Helgarpósturinn - 26.10.1995, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995
\
Ný James Bond-mynd væntanleg og Jakob Bjarnar Grétarsson fletti upp í sjálfum sér og nokkrum tímaritum og rifiaði upp af hverju Sean Connery
er eini rétti maðurinn í hlutverkið.
«
Nýr James Bond? Breyttur og
betri? Á næstunni frumsýna
Sambíóin nýja Bond-mynd —
GoldenEye. Fimmti maðurinn til
að taka að sér hlutverkið heitir
Pierce Brosnan. Allir alvöruað-
dáendur spæjarans með leyfið
til að drepa spyrja sig: Hvað er
það sem segir að Brosnan verði
ekki í skugga Seans Connery
eins og allir hinir eymingjarnir?
Þegar ég var um það bil tólf
ára og bjó í Hafnarfirði lagði ég
mikið á mig til að sjá James
Bond-mynd. Það var fimm tíma
prósess að labba út á
strætóstoppistöð, í strætó, úr
strætó, labba í Tónabíó — sjá
myndina — og sömu leið til
baka. En það var sannarlega
þess virði. Síðan þá er aðeins
einn Bond.
Það er sannleikskorn í því
sembreski rithöfundurinn
Kingsley Amis, en hann lést nú á
sunnudaginn, skrifaði eitt sinn:
„Sannir karlmenn vilja ekki fara
út að borða með Bond eða spila
golf við Bond eða tala við Bond.
Þeir vilja vera Bond.“ Og setning-
in „Sean Connery er James
Bond“ á gömlum auglýsingapla-
kötum hljómaði einhvern veginn
rétt. Þegar A View to a Kill var
auglýst var komin setningin:
„Roger Moore er James Bond.“
Þessi sleikti enski yfirstéttarbó-
bó með óróbronsrjómakrepað
litaraft í kakíjakka? Tilhugsunin
um hann að kreista Ursulu
Andress í Dr. No er álíka æsileg
og að ímynda sér Benny Hlll
klípandi í rassinn á Tracy Lord.
Maður þarf að vera pervert til að
fá eitthvert kikk út úr því. Ókei,
Moore valdi einu leiðina, sem
var sú að fela sig á bak við ein-
hvers konar djók. Roger Moore
er James Bond? En aðeins þar til
einhver skárri kemur fram á
sjónarsviðið.
Milli Moore og Connery lék
George Lazenby Bond í mynd-
inni I þjðnustu hennar hátignar.
Hann slapp þokkalega, einkum
vegna atriðsins þegar einn vondi
kallinn lendir í snjóplóg sem
spýtti fyrir vikið rauðum snjó
upp um blásarann. Og þegar Mo-
ore kannaðist loks við sinn vitj-
unartíma þá tók Timothy Dalton
við.
Dalton og Moore eiga það
sameiginlegt að klína
sjálfum sér of mikið inn
persónuna Bond
Það er einhvern veg-
inn svo vemmilegt
þegar Dalton seg-
Bond með
Ursulu.
ir: „Bond. — James Bond.“ Og
þegar hann biður um Martini þá
dettur manni í hug SÁÁ. Er það
eitthvað sem einhverjir aðrir en
Óttar Guðmundsson vilja láta
kenna sig við? Það sem varð Dal-
ton til bjargar, svona í sagn-
fræðilegum skilningi, er sú stað-
reynd að þegar hann gerði til-
raun til að túlka Bond þá var tími
hreinlífis. AIDSið sá um það.
Þegar Ian Flemming var að
skapa Bond átti Bretland undir
högg að sækja. Nýlenduveldið
hrunið, þeim sparkað frá Súes
og amerískur kúltúr að yfirtaka
allt. Það er engin tilviljun að
kaldrifjaðir CIA-menn breytast í
sprellikarla þegar Bond kemur
inn um dyrnar. Eða sú fagur-
fræðilega staðreynd að Bond
drekkur einungis Chivas Regal,
reykir Players og ekur Aston
Martin — svona rétt eins og eins
manns „kaupið breskt“-herferð.
En hvernig stendur á því að
skoskur líkamsræktarmaður af
lægri stéttum á borð við Conn-
ery gerir sig nákvæmlega í þessu
margbrotna hlutverki enska
heimsmannsins, kvennagullsins
og fagurkerans 007?
Connery er einfaldlega töff.
Hann er kúl. Hann hefur inn-
byggt sjálfsöryggi og kraftinn
sem þarf til, að viðbættu fáguðu
yfirbragði. Á árunum 1957 til
1971 var varla þann mann að
finna sem ekki vildi vera Sean.
Rétt eins og allir vilja vera Bond.
