Helgarpósturinn - 12.01.1995, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 12.01.1995, Blaðsíða 12
12 MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995 mmMorgun A \ Posturmn Útgefandi Ritstjórar Fréttastjórar Framkvæmdastjóri Auglýsingastjóri Miðill hf. Páll Magnússon, ábm Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Styrmir Guðlaugsson Kristinn Albertsson Örn ísleifsson Setning og umbrot Filmuvinnsla og prentun Morgunpósturinn Prentsmiðjan Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum og kr. 280 á fimmtudögum. Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku. Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt. Haltur leiðir blindan Einsýnt virðist, að í Hafnarfirði sé að myndast nýr meirihluti í bæjarstjórn með samstarfi Alþýðuflokks og Jóhanns G. Bergþórs- sonar, sem hefur sagt sig úr lögum við félaga sina í Sjálfstæðis- flokknum.Nú væri svo sem ekkert við þetta að athuga ef pólitískar forsendur og ágreiningsmál hefðu með rökréttum hætti leitt til þessarar niðurstöðu. Svo er hins vegar ekki — aðdragandinn er annar og ógeðfelldari. Það var öðru fremur tvennt, sem gerði Jóhann G. Bergþórsson afhuga fráfarandi meirihluta í Hafnarfirði. í fyrsta lagi skýrsla, sem meirihlutinn fól endurskoðendum að gera og sýnir fram á óeðlileg, ef ekki ólögleg, viðskipti fyrrverandi meirihluta Alþýðuflokksins og fyrirtækis Jóhanns G. Bergþórssonar. Niðurstöður skýrslunnar eru þess eðlis, að frekari rannsókn á málinu er óhjákvæmileg. í öðru lagi virtust bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags ekki lengur reiðubúnir að standa við samkomulag við Jóhann um að hann yrði ráðinn bæjarverkfræðingur Hafnarfjarðar, samhliða því að sitja áfram í bæjarstjórn. Þetta samkomulag var raunar sið- laust — ekki síst í Ijósi þeirra grunsemda, sem þegar lágu fyrir um viðskipti Jóhanns og fyrrverandi meirihluta. Eftir stendur, að Jóhann G. Bergþórsson er að rjúfa pólitískt samstarf vegna persónulegra hagsmuna, þótt hann geri nú ámát- legar tilraunir til að skírskota til ágreinings um fjárhagsáætlun bæj- arins. Þetta er kannski við hæfi þegar í hlut á forsvarsmaður fyrir- tækja, sem í skjóli pólitískra áhrifa og persónulegra tengsla, hefur haldist uppi að tapa á annað þúsund milljónum króna af annarra manna fé á örfáum árum. Hlutur Alþýðuflokksins í Hafnarfirði í þessu rnáli er ekki síður vafasamur. Nú er það pólitískt skiljanlegt, að nokkur gleði ríki í herbúðum Hafnarfjarðarkrata þegar fjandafylkingin klofnar og þeir eygja tækifæri til að ná völdum aftur fyrirhafnarlítið. En í ljósi aðstæðna væri þeim hollast að ganga hægt um þessar gleðinnar dyr. Alþýðuflokkurinn í heild, og sér í lagi Hafnarfjarðarhlutinn, hefur engin pólitísk efni á því, að vera einn ganginn enn skotspónninn í umræðu um siðleysi í opinberri stjórnsýslu. Hafnarfjarðarkrat'ar eru sjálfir með beinum hætti aðilar að öðru tveggja þeirra mála, sem urðu til þess að Jóhann G. Bergþórsson sagði skilið við meiri- hlutann. Þar við bætist, að kratar hafa legið undir rökstuddu ámæli fyrir slaka fjármálastjórn bæjarins á síðasta kjörtímabili, og jafnvel hreina óreiðu eins og í tengslum við listahátíðina margumtöluðu. Síðast en ekki síst hefur svo foringi Hafnarfjarðarkrata verið mið- punkturinn í umræðu síðustu ntánaða