Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 4
MORGUNPOSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1995 Fulltrúar sýslumannsins á Akranesi hafa báðir fengið leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi ÆUaekkiað nýjaaf nólmi Báðir fulltrúar Sigurðar Gizur- arsonar, sýslumanns á Akranesi, Jrær Kristrún Kristinsdóttir og Áslaug Rafnsdóttir, hafa nú feng- ið leyfi til málflutnings fyrir héraðs- dómi. i’etta kom fram í viðtali við Kristrúnu í Skagablaðinu á mánu- daginn. MORGUNPÓSTURINN hafði sam- band við Kristrúnu og spurði hvort hún væri á leið frá embættinu, en hún sagði svo ekki vera. „Það er gott að hafa þetta í bakhöndinni, því við erum mjög óánægðar með stöðu mála hér á embættinu sem vonlegt- er. Við höfum hins vegar nokkurn metnað fyrir hönd þessa embættis og viljum gera það sem við getum til að það fái sinnt sinni skyldu svo vel fari. Þannig að við viljum síður hlaupa héðan á brott fyrr en í nauðirnar rekur." Kristrún segist mjög óánægð með það, hvernig meðhöndlun mál sýslu- manns hefur fengið innan dóms- málaráðuneytisins. „Það voru menn frá ráðuneytinu sem rúlluðu þessum bolta af stað, komu hingað og rannsökuðu embættisfærslur Sigurðar og settu allt á annan end- ann, en síðan heyrist ekkert meira frá þeim. Þetta er algjörlega óvið- unandi og ekki hægt að starfa við þessar aðstæður mikið lengur. En við reynum að þrauka." MORGUNPÓSTURINN hefur heimildir fyrir því, að verið sé að vinna í málum sýslumanns innan dómsmálaráðuneytisins þessa dag- ana. Þorsteinn Geirsson ráðu- Kristrún Kristinsdóttir, fulltúi sýslumannsins á Akranesi, hefur fengið leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hún er þó ekki á leiðinni að hætta hjá embættinu ennþá. neytisstjóri tjáði blaðamanni hins vegar að ekki væri neinna frétta að vænta af málefnum sýslumannsins á allra næstu dögum. æöj Hefiir staðið óhreyfður við stöðumæli frá því á Þorláks- messu Mistök, segirStefán Haraldsson fram- kvæmdastjóri Bilastæðasjóðs. Grár, japanskur fólksbíll hefur staðið óhreyfður við stöðumæli fyrir utan Laugaveg 116 frá því á Þorláksmessu. Tryggingastofnun ríkisins er að Laugavegi 114 en þangað leggur jafnan fjöldi aldraðs og fatlaðs fólk leið sína á degi hverj- um. Það var starfskona í nálægri verslun sem vakti athygli blaðsins á þessu þar sem henni fannst það skjóta skökku við að á sama tíma og skjólstæðingar Tryggingastofnun- arinnar eiga í erfiðleikum með að leggja bílum sínum í göngufæri við stofnunina hefur bíllinn verið lát- inn standa afskiptalaus svo dögum skiptir í stæðinu. Stefán Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkur, kom af fjöllum þegar blaðamaður MORGUNPÓSTSINS spurði hann hvernig stæði á þessu. Stefán sagði að hér hlyti að vera um einhver mistök að ræða því venju- lega væru bílar dregnir í burtu af gjaldskyldum stæðum ef þeir standa þar óhreyfðir í nokkra daga. Ætlaði hann þegar að láta athuga málið og fjarlægja bílinn. Eins og fyrr segir hafði bíllinn verið við stöðumælinn frá því á Þorláksmessu, eða í 26 daga, þegar Bílastæðasjóði var gert viðvart um hann. Af þessum 