Helgarpósturinn - 02.03.1995, Síða 19
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
19
Var sigur George Foremans í keppninni um heimsmeistaratitilinn á síðasta ári mesta
niðurlæging íþróttarinnar eða sigur manns yfir sjálfum sér? Foreman veit það ekki
sjálfur en nýtur lífsins til fullnustu sem elsti heimsmeistari hnefaleikasögunnar
■ ■
OGGÞYN
ÐUR
m 5. nóvember —
/ js Foreman
sér gat í
vörn
andstæö-
...og hægri
höndin ferf
afstaö... •
* j
Unnendur hnefaleikaíþróttar-
innar um heim allan vissu ekki
hvort þeir áttu að hlæja eða gráta
þegar George Foreman stóð yfir
vönkuðum Michael Moorer í
keppni um heimsmeistaratitilinn í
hnefaleikum á síðasta ári. Sigur
hins 45 ára gamla hnefaleikakappa
virtist vera sigur mannsins yfir
efninu (í tilviki Foremans er nóg
til af efninu) en í reynd sýndi þetta
fram á þann skrípaleik sem þrífst í
hnefaleikaheiminum. f raun veit
enginn hver er heimsmeistari
hverju sinni, þrjú sambönd gera
öll kröfu um að krýna heimsmeist-
ara og það var síðast fyrir tilstilli
Mike Tysons sem heimurinn átti
óumdeildan heimsmeistara. Nú á
heimurinn tvo miðlungsmenn og
höggþyngsta trúð í heimi.
Ferill Foremans er hins vegar for-
vitnilegur um margt og ljóst að þar
er á ferðinni óvenjulegur maður.
Hann ólst upp í Houston í Texas og
segir sjálfur að eini munurinn á
honum og Tyson sé sá að Foreman
komst upp með það sem Tyson sit-
ur inni fyrir! Foreman dregur enga
dul á að hann hafi verið efnilegur
glæpamaður þegar framsýnn um-
hoðsmaður kom auga á hann á sjö-
unda áratugnum.
Var heimsmeistari
í eitt ár
Foreman vakti fyrst athygli þegar
hann varð Ólympíumeistari í Mexí-
Georg Foreman. Nýtur lífsins til
fullnustu sem kóngurinn.
kó árið 1968. Það lá beint við að ger-
ast atvinnumaður og fljótlega stóð
öllum ógn af þessum risavaxna
hnefaleikakappa sem lauk flestum
bardögum með rothöggi. Á þeim
tíma ríktu þeir Muhammed Ali og
síðar Joe Frazier — teknískir
snillingar sem Foreman vildi líkjast.
Umboðsmaður hans benti honum
hins vegar á að hann væri öðru vísi;
slagsmáladýr með drápshvöt, það
sem Tyson fullkomnaði síðar. Að
lokum hirti Foreman heimsmeist-
aratitilinn af Frazier árið 1973 en
tapaði honum aftur árið eftir til Al-
is í því sem hefur verið kallað bar-
dagi aldarinnar sem fór fram við
sérkennilegar og allt að því frum-
stæðar aðstæður í Afríkuríkinu Za-
ire.
Foreman var í mörg ár að jafna
sig eftir tapið í Zaire. Kunningjar
hans fundu hann gjarnan með
mynd frá bardaganum þar sem Ali
stendur yfír honum, sigri hrósandi.
Þá fékk Ali stuðning allra í Zaire —
honum tókst að verða hetja svartra
manna en Formann fann bara hat-
ur í Zaire. „Ali hafði mig í hendi sér.
Ég hafði ætlað að kremja hann og
það hafði hann treyst á. Ég var því
miður ekki nógu klár þá,“ segir
Foreman.
Ferill Foremans hrundi eftir
þetta og hann byrjaði að haga sér
undarlega. Hann spreðaði pening-
um á alla kanta, fjölskylda hans hélt
að hann væri geðveikur, konan fór
frá honum og niðurlægingin var
fullkomnuð þegar hann tapaði fyrir
Jimmy Young í San Juan árið 1977.
Ferillinn var búinn — eða svo virt-
ist flestum.
Guð kemur til hjálpar
En í búningsklefanum eftir tapið
fyrir Young birtist honum Guð -
eða svo telur Foreman. Lýsingar
hans af atvikinu minna reyndar
einna helst á hjartaáfall en hvað um
það; líf Foremans gjörbreyttist eftir
þetta. Skömmu síðar flutti hann
aftur á æskustöðvarnar í Houston
og byrjaði líf sitt sem predikari.
Hann helt ræður á götum úti og
vitnaði endalaust um breytt líf sitt.
Hann byggði upp safnaðarstarf í
kringum sig, reisti kirkjur og bjó til
æskulýðsstöðvar. Hann hélt fyrir-
lestra og lýsti kappleikjum og að
lokum varð hann vinsælt efni í við-
ræðuþáttum. En þetta dugði Fore-
man ekki — honum fannst eitthvað
vera eftir af ferli sínum. Þrátt fyrir
mótmæli fjölskyldunnar hóf hann
aftur feril sinn í hringnum árið
1987. En skilur alveg til fullnustu af
hverju hann fékk tækifæri gegn
Moorer en endalaus sundurþykkja
hnefaleikasambandanna þriggja
gerði það að verkum að Foreman
tókst að komast í tæri við titilinn án
þess að byrja á hefðbundnum upp-
hafsreit.
