Helgarpósturinn - 12.01.1995, Blaðsíða 32
Jonni Sigmars tryllir Friðrik Þór og Ara Kristins endur9reiddi Það f'ármagn
Kvikmyndageröamaðurinn Jóhann
Sigmarsson er þessa dagana í óöa
önn aö leggja lokahönd á mynd sína
Ein stór fjölskylda, sem fyrirhugað er
að frumsýna í byrjun mars. Skömmu
fyrir jól tókst Jóhanni að reita alla
kollega sína til ómældrar reiði þegar
hann gekk frá samningi við Friðbert
Pálsson, forstjóra Háskólabíós, um
að mynd hans verði sýnd í bíóinu.
Aðrir kvikmyndagerðarmenn hafa
verið samtaka í að sniðganga kvik-
myndahúsið og fundið rekstri þess
flest til foráttu. Þeir sem tóku þess-
um samningi Jóhanns við bíóið
manna þyngst voru Friðrik Þór
Friðriksson og Ari Kristinsson.
Jóhann fékk að kenna á því að það
er ekkert grín að reita þessar kvik-
myndakanónur íslands til reiði en
þeir félagar sýndu óþökk sína í verki
með því að krefjast þess að Jóhann
sem íslenska kvikmynda-
samsteypan hafði lagt í framleiðslu
Einnar stórrar fjölskyldu.Samningur-
inn við Háskólabíó tryggði Jóhanni
aftur á móti peninga sem hann sár-
vantaði til gerðar myndarinnar. Frið-
bert afhenti honum 3,5 milljóna
króna fyrirframgreiðslu við undirritun,
en það samsvarar þeirri upphæð
sem Jóhann fengi í sinn hlut af að-
gangseyri 7000 áhorfenda.
séra Ólafs Skúlasonar biskups og
fengið hjá honum blessun til farar-
innar. Ferðin var einnig farin með
vitund og blessun séra Gylfa sem
mun vera fullfús að taka upp þráð-
inn þar sem frá var horfið í Grens-
áskirkju. Eitt sóknarbarna Grensás-
kirkju, sem er nákunnugt störfum
sóknarnefndarinnar, sagði hins
vegar í samtali við blaðið að engar
líkur væru á að Gylfa yrði boðið að
koma til baka. Þetta tiltekna sókn-
arbarn orðaði þetta reyndar sem
svo að það væri eins og að fá Atla
húnakonung til að sjá um garðinn
fyrir sig...
Skýrslan um
Jakob frestast
Úttekt Ríkisendurskoðunar á
embætti menningarfulltrúa við
sendiráðið í London tefst fram í
næstu viku, samkvæmt upplýsing-
um frá embættinu, en áður hafði
skýrsla verið boðuð í þessari viku.
Ekki fengust upplýsingar um
ástæður tafarinnar en þó er ljóst að
úttektin á umsvifum Jakobs
Magnússonar er viðamikil...
Jóhanna á
faraldsfœti
Mikil fundahrina er fyrirhuguð
hjá Þjóðvaka á næstunni. Ætlunin
er að kynna hreyfmguna í öllum
kjördæmum landsins. Jóhanna
Sigurðardóttir mun ávarpa fund-
argesti, auk heimamanna sem eru í
fararbroddi Þjóðvaka. Dagskráin er
þannig að fyrsti fundurinn verður á
Selfossi í kvöld, sá næsti á Akureyri
á laugardag, Blönduósi á sunnu-
daginn, Borgarnesi á þriðjudaginn,
Hafnarfirði á fimmtudaginn, á ísa-
firði á laugardaginn um aðra helgi
og hringnum verður svo lokað á
Egilsstöðum, sennilega á mánu-
dagskvöldinu. Síðan er gert ráð fýr-
ir að Jóhanna heimsæki sem flest
byggðarlög innan kjördæmanna
þegar nær dregur kosningum. Hið
mikla ferðaplan Jóhönnu minnir
fremur á ferðalög forsetaframbjóð-
enda en formanna stjórnmála-
flokkanna, en fátítt er að þeir vitji
sauða sinna svo víða...
