónulegum svívirð-
ingum. Hrafn gerði Kvennalistann
að umtalsefni, nánar tiltekið fram-
boðsmál hans í Reykjavík og
Reykjanesi. Svo ræddi hann sér-
staklega um stöðu Kristínar Ást-
geirsdóttur og frammistöðu
hennar í forystuhlutverki innan
listans.
Kristínu þótti Hrafn hafa vegið
að sér og Kvennalistanum með
ósæmilegum hætti og mikil reiði er
innan Kvennalistans vegna ýmissa
ummæla ritstjórans og Kristín sá
Kristín Ástgeirsdóttir þingmaður
Kvennalistans hefur ýmislegt við
málflutning Hrafns að athuga.
„Ég er voða lítið fyrir að það sé
verið að reka menn fyrir það að
segja skoðanir sínar. En Hrafn fór
langt út fyrir það að segja sínar
skoðanir."
ástæðu til að senda Heimi Steins-
syni, Útvarpsstjóra, kvörtunarbréf.
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
starfskona Kvennalistans og vara-
maður í útvarpsráði, sagði í gær að
ekki hefði verið ákveðið hvort þetta
mál verði tekið upp á fundi ráðsins
á föstudaginn en „það gæti gerst“.
Mikil reiði innan
Kvennalistans
„Já, ég skrifaði bréf til Útvarps-
stjóra þar sem ég hvatti hann til
þess að kynna sér þennan pistil.
Mér fannst pistlahöfundurinn
ganga allt of langt og fara með lygar
og staðlausa stafi,“ sagði Kristín
þegar leitað var álits hennar á þessu
máli í gærkvöld.
Hvað fór helst fyrir brjóstið á
þér?
„I fyrsta lagi að hann skyldi segja
að ég hafi verið gallvaskur maóisti í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Þegar maður hugsar til þess hvernig
maóistar hegðuðu sér, þá var þar
um að ræða fjöldamorðingja, ein-
ræðisherra og karlrembusvín —
menn sem svifust einskis við að út-
rýma menningarverðmætum. Ég
vil ekki láta bendla mig við svona
lagað. Hver er tilgangurinn með því
að gefa manni svona heiti sem eiga
ekki við nein rök að styðjast?
Aðalmálið er þó lýsing hans á því
hvernig staðið er að uppröðun á
framboðslista Kvennalistans í
Reykjavík. Hann segir að ég ráði
lögum og lofum í þessari frímúr-
arareglu, eins og hann kallar
Kvennalistann, sem er fjarri sanni.
Öll hans iýsing á því hvernig þetta
hefur gengið fyrir sig er út í hött.“
Voru það sneiðar sem sneru
persónulega að þér sem þú ert
ósáttust við, eða það sem hann
hafði að segja um Kvennalistann?
„Bæði sú mynd sem hann dró
upp af mér og eins lýsing hans á
Kvennalistanum."
Óskaðir þú eftir einhverjum að-
gerðum af hálfu Útvarpsstjóra?
„Nei, nei. Ég er voða lítið fyrir að
það sé verið að reka menn fyrir það
að segja skoðanir sínar. En Hrafn
fór langt út fyrir það að segja sínar
skoðanir. Hann var að lýsa þarna
ferli og sú lýsing á ekki við nein rök
að styðjast.“
Hvað um málfrelsi pólitískra
dálkahöfunda, var Hrafn ekki
bara að lýsa hlutunum eins og þeir
koma honum fyrir sjónir?
„Nei, því hans lýsing var röng.“
Nú varði Kvennalistinn Illuga,
bróður Hrafns, þegar hann var
rekinn sem pistlahöfundur frá Rás
2 í haust og þið, þingmenn hans,
fluttuð fagrar ræður á Alþingi um
málfrelsið?
„Hrafn hefur auðvitað málfrelsi
en því eru takmörk sett. Það er lág-
mark að menn fari rétt með og séu
ekki að ausa svívirðingum yftr
aðra.“
Hver viltu að verði niðurstaðan
af athugasemdum þínum?
„Mér finnst að það eigi að gera
athugasemdir við að Hrafn fari
með rangt mál og geri fólki upp
skoðanir."
Finnst þér ástæða til þess að
þetta mál verði tekið upp í út-
varpsráði?
„Já, mér finnst það nú en ég hef
ekki farið þess á leit. Það er mikil
reiði innan Kvennalistans út af
þessu.“
Stendur við allt sem
hann sagði í pistlinum
„Það hlægir mig að Kristín Ást-
geirsdóttir skuli nú leita skjóls und-
ir hempufaldi Heimis Steinssonar,
ekki síst í ljósi þess hvert viðhorf
Kvennalistans til yfirmanna út-
varpsins er en það kom glöggt í ljós
í nýlegum umræðum á Alþingi ís-
lendinga,“ sagði Hrafn þegar um-
mæli Kristínar voru borin undir
hann. „Þar á ég við frægar umræð-
ur um brottrekstur pistlahöfunda í
haust. Þá gengu Kvennalistakonur
fram af aðdáunarverðu kappi í því
að verja rétt manna til þess að hafa
skoðanir í útvarpi.“
hafa líkl
Hrafn Jökulsson, ritstjóri Alþýðublaðsins byjaði með látum sem pistla-
höfundur hjá Ríkisútvarpinu. „Vitaskuld vekur það Kristínu Ástgeirs-
dóttur, oddvita Kvennalistans, nokkurt angur hvernig komið er fyrir
flokknum eftir að hún varð þar helsti forystumaður."
