Helgarpósturinn - 22.05.1995, Blaðsíða 10
WÍTONUBWGUJFregi
Jóhannes Páll páfi, sem
nú er í Tékklandi, baðst í
ræðu afsökunar á þeim
órétti sem kaþólska kirkj-
an hefði beitt aðra trú-
hópa í gegnum aldirnar.
„Að auki bið ég meðlimi
kaþólsku kirkjunnar fyrir-
gefningar á þeim þjáning-
um sem kirkjan kann að
hafa valdið þeim,“ bætti
hinn 75 ára gamii páfi við,
en honum tókst að móðga
gestgjafa sína í ferðinni
með því að taka í dýrlinga-
tölu kaþólskan mann, Jan
Sarkander, sem mótmæl-
endur töldu föðurlands-
svikara og píndu til dauða
árið 1620. Talsmaður Vat-
íkansins sagði að páfanum
væri hugleikin sameining
kristinna manna og segir
að aðalhindrunin í vegi
sameiningar séu ekki
kenningar heldur sagan
með öllum sínum fordóm-
uml
Andrew Lloyd Webber stórtækur
Gpeiddi morð
mu ' m
>áð vakti mikla athygli fyrir
skömmu þegar greiddar voru 18
milljónir punda eða sem svarar
1,8 milljörðum króna fyrir Pic-
asso-málverk á uppboði í New
York. Enginn vissi hver tilboðs-
gjafinn var. Nú er hins vegar
komið í ljós að kaupandinn var
enginn annar en söngleikjatón-
skáldið Sir Andrew Lloyd Webber
og hyggst hann geyma myndina í
listasafni sínu. Eftir uppboðið
var flogið með myndina, Angel
Fernandes de S’oto, til London og
er nú verið að fara yfir hana og
hreinsa.
Myndin er frá „bláa tímabil-
inu“ í list Picassos og fór á hærra
verði en nokkur önnur mynd síð-
an 1990.B
Sir Andrew tók upp
budduna og keypti Pic-
asso.
Meistaraverkið
verðmæta.
TÖLVAN STENDUR
í Kasparov
Garríj Kasparov á yfirleitt
ekki í vandrœðum með
að rúlla andstœðingum
sínum upp. Það kom þó
fyrir gegn Pentium-tölvu
í Köln, en sjónvarpsstöð
þar skipulagði einvígið á
laugardag.
JULIETTE LEWIS
í NÝRRI MYND
Þegar Robert De Niro tróð
þumli í barnslegan
munn leikkonunnar Juli-
ette Lewis í kvikmyndinni
Cape Fear lét hún vera
að brúka tennurnar en
velti fíngrinum um uppi
í sér líkt og sœlgœti.
Senan sýndi hvað í
stúlkunni bjó og vakti
athygli heimspressunnar
á henni. De Niro sagði í
viðtali að Lewis hefði
náttúrulega hœfileika og
œtti enga tilgerð til. í
dag hefur hin tuttugu og
eins árs gamla leikkona
náð heimsfrœgð, einkum
fyrir rafmögnuð spennu-
hlutverk með hrotta-
fengnu ívafí. Sem morð-
dúkkan Malory í mynd
Olivers Stone, Natural
Born Killers, gafJuliette
myndinni hina sálrœnu
dýpt sem hún þurfti á að
halda til að vekja raun-
verulegan hrylling og
viðbrögð. Mun mörgum
þykja núorðið sem
stúlkan með undarlega
andlitið leiki sér að eld-
inum, en eftir leik sinn í
kvikmynd Clints East-
wood, Bronco Billy, hef-
ur hún verið kölluð
villta barnið í kvik-
myndaheiminum. Juli-
ette hefur nú ákveðið að
takast á við enn ógn-
þrungnara hlutverk í
nýrri mynd Kathryn Big-
elow sem heitir Strange
Days eða Undarlegir
dagar, en þar verður
Juliette látin feta í fót-
spor fullorðinnar
konuM
IpisSi
Ofurskutlan Pa-
mela Anderson
með eiginmanni
sínum, rokksöngv-
aranum Tommy
Lee. Anderson er í
Cannes að kynna
nýjustu mynd sína
„Barb Wire“.
