Helgarpósturinn - 02.03.1995, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995
MORGUNPÓSTURINN LÍFIÐ EFTIR VINNU
29
Leó Löve hafði aðra ástæðu til að skipta ekki við Olís
Leó Löve hafði samband við rit-
stjórn MORGUNPÓSTSINS og
vildi gera athugasemd við fram-
setningu dálksins „bætifláka" sem
birtist síðasta mánudag í blaðinu. (
þessum dálki var starfsmanni
bensínstöðvar Olís í Hamraborg
gefið tækifæri á að svara gagnrýni
Leós sem hafði haldið því fram í
qrein í Tímamim að starfsmenn um-
ræddrar bensínstöðvar
hefðu ekki reynst aldraðri
móður hans sérlega
hjálplegir þegar hún varð
fyrir því að sprakk á
dekki á bíl hennar. Fyrir-
sögn greinar Leós í Tím-
anum var: „Þess vegna
kaupi ég ekki hjá Olís“ en
afjo^nningu^blaðamanns^
MORGUNPÓSTSINS
mátti skilja að eina
ástæðan fyrir þeirri af-
stöðu Leós væri slæm
framkoma starfsmanna
olíufélagsins við móður
hans. Leó gerði athuga-
semd við að þetta væri
ekki nema hálfur sann-
jej<uij02 benti áað íum
ræddri grein í Tímanum kom fram
að áður en atvikið með móður hans
átti sér stað, hafði Leó kynnst
dónalegri framkomu starfsmanna
Olís, og það hafi verið sú framkoma
sem varð til þess að hann ákvað að
snúa viðskiptum sínum annað. At-
vikið með móður hans varð aðeins
til að gera hann staðfastari í þeim
ásetninqi.
Kolbrún með tvöfalt
Kolbrún Halldórsdóttir leikstýrir
Djöflaeyjunni hjá L.A. og má
kannski segja að hún gangi með
tvíbura í ákveðnum skilningi. Kol-
brún er barnshafandi og ef allt
gengur samkvæmt áætlun þá mun
hún fæða af sér sýninguna áður en
erfinginn lítur dagsins Ijós. Hann er
væntanlegur í byrjun apríl en Djöfla-
eyjan seinni part marsmánaðar...
Steini fyrir framan eina af mynd-
unum sem hann hefur gert eftir
pöntun. Þær myndir merkir hann
með opinberu merki sínu,
SHARK’E, en ekki fæst uppgefið
hvernig hann merkir myndir sem
hann gerir án leyfis.
„Úti nota graffarar „tag“ til að
merkja sér svæði. Oft er þetta í
tengslum við dópviðskipti og þess
háttar og klíkurnar afmarka við-
skiptasvæði sín með þessu. Regl-
urnar í kringum „tögin“ eru mjög
strangar. Það þykir til dæmis mikil
móðgun að fara ofan í annað „tag“
og þegar er gerður hringur utanum
„tag“ eða krossað yfir það, er það
skilaboð til eiganda viðkomandi
Þetta „tag“ stendur fyrir nafnið
RICHARD, en Steina fannst lítið til
þessa merkis koma.
NICE DNA CREW stendur á vegg
við Reykjavíkurhöfn. Þetta „tag“
er eftir einhvern úr danska graf-
farahópnum DNA. Graffarar
leggja mikla áherslu á að skilja
sitt „tag“ eftir hvar sem þeir koma
í heiminum.
„tags“ að hann megi eiga von á
kúlu eða hníf í bakið.“
Að sögn Steina mynda graffarar
oft hópa í erlendum stórborgum og
hafa þá svipuð eða eins merki sem
þeir reyna að skilja eftir sig hvar
sem þeir koma í heiminum. Harð-
skeyttustu graffararnir gangast upp
í því að seta sitt „tag“ á staði sem
erfitt er að komast að: brýr, styttur,
há auglýsingaskilti, vegvísa og svo
framvegis.
Steini segir að það séu ekki marg-
ir virkir graffarar hér á landi en þeir
séu þó nokkrir sem reyna að halda
merki þessarar umdeildu listgrein-
ar á lofti.