u áradrengur
biður séra Gylfa
Jónssynivæ gðar
Síðastliðinn mánudag varð uppi
fótur og fit í sóknarnefnd Grensás-
kirkju þegar á fund hennar gekk n
ára piltur úr sókninni og mæltist tU
þess að séra Gylfa Jónssyni yrði
fyrirgefið og hann ráðinn aftur til
starfa, en honum var sagt upp í
kjölfar þess að upp komst um ástar-
samband hans og séra Solveigar
Láru Guðmundsdóttur sóknar-
prests á Seltjarnarnesi. Eins og ítar-
lega var greint frá í fjölmiðlum á
síðasta ári vakti samband Gylfa og
Solveigar Láru upp mikinn úlfaþyt í
Grensássókn og í Seltjarnarnes-
sókn, sem og almenna athygli í
þjóðfélaginu, þar sem bæði voru í
hjónabandi með öðrum. Solveig
Lára hóf aftur störf á Seltjarnarnesi
síðastliðið haust eftir um það bil
þriggja mánaða frí frá störfum og
klofning í sóknarnefnd Seltjarnar-
neskirkju vegna málsins. Gylfi átti
hins vegar ekki afturkvæmt til fýrri
starfa sem aðstoðarprestur séra
Halldórs Gröndals sóknarprests
Grensáskirkju. Meirihluti sóknar-
nefndar kirkjunnar sá til þess, þrátt
fyrir tilmæli biskups um að Gylfi
fengi að koma aftur. Flest benti til
þess að þetta yrðu endalok málsins
þar til nú að drengurinn mætti í
fylgd með afa sínum til sóknar-
nefndarinnar að biðja Gylfa vægð-
ar. Heimildir biaðsins herma að
sóknarnefndin hafi verið sem
þrumu lostin yfir heimsókninni,
sérstaklega þegar afinn tilkynnti að
drengurinn hefði áður farið á fund
Halldór Ásgrímsson fluttur úr föðurhúsum
350 þúsund krónur
Húsaleigustyrkur
Dvalarkostnaður á
meðan þinghaldi stendur
Ferðakostnaður
Landsbyggðin
Höfuðborgarsvæði Reykjanes
fm Halldór Asgrímsson, ekki
fm formaður Framsóknar- neydi
Hf flokksins og fyrsti þingmaður bróði
W austurlandskjördæmis, hefur 300 I
f nú loks yfirgefið föðurhúsin að ætti 1
Hvammabraut 6 á Höfn í mam
Homafirði. Flutningar þess- Hallc
Hk ir fóru ekki hátt enda flutti ishús
■ hann ekki langt og búslóð- þar s<
in með fyrirferðarminna sinni
H móti. Nú er hann ásamt fjöl- Reyk
H skyldu sinni skráður til heim- Þir
H ilis að Hlíðartúni 19 á Höfn, en hafa !
I þar býr bróðir Halldórs, Ingólf- þeir í
I ur Ásgrímsson skipstjóri. fríðir
Halldór var skráður með lög- uðbo
■ heimili á heimili föður síns, Ás- löghe
I gríms, að Hvammabraut 6 á Höfn
I Höfn þar til í júlí á síðasta ári. dvala
f Þegar faðir hans flutti á dvalar- aðra
f heimili aldraðara gat Halldór hann
Halldór Ásgrímssott, formaður Fram-
sóknarflokksins, fœr 124.000 krónur ú
mánuðifyrir það eitt að vera skráður
til lögheimilis hjá bróður sínum á
i Höfn í Hornafirði. Sjálfur á Halldór
hús í Reykjavík þar sem hann býr
ásamt fjölskyldu sintii.
Veðurhorfur á fimmtudag: All-
hvöss sunnan átt og slydda við
austurströndina, en suðvestan og
vestan-kaldi eða stinningskaldi og
slydduél í öðrum landshlutum,
nema norðanlands verður úrkomu-
lausL
Veðurhorfur næstu daga
Á föstudag verður suðvestan gola
ða kaldi og él um sunnan og suð-
vestan vert landið, en þurrt og víð-
ast léttskýjað austan lands. Frost 2
til 6 stig. Á laugardag verður vest-
an gola eða kaldi víðast hvar á
landinu og él um vestan vert land-
ið, en þurrt og víðast léttskýjað
austan lands. frost 5 til 13 stig. Á
sunnudag verður hæg breytileg átt
og smá él norðan lands, en létt-
skýjað sunnan og suðvestan lands.
Frost 6 til 15 stigs.
SPURT ER:
Eiga þingmenn að skrá
lögheimili sitt heima hjá sér
eins og aðrir?
Greiddu atkvæði!
99 15 16
39,90 krónur mínútan
Nei
69,0%
Síðast var spurt:
Er krötum í Hafnarfirði
treystandi til að taka aftur
við stjóm bœjarins?
Veðrið um helqina
I hverju tölublaöi leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 9915 16.