Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1995 MORGUNPÓSTURINN FÓLK Dramatísk ljóð eftir Auði Eydal Það gneistar af penna Auðar Eydal sem daelir um mótemið listrænum skrifum um leikhús í DV. Enda er leiklistargagnrýni hennar lesin upp til agna af þyrstum lesendum. Af þessu ljóði að dæma, sem er samtíningur gullmola úr leikdómi, streymir heitt blóð — funheitt blóð — um æðar Auðar eins og eiginmaður hennar Sveinn R. Eyjólfsson þekkir væntan- lega manna best. Strengjabrúður örlaganna m Dansinn er stiginn ae trylltari færistyfir í villtu nœturlífi hœgt og ógnandi — afneitun hverri nóttu er látin nœgja sín þjáning Tákn úrkynjunar og ófyrirleitni það birtir varla afdegi grófari oggrimmari — máttlítil hverfist atburðarrásin í söng og leik Ógnin verður áþreifanlegri í hlutverki hjólliðugs apa afholdi og blóði — meinfýsi burtfrá því ömurlega líft bregður svipu á loft Neitar hún að láta aðra hafa vitfyrir sér Helen Gunnarsdóttir tískubúðaeigandi eru % Það hefur löngum farið það orð af íslenskum konum að þær standi kvenna fremstar í heiminum þegar kemur að tísku. Þær séu upp til hópa velklæddar, frumlegar og alltaf bæt- andi við sig fatnaði, reyndar ve svo mikið að mönnum á til að eyðslusemin, en það er önnur saga. Þetta komi meðal annars fram í því að tískuverslun blómstri sem aldrei fyrr í Reykjavík. En hafa ef til vill allar þessar verslanir að geyma sama grautinn í sömu skálinni? Helen Gunnarsdóttir, sem rekið hefur verslunina Plexiglas sem verður að teljast með þeim frum- legri, undanfarin sex ár segir íslénskar konur síður en svo móttækilegar fyrir því nýjasta sem er að gerast í heimin- um í dag. „Eftir fimm til sex ár í hef ég rekið mig á það að það þýðir ekkert að selja íslenskum konum nema minnst tveggja ára garnlan tískuíatnað. 1 tísku nú er til dæmis mikið afþessum gerviéfnum, eins ög, plastl.og næloni. Mín reynsla segir mér að konumar fari að biðja um þann fatnað í íyrsta Jagi á næsta ári, ef ekki því þarnæsta. íslensk- ar konur vilja allar vera eins. Ég hef fundið það að ég er alltaf á undan hin- um með tískuna hingað heim. Þetta .segir ein- faldlega að íslenskar konur eru langt á eftir tísk- unni.“ Helen segir einkum íslenskar konur sem kornnar eru yfir 25 til 30 ára aldur ófrumlegar. „Eftir þennan aldur fara allar konur í sömu svörtu dragtina, nema kannski ein og ein listak- ona sem leyfir sér að vera frumleg. Það er algjör misskilningur að íslenskar konur fylgist vel með. Það er ef til viil ein og ein ungpía sem stundar böllin ög er að reyna að ganga út sem er frumleg. En Um leið og þær ganga út fara þær í sömu svörtu dragtina. Maður þarf eiginlega að vera lummó til þess að ná til þessara kvenna.“ En þótt Helen haldi því fram að margar ís- lenskar konur séu ijarri tískustraumunum segir hún þær þó klassískar og fínar, en hafi ekkert vit á tísku. GK Heleti Gunnarsdóttir, eigandi Plexi- glas, ásamtAlonzo sem sýndi hér eina af sínum frumlegu tískusýning- um á dögunum. Helen segir íslenskar konur klassískar en alls ekkifrum- legar néfylgi tísku. „Utn leið og ís- lenskar konur ganga útfara þœr í svörtu dragtina,“ segir Helen. ii'jj iXI í Rósen berg á föstudag Þá sjaldan sem hliómsveitin T-World spilar opinlærlega. sem er í mesta lagi á hálfsárs- fresti, ríkir eftirvænting. A föstudag er komið að því, en þá ætlar teknósveitin T-world að taka lagið í Rósenbergkjallaranum. Og vel að merkja, hljómsveitin spilar tölvutónlist, ekki tölvupopptónlist, þótt það síðarnefnda