26 dögum eru 17 virkir dagar en þeir eru gjaldskyld- ir. Gjaldskylda er frá 9 til 17, eða 8 klukkustundir hvern dag. Þetta þýðir að bíllinn hefur staðið í 146 gjaldskyldar klukkustundir við stöðumælinn. Ef eigandinn hefði samviskusamlega borgað 50 krónur í stöðumælinn fyrir hverja klukku- stund sem bíll hans var í stæðinu hefði hann þurft að leggja út 7.400 krónur. En þar sem hann gerði það ekki hefði mátt leggja gjald á hann fyrir hverja umfram klukkustund sem bíllinn stóð við mælinn. Lág- marks stöðumælagjald er 850 krón- ur en ef gjaldið er greitt innan þriggja virkra daga fæst 550 króna afsláttur. Ef miðað er við 850 króna gjaldið fæst út að hægt hefði verið að rukka eiganda bílsins urn 124.100 krónur. Stöðumælaverðir bíla- stæðasjóðs hafa hins vegar látið nægja að setja 16 gíróseðla undir rúðuþurrkur bílsins, tæplega eina hvern dag sem hann hefur staðið í stæðinu. Þeir hafa aftur á móti ekki séð ástæðu til að láta draga bílinn í burt. -jk Lands- átaktil styrktar Suðvík- ingum Með ávarpi forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur í kvöld verður hrint af stað landssöfnun til styrktar Súðvíkingum. Er miðað við að söfnunin hefjist klukkan 20 en ávarp forsetans hefst ki. 19.55. Á föstudagsmorgun mun biskupinn yfir Islandi, herra Ólafur Skúla- son, ávarpa landsmenn í útvarpi og leiða söfnunina inn í fyrsta dag hennar. Allir stærstu fjölmiðlar landsins taka höndum saman við átakið og er sími þess 800-5550 og verður allt söfnunarféð lagt inn á reikning númer 800 í Sparisjóði Súðavíkur. Þarna er fyrst og fremst um að ræða fjölskyldusöfnun til styrktar þeim fjölskyldum sem hafa orðið illa úti í snjóflóðinu. Það er verið að skipa sjóðsstjórn og er Ijóst hvaðan þeir fulltrúar koma sem skipa stjórnina en ekki ljóst hvaða ein- staklingar skipa hana, nema að sóknarprestur Súðvíkinga, Magnús Erlingsson, verður í henni. Þessari söfnun er ætlað að styðja við bakið á þessu fólki og hvernig því verður varið er alfarið á herðum þessarar stjórnar. Söfnunarfénu verður varið til allra Súðvíkinga til að aðstoða þá í framtíðinni. Þetta verður til aðstoðar fólkinu í þessu byggðarlagi þar sem tryggingar geta aldrei bætt alla hluti, eins og tals- maður átaksins sagði. Þá skal tekið fram að allir sem koma að átakinu gefa alla sína vinnu og gildir það jafnt um opin- bera aðila og óopinbera. Að þessu leyti má segja að þetta sé einstakt átak. ■ Eyþór ogAtli Eiftirvinnsla myndar JóHANNS SlGMARSSONAR, Ein stór fjölskylda, hef- ur gengið fremur brösuglega. Mynd- in var tekin upp sumarið 1993 og gerðu fyrstu áætl- anir ráð fyrir því að hún yrði frumsýnd sumarið eftir. Bág fjárhags- staða Jóhanns orsakaði að þessar áætl- anir fóru úr skorðum en nú hefur nokkuð ræst úr peningamál- unum og Þessi bíll hefur staðið óhreyfðurfrá því á Þorláksmessu við stöðumæli fyrir utan Laugaveg 116. Eins og sést hafa stöðumælaverðir Bílastæðasjóðs verið iðnir við að setja gíróseðla frá sjóðnum undir rúðuþurrkur bíls- ins. - Nei - Skárr’n ekkert - Já- • Hart í ári hjá sápunum • Byssubófar á Skaganum hefur helst getið sér til frægðar að leika á