Helgarpósturinn - 12.01.1995, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 12.01.1995, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995 MORGUNPÓSTURINN FÓLK 31 Lítið ljóð eítir Carl J. Eiríksson Ljóð vikunnar er í raun meira út í að vera söngtexti og braginn má kyrja við lag Ikarusar — Svo skal böl bæta. Það er enginn annar en Carl J. Ei- ríksson, skyttan snjalla, sem á heiðurinn að þessum orðum sem er sam- setningur úr kjallaragrein er hann reit um daginn og það skyldi enginn ætla að karlmenni á borð við hann sé með öllu laus við brageyra, öðru nær. Það vita þeir sem hafa lesið Hemingway að karlmennska og skáld- skapur fer saman. Þessi texti Carls er auðvitað ekkert angurvært hjal við lækjarbakka með tilheyrandi hjartslætti heldur er tekið þéttingsfast á mál- unum og stungið á kýlum á æðstu stöðum (rétt eins og Tolli og Megas gerðu áður). Snillingarnir Fyrirsjáanlegt er að laun muni á næstunni hækka Og lánskjaravísitalan hraðar en vöruverðlag og áður en mjólkin á að hækka en kjötið að lækka höfðu þrýstihópar mótmælt og gildir þetta enn í dag — Hún stjórnast af framfærsluvísitölunni Svona rugl gerir menn miklu minni. (Gítarsóió)... sra Vegna gríðarlegs eftirlætis á Presley hefur Jósef fengið viður- nefnið „Aron“ og það er gaman að segja frá því að 2. janúar fæddist Jósef „Aroni“ og konu hans sonur og þau hafa tekið ákvörðun um að skíra hann Aron. Jósef „Aron“ sigraði sem áður sagði í Elvis-gervi-keppninni og var hann í galla sem hann hannaði sjálfur en það fóru þrír gulllita spreybrúsar í að fullgera búning- inn. „Ásamt því að komast til Graceland þá dreymir mig um að eignast ekta Elvis- galla.“ Jósef segir Elvis hafa verið flottastan um 1967 í sjónvarpsþættinum fræga þegar hann var í leðurdressinu en þá söng hann uppáhaldslag Jósefs „Blue Christmas“. „Hann var líka góður á Hawaii á tónleikum seint á ferlin- um,“ segir Jósef sem er alveg sam- mála blaðamanni um það að bæk- ur Alberts Goldman (en hann hefur skrifað níð um Elvis og Lennon á annarlegum for- sendum) um „Kónginn“ séu ýkt skrif og engan veginn ná- lægt sannleikanum. JBG Fullar sættir meðDr. Gunna ogHemma Stutt frétt í MORGUNPÓSTINUM sem birtist skömmu fyrir jól þess efnis að hljómsveitin Unun væri úti í kuldanum hjá Hemma Gunn vakti mikla athygli. Dr. Gunni er sem kunnugt er sjónvarpsskríbent blaðsins og hafði ekki gefið þættinum góða einkunn, svo vægt sé til orða tekið. Mönnum þótti það því nokk- uð gott hjá Hemma þegar hann sagðist ekki ætla að bera ábyrgð á því að drepa doktorinn úr leiðindum með því að hleypa honum í þáttinn. Þjóðin hlýtur því að hafa rekið upp stór augu í gærkvöld þegar hljómsveitin Unun birtist í öllu sínu veldi í Á tali. Þegar Dr. Gunni var inntur eftir því hvort að hann myndi lifa þetta af sagði hann að það væru allir hlutir slitnir úr samhengi: „Mér finnst þetta frábær þátt- ur og Hemmi Gunn einhver besti sjónvarpsmaður sem ísland hefur eignast.“ Hemmi Gunn tók í sama streng þegar blaðið hafði samband við hann vegna þessa máls: „Nei, nei, ég ætla ekki að drepa doktorinn úr leiðindum. Þetta er svo lítið land og menn eru alltaf að skjóta sig í löppina fram og til baka í svona litlu sam- félagi. Og ef maður væri að pirrast og vera stöðugt ergilegur þá tæki það því ekki að standa í þessu.