Foreman hafði lagt töluvert á sig
til að komast í æfingu aftur, jafnvel
reynt að bæta úthaldið með hlaup-
um. Hann einbeitti sér þó mest að
höggæfingum og tilkynnti að þar
sem styrkur hans fælist í högg-
þyngdinni væri í raun ekki mikið
vit í því að léttast mikið. Hann
keppti jú hvort sem er í þungavigt!
Það var þess vegna ljóst að það
var ekki jafnt á með þeim komið
þegar í hringinn var komið í nóv-
ember síðastliðnum. Foreman
minnti meira á súmóglímumann en
hnefaleikakappa og Moorer dans-
aði í kringum hann í hringnum.
Fyrstu loturnar virtist Moorer hafa
bardagann í hendi sér og Foreman
átti í nokkrum öndunarerfiðleikum
og var mjög tekinn að lýjast. En
þegar tvær mínútur voru liðnar af
10. lotu gleymdi Moorer sér andar-
tak og höggþyngsti trúður í heimi
náði hægri handar höggi sem
dugði. Heppni? Jú, auðvitað en
höggþyngd skiptir hins vegar máli í
þessari harð-
hausaíþrótt. Ef
þetta dugar til þá
er íþróttin bara
svona.
„Enginn getur
áttað sig á því
hvað Georg þurfti
að leggja á sig til
að ná þessum ár-
angri. Hann
þurfti að berjast
gegn aldri, þyngd
og draugum for-
tíðarinnar. Hon-
um tókst það hins
vegar og þess
vegna er hann
kóngurinn,"
sagði Mort
Sharnik sérstak-
ur aðstoðarmað-
ur Foremans.
Engar ákvarðanir
hafa verið teknar
um frekari bar-
daga Foremans
en hann hefur
verið gagnrýndur
fyrir að horfa of
neðarlega á styrk-
leikalistann þegar
hann hefur verið
að velta fyrir sér
andstæðingum
sínum. Hann
langar greinilega
að varðveita titil-
inn enn um sinn.
SMJ - Byggt á
Esquire
í
...Michael
Moorer fær
...og George
Forernan er orö-
inn nyr lieims'
meratari t hnefn-
Nýlega var styrkur til atvinnuleikhópa afgreiddur. Sótt
var um til 54 verkefna af 23 leikhópum. Það er því
Ijóst að hér er um hagsmunamál margra að ræða.
Börn og frumsam-
in leikrit í öndvegi
Framkvæmdanefnd Leiklistar-
ráðs hafði úr 14 milljónum að spila
sem er dropi í hafið sé miðað við
fjölda umsækjenda. Sjö verkefni
hlutu styrk þannig að aðilar sem
stóðu að 47 umsóknum hafa bitið í
súrt epli. Nefndin er skipuð þeim
Hávari Sigurjónssyni leikstjóra,
Þórhalli Sigurðssyni leikstjóra og
Vilborgu Valgarðsdóttur og þau
gerðu eftirfarandi tillögur sem
menntamálaráðuneytið samþykkti:
Möguleikhúsið 2.000.000.-
Alheimsleikhúsið 2.000.000.-
Hermóður og Hervör 2.000.000.-
Tíu fingur 2.000.000.-
íslenska leikhúsið 900.000.-
Frjálsi leikhópurinn 400.000.-
Samtals: 9.300.000.-
Afgangurinn af 14 milljónum, 4,7
milljónir, gengu upp í starfssamn-
ing við leikhúsið Frú Emilíu og er
það afgangurinn af þeim samningi.
Möguleikhúsið, með Pétur Egg-
erts fremstan í flokki, sem er öflugt
barnaleikhús starfandi við Hlemm
fékk styrk til ótilgreinds verkefnis.
Alheimsieikhúsið fékk styrk til
uppfærslu á leikritinu Konur skelfa
eftir Hlín Agnarsdóttur en hún er
ein helsta sprautan í Alheimsleik-
húsinu. Hermóður og Hervör er
leikhópur sem samanstendur af
leikarahjónum búsettum í Hafnar-
firði auk gullsmiðs og leikara úr
Garðabænum. Nánar tiltekið þeim
Hilmari Jónssyni, Sóleyju
Elíasdóttur, Gunnari
Helgasyni, Björk Jakobs-
dóttur og Erling Jóhanns-
syni. Þau hyggjast færa upp
nýtt verk eftir Hafnfirðing-
inn Árna ibsen væntanlega í
Bæjarbíói. Tíu fingur fær
styrk til leikgerðar á skáld-
sögunni Mist of Avalon. Það
er brúðulistakonan Helga
Arnalds sem stendur að Tíu
fingrum. íslenska
leikhúsið meði
Þórarin Eyfjþl'ð
og Halldór
Björnsson inn-
anborðs ætla sinn
styrk í uppfærslu á
Úr djúpinu eftir
Maxim Gorki.
Halldór E. Lax-
ness er aðalmað-
urinn í Frjálsa leikhópnum
og er styrknum ætlað að
hjálpa upp með Ieikferð um
landið með sýninguna Sann-
an vestra, sýningu sem hlaut
mjög lofsamlega dórna, en
gekk ekki sem skyldi þegar
hún var sýnd í Tjarnabíói
fyrr í vetur.
Af ofangreindu má vera
ljóst að úthlutunarnefndin
hefur gengið út frá tveimur
meginforsendum. Annars
vegar að styðja við leikhús
fyrir börn og hins vegar að
stuðla að nýsköpun í ís-
lenskri leikritagerð. JBG