Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 10
SNJOFLOÐIÐ I SUÐAVIK 10 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995 íbúar við Túngötu og Nesveg í Súðavík töldu sig ekki þurfa að óttast snjóflóð. Göturnar sem húsin þeirra stóðu við voru utan hættusvæðis. Fólkið taldi sig öruggt. Eldsnemma á mánudagsmorgun lagði ógnarkraftur snjóflóðs húsin þeirra hins vegar í rúst, þau splundruðust og tvístruðust um stórt svæði. Tuttugu og sex manns grófust í snjóinn. Fjórtán manns, þar af átta börn, létust. Örvænting og ringulreið lagðist yfir þorpið, síðan þrotlaus barátta í beljandi stórhríð við að leita að þeim sem hugsanlega voru á lífi undir snjónum og rústunum. Nú þegar leit hefur verið hætt hvílir sorg yfir íbúum Súðavíkur sem spyrja sig hvernig þetta hafi getað gerst hrópaði sármóðir út um bmtinn glugga. Bílarlágu í tætlum og þök og bmt úrhúsunum voru í einum hrærigraut í snjónum. Hendur og fætur stóðu upp úr snjónum. Örvingluð og slösuð kona krafsaði í snjónum í leit að týndum bömum sínum þremur. „Þegar við komum að blokkinni sáum við bíla í tætlum og þök og brot úr húsum í einum hrærigraut í snjónum. Svo sáum við hendur og fætur upp úr snjónum. Það var eins og sprengja hefði fallið á þorpið,“ segir Margrét Elíasdóttir, 30 ára íbúi I Súðavík, sem kom með þeirn fyrstu að snjóflóðinu sem féll á þorpið klukkan tuttugu mínútur yfir sjö á mánudagsmorgun. Frá- sögn Margrétar er samhljóða öðr- um sjónarvottum. Ringulreiðin og örvænting var allsráðandi. Slösuð hjón höfðu brotist inn í sjoppuna við jaðar flóðsins og konan hrópaði út um brotnar rúðurnar „Finnið þið börnin mín! Viljið þið finna börnin mín!“ Önnur kona, sem flóðið hafði feykt úr húsi sínu, leit- aði klæðalítil skjóls í bíl og lagðist á flautuna til að gera vart við sig. Kona, sem tekist hafði að krafla sig axlarbrotin úr rústum húss síns, reyndi í örvæntingu að grafa effir þremur börnum sínum sem enn voru grafin í snjónum. 26 grófust í snjóinn Snjóflóðið féll úr Súðavíkurhlíð og á efstu húsin við Túngötuna. Húsin sem urðu fyrir miðju flóðs- ins spiundruðust og tættust í sund- ur. Hliðar þeirra og þök flutu með flóðinu á húsin sem stóðu neðar við götuna. Flóðið stöðvaðist ekki fyrr en við Njarðargötu og hafði þá farið í gegnum þrjár húsaraðir. Fimmtán hús urðu fyrir flóðinu og í þessum húsurn voru fjörutíu og átta manneskjur. Tuttugu og tveir gátu komist af sjálfsdáðum út úr húsum sínum. Tuttugu og sex grófust í flóðinu. Af þeim létust fjórtán en tólf björguðust. Tíu þeirra fundust strax á mánudags- morguninn, en Elma Dögg Frostadóttir, 14 ára, fannst ekki fyrr en seint um kvöldið eftir að hafa legið fimmtán tíma í snjónum, og Tomasz Lupinski, 10 ára, fannst ekki fyrr en á þriðjudags- morgun og hafði hann þá legið undir snjónum í rétt tæpan sólar- hring. Allir þeir sem björguðust eru á batavegi og ekki lengur í lífs- hættu. Til að gera sér grein fyrir ringul- reiðinni og örvæntingunni eftir flóðið skulum við grípa niður í frá- sögn Margrétar Elíasdóttur, sem hafði þurft að rýma hús sitt við Að- algötuna um nóttina vegna snjó- flóðahættunnar og gisti heima hjá systur sinni, Sigríði Hrönn Elías- dóttur sveitarstjóra. Hún segist ekki hafa sofið hírnu um nóttina vegna óveðursins, setið og drukkið kaffi með heimilisfólkinu, en loks ákveðið að ganga til sængur. „Við vorum varla komin upp í rúm þegar það var hringt og ég heyri Sigríði segja: „Það er fallið snjóflóð og einum er að blæða út. Við verðum að drífa okkur af stað.“ Við klæddum okkur í það sem hendi var næst — ég og systir mín, Douglas maðurinn minn, og mág- ur minn, Óskar Elíasson. Við héldum hvort í annað því það var svo hvasst og við sáum ekki út úr augum. Þegar við komum að blokkinni sáum við bíia í tætlum og þök og brot úr húsum í einum hrærigraut í snjónum. Svo sáum við hendur og fætur upp úr snjón- um. Það var eins og sprengja hefði fallið á þorpið. Við komum fyrst að sjoppunni upp úr hálfsjö og þar voru hjón sem bæði voru slösuð, honum blæddi mikið og hún var greinilega slösuð líka. Út um brot- inn gluggann hrópaði hún á okkur: „Finnið þið börnin mín! Viljið þið finna börnin mín!