„Það er svo skrítið að rappið sem
fylgir þessum kúltúr og fötin eru
vinsæl en þetta hefur einhvern veg-
inn orðið út undan nema hjá örfá-
um.“
-jk
„Fógetinn er minn heimavöllur," segir Haraldur
Reynisson trúbador en hann hefur spilað á
pöbbum og börum víða um land undanfar-
in 5 til 6 ár. „Mér finnst skemmtilegast að
spila á tónleikum og leika þá eigið efni á gít-
ar og munnhörpu.
Á Fógetanum er góð blanda af f slending-
um og útlendingum á öllum aldri. Svo eru
svona staðir sem eru bara með músik um
helgar eins og Feiti dvergurinn, Lundinn í
Vestmannaeyjum og sveitakráin Áslákur í
Mosfellsbæ. Það er fínn staður. Um helg-
ar byggist þetta fyrst og fremst upp á að
vera með sem fjölbreytilegast prógram
en staðirnir sem ég spila á eiga það
sameiginlegt að það er svipað fólk sem
sækir þá, svona venjulegt fólk. Kvöld-
in eru mjög misjöfn og ég held ég viti
bara ekki hvar er leiðinlegast að spila. Ég
hef verið mjög heppinn með fólkið sem ég hef
verið að spila fyrir, það hefur aldrei verið neitt vesen.
Að vísu eru alltaf til menn sem geta farið mjög mikið í pirr-
urnar á mér ef þeir eru útúrdrukknir og ætla að fara að stjórna manni.
Það er tvennt ólíkt að spila fýrir edrú fólk og það er tíu sinnum skemmti-
legra og ég stefni að því að halda meira af tónleikum í framtíðinni þar sem
fólk kemur bara til að hlusta. Mér finnst best að spila á stöðum þar sem er
ekki dansgólf því þá nær maður meira til fólksins. Maður verður bara að
láta vaða, það þýðir ekkert að húka úti í horni og grúfa sig ofan í gítarinn.
Sérstaklega ekki um helgar. Þá er þetta bara bissnsess- atriði fyrir barina
að maður skemmti fólkinu. Það getur komið inn fólk sem vill heyra Bob
Dylan og þá spilar maður hann bara. Svo lendir
maður kannski í því að spila fyrir eldra lið einhver
gömul íslensk alþýðulög en ég er með nokkur hundr-
uð lög á prógramminu. Leiðinlegast flnnst mér að
spila Undir bláhimni en ég tek það samt ef ég er beð-
inn um það. í miðri viku get ég síðan spilað meira af
mínum eigin lögum.“ Haraldur vinnur nú að upp-
tökum á annarri plötu sinni en hún kemur væntan-
lega út í október. lae
Haraldur Reynisson trúba-
dor. „Leiðinlegast finnst
mér að spila Undir bláhimni
en ég tek það samt ef ég er
beðinn um það.“
Notalegt
lióð eftir
Rafn Geirdal
Það leikur allt í höndum Rafns Geirdal. Það er ekki
óeðlilegt að álykta sem svo að Rafn, verandi þessi
nuddari sem hann er, láti sig efnið meiru varða en
andann. En það er nú eitthvað annað og þeir sem til
mannsins þekkja segja að Rafn hrærist í ótal heim-
um. Hafandi „Síðunudd“, ljóð(þulu) vikunnar, í
huga er Ijóst að Rafn er eins og í mat hjá mömmu í
skáldheimum. Ef hægt er að líkja þeirri upplifun
sem felst í því að eiga stund með Síðunuddi við eitt-
hvað þá er það helst, tja, heilanudd sem kemur upp
í hugann. Nudd er í eðli sínu fremur fráhrindandi
orð, einkum í eignarfallsmyndinni, en Rafn lætur
það ekki aftra sér og orðið nudd einhvern veginn...
andar rétt í meðförum hans.
ætla
Síð£
nudfea n(u
nud cpf n’ud
nudd í Kanada
nudd í Þýskala
— n u d d. |
Síðan myndi ég
nudda nuddara«
nudda nudðsins höndut
nudda íoo mannj
nudda nudda nudda
- nudd.
