Helgarpósturinn - 26.10.1995, Síða 4

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Síða 4
4 flMIVmJDAGUR 26. OKTÓBER1995 ■■■ Yfirheyrsla • Hvaö finnst Sverri Hermannssyni, banka- stjóra Landsbankans, um aöfinnslur þess efnis aö hann rífi alltof mikiö kjaft við ráðamenn þjóöarinnar? „Mig varðar ekk- ertumþaðhvað öðrum finnst um mínarskoðanir“ „Þetta eru engar pillur sem ég hef verið að senda ráðamönnum þjóðarinnar. Það var þarna einhver fréttamaður sem bar undir mig síðustu yfirlýsingar við- skiptaráðherra og ég tjáði honum bara að ég væri ekki á sama umræðuplani og ráðherrann. Er það einhver pilla?“ Já, menn hafa litið svo á málið. Og þú hefur svosem áður látið heyra í þér... „Er nú ekki aðalmálið livort það var að tilefnis- lausu sem ég gerði það? Það er nú spurningin.“ En ýmsum sýnist sem svo að þú eigir að vera þýðari viðmóts þarsem þú ert ríkisbankastjóri. Hvað finnst þér um það? „Það var ekki stafkrókur um það í mínum ráðningar- samningum að ég afsalaði mér málfrelsi. Og mig varð- ar ekkert um það hvað öðr- um finnst um minar skoðan- ir.“ Þannig að þú lætur að- finnslur vegna meints kjaftsbrúks þér í iéttu rúmi liggla? „Eg læt mér þær öllu heldur í engu rúmi Iiggja.“ Nú virðist þú vera eini hankastjórinn sem tjáir sig að cinhveiju gagni um málefni líðandi stundar í bankamálum... „Eru ekki aðrir banka- stjórar með meiningar?1* Nei, ég hef ekki sérstak- lega tekið eftir því. Altént halda þeir þessum skoðun- um sinum útaf fyrir sig. Eða hvað fínnst þér? „Ég þori ekki að dæma um það, þarsem ég hef ein- faidlega ekki veitt því tiltak- anlega athygli. Ég vissi nú ekki til þess að hér á íslandi þættí eitthvað óvenjulegt að menn hefðu skoðanir á hlutunum og segðu frá því — hvar í vinnu sem þeir svosein væru.“ Mmm... „Og hafi einhver átt von á því að ég hætti að hafa skoðanir á hlutum eftir að ég gerðist bankastjóri þá er það bara misskilningur.“ - shh Sverrír Hermannsson hefur, siðan hann varð bankastjóri Landsbankans, veríð iðinn við að senda föst skeyti til helstu ráðamanna þjóðarinnar — svona þegar honum hefur sýnst þeir þurfa á ráðningu að halda. Sverri virðist þessa mánuðina alveg sérstaklega uppsigað við Finn IngóKsson vlðskiptaráðherra, sem fékk enn eina pilluna frá kappanum i útvarpsfréttum vikunnar. Aður hafði Sverrir meðal annars tekið sig til og fundið hið lífseiga viðurnefni „vaxtafl- ón“ á Finn. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna og verðandi ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, í spjalli við Stefán Hrafn Hagalín um heil- brigðiskerfið, „stöðvun innbyggðrar út- gjaldaþenslu“, niðurskurð og (ó)hag- kvæmni... Það væri slys ef vi sigldum í kjölfar Bandaríkjamanna Davíð Á. Gunnarsson, forstjórí Ríkisspítal- anna: í draumum okkar, sem stýrum ís- lenska heilbrígðiskerfinu, samanstendui óskakerfið sennilega af jafnrétti íslending- anna, tækni og gæðum Bandaríkjamanna og kostnaði Bretanna. Utgjöld til heilbrigðiskerfisins eru um 60% af útgjöldum ríkisins og á tímum hálfræfilslegs efnahags þjóðarbúsins stingur sú staðreynd í augu. Nokkrir fífldjarfir stjórnmála- menn hafa borið upp tillögur um sparn- að og að sjálfsögðu hefur hver einasta tilraun í þá átt mætt ómældum kvein- stöfum jafnt almennings („þarf maður að vera ríkur til að fá sjálfsagða neyðar- þjónustu?“) sem yfirlækna („vilja menn að við lokum slysa- og barnageðdeild- um?