Helgarpósturinn - 26.10.1995, Qupperneq 22
22
. 'SH
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995
mótaskaup er allra síst verk
leikstjórans."
Gísli Snær staddur í Parísar-
borg á blússandi styrk. Það
hljóta að hafa tekið við dagar
víns, vífa og rósa. Eða hvað?
„Lífsstandardinn breytist
þegar maður er námsmaður.
Það er bara strætó og spag-
hettí alla vik-
una. Maður er
ekkert mikið úti
á veitingastöð-
unum. Þegar
maður er í kvik-
myndaskóla þá
er maður í því
24 tíma á sólarhring. Ég get
ekki sagt að ég hafi verið mikið
að skemmta mér þarna. En jú,
vífin voru kannski inni í mynd-
inni.“
Víf segirðu. Maggi Kjartans
kvað: „Þær frönsku eru ekkert
grín.“ Stenst þessi hending
svona miðað við þína reynslu?
„Þetta er alveg hárrétt hjá
Magga. Það er engin tilviljun
að Sartre var franskur. Jafn-
aldrar manns þarna úti eru hy-
ber-verndaðir. Foreldrarnir
halda í krakkana von úr viti,
næra þá og láta þá komast upp
með að vinna ekki langt fram
eftir aldri. Þar með breytist
þetta með að vera. Að vera
maður sjálfur, taka sínar
ákvarðanir, þurfa að standa á
eigin fótum, þurfa að hafa fyrir
hlutunum og uppgötva að lífið
er fulit af hindrunum sem þarf
að ryðja úr vegi. Franskar kon-
ur eru svoldið svoleiðis. Þær
þola engar hindranir og eru
ekkert grín.“
Friðrik fæddur
handritshöfundur
Meðan Gísli Snær er við nám
hringir Kristinn Þórðarson í
hann og spyr Gísla hvort hann
sé til í að mynda rokktónleika.
Þeir höfðu áður unnið saman
að auglýsingagerð. „Mér
fannst sorglegt að vera að
kaupa alla þessa filmu, vera
með tækin og búa til pínulitla
mynd. Fyrst stóð til að í mynd-
inni væru allt í allt fimm mínút-
ur af leiknum atriðum. Annars
yrðu bara tónleikar. Síðan
myndum við kannski splæsa
þeim bút saman í eina stutt-
mynd. Síðan óx þetta og hann
gaf eftir með að leyfa mér að
gera leikna mynd. Þá vantaði
bara hugmyndina. Og ein-
hvern tíma þegar ég er að fara
frá Frakk-
landi til íslands, um jólin, þá er
ég staddur heima hjá Jean
Philip Lapardi, sem leikur
Frakkann..."
Hommanum sem varð fyrir
bílnum?
„Já, hommanum sem varð
undir. Hann var búinn að leika
í tveimur myndum hjá mér í
Efþú sérð mig á rauðum Ferrari þá
ueistu að mér hefur gengið vel. “
skólanum og við vorum orðnir
mjög góðir vinir og þá er ég
ekki að meina á kynferðisleg-
um nótum heldur frekar hin-
um andlegu. Það var eitthvað
við hann þegar ég var að
kveðja. Lapardi var í símanum,
vinur hans að flauta fyrir utan
og það var svona panic-ástand
á honum og hann hreint rosa-
lega fyndinn við þessar að-
stæður. Þetta var kveikjan og
þegar ég kem heim nefni ég
þessa hugmynd við Friðrik Er-
lingsson: Franskur umboðs-
maður sem kemur til íslands
og lendir í hrakningum. Síðan
settumst við niður eina kvöld-
stund og hripuðum nánari út-
færslu. Hittum svo strákana,
Kristin og Bjarna Þór Þór-
hallsson (Boston Chicken), og
þeim leist vel á hugmyndina."
Samvinna ykkar Friðriks hef-
ur hafist þarna?
„Nei, hún hófst nokkru áður.
