Helgarpósturinn - 26.10.1995, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Blaðsíða 30
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995 30 popp Opið bréf til Karls Th. Birgissonar, ritstjóra Helgarpóstsins: FIMMTUDAGUR Jón Ingólfsson frá Dalvík, rétt eins og Rocky í Rocky Horr- or. Hann skemmtir á Fógetanum. Papar halda uppi bjórhátíð á Kaffi Reykjavík. FÖSTUDAGUR Ragnar Bjamason og Stefán Jökuls- son úrvals bar-par á Mímisbar, Hótel Sögu. TLM er bresk sveit sem er einn af há- punktum Unglistar ‘95. Hún hitar upp í Hinu húsinu síðdeg- is þennan dag. Snæfríður og stubbamir koma í bæinn og skemmta á Fógetanum. Langbrók spilar enn og aftur „I feel fine í lundu“, sem er gamalt Bítlalag í nýjum búningi. í Rósenbergkjallar- anum. Brimkló eða því sem næst á Nætur- galanum í Kópa- vogi. Laddi, Magnús og Jóhann og Pétur Hjaltested á Hótel Islandi í kvöld. Papar og Sóldögg halda uppi enn betri jóðl-bjór-hátíð á Kaffi Reykjavík. Papar og Sóldögg halda uppteknum hætti á Kaffi Reykja- vík. LAUGARDAGUR Ragnar Bjamason og Stefán Jökuls- son enn á Mímis- bar, Hótel Sögu. Saga-Klass leikur fyrir dansi í Súlna- sal Hótels Sögu eftir að Ríó-sögu lýkur. Það eru Ríótríós- menn að rifja upp vafasama fortíð sína. Snæfríður og stubbarair frá Þor- lákshöfn með dahs- mennt á Fógetan- um. Langbrók enn við sinn „I feel fine í Iundu“-keip í Rósen- bergkjallaranum. Það er lítið sem hundstungan finnur ekki, segir máltækið. Það má í sjálfu sér heimfæra á ýmsan hátt upp á fréttafólk þitt og aðra sem hjá þér starfa við öfl- un slúðurs og eiga erindi við les- endur blaðsins. Það er e.t.v. gott og gilt að vissu marki, því vissu- lega er svo sem ekkert að því að miðla fréttum til almennings, þótt oft sé val og áherslur hjá þér og þínu fólki æði undarlegar og á stundum allt að því hlálegar að mínu mati, þótt ekki beri að skilja það svo að mér finnist blaðið al- slæmt. Sá er þó munurinn á hunds- tungunni og tungum þeirra sem afla þér frétta frá degi til dags, að ef ekkert finnst bitastætt, þá spinna þær einfaldlega upp eitt- hvað frá eigin brjósti. Einn af allt- of mörgum vitnisburðum þess er sá, að vinur minn hringdi í mig á dögunum og færði mér óvænt tíð- indi, jafnframt því sem hann óskaði mér innilega til hamingju. Honum varð nefnilega litið i ein- tak af blaði þínu daginn áður, hvar lesa mátti meðal annars þau tíðindi að ég „ætlaði brátt að fjölga mannkyninu". Eitt og annað sem mér viðkemur hefur um dag- ana verið ranghermt af ykkar háifu og ekki laust við að maður sé ýmsu vanur úr þeirri áttinni. Þetta þótti mér þó skera sig nokk- uð úr og að loknu símtalinu fór ég eðlilega með hraði út í sjoppu til að sjá þetta með eigin augum, því það var varla að ég tryði þessum annars greinargóða og trausta vini mínum. Það stóð þó heima þegar á reyndi. Þetta var að vísu birt neðanmáls með frétt af hljómsveit sem ég starfa með, og reyndar með nokkuð smáu letri, — langt frá því að vera slegið upp á áberandi hátt. Þrátt fyrir smæð letursins má þó segja að þetta megi flokka sem stórtíðindi fyrir mig persónulega og mína fjöl- skyldu. Enda leið ekki á löngu uns móðir mín, sem einnig hafði rek- ist á þetta, hringdi himinlifandi og boðaði komu sína snarlega, jafnframt því sem hún skammaði mig lítillega fyrir að hafa ekki lát- ið sig vita á undan blöðunum. Hún var reyndar fljót að fyrirgefa mér það, því ekkert er henni jafn hugleikið og barnabarn í vænd- um. Það urðu henni því vissulega ákveðin vonbrigði þegar ég sagði henni að hjá mér væri slíkt alls ekki í vændum, „fréttin" ætti ekki við rök að styðjast. Hins vegar spurði konan mín mig hnuggin í bragði hvort mér þætti hún