Helgarpósturinn - 25.05.1995, Page 18

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Page 18
hvað Er grasið ef til vill grænna hinum megin við girðinguna? VANTARí REYKJAVÍK? Andrea Jónsdóttir dagskrárgerðarkona „Það vantar krakkatívolí sem gæti verið opið á vet- urna. Það er eins og fólki detti ekkert annað í hug en að fara með krakkana sína í Kringluna um helg- ar." Dóra Takefusa förðunarmeistari „Hugarró, jákvæðni og kannski meiri kraft." Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona „Bakari. Ég ætlaði alltaf að verða bakari þegar ég var barn svo ég gæti fært foreldrum mínum heitar kökur í rúmið á morgnana. Kannski hefði orðið miklu skemmtilegra að verða bakari en leikkona. fíeyndar hvarfiaði einhvern tíma að mér að verða kennari við Heyrnleysingjaskól- ann, eða eftir að ég fór þangað í starfskynningu. Það var af því að það voru svo sætir strákar í skólanum.“ Arthur Bogason sjómaður (trillukarl) „Málari og teiknari. Ég veiti því fyrir mér þegar ég var barn hvernig hægt væri að sameina það að vera teiknari, málari og veiðimaður. Og komst að raun um það síðar að sá draumur hefur að vissu ieyti ræst því auk þess að vera veiðimaður stytti ég mér stundir við að taka ljósmyndir.“ Guðjón Friöriksson sagnfræðingur „Sjómaður. Þegar ég var hins vegar fimm ára og staddur á iðnsýningu í skátaheimil- inu við Snorrabraut voru börnin beðin um að skrifa niður hvað þau vildu verða og setja í kassa. Ég hafði orðið ofsalega hrif- inn af einhverjum litlum smíðuðum stræt- isvagni og nefndi þess vegna að ég vildi verða strætisvagnasmiður. Svo þegar úr- slit voru birt kom í Ijós að aðeins einn úr hópnum vildi verða strætisvagnasmiður." Sjofn Har listmálari „Truckdriver. Þetta segi ég oft að mig langi að gera í næsta lífi. Og ég er ekki að grínast: Mig langar virkilega að vera á ferðinni frá landi til lands eða úr borg í borg á stórum flottum trukk; annað hvort í Ameríku eða Evrópu. Ég hefði ekkert á móti því að búa í bílnum og fara svo í sturtu og mat í þjóð- vegabúllum þar sem ég rækist alltaf á nýtt og nýtt fólk. Svo finnst mér svo gaman að tala í bílasíma. Þetta yrði vafalaust mjög skemmtilegt bóhem-líf; svona hreyfanlegt frelsi." Stefán Sandholt bakari „íþróttakennari. Það er gainall draumur að verða íþróttakennari. Mér fannst bara svo gaman í íþrótt- um og var í þeim fram eftir öllum aldri.“ ' '' Kristín Ástgeirsdóttir stjómmálamaður „Sagnfræðingur. Mig langar náttúr- lega mest til þess að verða það sem ég er menntuð tif enda hef ég mikinn ábuga á fortíðinni." Hilmar Björnsson íþróttakennari „Framkvæmdastjóri. Eins og ég er nú reyndar orðinn í dag hjá Mætti í bland við fagið. Framkvæmdastjórn í for- varnarstarfi er draumastarfið.“ Ása Richardsdóttir framkvæmdastjóri „Stjórnmálamaður. Það er svo margt sem ég vil breyta og ná fram Það verða aðeins konur sem gera það.“ L m " i gj 3 i - * 8 M 1 FIM M T U DAG u R25“lvl ÁI 1995 19 i Þúsund mömmu- kossar LITTLE WOMEN STJÖRNUBÍÓ ★ ★ Þetta mun vera fjórða kvik- myndaútgáfan á frægri stelpu- bók Louisa May Alcott (sem í ís- lensku þýðingunni heitir Yngis- meyjar, ekki Litlar konur) og það sem kemur á tjaldið er eldhús- róman með afar væminni músík, væmnum (,,litlum“) konum og körlum sem eru hérumbil jafn væmnir. Dæturnar eru að sönnu englar en við móðurina, sem býr þær af kostgæfni undir lífið, get- ur enginn keppt nema guðsmóð- ir sjálf eða kannski móðir Teresa. Susan Sarandon gerir úr henni óþolandi persónu sem er að kafna úr yfirlætisfullri góð- mennsku og ást á fátæklingum. Mann langar mest að kyrkja hana í langdregnum lopanum sem hún og dætur hennar fjórar teygja út myndina. Það skortir ekki væntumþykj- una í þessa fjölskyldu. í nærveru hennar bráðnar hjúpurinn utan af hörðum karlhjörtum; meira að segja samansaumaður karls- kröggurinn í næsta húsi er farinn að tárast þegar er varla komið fram í miðja mynd. Allt þetta fólk er eilíflega að kyssast, pínulitlum mömmukossum, það hljóta að vera þúsund svoleiðis kossar í myndinni — manni verður svo- lítið bumbult að heyra hvernig smellur í kossunum. Winona Ryder leikur Jo, ein- hvers konar sjálfsmynd