Síðan ber að gefa
að á svicMnudds
hafa öðIaSt reynslu
sjúkranuddarar
sumir þe|rra nudda
— nu
Síðan h
nuddsin
nuddsk
þeirra á
tryggast
— nudd
frá
B o u 1 d e,r
égr
n u<
Ljóð Rafns er tilbúningur MORGUNPÓSTSINS sem notar setningar og orð úr grein eftir hann f Velvakanda á laugardag.
■mnmni
Spoon heldur tónleika á Gauki á Stöng
í kvöld.
In-Bloom heldur „frítt-inn“-tónleika á
Tveimurvinum.
Arnar Guðmundsson verður trúba-
dúr kvöldsins á Fógetanum.
Sigga Beinteíns ein síns liðs á Kaffi
Reykjavík.
Tríó Egils B. Hreinssonar leikur
djass á Jazzbarnum.
Blues Express með standarda á
Kringlukránni.
Kvartett Jens Winther og Tómas-
ar R. í Deiglunni.
■IBHEaXH
Raggi Bjama og Stefán Jökuls-
son sjá um að halda uppi stemmningu
eins og hún gerist best á Mímisbar.
Langbrók innheldur meðal annarra
hinn barða Ofur-Baldur. Þeir leika á
Gauki á Stöng.
Papar á Tveimur vinum.
Mæðusöngvasveit Reykjavíkur
spilar Smokie og Dr. Hook-lög á Fóget-
anum.
Innesphere er hörkuteknógrúppa
sem leikur i (þróttahúsinu við Strand-
götu fyrripart föstudagskvöld en færir
sig svo yfir á Tunglið síðla kvölds.
Hunang leikur fyrir dansi og þá sem
ekki vilja dansa á Ömmu Lú.
JJ-soul-band á Jazzbarnum.
Arnar og Þórir á blússandi siglingu á
Mömmu Rósu í Kópavogi.
Laugardagur
Ríósaga. Helgi Pé., Ágúst A. og
Ólafur Þ. rifja upp ferilinn eftir samtals
30 ára samfellda baráttu. Þeim til að-
stoðar verður Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, sú frábæra gamanleikkona. Síð-
ar um kvöldið leikur hljómsveitin Saga
Klass fyrir dansi.
Raggi Bjarna og Stefán Jökuls eru
hinn valkosturinn á Sögu þetta kvöld.
Langbrók teygir lopann á Gauki.
Papar frá Vestmannaeyjum á Tveimur
vinum.
Mæðusöngvasveit Reykjavíkur er
atorkusöm loks þegar hún er komin á
skrið. Hún er aftur á Fógetanum.
Hunang verður aðalhljómsveitin á sér-
stöku kúrekakvöldi á Ömmu Lú.
Bo Halldórs enn með sitt sjó, „Þótt líði
ár og öld“, sem er nú komið i sam-
keppni við Ríó tríóið á Hótel Sögu. Eftir
sjóið leikur Stjómin fyrir dansi ásamt
þeim Bo og Bjarna Ara.
Innesphere eyðir kvöldinu hjá unga
fólkinu á Villta tryllta Villa.
Þórir Baldursson ásamt Einar Vali
Scheving og Óskari Guðjónssyni í
djassveislu á Jazzbarnum.
Arnar og Þórir á Mömmu Rósu.
Blues Express slá bláa tóna á Gjánni
Selfossi fyrir lókala og aðkomulýð.
SUNNUDAGUR
Karma er spurning um orsök og afleið-
ingu, eða er öllu heldur hljómsveit sem
leikur á Gauki á Stöng.
Ellen Kristjánsdóttir leikur við und-
irleik píanóleikara á Kaffi Reykjavík.
Arnar Guðmundsson frá Akureyri
endar helgina á Fógetanum.
Einar Kristján Einarsson leikur á
gítar á Sólon Islandus.
Andrea Gylfadóttir ásamt Kjartani
Valdimarssyni í réttu umhverfi á
Jazzbarnum.
T A S T U Ð
Jens Winther og Tómas R. Ein-
arsson á Hótel ísafirði á fimmtudags-
kvöld og Deiglunni Akureyri föstudags-
kvöld.
Pláhnetan í Kántrýb'æ Skagaströnd á
föstudagskvöld og því næst á 1929 á
Akureyri.