“). Til að bæta olíu á eldinn hafa síðan komið umdeild mál einsog lyfja- kaup, laun lækna og hin óhagkvæma stærð kerfisins frá sjónarhóli heilsu- hagfræðinnar. Til að ræða þessi mál og fleiri til átti HP samtal við Davíð Á. Gunnarsson, forstjóra Ríkisspítalanna, og byrjaði á að spyrja hann álits á hin- um vinsæla frasa stjórnmálamannanna, „stöðvun innbyggðrar útgjaldaþenslu". „Þjóðinni er að fjölga og aldurssam- setningin að breytast. Óhjákvæmilega veldur það innbyggðri kostnaðaraukn- ingu ásamt hinum stórkostlegu tækni- nýjungum í greininni. Heilsuhagfræð- ingar telja þessa sjálfvirku kostnaðar- aukningu 2:4% á ári og við það verður lítið ráðið. í þessu samhengi má benda á að lyfjakostnaður á Ríkisspítulunum hefur aukist um milljónatugi á undan- förnum 2-3 árum vegna nýrra lyfja. Ef engin ný lyf hefðu komið til hefði hins- vegar kostnaðurinn lækkað um nokkra milljónatugi vegna hagkvæmari inn- kaupa. Ég geri því ráð fyrir að stjórn- málamenn séu frekar að tala um ann- arskonar útgjaldaþenslu; til dæmis vegna sífellt betri þjónustu, og eins hlýtur auðvitað eitt og annað að fara úrskeiðis í svo stórum málaflokki.“ Ertu sammála þeim sem segja að ekki sé lengur hœgt að hagræða ánþess að skera þjónustuna niður við trog? „f svona umfangsmiklum rekstri er alltaf hægt að hagræða. En það segir sig sjálft, að það hlýtur að verða þröngt í búi hjá okkur á næstu árum og þar veg- ur þungt sú staðreynd, að ekki stefnir í aukningu á þjóðartekjum. Ég sé ekki stefna í annað en að okkur verði mjög þröngur stakkur sniðinn og það jafnvel þótt hagrætt sé af kappi.“ / úttekt Ríkisendurskoðunar á síðasta ári kom fram, að læknar eru ekki aðeins meðal hœstlaunuðu ríkisstarfsmanna heldur þiggur fjöldi þeirra laun á mörg- um stöðum. Er þetta vandamál sem þið glímið við? „Vinna lækna utan ríkisstofnana hef- ur mjög verið til umræðu og skoðanir eru afar skiptar. í kjarasamningum lækna er kveðið á um að þeir hafi leyfi til að vinna ákveðinn tíma af vinnudegi sínum utan stofnunarinnar. Sumir læknar telja þetta mjög skynsamlegt fyrirkomulag, þarsem það tryggi ákveð- in tengsl við bæði sjúklinga og atvinnu- líf. Aðrir — sérílagi vinnuveitendameg- in í málinu — hafa talið kerfið óskyn- samlegt og að miklu eðlilegra sé að læknar starfi hjá einum vinnuveitanda, þó svo að þeir væru kannski á afkasta- hvetjandi greiðslum. Ýmsir læknar eru fylgjandi þessháttar fyrirkomulagi. Menn verða síðan að athuga, að þrátt- fyrir að læknar fái kannski greiðslur á nokkrum stöðum þá eru þær minnihátt- ar við hliðina á þeim greiðslum sem þeir þiggja frá langstærsta launagreið- anda sínum: ríkissjóði. Að sjálfsögðu eru undantekningar á þessu og við er- um alltaf að fylgjast með þeim. Læknar eru bara einsog annað fólk: sumir eru með vandamál og aðrir ekki.“ Hvert er stærsta einstaka verkefni Rík- isspítalanna um þessar mundir? „Við erum náttúrlega að skoða fyrst og fremst með hvaða hætti við getum rekið stofnunina innan fjárlagaramm- ans. Við getum aldrei gert allt sem ætl- ast er til af okkur, því sum starfsemi er jú þess eðlis að ekki er mögulegt að minnka hana eða stöðva. Landspítalinn er til að mynda ákveðin endastöð í kerf- inu, stóru sjúkrahúsin geta engum sjúk- Iingum vísað frá sér og slíkt kallar auð- vitað á útgjöld. Hinsvegar er það skylda stjórnenda að reyna að standa undir kröfum og gera það sem fyrir þá er lagt.“ Hvemig stöndum við Islendingar okk- ur í því að reka heilbrigðiskerfið á skyn- samlegum nótum — svona miðað við þessar fyrmefndu jafnréttisforsendur? „Ég held að við höfum staðið okkur ótrúlega vel. Það hefur OECD meðal annars staðfest. Við veitum mjög góða þjónustu fyrir hagstæðan pening miðað við þá stefnu sem rekin er. Kerfið hér er í sjálfu sér mjög óhagstæð rekstrarein- ing miðað við það sem gerist erlendis, þarsem krafan fyrir hagstæða einingu er tvær milljónir manna.