konti til greina, að sögn Magnúsar Guð- mundssonar (Magga legó), sem skipar hljóm- sveitina ásarnt Birgi Þórarinssyni. Nálægt tvö og hálft ár eru síðan þessi hljómsveit komst á koppinn. Á föstudag spilar dúóið læf í þriða sinn, en hötðu áður eingöngu mæmað. „Við erum bara búnir að vera heirna og æfa okkur enda komnir á| samning hjá bresku útgáfufyr- irtæki, því sama og gefur út tónlist Underworld, sem við hyggjumst fylgja eftir,“ segir Maggi legó. T-world hefur þegar gefið út einn tólf tommu geisladisk, lag á safndisk sem kemur út í Japan í lok mánaðarins og svo er önnui tólf tommu á leiðinni eftir einn o háJfan manuð. „Við lentum reym Maggi legó ogBiggi kotna einungisfram á hálfsársj með hljómsveit sína T-world. ar í smáplotti þama úti því að við fittuðum ekki inn í )>ctta rótgróna fyrirtæki sem er með fyrir- fram afmarkaða tónlistarstefnu. Það var því tekið á það ráð að stofna utan um okkur nýtt íyrirtæki. Það hefur ekki farið hátt en er að koma upp á yfirborðið að við erum barasta spilaðir víða um heim. Við eigum þó enn eft- ir að gera okkur nafn sem við stefnum ótrauðir að. Ég er til dæmis að fara til Bret- lands og verð þar um tíma að fylgja þessu eftir.“ Eruð þið ekki einir um hituna, að minnsta kosti hér á landi, í teknótónlistinni „Ekki kannski alveg. Það cru nokkrir strákar í þessu, en þeir eru bara ennþá inni í svefnherberginu heima hjá sér því þeir eiga enga peninga til þess að gefa út. Eng- inn á heldur pening til að hjálpa þeim, enda yrði það sjálfsagt þannig að enginn rnyndi kaupa plötuna þeirra.“ Er teknó ekki bara brjáluð eyrnamcrgstón- list? „Það eru ljúfir tónar þarna inn á miUi.“ GK Fimmtudagur Gaukur á Stöng býöur upp á sveitina Karakter sem er enn eitt blómið í rokkflórnum. Gaukurinn svíkur ekki frekar en fyrri daginn. I kvöld mun Texas-Jesus, einhver frískasta neðanjarðarsveit seinni tíma halda fyrstu tónleika sína á nýju ári. Tónleikurinn verður haldinn á Veit- ingahúsinu 22, Laugavegi 22 og mun hann hefjast kl. 22. Texasmönnum til halds og trausts verða Hinir guðdómlegu Neand- erdals-menn. Hér eru komnir tón- leikarnir sem geta viðhaldið stuði í mannskapnum á þesum síðustu og... I framhjáhaldi má geta þess að þær fréttir hafa borist að örfá eintök af Tex- as-Jesus snældunni vinsælu, Nammsla tjammsla, hafi fundist í brunarústum rokkogrólklerksins David Korsh í Waco. Merkilegar fréttir það. Þau verða sett í sölu í Hljómalind Austurstræti. Föstudagur Karakter sýnir sinn innri styrk og Ka- rakter annað kvöldið í röð á Gauki á Stöng. Á föstudags- kvöldið brýtur Raggi Bjarna enn eitt blaðið í íslenskri tónlistar- sögu þegar hann syngur á Mímis- bar á Hótel Sögu. Hann fer að verða búinn með heila bók, sveiflusjar- 31 mörinn með handahnykkinn. Raggi kemur til með að syngja á Mímisbar um hverja helgi fram á vor. Það hafa minni atburðir þótt til tíðinda. Ragga til aðstoðar verður Stefán Jökulsson tónkóngur. Þeir félagar spila nýju lögin í bland við þau gömlu, rokkogról í bland við suður-ameríska sveiflu, íslenska dægurslagara og þar fram eftir göt- unum. Sá sem viðurkennir ekki yfir- burði Ragga og mætir gallharður á fyrsta kvöldið ætti að skella sér í kalda sturtu og skammast sín. Laugardagur Karakter heldur enn uppi stuðinu á Gauknum. Svona hljómsveit þarf lág- mark þrjú kvöld til að koma sér í al- mennilegt stuð. Raggi Bjarna brýtur enn eitt blað með öðrum tónleikum á Mimisbar. Skyldumæting fram á vor. Björgvin Halldórsson, glanshetjan sem reis upp