Þá var ég staddur á auglýs-
ingastofunni Fljótt fljótt hjá
Viktori Sveinssyni, Búða-
stjóra og forsetaefni. Þar
kynnti hann mig fyrir Friðriki.
Ég veit ekki hvað það var, en
sjálfsagt höfum við verið
bræður mjög lengi við Friðrik.
Mikið karma. Eftir að ég heyrði
að hann væri að skrifa þá bauð
ég honum í kvöldmat. Þar
færði ég í tal við hann hug-
mynd sem við erum enn að
skrifa og verður vonandi
næsta kvikmynd okkar. Einnig
lét ég hann fá fullt af bókum
um handritsgerð. Friðrik er
það vel gefinn..."
Og góður elskhugi?
„Jú, ja. Hey! „Don’t quote me
on this!“ Hann altént fattaði
mjög fljótlega hvernig á að
skrifa kvikmyndahandrit og
þremur vikum síðar var komið
alvöru kvikmyndahandrit með
samtölum og öllu. Þá uppgötv-
aði ég hina ofurmannlegu
h æ f i -
leika hans á þessu sviði. Bæði
skrifar hann myndrænt og á
auðvelt með að skrifa „tal-
texta". Eins og venjulegt fólk
talar — ekki uppskrúfaðan litt-
eratúr. Þannig hófst samstarf
okkar og vinskapur."
Friðrik sem sagt byrjar að
skrifa handritið að Stuttum
frakka, kvik-
mynd sem flestir
íslendingar
þekkja, fer þá út
til Gísla og dvel-
ur hjá honum í
tæpan mánuð.
Þar fullvinna þeir
félagar handritið og síðan er
rokið í tökur. Það er óhætt að
segja að sjálfsgagnrýni skorti
ekki hjá Gísla, ef marka má
kvikmyndadóm hans sjálfs
sem hér birtist í símskeytastíl:
Ekki góð mynd. Fyrstu
30 mínúturnar mjög góð-
ar. Svo dettur allur botn
úr henni. Hún verður laus
í sér. Mjög slæmt. Það
endar bagalega fyrir okkur
verkamennina. Rosalega
góð æfing. Við hefðum
aldrei getað gert Benjamín
dúfu án hennar. Ef ég væri
franskur leikstjóri hefði ég
aldrei fengið að gera mynd
númer tvö. Myndin er mis-
tök og þó ekki. Það komu
tæplega 40 þúsund manns
að sjá hana. Það er
kannski mælikvarði. Ég
veit það ekki. Faglega er
hún ekki vel gerð. Ekkert
meira um Stuttan Frakka
að segja."
Swiss Miss-stúlka
og seinheppinn Frakki
Nú gengu miklar sögur þess
efnis að myndin hefði verið
fjárhagslegur bömmer. Fólk
fékk ekki kaupið sitt. Viðtal við
sjálfan Frakkann í Eintaki sál-
uga þar sem hann er með tárin
í augunum?
„Hérna á íslandi eru allir
reiðubúnir að kaupa hálfa sög-
una og bæta svo við hana.
Fjöðrin verður að hænu. Þetta
var ósanngjarnt hjá þeim sem
kvörtuðu mest. Þeir skrifuðu
undir samning svohljóðandi
að þeir fengju ekki borgað ef
ekki næðist upp í kostnað."
Fáum þetta á hreint: Ert þú
ábyrgur fyrir því að líf Frakkans
er í rúst?
„Nei, þú mistúlkar þetta. Við
erum enn miklir vinir. Það var
einhver 18 ára strákur sem
keyrði á hann. Sjáðu til: Mynd-
kostaði tæpar 30
milljónir, 40 þúsund áhorfend-
ur gefa af sér 20 milljónir. Það
er einfaldlega ekki hægt að
gera myndir á íslandi sem
byggjast eingöngu á áhorfend-
um. Við fengum eftirvinnslu-
styrk upp á 3 milljónir. Dæmið
er einfalt. Ég veit til þess að
Kristinn er enn að borga per-
sónulega vegna myndarinnar.“
Eftir að Gísli lýkur námi er
hann ár úti í Frakklandi við
skriftir á framfæri kœrustu sinn-
ar þáverandi. Hver er þessi fína
kona?