Hafa þær ekki fullan rétt á þvi
að vekja athygli Útvarpsstjóra á
ummælum þínum ef þú ert að fara
með lygi og rakalausan þvætting
— málfrelsinu hlýtur að fylgja
ábyrgð?
„I þessum pistli var ekkert, ég
endurtek ekkert, sem ég get ekki
staðið við. Vitaskuld vekur það
Kristínu Ástgeirsdóttur, oddvita
Kvennalistans, nokkurt angur
hvernig komið er íyrir flokknum
eftir að hún varð þar helsti forystu-
maður. Uppstillingarklúður, bæði í
Reykjavík og Reykjanesi, helstu
vígjunt flokksins, er nokkuð sem
hún getur ekki neitað og breytist
ekki þótt hún klagi í Heimi Steins-
son. Kvennalistinn er því miður
orðinn flokksræði að bráð. Þar
ræður örlítil klíka, klíka sem ákveð-
ur að ef niðurstöður forvals henti
ekki nógu vel þá skuli endurtaka
það. Þetta er staðreynd. Önnur
staðreynd er sú að þátttakendur í
forvali Kvennalistans í Reykjavík fá
ekki að vita hver útkoma þeirra er.
Þetta er það sem í minni orðabók
heitir gamaldags, úrelt flokksræði
sem mér þykir dapurlegt að Kristín
Ástgeirsdóttir, sem einu sinni var
virt og elskuð kennslukona í
Kvennaskólanum, skuli vera orð-
inn helsti málsvari fyrir.“
Er það ekki klént stílbragð að
uppnefna fólk sem maóista eða
nota aðrar álíka nafngiftir?
„Mér þykir miður að hafa vakið
upp sárar endurminningar og
taugavigbrögð hjá Kristínu Ást-
geirsdóttur með því að kalla hana
gallvaskan maóista. Vera kann að
það hafi verið rangt hjá mér, þótt
heimildarmenn mína greini á um
það, en sumir segja að hún hafi ekki
verið maóisti heldur hallast nær
trotskíisma. Ef henni léttir við þá
hugmyndafræðilegu leiðréttingu þá
er hún hér með gerð.“
-SG
Kvennalistinn búinn að raða á framboðslistann í Reykjavík. Elínu G. Ólafsdóttur fórnað
fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur og Guðrúnu Halldórsdóttur sparkað upp á við
Forvalið hunsað
Um helgina verður tillaga upp-
stillingarnefndar Kvennalistans í
Reykjavík um röðun á framboðs-
listann kynnt á félagsfundi og búist
er við að hún verði samþykkt.
Miklar og vaxandi deilur hafa stað-
ið innan samtakanna urn hvernig
raða á í efstu sæti listans allt frá því
að forval fór fram í desentber. Nið-
urstöður þess hafa ekki verið
kynntar innan Kvennalistans ennþá
og á einungis að vera á vitorði upp-
stillingarnefndarinnar. Þetta hafa
yngri konurnar verið afar ósáttar
við og talið leyndina merki um að
verið væri að sniðganga þær.
Svo langt gengu þesar deilur að
nýlega hótaði nokkur hópur þeirra
að ganga út og segja skilið við list-
ann ef þær fengju ekki 3. sætið á
listanum. Nú hefur öldurnar lægt
eftir að þær fengu þessari kröfu
sinni framgengt, þótt kandídat
þeirra hafi lent í 4- sæti í forvalinu.
MORGUNPÓSTURINN hefur stað-
festar heimildir fyrir því hver úrslit
forvalsins voru og sömuleiðis hver
niðurstaða uppstillingarnefndar
var. Kristín Astgeirsdóttir varð
efst í forvalinu, eins og búist hafði
verið við, og Guðný Guðbjörns-
dóttir önnur. Engin breyting verð-
ur á þessum sætum á sjálfum fram-
boðslistanum. Elín G. Ólafsdóttir
varð þriðja í forvalinu en hún mun
ekki skipa eitt af efstu sætunum.
Þess í stað mun Þórunn Svein-
bjarnardóttir, kandídat ungu
kvennanna, setjast í 3. sætið. Aðeins
örfáum atkvæðum munaði á henni
og Elínu í forvalinu, samkvæmt
heintildum blaðsins. Sætið sem þá
losnar rnun Guðrún Halldórs-
dótttir, þingkona, skipa þrátt fyrir
að hún hafi fengið slæma útreið í
forvalinu.
Talað er um að Elínu hafi verið
fórnað til þess að hægt væri að friða
yngri konurnar því raunveruleg
hætta hafa verið á því að þær létu
verða af þeirri hótun sinni að ganga
út.
Ekki náðist tal af Elínu í gær-
kvöld en hún er stödd erlendis. -SG
Þórunn Sveinbjarnardóttir mun
skipa 3. sætið á framboðslista
Kvennalistans í Reykjavík en hún
lenti í 4. sæti í forvalinu.
Elín G. Ólafsdóttir náði 3. sæt-
inu í forvalinu en var fórnað fyrir
Þórunni eftir að yngri konurnar í
flokknum höfðu hótáð að ganga
út.