“ Þá kom maður hlaupandi með skóflu og sagði að kona væri í bíl þarna rétt hjá og við heyrðum í flautunni. Maðurinn minn fór með honum og þeir náðu henni út úr bílnum. Hún var í nærbuxunum einum fata og við vöðvum hana inn í álteppi sem var í bílnum, spörk- uðum upp hliðardyrnar á sjopp- unni og bárum hana þanngað inn. Við reyndum að hlúa að kon- unni og hjónunum sem voru þar fyrir eftir bestu getu. Maðurinn var skorinn inn að beini og við héldum um sárið til að stöðva blæðinguna." Saga fólksins sem bjó í húsunum sem flóðið fór yfir er átakanleg. Heyrði barnsgrát og góf niður að nljóðinu Húsið númer 7 varð lang verst úti af húsunum við Nesveginn. Sjónarvottar segja að þetta múr- steinshlaðna hús hafi hreinlega splundrast í snjóflóðinu. Bjarni Guðbjartsson, tengdasonur hús- ráðenda sem var gestkomandi í húsinu, og Daníel Magnússon, 13 ára uppeldissonur hjónanna, björg- uðust á undraverðan hátt. Bjarni svaf í herbergi sem sneri upp í hlíðina þaðan sem snjóflóðið kom og vissi ekki af sér fyrr en hann rankaði við sér í snjónum á nær- klæðunum einum fata. Um leið og hann áttaði sig heyrði hann barns- grát nærri sér og hófst þegar handa við að grafa niður að hljóðinu. Eftir skamma stund fann hann Daníel heilan á húfi. Þeir Bjarni og Daníel gengu að Nesvegi 3, þar sem efri hæðin stóð upp úr flóðinu. „Þeir voru báðir fá- klæddir og við fórum strax að hlúa að þeim,“ segir Lilja Ósk Þóris- dóttir, íbúi að Nesvegi 3, sem tók á móti þeim. „Þeir voru báðir rólegir og vissu nákvæmlega hvað hafði gerst. Drengurinn var orðinn kald- ur og við vöðvum hann inn í teppi og sængur.“ Bjarni fór aftur út að leita tengdaforeldra sinna, Hrafnhildar Þorsteinsdóttur, 49 ára, og Sveins G. Salómonssonar, 48 ára, en þau hjónin voru látin þegar þau fundust. Snjórinn stöðvaðist við rúmið en lagðist svo yfir hana Elvar Ragnarsson, 37 ára, var kvaddur út urn nóttina þegar raf- magnið fór af Súðavík og var því staddur í vararafstöðinni þegar flóðið féll. Eiginkona hans, Anna Sigurðardóttir, 35 ára, svaf hins vegar í húsinu að Nesvegi 1 og vaknaði upp við ofboðslegan há- vaða og sá að svefnherbergi hennar var orðið hálffult af snjó. Hún hafði haft á tilfinningunni þegar hún fór að sofa að eitthvað væri í aðsigi og var því alklædd. Hún segir í viðtali við DVað hún hafi byrjað að hlusta eftir börnun- um sínum tveimur, Guðrúnu Ástríði Elvarsdóttur, 16 ára, og Ragnari Berg Elvarssyni, 13 ára. Arnar Reyr Steinsson, 13 ára fé- lagi Ragnars, var gestkomandi í húsinu, en hann býr með fjölskyldu sinni að Túngötu 9, en það hús varð einnig fyrir flóðinu. „Ég reyndi að komast út úr her- berginu og fram á gang en gat ekki opnað hurðina," segir Anna í við- talinu. „Hún var löskuð og ég náði að brjóta hana upp. Þegar ég komst fram á ganginn sá ég börnin koma skríðandi ofan á snjónum sem náði langt upp á veggi.“ Guðrún lýsir því svo í samtali við Morgunblaðið að hún telji sig hafa verið vaknaða þegar hún sér snjó- inn fylla herbergið sem hún svaf í, stöðvast við rúmið en leggjast síðan yfir hana. Hún segist hafa nýlesið það að fólk ætti að reyna að þjappa snjónum í kringum sig ef það lenti í snjóflóði, hamast við það en náð að brjóta sér leið upp úr skaflinum. Hún heyrði í bróður sínum innar í húsinu og síðan í móður sinni sem kallaði börnin til sín. Anna tók börnin inn í herbergið til sín, kveikti á kerti og reyndi að huga að útgönguleið. Hún og Guð- rún skriðu ofan á snjónum inn í stofu og reyndu að opna svalahurð- ina en tókst ekki. Þær sneru við og reyndu að opna gluggann í svefn- herberginu og við það komu tveir bæjarbúar að og hjálpuðu Önnu og börnunum út um gluggann. Þau leituðu skjóls í næsta húsi, Nesvegi 3, þar sem fólk hafðist við á efri hæðinni, þar sem neðri hæðin var full af snjó. Margrét Elíasdóttir „Þegar við komum að blokkinni sáum við bíla í tætlum og þök og brot úr húsum í einum hrærigraut í snjónum." Hilmar Þórðarson „Það var farinn meiriparturinn af byggðinni og ég get Eyþór Valgeirsson björgunarsveitarmaður „Aðkoman var miklu verri ekki fmyndað mér að það fólk sem lifði þetta af, en átti hús sem fóru en við gátum búist við.“ með flóðinu, byggi þau upp aftur.“ Framhald á bls 12

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.