Helgarpósturinn - 27.07.1995, Side 20

Helgarpósturinn - 27.07.1995, Side 20
20 FIMIviTUDaGUR 27“ui-l 199 bíó STUDENTS- ÁRIN ÆSKUGLOÐ ÆÐRI MENNTUN STJÖRNUBlÓ ★★ Fyrir ekki löngu var gerð könnun á landafræðiþekkingu bandarískra háskólanema. Ut- koman var heimskort, á þessa leið: Megnið af kortinu þekur landflæmi: Bandaríkin. Fyrir ofan þau er pínulítil ræma sem heitir Kanada. Fyrir neðan þau smá botnlangi: Mexíkó. Ein- hvers staðar langt langt í burtu stórt land sem nefnist Víetnam. Ofar á blaðinu klessa: Rússland. Út úr því lítil tota: Evrópa. Af kortinu má ekki lesa neina vitneskju um hvort jörðin er flöt eða hnött- ur. Kólumbusarháskólinn er staður þar sem ungmenni lifa í heimi sem lítur svona út. Stelpurnar I skólanum eru I sjálfshjálparklúbbum, ræða kynferði sitt og fara í blysfarir undir slagorðinu „nei þýðir nei". Aðrir hópar eru mestan- part minnihluta-; harðir á að láta ekki bjóða sér gildismat hvítra vestrænna karlmanna. Hvítu vestrænu karlmennirnir fara með veggjum til að verða ekki sakaðir að þröngva kúltúr sínum upp á neinn. Hlutskipti þeirra er að vera með sam- viskubit. Ef blökkumaður er kallaður annað en „Afrískur- Ameríkumaður” fer allt í hund og kött. Aldrei sést nemandi líta I bók og vandséð að í háskólan- um sé nema einn kennari: Hann er svartur en passlega grásprengdur, reykir pípu og klæðist tvídjakka. Hann hefur lagt sér til skrítinn hreim (eini maðurinn sem ég hef heyrt tala svona er Desmond Tutu; þetta er semsé frjáls- lyndur mannvina-hreimur). Kennarinn leggur unga fólkinu almennar lífsreglur fremur en að fást um staðreyndir eða fræðikenningar. Iskólanumer raunar einn nemandi sem les bækur. Hann á meira að segja bókahillu. Hann er gjarnan spurður: „Hefur þú lesið allar þessar bækur." Og hann svarar, með þýðingarfullu augnaráði: „Já, þær flestar." Hinir stúdentarn- ir eru aðallega að hlusta á músík sem er stillt í botn; ef verður skoðanaágreiningur I þessum háskóla er yfirleitt deilt um hvaða plata eigi að vera á fóninum. Svo verður hasar á skóla- lóðinni þegar einn nemandinn gengur af göflunum og fer að troða illsakir við svertingjana og gyðingana, fremur vegna þess að hann er vansæll en svona vondur. Hann gengur í nasistafélag og í smátíma virð- ist allt ætla að fara í bál og brand. Heldur er það stríð nú tfðindalítið miðað við styrjöld- ina sem braust út á pizza- staðnum í Do the Right Thing og var háð vegna þess að á veggjunum voru myndir af Frank Sinatra og Joe di Maggio en ekki af Ray Charles og Muhammed Ali. En John Singleton ervíst enginn Spike Lee; þetta er ansi hreint klisjó hjá honum. -EGILL HELGASON. Kirkjubæjgrklaustur: Dagskrá: Stanslaus keyrsla 16 tíma á dag. MúsIk: Gegndarlaust teknóbít ríflega hálfan sólarhringinn, með ein- staka SSSólargeislum inná milli auk Ununar, Egils Ólafs, GCD og Bjarkar. Mottó: Göngum alsæl um gleðinnar bít. Stemmning: Hysterísk ef vel tekst til. Fatnaður: íþróttaskór og svartir ruslapok- ar yfir