Helgarpósturinn - 26.10.1995, Side 9
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER1395
9
Sigurði Jónssyni
misbýður hvernig
vegið hefur verið
að heiðri bróður
hans, Einars á Ein-
arsstöðum, eins
virtasta læknamið-
ils landsins fyrr og
síðar, af mönnum
sem gefa sig út
fyrir að vera
læknamiðlar. Eins
og HP greindi frá í
síðustu viku hefur
læknamiðillinn
sem tvívegis hefur
verið kærður til
RLR fyrir kynferðis-
lega áreitni látið
hafa eftir sér að
Einar heitinn lækni
í gegnum sig.
Sigurður Jónsson, bróðir Einars á Einarsstöðum, er á móti ný-
öldinni. „íslendingar eru að verða heimsfrægir fyrir dellu."
„Þessi nýöld
er algjört bull"
„Ég uil bara að Einar fái að huíla
í friði fyrirþessum lýð. “
g ber mikla virðingu fyrir
Einari bróður mínum og
veit að hann hefði aldrei
lagst eins lágt og þessi miðill
þarna, sem segist þurfa að
jarðtengja fólk í gegnum kyn-
færin og fleira. Þótt ég hafi
aldrei haft sömu trú og Einar á
nýöldinni var hann engu að
síður strangheiðarlegur mað-
ur.“
Þetta eru orð bróður Einars,
Sigurðar Jónssonar, sem var
mikið niðri fyrir vegna þess
„viðbjóðs", eins og hann orðar
það sjálfur, sem bróðir hans
hefur verið dreginn inn í að
undanförnu. Sigurður segir
þennan læknamiðil ekki þann
fyrsta sem leggi nafn Einars
við hégóma. „Þeir eru fjöl-
margir, en þetta er samt með
grófari dæmum sem ég hef
heyrt af.“
Að minnsta kosti þrír miðlar
hafa tjáð Sigurði að Einar, sem
lést fyrir átta árum, komi alltaf
í gegnum þá á milli klukkan
fjögur og sex á daginn. „Ég er
ekkert feiminn við að segja
hverjir það eru; Rósa Jóns-
dóttir systir mín, Ragnar Mi-
chaelsen úr Hveragerði og
ekkja Einars. Mér er gersam-
lega hulið hvernig hann fer að
því að koma í gegnum þau á
sama tíma, en þar fyrir utan
trúi ég hvorki á
læknamiðla né nýöld-
ina almennt.“
Gamlar lummur
„Þessi nýöld er í
mínum augum algjört
bull,“ segir Sigurður.
„Ég bendi í þessu samhengi á
James Randi sjónhverfinga-
mann sem einbeitti sér að því í
mörg ár að sanna yfirnáttúru-
lega hæfileika sína. Eftir að
hafa boðið hverjum þeim, sem
sannað gæti að hann byggi yfir
þessum hæfileikum, 10.000
dollara, þá hafa leitað til hans
600 manns. Þetta loforð setti
hann fram fyrir 25 árum og
engum hefur enn tekist að
eignast tíu þúsund dollarana.
Eg tek undir þau orð hans að
nýöldin sé ekkert annað en
gamlar lummur sem hitaðar
hafi verið í örbylgjuofni í 15
sekúndur."
Sigurður segist engu að síð-
ur hafa trú á að fólk sé mi-
snæmt og að andinn lifi lengur
en líkaminn. „Ég hef þá trú að
fólk geti verið berdreymið og
ég hef líka þá trú að sumt fólk
sjái meira en annað. Sjálfur tel
ég mig hafa séð framliðið fólk
og svo er mér sagt að sem
barn hafi ég oft leikið mér við
einhverja sem enginn sá, þótt
ég muni ekki eftir því sjálfur.
En að framliðið fólk geti lækn-
að í gegnum aðra er algjört
húmbúkk."
Trúin flytur fjöll
Aðspurður segist Sigurður
engar sannanir hafa fyrir því
að Einar hafi haft sérstakan
lækningamátt. „Á bak við hans
störf blasir miklu fremur við
sú staðreynd að trúin flytur
fjöll; trúi maður nógu heitt á
mátt lækninga að handan þá
læknast maður. Ég held að
lækingamáttur Einars hafi ver-
ið fólginn í því að hann vissi
ekki betur sjálfur."
