Helgarpósturinn - 02.03.1995, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 02.03.1995, Blaðsíða 2
2 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995 í þessu blaði Þingmenn um trúfrelsi Vilja áfram ríkisrekna kirkju Magnús Scheving Er hann bara í bissness? Örðugleikar í tollinum Yfirmennirnir sakaðir um einræði og fylu Samkeppnisráð um Félagsvísindastofnun Vantar skýran að- skilnað í rekstur Hjúkrunarheimilin Skjól og Eir Kaupa hjúkrunar- gögn hjá forstjór- anum sjálfum ío Saga síbrotamanns Tíu ár í fangelsi fyrir „karamellu- þjófhaðiw 15 Ein stærsta jörð landsins Héraðshöfðingj- arnir deila 16 Páll Óskar í Berlín Fríkaði út með bersyndugum nunnum 19 Heimsmeistarinn í hnefaleikum Trúður á toppnum 20 Jim Smart 20 ára Litríkur svart/hvít- ur ljósmyndari 27 Innersphere á íslandi Tryllt og hratt teknó 28 Graffarar herja á Reykjavík Dulmál á veggjum 31 Hallbjörn og Herrann Topp tíu kántrílistinn Fyrst &fremst JON BALDVIN HANNIBALSSON Ekkert verið að púkka undir sælkera eftir flutningana SVERRIR HERMANNSSON ólíkt meiri gúrmemaður en utanrík- isráðherrann Hið fræga eldhús Framkvæmda- stofnunar horfið Nú er Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra búinn að hreiðra um sig í húsi Byggðastofn- unar, áður Framkvæmdastofnunar við Rauðarárstíg. Flutningarnir kostuðu sitt en það sem telst kannski til mestra tíðinda er að hið fræga og glæsilega eldhús Fram- kvæmdastofnunar, sem Sverrir Hermannsson lét hanna, var rifið út úr húsinu. Það hlýtur að hafa farið fyrir hjartað á mörgum sæl- keranum að þetta musteri matar- ins og krúnan í djásni ríkismötu- neyta er horfin. - Og nú er hún Snorrabúð stekk- ur, því það sem áður var skrifstofa Guðmundar Malmquist, forstjóra Byggðastofnunar, er nú orðin að skjalageymslu utanríkisráðuneytis- ins. Röskva vann á öllum vígstöðvum Ekki er búist við að sigurvíman renni af Degi B. Eggertssyni og félögum í Röskvu alveg á næst- unni; svo stór var sigurinn yfir erkifjendunum í Vöku í kosning- unum til Stúdenta- og Háskóla- ráðs. Röskvumenn segja að það sem geri sigurinn enn sætari en ella sé sú staðreynd að þeir hafi unnið á góða sigra þar sem áður voru sterk- ustu víg Vöku; viðskipta- og hag- fræðideild, lagadeild og verkfræði- deild. Þarf að byggia nýja flugstoð? Sem kunnugt er þá hefur komið í Ijós að íslendingar verða líklega að taka að sér landamæraeftirlit fyrir Evrópubandalagið. Glöggir menn hafa verið að reyna að velta því fyrir sér hvaða afleiðingar það hefur og hafa aðallega stoppað við eitt; nefnilega það að það verði að byggja nýja flugstöð við hliðina á Leifsstöð! Það helgast af því að þessi ágæta bygging Garðars Hall- dórssonar húsameistara er fyrst og fremst transit- flugvöllur sem getur ekki sinnt auknu hlutverki sem landamæraeftirlitsstöð. Þar að auki er rætt um að stöðin séu nú þegar að verða of lítil. Þrotabú Mótvægis Á sínum tíma boðaði Jón Einar Jakobsson, lögmaður að hann myndi fara í mál við þrotabú Mót- vægis hf. vegna umsýslu Stein- gríms Hermannssonar og félaga með fyrirtækið. Jón Einar er faðir Þórs Jónssonar, fréttamanns og ritstjóra Tímans á örstuttu tímabili Mótvægis hf. sem rekstrarfélags blaðsins. Töldu margir hluthafar sig á sínum tíma hafa verið blekkta til að láta inn fé í fyrirtækið. Töldu þeir að eignir Tímans hefðu verið stórlega ofmetnar og staðan því í raun mun verri þegar hlutafjár- söfnun fór fram en komið hefði fram. Nú hefur Jón Einar þingfest stefnu á hendur þrotabúinu. Þjóðvaki í standandi vandræðum á Austurlandi Hrakningar Þjóðvakans