Helgarpósturinn - 26.10.1995, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 26. 0KTÓBER4995
27
\
í vikunni sem nú er að líða héldu menn, en þó sérstaklega konur, upp á tuttugu ára afmæli kvennafrídagsins. Guðrún Kristjánsdóttir veit með vissu
að á tuttugu árum hafa kynsystur hennar lært að þekkja muninn á borvélum og skiptilyklum. Spurningin er: Hafa karlmenn víkkað sjóndeildarhringinn?
Kunna þeir að greina augnhárauppbrettara frá krullujárni? Hér er próf sem gæti komið upp um þá.
Kjaftaskar
.eða. .n
karlmenm (
1. Hvað er þetta?
a. Tól sem kvensjúkdómafræð-
ingar nota til að spegla leggöng
b. Augnhárauppbrettari
c. Krullujárn
Itt'
2. En þetta?
a. Gróf greiða fyrir permanent
b. Augabrúnagreiða
c. Tæki til að glenna sundur tær
3. Hverju líkist fæðing?
a. Því að kúka kókoshnetu
b. Því að kúka ananas
c. Því að kúka þessu hvoru
tveggja og útkoman er safaríkur
kokkteill
5. Hvernig er kona sem
notar brjostahaldara
númer 40 AA?
a. Með breitt bak og lítil brjóst
b. Baknett með stór brjóst
c. Þetta er karlmaður
8. Setjið eftirfarandi
rétta róð eftir styrk
(það sterkasta fyrst, daufasta
síðast)
1. Eau de cologne
2. Eau de toilette
3. Parfum
4. Eau de parfum
9. Hvað þýðir þegar
karlmenn „klippa á
naflastrenginn“ í dag-
legu tali kvenna?
a. Skilnaður
b. Lát tengdamóður
c. Þegar karlmenn flytja loks að
heiman
11. Hvað mælir þetta
tæki?
a. Þungun
b. Líkamshita
c. Hve heitt vaxið má vera sem
er notað til að rífa óvelkomin hár
upp með rótum
6. Hvað í andsk... er
þetta?
a. Asmatæki
b. Andlitsgufuvél
c. Brjóstapumpa
2. Hvað getii
r^ndað ykku
;etið þið
kur að þetta
a. Brjóstapúðar
b. Herðapúðar
c. Hnépúðar
7. Til hvers nota konur
þetta litla tæki?
a. Til að fjarlægja fílapensla
b. Til að halda garni aðskildu
þegar prjónað er með tveimur lit
um
c. Til að sauma með
10. Er þetta...
a. Naglaþjöl
b. Pensill til að skafa af andlits-
málningu
c. Skafa til að fjarlægja óvelkom-
in hár af líkamanum
12.
ímj
túA
ov. ■
a. Sveigjanlegur túrtappi
b. Nútímakrullupinni
c. Armband sem smellt er á með
einu handtaki
Hvað kvennabaráttan hefur
gert fyrir konur en ekki menn
Þótt konur séu á þessum
tímamótum ekki sammála
um allt þá eru þær samt sam-
mála um margt. Allir eru sam-
máia um að miklar viðhorfs-
breytingar hafi átt sér stað í
garð kvenna á undanförnum
tveimur áratugum. Tökum fá-
ein dæmi:
• Fyrir tuttugu árum
brenndu femínistarnir
brjóstahaldarana og fóru í
flatbotna skó til uppreisnar
gegn kvenímyndinni. I dag er
engin kona feimin við að lyfta
barminum upp með Wonder-
bra og ganga á morðhælum.
Sumir kunna að halda að
þetta sé afturför. Ef betur er
að gáð kemur i ljós að svo er
alls ekki. Hafi kona farið á háa
hæla og sett á sig spangar-
brjóstahaldara hér áður fyrr
var það yfirleitt af illri nauð-
syn. Þetta merkir með öðrum
orðum að kvennabaráttan hef-
ur fengið því áorkað að konur
hafa vai. Þær eru ekki lengur
að klæða sig fyrir karipening-
inn heldur eftir því hvernig
þær vilja sjálfar vera hverju
sinni.