• Nú er allt á útopnu í Cannes í Suður-Frakklandi þar sem hin
árlega kvikmyndahátið geisar og stórstjörnur ganga hnarreistar
um sali en smástjörnur fikra sig varlega í hjörðum eftir rauðum
dreglum og stífbónuðum gólfum. Ein úr stórstjörnuflokknum,
Sharon Stone, er sögð krefjast átta lífvaröa þegar hún gengur
rauöa dregilinn inn í Palais du Festival til að vera viðstödd sýn-
ingu nýjustu myndar sinnar, „The quick and the dead“.
hvort einhver kakan hafi farið í
ráðherrann. Þrír sitja nú í varð-
haldi vegna málsins.
Ekki eru allir jafnánægðir með
hátíðina. Símvirki einn sagði að
hátíðin væri algjör martröð.
Hann fengi engin bílastæði og
gæti illa sinnt vinnu sinni. Veit-
ingahúsin væru yfirfull af há-
vaðasömum hálfvitum og eina
vitið væri að flýja bæinn á með-
an á ósköpunum stæði.B
Ljósmyndarar og sjónvarpstöku-
lið fylgist með óvæntri uppá-
komu Ungfrú loðfelds 1995 fyrir
sýningu nýjustu myndar breska
leikstjórans James Ivory, „Jef-
ferson í París“.
Og ekki dregur það úr áhyggj-
um öryggisvarða að heyrst hef-
ur að Madonna sé að hugsa sér
til hreyfings og verði kannski
viðstödd sýningu nýjustu mynd-
ar Alans Parker, en í henni leikur
Madonna Evitu Peron.
íslendingar láta ekki sitt eftir
liggja á hátíðinni því Bryndís
Schram stýrir þar samnorrænni
kynningarskrifstofu. Engar frétt-
ir hafa borist af áhyggjum ör-
yggisvarða vegna hennar.
Þeir hafa væntanlega meiri
áhyggjur af franska menningar-
málaráðherranum nýskipaða,
Philippe Douste-Blasy, sem var
ekki sérlega vel tekið því hópur
fólks henti rjómakökum að hon-
um er hann kom til hátíðarinn-
ar. Vitnum ber ekki saman um
j^r. Vitnum ber ekki san
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
(vennablaðið Cosmopolitan kem-
ur nú út í rússneskri útgáfu.
Rússneskar
konurfá
þaö of
sjaldan
Það er ef til dæmigert fyrir
skortinn sem ríkir í Rússlandi að
tæp sextíu prósent kvenna á þrí-
tugsaldri telja sig ekki njóta
nógu mikils kynlífs, ef marka má
skoðanakönnum rússneskrar út-
gáfu blaðsins Cosmopolitan. Olga
Lipvskaya, sem er í framvarðar-
sveit kvenréttindakvenna í St.
Pétursborg, segir að það séu
karlmennirnir sem einfaldlega
standi sig ekki.
í blaðinu kemur fram að 55
prósent kvennanna eru maka
sínum ótrúar og er það örlitlu
hærra hlutfall en í Vestur-Evr-
ópu og mun hærra hlutfall en í
Bandaríkjunum. Elena Myasniko-
va, ritstjóri blaðsins, segir að
þessi tala komi sér ekki á óvart,
hún hafi jafnvel búist við henni
hærri eftir áratugahömlur á kyn-
lífi og að nú sé upphaf kynlífs-
byltingar í Rússlandi.
Heil 65 prósent kvennanna
sögðust gera sér upp fullnæg-
ingu og sagði Myasnikova að það
tengdist því hefðbundna við-
horfi í Rússlandi að fyrsta skylda
kvenna væri að gera karlmannin-
um til hæfis.
Ennfremur sögðust 76 prósent
kvennanna stunda sjálfsfróun og
86 af hundraði leita á náðir
ímyndunaraflsins til að erta í sér
kynhvötina.
Nú lítur út fyrir að rússneskar
konur ætli að verða óseðjandi
því eins og Myasnikova segir: „Ef
þér græðast þúsund dollarar þá
langar þig í tvö þúsund!“B