ætla að verða ærnar nú fyrir kosningar. Um síðustu helgi var haldinn fundur á vegum flokksins á Höfn í Hornafirði og ÁgÚST ElNARSSON gerði sér sérstaka ferð á Austurland til þess að auka á stemmninguna. En allt kom fyrir ekki, stemmning- in var í daufara lagi — meðal þeirra fjögurra sem mættu á fund- inn. Þjóðvaki stendur frammi fyrir miklu vandamáli varðandi það að manna framboðslista á Austur- landi. Helst hefur Þjóðverji nokkur að nafni Ludvig verið nefndur til að leiða listann. Hann er búsettur í Reykjavík en tengist Austurlandi á þann hátt að hann kenndi um hríð á Egilsstöðum auk þess að hafa starfað sem fararstjóri og stýrt hópum á Austurland. Alþýðu- flokkurinn er að vonum ánægður með þessa þróun mála en í ljósi síðustu alþingiskosninga má gera ráð fyrir því að slagurinn standi milli sjálfstæðismanna og Alþýðu- flokksmanna um uppbótarþing- Gísli Marteinn Baldursson, formaður Vöku, sem beið sinn stærsta ósigur í langan, langan tíma áttar sig ekki á því hvers vegna menn kusu ekki Vöku BJIíJ adJ Jíl líU Röskva vann enn einn sigurinn á Vöku í kosningum til stúdenta- ráðs í Háskólanum. Sigurinn var enn stærri en áður, nú fékk Röskva níu menn kjörna en Vaka aðeins sex. Rösk- va fékk urn 60 prósenta atkvæða en Vaka um 38 prósent. Gísli Mar- teinn Baldursson er formaður Vöku. Mér er sagt að Vaka liafi ekki fetigið verri út- reið síðart á fiórða áratugnum þegar nasistar klufú sig frá hœgri mönnum? „Ég veit ekki hvað er til í þvi. Ég hef ekki ver- ið í skapi til að skoða tölfræðina hérna. En Vaka hefur fengið færri atkvæði. Vaka fékk færri atkvæði í síðustu kosningum en þá voru náttúrlega þrjú fram- boð. Þannig að við er- var sterkari.*' Hvers vegna völdu þeirckki sterk- ari listann? „Ég átta mig ekki á því hins veg- verið látinn leiða listann af því að mönnum hafi þótt þú sem fonnaður hafa komið of Hólmsteiniskum stimpli á Vöku? „Á listanum er mikið af nýnemum og fólki sem er algjörlega ópólit- ískt þannig að það var engin pólitísk lykt af okkar lista.“ Menn eru kannski meira að tala um teng- ittgu formanns Vöku og aðstoðarmanns Hannes- ar Hólmsteins geri ég ráð firir? „Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri þetta. Á stefnuskrá okkar er líka Hannesar Hólmstein- íska víðs fjarri. Það er nú sennilega gróf móðgun bæði við hann og okkur að segja að þarna sé eitt- hvað samræmi á miili.“ Þið tapið stærra með hverju árinu sem líðttr? „Við munurn ekkert um ekkert að fá gríðar „ ---------- . lega fa atkvæði.“ Gísli Marteinn Baldursson formaður Vöku „A stefnu- gráia þetta heldur sahia Þannig að 38 prósent skrá okkar er Hannesar Hólmsteiníska víðs fjarri. Það er ]jði og hefna. Þessi listi er kannski ásœttanlegt? nú sennilega gróf móðgun bæði við hann og okkur að scm núna var í framboði Nei það er náttúr- segja að þarna sé eitthvað samræmi á milli.“ lega alveg ferlegt.“ Þið settuð Svein H. Guömars- son i cfsta stvti, vinsxlan úr spurn- ingakeppnunum, firrum lnspector i MR og nýskriðinn t'tr menntaskóla og þvt nokkuð ófiekkaður og... ? „Ékki bara hann, heldur allur listinn var mjög sterkur. Ég held að Háskólastúdentar séu aimennt mjög sammála um að okkar listi ar. Ég heid að ein af skýringunum sé sú að fylgismenn Röskvu eru mun harðari fylgismenn Röskvu heldur en fylgismenn Vöku, fylgis- nicnn Vöku. Þeir skili sér frekar á kjörstað og fyrirgefa sinni fylkingu miklu frekar mistök í veikum lista og veikri málefnastöðu." Er citthvað til íþví að Sve'tnn hafi er geysilega sterkur og það að þetta hafi ekki tekist núna er öðru um að kenna en því fólki sem þar starfaði. Það er eitthvað sem við verðum bara að setjast niður og skoða hvað er, hvar við gerum eitthvað rangt. Við komum tvíefld á næsta ári og munum hafa sigurað lokum. Þetta er spurning hvenær við knésetjum Röskvu, ekki hvort.