Helgarpósturinn - 22.05.1995, Blaðsíða 16
IÞROTTIR
M'A'N 0 ÐWGIÍJ Rr2-2
(atrin Krabbe .
krefst 150 milljona
Dómstóll í Miinchen
hefur nú úrskurðað að
tveggja ára keppnis-
bann það er þýska
hlaupadrottningin Katr-
in Krabbe, ásamt stöllum
sínum Grit Breuer og
Silke Möller, var dæmd í
vegna ólöglegrar lyfja-
neyslu hafi verið ólög-
mætt.
Krabbe ætlar að
stefna Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandinu og
mun krefjast 150 millj-
óna króna í skaðabætur.
Krabbe, sem er með
barni, sagði við frétta-
menn að hún ætlaði að
einbeita sér á næstunni
að því sem mestu máli
skipti, en hún á von á
sér í þessum mánuði.
Annað fékkst ekki upp
úr hlaupastjörnunni,
enda er hún ekki þekkt
fyrir að tala við blaða-
menn án tékkheftis.B
I leyniheimsÉi á VestQarðun og lýndist í Reykjavík
A undirbúningstímanum fyrir laus — og farið meðal annars til
HM voru tilfinningar blendnar í
garð Erwins Lanc, hins austur-
ríska forseta Aiþjóðahandknatt-
leikssambandsins. Nú er það allt
gleymt og Lanc hefur sýnt landi
og þjóð mikinn áhuga, svo mik-
inn að rnenn söknuðu hans við
skyldustörf, en hann hvarf í sex
tíma hér í Reykjavík þegar kæra
Rússa var tekin fyrir.
Einnig hafði Vestfírska frétta-
blaðið uppi á honum og konu
hans í „leyniheimsókn" til Vest-
fjarða í upphafi síðustu viku.
Kom þá í Íjós að þau hjónin
höfðu tekið bílaleigubíl — sem
frúin ók þar sem Lanc er próf-
Súðavíkur til að skoða ummerki
snjóflóðsins og uppbygginguna í
kjölfarið. Einnig fóru þau til Bol-
ungarvíkur og Suðureyrar til að
fylgjast með fisklöndun. Lanc er
fyrrverandi fjármálaráðherra
Austurríkis en sagðist aðspurð-
ur hafa haft mikinn áhuga á að
sjá sem mest af íslandi.H
Erwin og Chris Lanc ásamt
Einari Garðari Hjaltasyni á
ísafjarðarflugvelli í lok
einkaheimsóknar hans til
Vestfjarða.
Hollenski knattspyrnu-
snillingurínn Marco van
Basten, sem átt hefur í
þrálátum ökklameiðslum
síðustu þrjú árin, segir
að hann geri sér enn
vonir um að geta leikið
að nýju. Orðrómur hefur
veríð á kreiki um að van
Basten, sem enn er
samningsbundinn AC
Milan, leiki ekki framar,
en forráðamenn ítalska
liðsins hafa neitað að
gefast upp og segja að
þegar um er að rœða
mann eins og van Basten
skuli allt reynt og ekki
gefíst upp fyrr en það er
101% öruggt að ekkert
sé hœgt að gera honum
til hjálpar. Þeir segja
ennfremur að nái van
Basten sérgeti hann ullt
eins átt fímm ár eftir í
boltanum.M
Kom sá og sigraði.
Enn SIGRAR
Samúel
Samúel Örn Erlingsson
íþróttafréttamaður sigr-
aði þríðja árið í röð í
ökuleikni fjölmiðlanna á
strœtisvögnum. Hann
þótti sýna fádœma snilli
á vagninum og þrátt fyr-
ir að aðrír fjölmiðlar
beittu öllum brögðum
tókst ekki að binda enda
á sigurgöngu Samúels.
Keppnin fór vel fram,
fyrir utan að keppanda
Morgunblaðsins tókst að
eyðileggja leikmuni
keppninnar og lenti fyrir
vikið í neðsta sœti. Ekki
er vitað hvort Morgun-
blaðinu verðurgert að
bœta tjóniðM
dómara sem dæmt hefur í I
bandarísku atvinnumannadeild- 9
unum. Síðasti leikurinn sem I
hann dæmdi var leikur í úrslita- ■
keppninni 1990. Þá léku Detroit ■
og Portland. Leikurinn fór fram í |
Portland og undir lok leiksins -
náði Danny Young að skora I
þriggja stiga körfu frá miðju —
karfan hefði tryggt Portland sig- I
ur. Strom gekk að miðju vallar- ■
ins og flautaði hátt og skýrt og I
gaf merki um að karfan hefði I
verið skoruð eftir venjulegan .
leiktíma. Einhvern veginn hefði |
verið ómögulegt fyrir þennan
stórkostlega dómara að enda I
ferilinn á einhverju öðru en að "
gera allt vitlaust.B
ir leiki og spjalla við hann.
Strom átti það líka til að fara út
á pöbbarölt með leikmönnum
og spjalla við þá um Ieikina og
dómana. Ein ástæðan fyrir því
að leikmenn báru virðingu fyrir
Strom var að hann dæmdi aldrei
nema honum þætti það sann-
gjarnt. Ef Ieikmaður var í tómu
rugli að reyna ómögulegt skot
og einhver braut lítillega á hon-
um dæmdi Strom ekki villuna
heldur sagði við leikmanninn að
hann fengi ekkert dæmt fyrir að
ana út í einhverja vitleysu.