• Annað dæmi um hugar-
farsbreytingu kvenna er að
einn daginn dýrka þær Naomi
Wolf og þann næsta hiæja
þær með Caroline Quentin að
bókinni Karlmenn eru skepnur.
Þetta þýðir með öðrum orð-
um að konur eiga sér ekki
lengur neina eina fyrirmynd.
• Hverju femínisminn hefur
komið til leiðar fyrir karl-
menn? Litlu. Að minnsta kosti
ef rétt reynist að Strandverðir
séu vinsælasta sjónvarpssería
heims og að enn séu dæmdum
nauðgurum boðnar stjarn-
fræðilegar fjárhæðir fyrir að
fara aftur í hringinn.
• Konur hafa uppgötvað á
þessum tuttugu árum að hægt
er að lifa fyrir fleira en karl-
menn. Enn eimir eftir af þeirri
hugsun að ef eiginmaðurinn
fer frá konunni, heldur fram-
■q 'ZX 'B ‘xx 'J?M ujiuo>||3A9 uis |g xsAa| jnjaq gec)
jeSatj uiaj)|Je3u!gAajeq je ejojs ge |j) ja gn)ou uias ejeqs jo
epacj o ‘ox ía '6 tax)a|jO|. ap nea So auSo|oa ap nea ‘umped ap
nea ‘uinped g íe 7 !q -9 !e ‘s !)||e uin )n ;>ja| UjqipfuiejsplJq ge
jjjA) S3A 1 euioq ge p) gsofjq e ujeq gaui nja jæcf jeSatf eujefS
jnuoq e)ou egnd buoas ’c ípjJBAS epaj euja gepApne ja
uias yods jssatj 1 Sjui pas e)a3 ge ‘uujjngeiuijeq ‘3a e SjiuaAH
;jaq )3es )uies jgjaq jngeui jnSapegjan -q £ ieujoif ge ja get)
uegaui e )||e uin )n )sq;ajp gjqqe|e|3eu ge juA) 3aA 1 euioq ge
ssat) |!) ja ge«j jeujnjSaue) jas e eqqe| jæc) uegaui jeuiæ) jas e
jnpun)s 1 euua|3 ge p) ueujefS ;qæ) e))at| e)ou jnuo)| a z !q 'X
JOAS
10-12 rétt
Þú ert Kaiimenni, með stóru K-i. Ertu annars viss um að þú sért ekki
kvenmaður!
8-10 rétt
Viðurkenndu það bara, þú ert femínisti!
6-8 rétt
Þú notar hvert tækifærí til að hnýsast í snyrtibuddur kvenna!
4-6 rétt
Þú átt önnur tuttugu ár í land.
2-4 rétt
Fyrst þú tókst á annað borð þátt í þessum leik ertu ekki annað en
kjaftaskur.
0-2
Varstu nokkuð uppi á Viktoríutímanum? Er nafn þitt kannski Dra-
kúla?
hjá henni, drepst eða flýr til
fjandans sé ekkert annað til
ráða en að fylla upp í gatið
með öðrum manni. Stað-
reyndin er hins vegar sú að æ
fleiri konur komast af án karl-
manna.
• Þörf fyrir karlmennsku
verður æ óljósari.
• Karlmenn þurfa ekki leng-
ur að nauða í konum til að fá
þær til að sofa hjá sér. Kona
með sjálfsvirðingu nauðar
bara sjálf, langi hana til að
sofa hjá. ■
• Þurfa karlmenn enn að
opna dyr fyrir konum? Standa
upp í strætisvögnum? Ausa yf-
ir þær skjalli? Borga fyrir mat-
inn? — Bara ef þeir vilja. Þær
krefjast þess ekki lengur.
• Síðast en ekki síst geta
karlmenn verið nokkuð vissir
um að gáfuleg babe, sem ekk-
ert vilja annað en kamjjavín
og rauða dregla, eru bara á
höttunum eftir peningum
þeirra og þjóðfélagsstöðu.