um pólitíska spillingu í landinu. Nú má leiða rök að því, að sú útreið sem Alþýðuflokkurinn hefur fengið í þessum málum sé ekki að öllu leyti sanngjörn og að hinir flokkarnir hafi heldur ekki úr mjög háum siðferðissöðli að detta. Það breytir ekki þeirri staðreynd, að kratar liggja ákaflega vel við höggi um þessar mundir og þeir mega sannarlega hafa „allt á hreinu“ ef þeir ætla að ganga til samstarfs við Jóhann G. Bergþórs- son undir þessum formerkjum. Ef í ljós kemur að þar leiðir haltur blindan í siðferðislegum efnum blasa við Alþýðuflokknum, í hans sterkasta vígi, sömu örlög og fyrirtækja samstarfsmannsins. Páll Magnússon Pösturhm Vesturgötu 2, 101 Reykjavík, sími 552-2211 fax 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4888 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577 Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Auglýsingadeiid er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 17:00 virka daga, til 21:00 á þriðju- og miðvikudögum og milli 13:00 og 21:00 á sunnudögum. Ummæli vikunnar Þeirfara svo vel við malbikið „Ég skil ekki þá fullyrðingu að hundarpassi illa í borg.“ Össur Skarphéðinsson umhverfisráð- herra. En að flytja á heitu svæðin? „Lcekkun búsbitunarkostnaðar er langstœrsta lífskjaratnál landsbyggð- arinnar á köldu svæðunwn. “ Gunnlaugur Stefánsson landsbyggð- arþingmaður. Það vantar þá Elliot Ness? „Maður á ekki mörg orð yfir þær uppákomur sem liér eiga sér stað, en það er kannski helst að leitafyrir- mynda til Chicago í kringum 1930.“ Lúðvík Geirsson Hafnfirðingur. Sannur afreksmaður „Ég er mcð smáverki en það er ekk- ert til að hafa áhyggjur af.“ Héðinn Gilsson handboltastjarna. Ný leið í kjaramálum „Brýnt er orðið að endurmeta störfláglauna- hópanna í þjóðfélaginu og meta hvers vegna láglaunastörf, ekki síst hefðbundin kvennastörf, séu metin óeðlilega lágt til launa miðað við önnur sambcerileg störfá vinnumarkaðinum. “ Til að hægt sé nteð raunhæfum hætti að jafna kjör í þjóðfélaginu er nauðsynlegt að stuðla að opnu launakerfi, þar sent allar heildar- launagreiðslur, önnur kjör og fríð- indi verða sýnileg. í þessu skyni þarf hið opinbera að tryggja að heildarlaunagreiðslur, þ.m.t. yfirborgarnir, hlunnindi, föst og óunnin yfirvinna og hvers konar aðrar greiðslur er mynda heildarlaunakjör verði felldar inn í opinbera launataxta. Tvöfalt launakerfi Misréttið í tekju- og eignaskipt- ingunni í þjóðfélaginu er orðið gíf- urlegt. Jafnt og þétt hefur á síðustu áratugum þróast hér tvöfalt launa- kerfi. Annars vegar sýnilega launa- kerfið sent samið er um í kjara- samningum, sem að stærstum hluta láglaunafólk þiggur kjör sín eftir. Hins vegar er það neðanjarð- arkerfið í launakjörum, sem byggir á einstaklingsbundnum samning- um við vinnuveitanda sinn, oft í fornti yfirborgana og hvers kyns hlunnindagreiðslna sem fæstir geta hent reiður á. I.jóst er að hið opinbera hefur í samkeppni við almenna vinnu- ntarkaðinn tekið þátt í þessu tvö- falda launakerfi, þar sem stöðu- heiti, föst yfirvinna og bílahlunn- indi eru notuð til að bæta laun sent samið er um í kjarasamningum. I athugun sem gerð hefur verið á þessunt greiðslum og hlunnindum kom í ljós að um 90 prósent þess kont í hlut karla sent störfuðu hjá hinu opinbera meðan um 10 pró- sent kom í hlut kvenna. Slíkt