„Natassia Lindinger. Swiss
Miss-stúlkan. Frönsk leikkona.
Síðan kem ég heim og vinn
með Friðriki í Benjamín-hand-
ritinu. Fer aftur út. Skil við
konuna til að takast á við verk-
efnið. Það er vonlaust að vera í
„overseas“-sambandi þegar
maður stendur í einhverju
svona."
Einkum þegar við erum að
tala um Swiss Miss-stúlkur?
„Akkúrat. Síðan hef ég verið
að sinna myndinni í heilt ár.
Stanslaus vinna.“
Benjamín dúfa er fjármögn-
uð af Kvikmyndasjóði, Euri-
mage, evrópskum kvikmynda-
sjóði, Sænsku kvikmynda-
stofnuninni, þýskum sjón-
varpsstöðvum (ZDF og NDF),
Beta Taurus (sem er með
dreifingarréttinn), íslenska út-
varpsfélaginu og fleiri aðilum.
Myndin er svo gott
sem fjármögnuð í
topp.
„Baldur Hrafn-
kell framleiðandi
hefur staðið sig
vel. Þetta er ekki
lengur persónuleg
áhætta,“ segir Gísli
og bætir því við aðspurður að
hann viti ekkert um hvort
hann verði ríkur af þessu.
„Maður getur aldrei orðið
ríkur í þessum bransa. Segjum
að það verði einhver gróði. Þá
er maður svo vitlaus að setja
hann í að fjármagna næstu
mynd. Þetta er eilíf hringrás
fjármagns. Hins vegar ef þú
sérð mig á rauðum Ferrari þá
veistu að mér hefur gengið
vel.“
Að drekka sig fullan
og spila sig geggjaðan
Gísli er þeirrar skoðunar að
kvikmynd sé höfundarverk
leikstjórans, „listin er engin
málamiðlun", en hann leggur
áherslu á að kvikmyndagerð
byggist á hópvinnu. „Ferlið er
það gríðarlega langt og þess
vegna þarf að vera einhver
sem hefur skýra sýn á mynd-
ina frá því hún er
lítil hugmynd og þar til hún er
fullkláruð. Myndin fer í gegn-
um handritsferii. Hún fer í
gegnum fjármögnunarferli, þar
sem maður þarf oftar en ekki
að sitja fyrir framan einhverja
menn sem er andskotans
sama. Þú þarft að sannfæra þá
um að þeir eigi að leggja pen-
ing í þetta. Og að þú sért mað-
urinn til að gera myndina,
maður sem hafi sterka sýn og
kraftinn til þess. Oft þarftu að
setja upp leikrit. Ég hef sett
upp leikrit fyrir Þjóðverja sem
vildu sjá listamann - helst
geggjaðan. Þannig að ég drakk
mig bara fullan, var með viskí-
flösku á mér og talaði hátt. Gat
ekki setið kyrr, gekk um gólf
og keðjureykti. Þetta fíluðu
þeir og bitu á agnið. Það þarf
ekki að vera að ég sé svona, en
svo mikið er víst að það þarf
að standa í svona leikritum.
Síðan kemur tökutíminn og þú
þarft að útskýra fyrir fjölda
fólks hvernig þú sérð þetta fyr-
ir þér. Ég fer mjög nákvæmlega
yfir hlutina og teikna þá upp.
Það er mjög mikilvægt að
skilningur sé fyrir hendi, því
ég sit í súpunni á næsta stigi,
sem er klipping. Þar sit ég, og
reyni að böðla þessu saman og
klára hugmyndina. Þaðan fylg-
ir maður myndinni á hljóðstig-
ið.“
Gísli bendir á að hugmyndin
„Franskar konur eru svoláið svoleiðis.