frá dauðum, er með stórsýningu sína, Þó líði ára og öld, á Hótel Islandi. Eftir sýninguna verður stórdans- leikur með hljóm- sveitinni Stjórn- inni (sem lofaði reyndar að bailið um síðustu helgi yrði það allra- allraallra síðasta. Stjórnin er bara of skemmtileg til að geta hætt.) Sérstakir gestir Stjórnarinnar verða Björgvin Balldórsson, oft þekktur sem Bo Hall, Gunnar Þórðarson og Bjarni Ara. SUNNUDAGUR Hin loðna rotta á Gauknum. Fá orð hafa minnsta ábyrgð. Hvað er í leikhús- unum? Oleanna Þjóð- leikhúsið, föstu- dags- og sunnu- dagskvöld. Frum- sýning á Litla sviðinu. Þórhallur Sigurðsson leik- stýrir og Elfa Ósk og Jóhann Sig. stóri leika. Leikrit eftir David Ma- met, eitthvert viðurkenndasta leikskáld Bandaríkjamanna. Fávitinn Þjóðleikhúsið, fimmtu- dags- og laugardagskvöld. Hilmir Snær er algjör engill í aðalhlutverki sýningar sem helst hefur verið gagnrýnd fyrir of- urleikstjórn — hvað sem það nú þýðir. Snædrottningin ★★★★ Þjóðleikhúsið, sunnudag kl. 14. Byggt á ævintýri H.C. Andersen. Upplögð leikhúsreynsla fyrir yngstu kynslóðina þó að þau allra yngstu gætu orðið svolítið hrædd við púðurskotin. Gaukshreiðrið Þjóðleikhúsið, laugar- dagskvöld. Leikarar Þjóðleikhússins fara á kostum sem geðsjúklingar. Sýn- ing frá síðasta leikári. Gauragangur Þjóðleikhúsið, fimmtudagskvöld. Enn gengur þessi söngleikur sem er frá síðasta leikári enda á ferðinni stórgóð tónlist eftir hljómsveitina Nýdönsk en þetta kann að vera síð- asta tækifærið til að sjá þá leika og syngja saman. Kabarett ★★★★ Borgarleikhúsið, föstudags- og sunnudagskvöld. Þegar upp er staðið er þetta enn einn stórsigur leikarans Ingvars E. Sigurðssonar og leikstjórans Guðjóns Peder- sen. Og bravó fyrir því. Ófælna stúlkan Borgarleikhúsið, laug- ardag kl. 16. Nýtt íslenskt unglingaleik- rit sem er virðingarvert framtak. Er ekki alltaf verið að tala um að það þurfi að ala upp nýja kynslóð leikhúsgesta? Leynimelur 13 Borgarleikhúsið, laug- ardagskvöld. Hundgamall íslenskur farsi og áhöld um hvort hann hefur elst vel eða illa. Leikhúsgestir láta sig ekki vanta á sýninguna og það segir kannski allt sem segja þarf. Óskin Borgarleikhúsið, föstudags- kvöld. Benedikt Erlingsson í hlutverki Galdra-Lofts Jóhanns Sigurjónssonar. Þetta er eitt af fáum íslenskum klass- ískum leikritum og nú eru fáar sýningar eftir. Á Svörtum fjöðrum LA, laugardags- kvöld og sunnudag kl. 16 og sunnu- dagskvöld. Frumsýning á leikgerð eftir Eriing Sigurðarson sem byggir á Davíð Stefánssyni, bókaverðinum og skáld- inu sem hefur yljað margri rómatískri sálinni i gegnum tíðina. Norðlendingar eiga Davíð og ekki dettur Sunnlending- um í hug að reyna að stela honum frá þeim. Óvænt heimsókn Akureyri, föstudags- og laugardagskvöld. Sakamálaleikur sem jafnvel Jón Viðar var nokkuð hress með. Arnar Jónsson reddar málum sem eru í hnút. Kirsuberjagarðurinn ★★★★ Héðins- húsið, laugardagskvöld. Gíó er góður þegar hann heldur stælunum í lágmarki og leyfir leikurunum að blómstra. Og athugið að þetta er síðasta sýning. Skilaboð til Dimmu Hlaðvarpinn, föstudagskvöld. Þórey Sigþórsdóttir, sem var stjarnan í Hvíta dauða Sjón- varpsins, er hér í tragikómískum einleik eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Sápa ★★ Hlaðvarpinn, laugardags- kvöld. Hi-á-kellingarnar-með-lagning- arnar-og-“jesenlóran-slæðurnar“- húmor eftir Auði Haralds og víst er að við þetta tækfæri heyrist dillandi kvennahlátur út í port.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.