tvöfalt launakerfi bíður heim ntiklu misrétti í þjóðfélaginu og torveldar mjög alla viðleitni til þess að bæta kjör tekjulægstu hóp- anna. Allur raunhæfur samanburð- ur um raunveruleg launakjör í þjóðfélaginu er nánast útilokaður. Niðurstaðan hefur því iðulega verið sú í þeirri viðleitni að bæta kjör þeirra lægst launuðu sérstaklega, að kjarabætur sem samið er urn í kjarasamningum fara upp allan launastigann og viðhalda því launamisréttinu. Þungavigtin # ýpHtdR- — JÓHANNA ? SlGURÐAR- y** ,* DÓTTIR «Éi 1 alþingismaður Margfaldur launa- munur Dreifing atvinnutekna hér á landi 1986-1990 sem Þjóðhags- stofnun tók saman sýnir að hlutur þeirra tekjuhæstu í þjóðfélagínu hefur vaxið en hlutur meðal- og lágtekjufólks hefur ntinnkað. Á ár- inu 1990 voru launatekjur þess fimmta hluta fólks á vinnumarkað- inum sem hæstar hafði tekjurnar, tæp 44 prósent af heildaratvinnu- tekjum, meðan hlutur þess fimmta hluta fólks á vinnumarkaði, sent lægstar hafði tekjurnar var innan við 4 prósent. Tveir þættir skekkja nokkuð þessa mynd ef reynt er að meta ráðstöfunartekjur. í fyrsta lagi eru það áhrif jöfnunaraðgerða hins opinbera, svo og ráðstöfunartekjur eftir skatt, og hins vegar gífurlegir skattaundandráttur í þjóðfélaginu, en gera rná ráð fyrir að stærstur hluti undanskots liggi hjá tekju- hærri hluta þjóðarinnar. Launamisrétti kynjanna Allar kannanir benda líka til að allt of lítið hafi gengið að jafna launakjör kynjanna fyrir sambæri- leg störf í þjóðfélaginu. Bæði virðist svo að yfirborganir og hlunnindi á almenna vinnumarkaðinum og hjá hinu opinbera gangi frekar til karla en kvenna og einnig hitt að í sum- um tilvikum, þegar bornar eru saman hefðbundnar kvennastarfs- greinar og hefðbundnar starfsgrei- anr karla sem krefjast sambærilegs námstíma, virðist einnig vera um verulegan launamismun að ræða. Endurmat á störfum láglaunahópanna Brýnt er orðið að endurmeta störf láglaunahópanna í þjóðfélag- inu og meta hvers vegna láglauna- störf, ekki síst hefðbundin kvenna- störf, séu metin óeðliiega lágt til launa rniðað við önnur sambærileg störf á vinnumarkaðinunt. Við mat á láglaunastörfum þyrfti að athuga sérstakiega hvort starfsreynsla við heimilisstörf sé eðlilega metin við röðun í launaflokka þegar unt skyld störf á vinnuntarkaðinum er að ræða, svo sem umönnunar- og uppeldisstörf. Til grundvallar í starfsmati ætti einnig að leggja þætti eins og ábyrgð á jafnt mann- legum sem efnislegum verðmæt- um, vinnuálag, áhættu, hæfni, óþrifnað, erfiði, menntun, starfs- þjálfun, starfreynslu og aðra þá þætti sem áhrif hafa á kaup og kjör. Opið launakerfi Auk endurmats á störfum lág- launahópanna er nauðsynlegt til að hægt sé með raunhæfum hætti að jafna kjör í þjóðfélaginu, að Alþingi og ríkisvaldið grípi til aðgerða sem stuðli að opnu launakerfi, þar sem heildarlaunagreiðslur og kjör verði sýnileg og Jiau felld inn í opinbera taxta. Það er forsendan fýrir því að hægt sé að jafna tekjuskiptinguna í landinu, bæði með jöfnunarað- gerðum hjá hinu opinbera sem og með því að bæta hlut láglaunahóp- anna á raunhæfan hátt í kjarasamn- ingum. Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Erlendsson Jón Steinar Gunnlaugsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson; Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.