“ Hemmi sagðist ekki ætla sér að verða ellidauður í þessu starfi og honum leiddist frekar per- sónulegt skítkast en hann hefði ekki tekið skrifum dr. Gunna á þeim nótum. „Gunni hefur skrifað um þáttinn hvað hann væri slæmur en svo vilja allir þessir menn koma í þáttinn og eru al- veg ómögulegir ef þeir fá það ekki. Og eins og ég sagði nú í gríni við Ásmund Jónsson, en ég var reyndar búinn að negla niður þennan síðasta þátt fyrir jól, að þetta væri náttúrlega bara venjulegur sjónvarpsþáttur og væri auðvitað ekki nógu flottur fyrir svona stóra kalla. En ég hef enga ástæðu til að láta eins og fífl.“ Þetta eru auðvitað gleðitíðindi fyrir aðdáendur Ununar og Hemma og engin ástæða til að segja ekki frá því sem er jákvætt í þjóðfélaginu. Samkvæmt heimildum MORGUNPÓSTSINS er Ununarfólkið ekki nægjanlega sátt við plötusöluna og ætlar að fylgja henni rækilega eftir með tónleikahaldi víðs veg- ar um landið. Seinna í mánuðinum ætlar Ingvi Hrafn að hleypa þeim í Bingó/Lottó og í kvöld má sjá hljómsveitina ásamt Súkkat á Tveimur vinum. JBG um Fimmtudagur Tveir vinir: Unun, spútniksveitin ást- sæla sem varð nýverið þess heiðurs aðnjótandi að við gagnrýnendur völd- um fyrstu plötu hennar PLÖTU ÁRS- INS 1994, heldur fyrstu tónleika sína á árinu í kvöld. Eins og allir vita er það þríeykið huggulega Heiða, Gítarhort og Dr. Gunni sem stjórnar Unun en þess ber einnig að geta að undrabarn- ið Óbó spilar með á trumburnar og Jóhann pródúser Jóhanns á hljóm- borð. Með Unun spilar að þessu sinni dúettinn Súkkat sem spila sorglega sjaldan hérna í bænum. Þessir tónleik- ar eru möst fyrir þá sem ekki vilja vera böst í því sem er áð ske! Kringlukráin: Nú virðast þeir sem eru að drukkna í Skálafellsnostalgíu geta tekið gleði sína á ný því í kvöld verður orgelblús á Kringlukránni. Þá ætlar Ní- els Ragnarsson orgelleikari að leika á Hammond-orgelið sitt við hvern sinn fingur ásamt félögum í hljómsveitinni Blús-express. Orgel er stuðgjafi! Hljómsveitin Kusk gerir það gott á Gauki á Stöng. Föstudagur Konungar balla og júróvísjóns til margra ára, hljómsveitin Stjórnin, er horf- in í áranna skaut. Ekki satt. Sigga Beinteins og Grétar Örvars- son hafa ákveðið að endurvekja gamla popp- skrímslið Stjórn- ina með balli á Hótel íslandi. Allir gömlu meðlimimir og allt! Þetta verður al-eina og lang-síðasta ballið hjá sveit- inni er sagt, en ef maður þekkir Grétar Örvars rétt er slíkt kannski teygjanlegt hugtak. Spurning bara hvort borgar sig að taka séns... Á Tveimur vinum verður boðið upp á sérstakt Akureyringaball. Hljómsveitin Miranda frá Akureyri spilar fyrir dansi og sér til þess að allir Akureyringar á Stór-Reykjavíkursvæðinu, það er þeir sem mæta, líði eins og heima væri og skemmti sér eins og sönnum Norð- lendingi sæmir. Þó ég hafi aldrei heyrt í Miranda er stemmningin alltaf gefin þegar Akureyringar eru annars vegar. Papar spila a sérstöku bjórkvöldi í Ömmu Lú. Drykkfelddir munkar Pap- arnir og kátir. Stórmennið Rúni Júl lætur alltof sjaldan sjá sig í bænum. Um helgina ætlar hann ásamt Tryggva Hubner að gertrylla alla á Feita dvergnum og er það Ijóstað það fer enginn ósnortinn til síns heima eftir þvílíkt stuð! Stuðsveitin