ef til vill vera orðin of feit! Eins og áður greinir er langt frá því að þetta sé í fyrsta skipti sem rangt er farið með mál sem mig og fleiri varða í blaði þínu. Hingað til hef ég þó setið á mér og haldið rónni, þó að oft hafi ýmislegt sem mig og mina snertir verið fært nokkuð í stilinn af ykkar hálfu — og á stundum ómaklega máli hall- að að því er mér finnst. En vitandi það, að með tímanum fjölgar þeim stöðugt sem taka því sem ritað er á síður þessa blaðs (og nokkurra fyrirrennara þess) yfir- Talaðu við okkur um BÍLARÉTTINGAR BÍLASPRAUTUN leitt með ákveðnum fyrir- vara, hefur maður svo sem ekki verið að stökkva upp á nef sér hingað til. Þó það teljist e.t.v. ekki til glæpa að fjölga mannkyninu fannst mér hins vegar að þessu sinni nóg komið af vitleys- unni og ákvað að skrifa þér þetta bréfkorn. í beinu fram- haldi spyr ég þig: Er ekki kominn tími til að þú og þínir reynið að taka upp eilítið vandaðri vinnubrögð og breyttar aðferðir við frétta- öflun? Er ekki allt i lagi að fara að hætta að trúa og treysta misþenkjandi heim- ildarmönnum ykkar út um víðan völl alfarið sem nýju neti og slá upp hverju því sem kann að hljóma vel í ykkar eyrum, að því er virð- ist oftlega án þess að ígrunda sannieiksgildi þess? Oft dygði eitt símtal tii að sannreyna hvort rétt er með mál farið eður ei. Eða myndi það kannski eyðileggja ímynd blaðsins? ímynd sem, ásamt óvönduðum vinnu- brögðum, virðist byggja hvað helst á þvi að nærast á því sem neikvætt er og agnú- ast með yfirborðskenndum snobb-hætti út í þá með- borgara sem að ykkar mati binda bagga sína ekki „réttu“ hnútunum. Þeirra sem ekki „detta í ‘ða“ á „réttu“ börun- um, umgangast ekki „rétta“ fólkið, sækja ekki „réttu“ partíin og hafa ekki „réttu“ skoðanirnar. Ef það er ímynd, sem þér finnst þess virði að halda í, spái ég því að þess verði ekki langt að bíða að blaðið fái nýtt nafn og kennitölu... Ég vænti þess að þú birtir þetta bréf óbreytt í heild sinni og á góðum stað í næsta tölublaði. Með virðing, Stefán Hilmarsson. Frá ritstjóra Þakka þér bréfið, Stefán. Það er ágætlega stílað. Svar við bréfi þinu getur aðeins verið á einn veg: að geysivinsæla og ?dj>) vttlibráðarhlaðborð með köldum og heitum réttum á aðeins 2.900 krónur Stundin et fiaustíii Staéwtinn e* ATauótið biðja þig afsökunar á rang- herminu og því ónæði sem það hefur valdið þér (um leið og ég samhryggist yfir að gleðitíðindin reyndust ekki á rökum reist). Það þykir mér afar miður. Reiðiþrungnar fullyrðing- ar þínar um fréttir sem skrifaðar eru í þetta blað eru hins vegar illa ígrund- aðar. Því er þveröfugt farið við það sem þú heldur fram; á það lögð rík áherzla, á meðan ég fæ einhverju um það ráðið, að vandað sé til úrvinnslu frétta, jafnt stórra sem smárra. Það breytir ekki hinu að fólk gerir stundum mistök, og kannske sér það minni ástæðu til að leggjast í mikla rannsóknarvinnu þegar kemur að jafnánægju- legum fréttum og setning- unni sem reyndist röng og var tilefni bréfs þíns. I þessu tilfelli var heimildin þó ekki ómerkilegri en Anna Björk Birgisdóttir, eiginkona þín, en fleiri en tveir og fleiri en þrír við- mælendur blaðsins skildu hana svo í útvarpsþætti hennar fyrir nokkru að hún ætti von á barni. Það hefur greinilega verið ónákvæmni hennar eða misheyrn ófárra. Að öðru leyti læt ég reiði- lestur þinn sem vind um eyru þjóta, enda ber hann öll merki geðshræringar. En er það virkilega svo að áherzlur þess blaðs ís- lenzks sem bezt sinnir dæg- urmenningunni, heiminum sem þú lifir og hrærist í, séu „hlálegar“? Þekkir kannske hver sitt heima- fólk. Kveðja, Karl Th. Birgisson.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.