“ Almenningur hvíslar sín á milli að allt sé hér að fara til fjandans: að við stefn- um í bandaríska kerfið þarsem ríkum og fátœkum er augljóslega mismunað... „Jújú, og ég held að við þurfum að gæta okkar mjög vel á því að sigia ekki í kjölfar bandaríska heilbrigðiskerfisins. Það væri slys. í draumum okkar, sem stýrum íslenska heilbrigðiskerfinu, samanstendur óskakerfið sennilega af jafnrétti íslendinganna, tækni og gæð- um Bandaríkjamanna og kostnaði Bret- anna.“ Fjölmiðlar Ekki opinbera stefnu í fjölmiðlun Um daginn lögðu Þjóðvakakonurn- ar Lilja Á. Guðmundsdóttir og Ásta R. Jóhannesdóttir fram til- lögu til þingsályktunar um opinbera stefnu í fjölmiðlun. Ég vona að fleirum en mér hafði svelgzt á við þessi tíðindi. Þótt ég viti raunar ekki nákvæmlega hvað hugtakið opinber stefna í fjölmiðl- un merkir nákvæmlega (og þótt það sé fært í fallegan búning) óttast ég að það þýði einmitt það versta sem hugsast getur: að ríkisvaldið ætli að fara að skilgreina hlutverk og starfsemi fjöl- miðla, skipta sér af efni þeirra og segja þeim hverjum þeir eiga að veita þjón- ustu. Allt þetta — og miklu meira til — kemur fram í greinargerð með tillög- unni. Raunar spannar hún svo vítt svið að ógerningur er að fjalla um það hér, en tvennt vil ég nefna núna. Annað er, að eignarhald á einkarekn- um fjölmiðlum er orðið of þröngt. Segja má að annars vegar sé blokkin Stöð 2-Sýn- Bylgjan-DV-Tíminn-Við- skiptablaðið, sem eru meira og minna í eigu sömu aðila, og hins vegar Stöð 3- Morgunblaðið (og útvarpsstöðin FM, ef nákvæmt skal vera), sem líka tengjast með eignarhaldi. Einu miðlarnir sem máli skipta og fyrir utan standa eru á blaðamarkaði Helgarpósturinn, Alþýðu- blaðið og Vikublaðið og á ljósvakanum Aðalstöðin og stöðvar tengdar henni. Það er hvorki stór hópur né ýkja kröft- ugur í samanburði. Rétt væri að setja reglur sem tak- marka möguleika til samruna fjölmiðla- fyrirtækja, þótt enn sé þetta ekki stór- kostlegt vandamál hér á landi. Bezta tryggingin, sem almenningur hefur gagnvart óeðlilegum hagsmunatengsl- um í einkageiranum, liggur nefnilega í sterku Ríkisútvarpi. Vandinn er hins vegar sá, að þetta sama Ríkisútvarp stendur einkareknum Ijósvakamiðlum fyrir þrifum. Fyrst með skylduáskrift allra sem eiga út- varp eða sjónvarp, sem veitir RUV afar óeðlilega samkeppnisstöðu, og svo með samkeppni við einkaaðila um aug- lýsingatekjur sem eru þeim lífsnauð- synlegar á þröngum markaði. Það er óþolandi, því eðli málsins samkvæmt getur ríkið þar með niðurgreitt auglýs- ingaverð í krafti iögboðinna tekna sem það fær með skylduáskrift. Eina lausnin, sem ég sé á þessu, er að ríkið fari af auglýsingamarkaðnum og láti einkaaðilum eftir að keppa þar. Ríkisútvarpið er nauðsynlegt, en það má ekki reka á kostnað annarra sem eiga að hafa jafnan rétt á markaði. Rétt- ara væri að kosta Ríkisútvarpið af al- mennu skattfé (sem væri de facto nef- skattur og þar með annað form á skylduáskrift) og leiðrétta um leið leik- reglurnar á auglýsingamarkaði. Með því fengist ekki aðeins samkeppni á eðlilegum forsendum, heldur frjórri jarðvegur fyrir einkarekna ljósvaka- miðla sem hafa stórbætt fjölmiðlun hér á landi. Mig grunar, án þess ég viti það fyrir víst, að þær Lilja vilji bœði þrengja að eignarhaldi á einkareknu fjölmiðlunum og leyfa ríkinu að keppa við þá á ójöfn- um markaði. Það er vond aðferð og ein- mitt af þeirri tegund sem kenna mætti við opinbera stefnu í fjölmiðlun. Kari Th. Birgisson „Eina lausnin er að Rík- isútvarpið fari afauglýs- ingamarkaðnum og láti einkaaðilum eftir að keppa þar. “

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.