Langbrók heldur uppi stuðinu á Gauki á Stöng. Svo er hermt að þetta séu með sterkustu skemmti- sveitum sem fram hefur komið lengi. Alli á há bomsurnar! Laugardagur Miranda sýnir sitt rétta andlit á Tveim- ur vinum fyrir þá Akureyringa og nær- sveitarmenn sem láta sér ekki nægja eitt kvöld í einu. Poppararnir Ijúfu í Hunangi verða á Ömmu Lú og bjóða upp á dinner- skemmtun og dans. Hana nú... Langbrókin hressari en nokkru sinni fyrr á Gauknum. Á Feita dvergnum trylla þeir aftur Rúni Júl og Tryggvi Hubner. SUNNUDAGUR Það er hljómsveitin Langbrók sem enn og aftur heldur uppi fjörinu á Gauki á Stöng. Hvað er í leikhús- unum? Fávitinn Þjóðleikhúsið, fimmtudags- og sunnudagskvöld. Hilmir Snær al- gjör engill í aðal- hlutverki sýningar sem helst hefur verið gagnrýnt fyrir ofurleikstjórn — hvað sem það nú þýðir. Snædrottningin ★★★★ Þjóðleikhús- ið, sunnudag kl. 14. Byggt á ævintýri H.C. Andersen. Upplögð leikhús- reynsla fyrir yngstu kynslóðina þó að þau allra yngstu gætu orðið svolítið hrædd við púðurskotin. Gaukshreiðrið Þjóðleikhúsið, föstu- dagskvöld. Leikarar Þjóðleikhússins fara á kostum sem geðsjúklingar. Sýn- ing frá síðasta leikári. Gauragangur Þjóðleikhúsið, laugardagskvöld. Enn gengur þessi söngleikur sem er frá síðasta leikári enda á ferðinni stórgóð tónlist eftir hljómsveitina Nýdönsk en þetta kann að vera síð- asta tækifærið til að sjá þá leika og syngja saman. Ófælna stúlkan Borgarleikhúsið, fimmtudagskvöld kl. 20 og sunnu- dag kl. 16. Nýtt íslenskt unglinga- leikrit sem er virðingarvert framtak. Margrét Vil- hjálmsdóttir og Benedikt Erlingsson í aðalhlutverkum sem og i Óskinni. Leynimelur 13 Borgarleikhúsið, laug- ardagskvöld. Eldgamall íslenskur farsi og áhöld um hvort hann hefur elst vel eða illa. Leikhúsgestir láta sig ekki vanta á sýninguna og það segir kannski allt sem segja þarf. Kabarett Borg- arleikhúsið, föstudagskvöld. Þessi frægi söng- leikur er hér í leik- stjórn Guðjóns Petersen og er frumsýndur núna um helgina. Sannarlega spennandi að sjá hvernig þetta Berlínarandrúm plum- mar sig í verslunarhverfi í Reykjavík. L.R. menn gefa skít í það þó að frum- sýningu beri upp á föstudaginn 13. Óvænt heimsókn Akureyri, föstu- og laugardagskvöld. Sakamálaleikur sem jafnvel Jón Viðar var nokkuð hress með. Kirsuberjagarðurinn ★★★★ Héðins- húsið, kl. 20. Gíó góður þegar hann heldur stælunum í lágmarki og leyfir leikurunum að blómstra. Söngleikjadagskrá Hlaðvarpinn, fimmtudagskvöld. Dagskrá sem flutt var við það miklar vinsældir hjá Lista- kiúbbnum í Leikhúskjallaranum að kaffihúsinu þótti ástæða til að taka hana upp á sína arma. Árni Blandon (- lengi er von á einum) flytur fróðleik- smola milli þess sem söngleikjalög eru flutt. Sápa ★★ Hlað- varpinn, föstu- dagskvöld. Hí-á- kellingarnar- með-lagningarn- ar-og-“jesenlór- an-slæðurnar“- húmor eftir Auði Haralds og víst er að við þetta tæk- færi heyrist dill- andi kvennahlátur Eitthvað ósagt Hlaðvarpinn, laugar- dagskvöld. Einþáttungur eftir Tenn- essee Williams um hugsanlegt lesbískt samband ritara og hefðarfrúr en Tenn- essee var sjálfur hommi og væri líkast til kallaður Bóbó Vilhjálms ef hann ætti heima á (slandi. jt í port.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.