bókar- höfundar. Hún er fullkomlega yndisleg eins og endranær og líka fín leikkona, en það er til of mikils mælst að hún haldi þessu uppi. Þegar á líður er hún orðin svo ráðalaus (eins og raunar hin- ir leikararnir líka) að hún virðist ekki megna annað en að gretta sig af væmni, hvort sem það er hlátur eða grátur sem veldur eða hvort tveggja í einu — það er al- gengast. Þarna eru að sönnu ákveðnir hápunktar: til dæmis þegar stúlkurnar ákveða að bera jóla- matinn sinn í þurfalingana í ná- grenninu eða þegar Jo erfir hús eftir aldraða frænku sína og ákveður undireins að breyta því í skóla en allra bestur er þó þýski heimspekingurinn (leikinn af íranum Gabriel Byrne) sem seg- ir: „I am afraid ze land of Goethe and Schiller iz no more.“ (Var ég búin að segja að þetta gerist á tíma þrælastríðsins, milli 1860 og 1870?) Þetta er mynd um fólk sem er jafn gott hvern einasta dag og okkur hinum tekst stundum að vera á jólunum. Og kannski er þetta afar góð mynd að sjá á jól- unum þegar þess er beinlínis krafist af manni að maður sé full- ur af vinarþeli. Þangað til vill maður frekar vináttu eins og í snilldarverkinu Heavenly Creat- ures, sindrandi brjálaða; allt frek- ar en þetta átakalausa og sykur- sæta dútl. Tæknival hf, Skeifunni 17, sími 681665 ACO hf, Skipholti 17, Sími 627333 Einar J. Skúlason hf. Grensásveglir 10. Sími 633000 Heimilistæki hf. Sætúni 8. sími 691500 Tölvumiðlun. Grensásvegi 8, sími 688517 Örtöluvutækni, Skeifunni 17. sími 687220 Tölvutæki - Bókval, Furuvöllum 5, sími 96-26100, Akureyri Tölvuþjónustan á Akranesi, Kirkjubraut 40, sími 93-13111 Bókabúð Jónasar Tómassonar Hafnarstræti 2. sími 94-3123. ísafirði Tölvun hf. Strandvegi 50. sími 98-11122, Vestmannaeyjum RISC örgjörvi sem er feikna öflugur, tryggir hraða úrvinnslu gagna, þannig að það tekur aðeins 25 sekúndur að fá fyrstu síðu. Örgjörvinn nýtir enn betur innra minm prentarans þannig að 1 Mb. nýtlst rétt eins og 3 Mb í eldri prenturum. Lítill og nettur OL 400ex er mjög nettur, lítið stærri en A-4 blað (36 x 32 x 16 cm). L.E.D. tækni sem OKI hefur þróað kemur þér til góða í prentara sem hefur fáa hreyfanlega hluti sem þýðir minna viðhald. 2500 Ijósdíóður tryggja þér hnífskarpa prentun. Ekkert óson eða ryk OL 400ex gefur ekki frá sér neitt óson eins og flestir aðrir geislaprentarar gera. Það ryk sem kemur frá prentaranum er næsta ómælanlegt. Þess vegna eykur hann vinnugleði þína. Ótrúlega lágt verð Líttu aftur á verðið hér til hliðar. Það er hreint ótrúlegt. Hafðu samband við næsta söluaðila og fáðu að vita hvernig þú getur eignast þennan frábæra prentara. OL 410ex Fyrir þá sem vilja enn meiri upplausn og prentgæði bjóðum við nýja útfærslu sem prentar allt að 600 pát, Þessi prentari kostar aðeins 69.900- GEISLAPRENTARI ANYJUVERÐI Kr. 49.990,- OKI People to People Technology sund STÆRST OG MEST LAUGARDALSLAUGIN ★★★ Sundlaugin í Laug- ardalnum er sú laug sem hefur mest upp á að bjóða. Sundlauga- kerið sjálft, að með- taldri barnalauginni er það stærsta á land- inu, rennibrautin sú stærsta, pottarnir flestir og gestirnir að sama skapi. Að auki er þar ágæt aðstaða fyrir íþróttamenn sem hvergi eru fleiri og þar er hægt að komast í eimbað, leir- bað, útileikfimi, leiki og líkamsrækt í kjall- aranum. Hér er allt stærst og mest og því fara menn kannski ekki síst í Laugardal- inn til þess að berja fólkið augum, hitta kunningja og vini og sjá fallega fólkið spóka sig. En það eru tveir stórir gallar við Laug- ardalslaugina. í vel flestum af nýju sund- laugunum er betra að synda, enda er klór- magnið hér óvenju mikið, stanslaus öldu- gangur og stjórnlaus- ir sundgarpar sem synda þvers og kruss. Hitt er að barnalaugin og svæðið við renni- brautina er ekki af- markað frá sund- svæðinu sjálfu svo þar getur verið köld vistin fyrir foreldra og börn. Ekki er held- ur auðsótt að fá leik- tæki ofan í laugina þótt vissulega sé ým- islegt í boði ef maður treystir sér upp úr lauginni. En barna- kuldinn og sundleys- ið eru óneitanlega stórir gallar í annars prýðislaug.B -EGILL HELGASON.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.