“ -pj sætið. Sr. Gunnlaugur Stef- ÁNSSON (A) situr í því sæti og keppir að líkindum við Arn- BJÖRGU SvEINSDÓTTUR frá Seyð- isfirði (S) um það en Egill JóNS- SON er í toppsæti sjálfstæðis- manna. Tromp Alþýðuflokks- manna í þeim slag er að í þriðja sæti á lista þeirra situr kona að nafni Þuríður Einarsdóttir, einmitt frá Seyðisfirði og vel metin í sínu héraði. ÁGÚST EINARSSON talaði fyrír... átta eyrum á Höfrt GARÐAR HALLDÓRSSON tók ekki islenska tandamæraverði með i reikninginn þegar hann hannaði Leifsstöð STEINGRÍMUR HERMANNSSON Tíminn ættarað verða eilífðarhausverkur ÞÓR JÓNSSON Pabbihans ætlarsko ekkiað gefa sig með Mótvæg- ið DAGUR B. EGGERTSSON isigurvímu þessa dagana Þaö er heJvíti hart að maður geti ekki lengur lagt inn í banka án þess að vera laminn í hausinn með slökkvitæki. Já, ég hef reynt að slá lán í banka - en aldrei með slökkvitæki. Léttvigf Löggan með búninga og leikmynd en ekkert handrit Löggan mun aldrei finna ræn- ingjana í Lækjargötu. Það er hugs- anlegt að ræningjarnir kjafti frá, mikli sig af verkinu og einhver kjafti í lögguna. En löggan mun aídrei finna neinn. Maðurinn með útstæðu herða- blöðin í Iðnaðarbankanum í Breið- holti gaf sig ekki fram. Þess vegna er hann ófundinn. Ræningjarnir sem lömdu manninn í Kópavogi um árið hlupu ekki til löggunnar. Þess vegna veit löggan ekki hverjir þeir eru. Ræningjarnir sem rændu ÁTVR-mennina við Landsbankann á Laugaveginum fundust vegna þess að einhver mundi eftir því að hafa rætt við þá um borð í Eddunni um hversu auðvelt væri að fremja svona rán og sagði löggunni frá því. Það var gaman að fylgjast með löggunni í sjónvarpinu. Þeir fréttu af árekstri út í Örfirisey og voru mættir þar með hunda og þyrlu. Þeim var bent á hvar Saabinn var og voru mættir þar með hunda og þyrlu. End- uðu í bakgarðinum hjá Flosa Ólafssyni að hnusa af njólanum. Þeim var bent á að töskur frá Skeljungi væru upp í Hvammsvík. Þeir mættu þar með hunda og þyrlu. Þetta fékk mann til að spyrja sjálfan sig: Til hvers er þyrlan þarna? Ég held að hún hafi fyrst og fremst verið fyrir stemmninguna. Þetta var alvarlegur giæpur sem kallar á alvöru græjur og alvöru stemmningu. Og hvað er betra en þyrluhljóð frá háloftunum, hundgjá í fjarska, labb-rabb- tæki við mjöðm og einbeitni í augum? Þannig er það í glæpaþáttunum í sjónvarpinu. Eini ---munurinn á íslensku löggunni og þeim í sjónvarpinu er að lögg- urnar í sjónvarpinu geta lesið sér til um það í handritinu hver sé hinn seki. íslenska löggan hefur ekkert handrit — bara leikmuni og búninga. Löggan á Islandi er alin upp við rannsóknir sem miðast við það að athuga hvort innbrotsþjófurinn í sjoppunni hafi farið í pulsupottinn. Éf svo er þá er Jonni feiti handtek- inn. Ef þjófurinn stal Salem Light þá er það líklega Palli Kína. Og ef hann hefur gengið sóðalega um og skrifað „Drepið kennarana!" með tómatsósu á vegginn þá er Siggi skjálfti handtekinn. Þetta eru svokallaðir góðkunn- ingjar lögreglunnar. En ef þjófur- inn stelur bara grænum forstpinn- um, lakkrísrörum og rauðum Win- ston þá stendur löggan á gati. Slíkur þjófur hegðar sér ekki eftir neinum þekktum glæpabrautum. Hann er óútreiknanlegur. Og mun aldrei finnast. Lalli Jones

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.