kaffihúsum en hljómsveitin vakti líka mikla lukku þegar hún sá um tónlistina í uppsetningu Frú Emilíu á Kirsuberjagarðinum í haust... X ími svokallaðra sápubúða virðist vera að Iíða. Fyrir ekki margt löngu opnaði verslunin Eplatré, sem þekkt er undir alþjóðheitinu Craptree and Evelyn á Skólavörðustígnum, en hún hefur selt svokailaðar jurta- snyrtivörur, en nokkuð vandaðri vöru en systurbúð hcnnar Body Shop. Nú er háverslunartími ársins liðinn, en þá kcmur jafnan í Ijós hverjir lifa af og hverjir ekki. Svo virðist sem verslunin Eplatré hafi ekki haft þetta af því eftir að versl- unnni var skellt í lás fyrir helgi hefur hún ekki opnað aftur. Ein önnur þessarar tegundar lokaði á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi á dög- unum, er það Nectar-búðin. Áður en hún fluttist á Eiðistorgið var Nectar-búðin staðsett við Laugaveg- inn... I nýjasta tölublaði Skagablaðsins er greint frá því að maður einn, sem ætlaði að losa sig við sorp, varð frá að hverfa vegna skothríðar á haug- unum. Hann stökk þó ekki heim í ofboði, heldur hlustaði á dynjandi skothriðina um hálftíma skcið úr hæfilegri fjarlægð áður en hann hringdi á lögregluna. Þegar Skaga- löggur mættu á svæðið voru skot- mennirnir hins vegar á bak og burt. Það er sem sagt víðar en á sparkvell- inum sem Skagamenn fá útrás fyrir skotgleði sína... fyrirhugað er að mynd- in verði ffumsýnd í byrjun mars. Ýmislegt í sambandi við kvik- myndagerðina hefur verið á reiki allt fram á síðustu vikur, þar á meðal hver myndi sjá um tónlist myndarinn- ar. Jóhann talaði fyrst við Eyþór ÁRNALDS sem tók mála- eitan hans vel. Af ein- ívcrjum orsökum hætti iyþór við. Þá sneri Jó- íann sér til Atla Heim- s SvEINSSONAR en hann nun hafa tekið honum heldur fá- ega. Lending varð sú að félagarnir í linni margrómuðu hljómsveit skárr’n ekkert tóku að sér verkefn- ið. Skárr’n ekkert Skráður með síma Vegna umfjöllunar Morgun- póstsins nýlega um kjaramál landsbyggðarþingmanna er rétt að taka fram eftirfarandi hvað varðar Halldór Ásgrímsson: Þegar Halldór hóf þátttöku í stjórnmálum og varð alþingis- maður 1974 tók hann ákvörðun um að hafa aðsetur á Höfn í Hornafirði og keypti þar hús. Þeg- ar Halldór féll af þingi 1978 bjó hann og starfaði á Höfn um margra ára skeið. Halldór varð ráðherra 1983 og flutti hann þá með fjölskyldu sinni til Reykjavík- ur. Nokkrum árurn síðar seldi hann hús sitt á Höfn og flutti að- setur sitt í íbúð í húsi foreldra sinna. Þetta hús var selt í sumar og tók Halldór þá á leigu íbúð í húsi bróður síns á Höfn. í grein Morgunpóstsins segir að Halldór sé ekki skxáður með síma á Höfn. Þetta byggðist á röngum upplýsingum frá Pósti og síma sem síðar voru leiðréttar. Mistökin komu til vegna þess að Halldór var skráður sem Hallgrímur Ásgrímsson hjá Pósti og síma. Halldór er beðinn vel- virðingar á þessu. Ritstj. FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR-1995- MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 5 Svavar Sigurkarlsson ásamt börnum sínum tveimur, Alexen- der og Gunnhildi og hálfbróður Alexanders, Róberti. „Ég hitti svo börnin í hálftíma eftir að ég kom inn á ísafjörð. það er gleðilegasta stund sem ég hef lifað, það get ég sagt þér.