topptískuleppum eins og helst tíðkast á diskótekum höf- uðstaðarins. Þeir sem ættu að mæta: Ailir sem eru „in“ eða vilja vera það. Þeir sem ættu ekki að fara: Allir sem ekki eru „in“ og vilja ekki vera það. Bjprkarlundur: OFORjVIMEG, SUKKHATIÐ AIU MOKKURS OÞARFA Dagskrá: Tvö böll, laugardags- og sunnu- dagskvöld. Fiestir mæta strax á föstudegi og detta í það med det samme. Músík: Herramenn frá Sauðárkróki spila. Mottó: Elskum, drekkum og verum glöð. Stemmning: Dúndur gamaldags verslunar- mannahelgarstemmning; róleg þynnkumenning fram eftir degi, brjálað stuð fram eftir nóttu. Fatnaður: íþróttaskór og svartir ruslapok- ar yfir gallabuxum, háskólabol- um og peysum. Þeir sem ættu að mæta: Öll heilbrigð ungmenni sem vilja detta í það uppá gamla móðinn og draga úr innrækt á Vestfjörð- um. Þeir sem ættu ekki að mæta: Teknó- og tískufrík og fjölskyldu- fólk. Skagasfrrqndi KAnfrRiHATm I KAIUTRIBÆ Dagskrá: Dansleikur öll kvöld, hestaleiga, leikir, gönguferðir, gospel-guðs- þjónusta, kántrídanskennsla & - sýning. MúsIk: Maggi Kjartans og band, Kúrek- arnir. Mottó: Yee-ha! Stemmning: Willt, en þó furðu stillt, skrítin og skemmtileg sveitastemmn- ing. Fatnaður: Kúrekastígvél svartir ruslapokar yfir dúllerís- skyrtum og kögur- klæðum, toppað með Stetson eða öðru barðastóru höfuðfati að westan. Þeir sem ættu að mæta: Ailir sannir aðdá- endur Hallbjarnar, fjölskyldu- fólk, kúrekar, Marlboromenn og allir sem ganga í kúrekastígvél- um og kögri. Þeir sem ættu ekki að mæta: Þeir sem þola ekki kúrekastfgvél og kögur, teknófrík í sjálfs- morðshugleiðingum og fólk í makaleit. Vestmannpevjar: KlpASSJSK ÞJOÐHAHÐ Dagskrá: Skrúðgöngur, lúðrablástur, ræðuhöld, barnaskemmtanir, varðeldur, flugeidasýning og böll. MúsIk: Tweety, Sálin, Vinir V & B og Karma á böllunum, Hálft í hvoru, Örvar Kristjáns, Bo Hall- dórs o£> Algleymi á öðrum tím- ! Arn um og Árni Johnsen við varðeld- inn. Mottó: Engin er rós án Árna. Stemmning: Þjóðhátíðarstemmning. Fatnaður: fþróttaskór og svartur ruslapoki yfir gallabuxum og lopapeysu. Þeir sem ættu að mæta: Frjálslynt fjölskyldufólk og stuð- boltar á öllum aldri, báðir aðdá- endur Árna. Þeir sem ættu ekki að mæta: Allir sem verða að mæta í vinnu á þriðjudag, fýlupokar og Eggert Haukdal. Vopnafiörður: VOÞNASKAK '95 Dagskrá: Götuleikhús, strandblak, úti- markaður, sjóstangaveiði, leik- tæki, unglingaball, varðeldur, grillveisla, flugeldar og dansiböll öll kvöld. Músík: Sixties, Stjórnin, Páil Óskar og Milljónamæringarnir, Bananas. Mottó: Gleðin er beittari en sverðið. Stemmning: Afbragðsgóð. Fatnaður: Sandalar, stuttbuxur, stutterma- bolur. Svartur ruslapoki og lopa- peysa til vara. Þeir sem ættu að mæta: Allir vopnfærir menn með spú- sum sínum og afkvæmum, Linda P. Þeir sem ættu ekki að mæta: Óheillakrákur og fiskifælur, fúl- lyndir frjálshyggjumenn. Mottó: Frelsi, jafnrétti, danslag. Stemmning: Gneistandi austfirskt siagara- stuð fyrir alla fjölskylduna. Klæðnaður: íþróttaskór