Hver vill vera Roger Moore?
Connery var „Herra Heimur" for
crying out loud! Hann fellur ger-
samlega inn í hlutverkið og þarf
ekki að rembast við það.
Gangi Brosnan vel í hlutverk-
inu. Bond-aðdáendur eru búnir
að fá nóg af þessari ameríkanís-
eruðu útgáfu af hetjunni sinni.
Síðustu Bondar hafa verið ein-
hvers staðar milli þess að vera
Amy í Last Action Hero, Bmce
Willis í Die Hard og Harrison
Ford í Patriot Games. Bond geng-
ur ekki út á slíka stæla. Kannski
er hinn írskættaði Brosnan rétti
maðurinn. Það er altént rétt að
gefa honum séns. En ef það á að
vera fræðilegur möguleiki að
James Bond lifi það af að fara inn
í nýja öld þá er
möguleikinn
fólginn í því að
drepa minn-
inguna um
Sean Conn-
ery sem
Bond.
Aðeins fyrir sanna Bondaðdáendur
Rétt í lokin koma 2. Hveijum þess- fyrir framan a) Félagsfræði 9. Númer hvað
nokkrar níðþung- ara hefur aldrei myndavélina, en b) Austurlensk var sá 00-njósn-
ar spurningar verið boðið að í daglegu lífi — tungumál ari sem var drep-
sem snúa að leika Bond? aldrei." c) Saga inn í upphafi
smáatriðum sem a) Cary Grant a) Timothy Dal- d) Rússneska Octopussy?
snerta Bond. b) Hugh Grant ton a) 002
James Bond. Það c) Dirk Bogarde b) Roger Moore 7. Hvemig vill b) 004
er rétt að vara þá d) James Mason c) Sean Connery Bond hafa tyrk- c) 008
við sem einungis d) George Lazen- neskt kaffi? d) 009
búa yfir yfir- 3. Hveijum eftir- by a) Sætt
borðsþekkingu á talinna bifreiða b) Miðlungssætt 10. James Bond
njósnara hennar hefur James 5. Hverri þess- d) Með mjólk og hefur einu sinni
hátignar númer Bond aldrei ek- ara kvenna hef- tveimur sykur- gengið í það
007. Þessar ið? ur aldrei hlotn- molum heilaga. Hvert
spurningar eru a) Lotus Esprit ast sá heiður að d) Án koffíns var nafn eigin-
fyrir sérfræðing- b) Lamborghini vera Bond- konu hans?
ana. Miura stúlka? 8. Hvert er raun- a) Catherine Hay-
c) Citroén 2CV a) Honor Black- veralegt nafn M? ward
1. Hvemig golf- d) Aston Martin man a) General Mi- b) Elizabeth Fa-
kúlu notar DB5 b) Joanna Luml- chael Mildrake irrie
Bond? ey b) Það hefur aldr- c) Tracy Vinc-
a) Penfold Hearts 4. Hvaða James c) Joan Collins ei komið fram enzo
b) Slazenger Bond sagði eftir- d) Barbara Bach c) Malcolm d) Francesca Ry-
númer eitt farandi: „Ég mun Middleton major an
c) Dunlop plus með glöðu geði 6. Hvert var að- d) Miles Messery
d) Penn leika gamaldags alfag Bonds í há- aðmíráll
karlrembusvín skóla?
'SSIAIHO
j jBuuaq 3jJSA}nm 3J?I SSiy
bubjq ozua3uiy\ Xobjx '01
600 '6
IIBJiuipB AiBssajv sajjjv 8
•ay\I paAO'j oi|A\ Ads
aMX! UiRM e»ac| ipBjUBd
puog jjæssSunipjjM ■£
sSpijquiBQ yjj
uunjjuja njsjAj jnB|q puog
IBuinSunj sjsuspnjsnv '9
•aj\l psAoq
oijj\\ Ad§ sqx! nAOSBUiy
nAuy jo[bui >ja| qasg BJBq
-jBg 8o SSWHO! ^iwn-j
buuboj* ‘ja8uijp|oo J ajo
-|bo Assng sjaj uBui>|DBig
jouoh 'su!||oo UBOf 'S
uoj|B(j Aqjouiix X
•jaSuijpior)
! saa :^|U0 saAg jnoA Jog
IA0Z ‘aW paAoqoq/v\Ads
aqx! ipcisg snjoq 3|o puog
Bjn|i\i |U|qSJoquiBq g
apjBSog 3JJIQ Z
•jaS
-u|jp|O0 p|A suBq |udda3f
j uibjj BSa|SSo|S jnuiasj
pBq SJJB3H Piojuag j
•jpíjy