“ Faðir tveggja barna í Súðavík var staddur í Reykjavík þegar fréttir bárust af snjóflóðinu. Hann vissi ekki um afdrif þeirra og ákvað að fara með varðskipinu Tý vestur. Hann hitti börnin heil á húfi skömmu eftir komuna til ísafjarðar eftir langa og erfíða ferð „Gleðileg- asta stund lífs míns“ Svavar Sigurkarlsson er bú- settur í Reykjavík þar sem hann er í skók. Á sumrin er hann í Súðavík þar sem hann á tvö börn, hálfsystk- ini, þriggja ára dreng og átta ára stúlku — Alexander og Gunnhildi Eik, Hann heyrði fréttir af snjó- flóðinu í fjölmiðlum á mánudags- * morguríinn eins og aðrir Iands- ■ 'menn. Hann réyndi að afla sér upp- ''‘lýsinga .um áfdrif barna sirlna og . t féklc.fyrst þær upplýsjngar áð ftóðið ^..hefði fallið á Túngötu og Nesveg. „Strákufínii tninri, Alexflhdec^býr í r. Jjþlokkjnhi ,vjð -^ðal^öfu jáj <?g tpg- ’régkn' sagbh. mér áð ílrijift'jtieroi sJpPPÍð; jÝfi-'hanj. og ammá áttu hehna ttþþi & Nesvegi qg ég vissi að * Áhjóflóðið. haíði knt á þeifra' húsi '.„ogatrákuriiin' minaer qfthjá þeim. 'Meiri fréttir.féjck ?g ekki.'MÍn við- l -bregð 'ýoru að ijrffa mig niður í yárðá<ift «g f(\ra ■ vestyr éf és'gæti ííettthya^>ðstoðað.,t 'ý- ' r« Í ' " ' Jýr lagði úr höfn í líeykjavflj um . Jkifþrjú á mánudaginn oéumíjög- urléytið héyýði Svavar að aðstand- endur fólks í Súðavík gæti haft samband við Rauða krossinn í Reykjavík til að leita frétta. Hann hringdi strax úr farsíma. „Þá fékk ég staðfestingu á því að börnin mín væru heil á húfi.“ Afi og amma drengsins, Sveinn G. Salómonsson og Hrafnhildur Þorsteinsdóttir fundust látin í húsi sínu en barns- mæður Svavars sluppu báðar, þær Margrét El- íasdóttir og María Sal- ómonsson. Dóttir Svavars bjó við hinn enda Aðalgötunnar með móður sinni. Það hús slapp í fyrra flóðinu en seinna flóðið á mánu- dagskvöldið hreif það með sér. • Svavar ætlaði sér inn í Súðavík en af því várð ekki, „Prestur um borb í várðskipinu sagði við mig að ég gerði rhikið meira gagn með því að styðja við bákið á börn- Unum heldur en að fara inn eftir þar sem væru margir ■ sérþjálfaðir menn. Égtók mark á því semhann sagði.“ Ferðin með varðskip- inu var löng og biðin hjá Svavari þar með. „Ég hitti svo börnin hálftíma eftir að ég kom inn á Isafjörð. Það er gleðilegasta stund sem ég hef lifað, það get ég sagt þér.“ -SG Dagana 18. til 22. janúar bjóðum við notaða bíla með vaxtalausu láni að hámarki 600.000 kr. til allt að 24 mánaða. NOTAÐIR BILAR SUÐURLANDSBRAUT 12 SÍMJ: 568 1200 beint 581 4060 Opíð laugardag kl. 10-16 og sunnudag kl 13-16. - o.' tígSSaA.* Fólksbílarnir eru afhentir á sóluðum og negldum vetrardekkjum frá Norðdekk. N0TAÐIR BÍLAR • N0TAÐIR BÍLAR • N0TAÐIR BÍLAR • N0TAÐIR BÍLAR • N0TAÐIR BÍLAR • I UMFERÐINNI ERU ALLIR í SAMA LIÐI IUMFERÐAR IRAÐ ■ ■ FJ0LNIR VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR SVEIGJANLEIKINN ER FORSENDA ÁRANGURS , i . 1 " 4ÍH STRENGUR hf. - í stöðugri sókn Stórhöfða 15, Reykjavík, sími91 -875000

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.