Pœr þola engar hináranir og eru
ekkertgrín. “
um kvikmyndaleikstjóra sem
höfund hafi einmitt komið upp
í Frakklandi á nýbylgjutíman-
um hjá köppum eins og God-
ard og Truffaud, sem fundu til
dæmis út að í verkum
Hitchcocks og Fords væri
sama mynstrið þrátt fyrir mis-
munandi samstarfshópa.
„Myndin kemst aldrei heil til
skila nema leikstjórinn fylgi
hugmyndinni til enda.“
Er þetta ekki slftandi starf?
„Þetta er rosalega peppandi
starf og maður þarf að vera
undir það búinn að vinna und-
ir gríðarlega miklu álagi. Þá
þýðir ekkert að flaustra og
garga tóma vitleysu. Tíminn í
þessu er peningar. Þetta kost-
ar ótrúlega mikið. Tökutíminn
er rosalega erfiður og eftir tök-
urnar á Benjamín dúfu datt ég
í mikið þunglyndi og lokaði
mig af í nokkrar vikur. Þú ert
búinn að vinna í þrjá mánuði,
gersamlega útspíttaður með
adrenalínið á
„Þannig að ég
árakk mig bara
fullan, varmeð
viskíflösku á mér
og talaði hátt.
Gat ekki setið
kyrr, gekk um
gólfog keðju-
reykti. Þetta fíl-
uðuþeirog bitu
á agnið. “
trilljón. Næturtökur og maður
er gersamlega búinn að rugla
líkamsklukkuna. Svo er það
allt í einu búið. Þú hefur verið
innan um 50-100 manns gef-
andi skipanir og allir hlaupa
eftir þínu höfði. Svo er það allt
búið og þú ert aleinn og átt að
fara að vakna klukkan níu,
hlusta á Górilluna og drekka
kaffi. Á meðan þú ert að taka
þá er þér skítsama hver er for-
seti í Rússlandi. Þér er and-
skotans sama þó að það séu
teknir fangar einhvers staðar í
heiminum eða hvað er að ger-
ast. Þú lest ekki blöðin eða
horfir á sjónvarp. Þetta getur
vissulega verið slítandi.“
Action og cut
En sérðu þig fyrir þér í þess-
ari stöðu í framtíðinni?
„Ég tók þá ákvörðun að
verða kvikmyndaleikstjóri fyr-
ir mörgum árum. Það er hálf-
vonlaus ákvörðun. Þetta þýðir
ekki peninga og ekki glamor. í
hæsta lagi viðtöl á borð við
þetta. Ég fékk minn skammt af
því að vera svokallað frægur á
íslandi í gegn-
um Poppkorn á
sínum tíma og
það fór alveg
með mig. Ákaf-
lega óþægilegt.
Maður er ekki í
þessu til að
hljóta einhverja
gervifrægð. Þetta gengur út á
að sigrast á hlutunum. Von-
andi á ég eftir að leikstýra fullt
af kvikmyndum í framtíðinni,
hvort sem það verður á
tveggja ára eða tuttugu ára
fresti. Það sem er erfitt við
kvikmyndagerðina er að mað-
ur veit svo lítið um framhaldið.
Það er búið að bjóða mér fullt
af erlendum verkefnum en ég
er alveg hættur að trúa því.
Þetta er svo mikið í kjaftinum á
einhverjum fínum mönnum
sem eru að spila sig stóra. Ég
trúi ekki á hlutina fyrr en ég er
kominn við myndavélina og
segi: Action!"
Já, segirðu actión og cut?
„Nei, ég segi yfirleitt: Gjörið
svo vel að klippa."
Um leið og Gísli Snær segir
klippa þá er eins og við mann-
inn mælt. Súperstjarnan Björk
gengur í salinn ásamt föru-
neyti. Um hvað var aftur verið
að tala?