Strom var hörkunagli og frá-
bær dómari. Sumir telja hann
vera besta dómara sem dæmt
hefur í NBA og jafnvél besta
Earl Strom var domari af
gamla skólanum og léf
engan segja sér fyrir
verkum, og ef reykinga-
bann var í íþróttahúsinu
þá þurftu menn bara að
gjöra svo vei að gera
undantekningu.
Rn.qti dnmari knrfiiknattlfiiks-
sftfllinnar
Grundardá
Itvergilpi,
Irallar rettu
• Fyrir skömmu var ákveöiö hverjir skyldu fá sæti í Heiðurs-
safni körfuboltans. í heiðurssafnið (Hall of Fame) hafa bestu
leikmenn, þjálfarar og frumkvöðlar íþróttarinnar verið kosnir,
auk þess sem nokkrir dómarar hafa fengið þann heiður.
Einn þeirra sem nú fengu inn-
göngu var Earl Strom. Strom, sem
lést í sumar, er líklega eini NBA-
dómarinn sem notið hefur vin-
sælda á við marga leikmenn. Það
má segja að Earl Strom hafi verið
Jón Otti NBA-deildarinnar. Leik-
menn virtu hann og áhorfendur
umbáru hann og vel það. Strom
var lengi álitinn besti dómari I
NBA-deildinni þrátt fyrir að að-
gerðir hans hafi oft valdið mikl-
um úlfaþyt og jafnvel var starf
hans sem dómari oft í hættu
vegna skapofsa hans.
Það er ekki auðvelt starf að
stjórna leik í NBA-deildinni þar
sem leikmennirnir halda allir að
þeir viti allt best og hafa ótrú-
Íegt sjálfsöryggi. Þess vegna er
stundum sagt að dómarinn þurfi
að vera með helmingi meira
sjálfsöryggi en allir leikmenn til
samans. Þetta gerir það að verk-
um að margir líta á dómara sem
hrokagikki, „besservissera“ og
leiðindaskjóður sem eru lítið
annað en ill nauðsyn. Earl Strom
kynntist þessum viðhorfum en
náði að sigrast á þessu og féll
vel í kramið hjá leikmönnum.
Þeir báru virðingu fyrir honum
vegna þess að ef þeir rifu kjaft
við hann þá hundskammaði
hann þá og reif kjaft á móti í
stað þess að grípa strax til
tæknivillunnar.
Strom dæmdi í NBA í 25 ár og
kynntist á þeim tíma mörgum
kynlegum kvistum. Sumir dóm-
arariná voru ahsi * hreint' ákráut-
legir. Slagsmál milli dómara og
áhorfenda, dómara og þjálfara
og jafnvel dómara og leikmanna
voru þá ekki óalgeng. Strom hef-
ur sagt frá því að eitt sinn þegar
hann dæmdi með einum af eldri
dómurunum á 7. áratugnum
leiddist þeim þófið þar sem leik-
urinn var bragðdaufur. í einu
leikhléinu sagði meðdómari
Strom við hann: „Ég bara þoli
ekki að horfa upp á áhorfendur
sitja með hendur í vösum.“ Síð-
an hófst leikurinn aftur og Strom
og félagi hans fóru að gera sér
leik að því að dæma eins fárán-
lega og þeir gátu og létu þá
ímyndunaraflið ráða ferðinni.
Allt varð vitlaust í höllinni og í
næsta leikhléi ákváðu dómararn-
ir að koma af stað uppþoti. Með-
dómari Strom tók sér stöðu á
miðju vallarins og hóf að labba
hægt í hringi og færðist nær og
nær áhorfendastæðunum. Þegar
hann loks kom að áhorfendun-
um gerði hann sér lítið fyrir og
gaf næsta áhorfanda eitt vel úti-
látið högg á lúðurinn. Nú ætlaði
allt um koll að keyra og þurfti
lögreglan að fylgja dómurunum
út á flugvöll.
Strom átti heldur ekki auðvelt
með að umgangast aðra dóm-
ara. Honum fannst flestir þeirra
vera aumingjar og heiglar og Iét
þá heyra það. Eitt sinn lenti
hann í slagsmálum við Dick Ba-
vetta (dómara) í leikhléi og var
Strom settur í bann. Þegar blöð-
' in spúrðu" Stróin út' í atviklð
F
sagðist hann ekki hafa barið
hann heldur aðeins tuskað hann
til: „Ég gæti ómögulega farið að
berja Dick Bavetta. Það væri
ókarlmannlegt. 14 ára sonurinn
gæti lamið Dick Bavetta sundur
og saman."
Á fyrstu árum Strom í deild-
inni kom oft fyrir að hann lenti í
slagsmálum við áhorfendur og
fékk nokkrar kærur sem aldrei
varð neitt úr. Eitt sinn lenti hann
í slagsmálum við starfsmann
leiksins og var settur í bann og
sektaður.
Eins og áður segir var hann
uppáhaldsdómari flestra leik-
manna. Þeir áttu margir til að
köníafneð'káfffböttá tfl'Rlns'fýr-