og hvað sem er ann- að. Svartir ruslapokar til vara. Þeir sem ættu að mæta: Skemmtilegt fjölskyldufólk, of- virkir unglingar og Geirmund- arslagarafíklar. Þeir sem ættu ekki að mæta: Þeir sem haidnir eru Geir- mundaróþoli, letibykkjur og fleira gott fólk. setja nikkuna ekki fyrir sig. Þeir sem ættu ekki að mæta: Hatursmenn harmónikkunnai teknófrík, matvandir mennta- skólanemar og flestir aðrir unc fertugsaldri. Siglufiörðifr: lARÆVMTTYRI '! 95 Neskaupsladur: NEISTAFLUG '95 Dagskrá: Dansiböll, listflug, kraftakeppni, leiktæki, golfmót, trúðar, hjól- reiðakeppni, dorgveiði, leikir, flugeldasýning og fleira. Músík: Hljómsveit Geirmundar Valtýss- sonar og Helga Möller, Sixties, Páll Óskar og Milljónamæring- arnir, Sólstrandargæjarnir, Óz- on, Abbadísirnar og Árnar Guð- mundsson. Dagskrá: Böll frá fimmtudegi til sunnu- dags, Tívolí, sjósleðaleiga, hestaleiga, skemmtisiglingar, barnagaman, sjóstangaveiði, síldarsöltunarkeppni, dorgveiði- keppni, barnaball, flugeldasýn- ing og svo framvegis. Músík: Miðaldamenn, M’be be, Gautar, Harmónikkusveit Siglufjarðar. Mottó: Lífið er ekki bara saltfiskur. Stemmning: Nostalgía í tunnuvís. Klæðnaður: Gúmmístígvél, gúmmísvunta, gúmmíhanskar, og hvað sem er þar fyrir utan. Þeir sem ættu að mæta: Allir sem dyfið hafa hendi í kalt vatn og migið í saltan sjó og Reykjavík og nágrenn Dagskrá: Allir veitinga- og skemmtistað svæðisins hafa opið. Bíó, lista söfn, þjóðminjasafnið, Sjóminj safnið, bókasöfn, fjölskyldu- o húsdýragarðurinn, vídeóleigu: leiktækjasaiir og bara allt sen hugurinn girnist - nema auðvii að tívolíið, sem verður á síld- veiðum á Sigló. MúsIk: Fullt af henni, en ekki nema maður sækist eftir henni. Monó: Dælt er heima hvat. Stemmning: Ótrúlega róleg og afslöppuð. Klæðnaður: Fjölbreyttur. Þeir sem ættu að mæta: Sem fæstir. Þeir sem ættu ekki að mæta: Sem flestir. ■ Hvað er að GaKalækurt BINDINDISMOT Dagskrá: Dansiböll öll kvöld, hestaleiga ökuleikni, Mókollur, Spaugsto an, þolfimi, söngvakeppni barna, pox, barnaskemmtun, grillerí og svo framvegis. MúsIk: Nátthrafnar, Sixties, Skítamóra Reggae on Ice. Monó: Höldum aftur af innri mannin gerast um verslunar- um. Stemmning: Svolítið þvinguð og rammísleni góðborgarakátína. Fatnaður: íþróttaskór og svartir ruslapol ar yfir öllum fáanlegum útfærs um á jogging-göllum. Þeir sem ættu að mæta: Þeir sem eru algjörlega „out“ c eru stoltir af því, fjölskyldufóli Árni Johnsen. Þeir sem ættu ekki að mæta: Þeir sem þykjast vera „in“ og vilja vera það áfram, dópsalar landabruggarar og fólk í maka leit. mannahelgina? Dagskrá: Mæta á svæðið, tjalda, opna fyrstu flöskuna og halda svo áfram. MúsIk: Gítarglamur við einstaka tjald og gettóblasterar. Monó: Frítt er í fjallastuð. Stemmning; í blautara lagi. Klæðnaður: íþróttaskór, útigaili frá 66" norður. Þeir sem ættu að mæta: Ekki of margir. Þeir sem ættu ekki að mæta: Þeir sem kunna ekki á prímus.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.