Sigurður bjó lengi í Kanada
og varð því ekki vitni að því
þegar Einar, þá á fimmtugs-
aldri, sneri sér að því að hjálpa
fólki. En til þess tíma hafði Ein-
ar að mestu helgað sig búskap
heima á Einarsstöðum í
Reykjadal í Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Á árunum 1970 til 1973 vann
Sigurður á Hótel Sögu, en þá
var bróðir hans
orðinn landsþekkt-
ur læknamiðill.
Lengst af vissi eng-
inn að Sigurður
væri bróðir Einars
en svo kvisaðist
það út. Það var ekki
að sökum að spyrja: upp úr
því varð ekki flóafriður fyrir
fólki sem gerði sér ferð á Sögu
til að freista þess að komast í
samband við Einar á Einars-
stöðum. „Þar sem Einar bjó
fyrir norðan og var þarna þeg-
ar kominn með leynisímanúm-
er leitaði fólk stöðugt til mín,
— allt upp í sjö manns á dag.
Af samviskusemi safnaði ég
saman öllum beiðnum sem til
mín bárust, setti á prjón sem
ég hafði á borðinu hjá mér og
reyndi eftir bestu getu að láta
Einar vita. En þar sem það var
dýrt fyrir mann sem ekki var
efnaðri en ég að hringja stans-
laust norður gat ég ekki staðið
í því endalaust. Ein af þeim
sem leituðu eftir aðstoð minni
var kona nokkur sem afhenti
mér miða, sem á stóð hvað
amaði að. Ég man vel eftir
þessu, því nokkrum dögum
síðar stóð hún þarna aftur og
lýsti því fyrir mér hvernig Ein-
ar hefði læknað sig. Þegar ég
horfði niður á borðið mitt sá
ég hins vegar ekki betur en
miðinn væri enn á prjóninum.
Án þess að ég hefði komið
skilaboðunum áleiðis var kon-
an búin að fá lækningu meina
sinna! Svona getur lækninga-
máttur trúarinnar verið sterk-
ur.“
Peningaplokk
Þrátt fyrir að Sigurður hafi
hvorki trú á nýöldinni né
læknamiðlum segir hann Einar
hafa haft mjög góð áhrif á fólk.
„Einar var afskaplega ljúfur og
skemmtilegur maður og ég hef
þá trú að út á við hafi hann
haft sefandi áhrif á fólk eða
jafnvel náð að dáleiða það. Á
ókunnuga virkaði Einar dulur
maður, en það er vegna þess
að hann var svo feiminn. Einar
var svo ágætur maður. Þess
vegna finnst mér voðalega
leiðinlegt að misvel gert fólk
skuli vera að misnota nafn
hans. Ég vil bara að Einar fái
að hvíla í friði fyrir þessum
lýð. Hvað sem hver segir er
ekki hægt að vekja fólk upp frá
dauðum.“
Flestir vita að nú á dögum
þiggja miðlar gjarnan borgun
fyrir störf sín, en sögur fara af
því að það hafi Einar á Einars-
stöðum aldrei gert. Sigurður
segir þá fullyrðingu hins vegar
goðsögnina eina. „Einar þurfti
auðvitað að lifa eins og annað
fólk. Það er þó rétt að hann
þáði aldrei beina borgun fyrir
þjónustu sína. Það mátti hins
vegar heita á hann og svo fékk
hann stundum skotsilfur í
gegnum frjáls framlög, til
dæmis á miðilsfundum sem
hann hélt í Háteigskirkju. Hann
þáði aldrei tvö og upp í þrjú
þúsund krónur á tímann, eins
og nokkrir miðlar gera nú á
dögum, sem er algjört pening-
aplokk. Við megum ekki
gleyma því að allir peningar
sem fara í gegnum þá sem
starfa að nýaldarmálum eru
skattfrjálsir peningar."
Sigurði finnst nýöldin vaða
alls staðar uppi. „Ég bara hló
að því um daginn þegar nudd-
ari nokkur sem ég fór til —
ágætis kona samt — tók upp á
að halda höndunum fyrir ofan
höfuðið á mér nokkra stund.
Þegar ég spurði hana hvað
hún væri að gera sagðist hún
vera að heila mig.
Ég er helst á því að það þurfi
að fá mann á borð við James
Randi — sjónhverfingamann-
inn — hingað til lands til að
hreinsa upp allan þennan
sóðaskap. íslendingar eru
nefnilega að verða heimsfræg-
ir fyrir dellu.“