Helgarpósturinn - 26.10.1995, Page 31

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Page 31
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995 bhI Howie B. kaupir íslenska list Það barst til hinna löngu eyrna HP að fyrir rúmri viku hefði Howie B. drepið niður fæti á íslandi en staldrað stutt við. Fyrir þá sem ekki eru innviklaðir í tónlistarheiminn þá er Howie þessi vel metinn tóniistarmaður, plötusnúður og upptökustjóri í Bretlandi. Hann tók til að mynda upp lag- ið „Nothing compares to you“ með Sinead O’Connor og hef- ur unnið talsvert með Björk. Nú vinnur Howie til dæmis við hlið Brians Eno að gerð nýj- ustu U2-plötunnar Passengers svo eitthvað sé nefnt. Passen- gers er ekki komin út en sam- kvæmt erlendu popppress- unni eru Bono og félagar að færa sig upp á skaft ið. Síðast fengu Johnny Cash til að syngja eitt lag og nú er það sjálfur Pavarotti sem tekur lagið með þeim. En það er önnur saga. Howie B. var sem sagt hér staddur á mánudag og HP lék forvitni á að vita hvað hann hefði verið að erindast. Eftir nokkra eftir- grennslan bárust böndin að myndlistar- manninum Húbert Nóa. Hann gat ekki neitað og það kom upp úr dúrnum að Ho- wie kom gagngert til að kaupa tvö málverk af lista- manninum. Hann var á ferð hér á landi með Björk og kom á vinnustofuna og sá þar málverk sem ekki létu hann í friði. Hann dreif sig því til íslands og stoppaði í tæpan sólarhring. Samkvæmt heim- ildum HP ætlaði sjálfur Bono að smella sér með en hætti við á síðustu stundu. „Hann er að spá í að nota aðra hvora myndina á umslag plötu sem hann ætlar að gefa út í febrúar,“ segir Húbert Nói og vill ekki gera of mikið úr þessu. En hvað er á myndun- um? Á þessum málverkum? Þetta eru uppstillingar. Annað eru þrír bollar sem eru hálfgerðir geimbollar — það er svona Satúrnusarhringur í kringum þá. Ný-“designaðir“ kaffibollar. Hitt er diskur og bikar.“ Húbert Nói seldi frægum erlendum tón- listarmanni tvö málverk. Rakel Einarsdóttir, þjónsnemi á fyrsta ári, er eina konan sem komst í tíu manna úrslrf í kokkteilakeppninni á veitingahúsinu Óðali. Og hún lét ekki þar við sifja heldur vann með glæsibrag. Vinnings- kokkteillinn, „Sætur draumur", kemur manni enda hálfa leið til Ba- hama í huganum. akel EinarsdótUr, l-ff þjónsnemi á fyrsta ári, Jl Vskaut virtustu þjónum landsins ref fyrir rass þegar hún bar sigur úr býtum í kokkteiiakeppni lærðra og leikra í veitingahúsinu Óðali á dögunum. „Vinnuféiagar núnir hvöttu mig tii að taka þátt í keppninni,” segir Rak- el, sem auk þess að stunda nám starfar sem nemi á veít- ingastaðnum La Primavera í Húsi verslunarinnar. Rakei er ein fjögurra kvenna sem upphaflega skráðu sig tii keppni en sú eina sem komst áfram í tíu manna úrslit. „Bæði vegna þess hve óreynd ég er miðað við hina sem tóku þátt og þar að auki eini kvenmaður- inn í hópnum hugsaði ég oft með mér meðan á keppninni stóð: Guð minn góður, hvað er ég að gera hérna?“ Sjálft úrsiitakvöldið mun- aði litlu að hún tæki staf sinn og hatt og hyrfi á braut. „Þegar tilkynnt var hverjir yrðu í öðru og þriðja sæti fór ég í kápuna og var á leiðinni út. Það hvarflaði ekki að tnér að ég yrði númer eitt.“ Hún lýsir augnablikinu nánar: „Þegar svo tilkynnt var liver hefði hreppt fyrsta sætið varð svo mikið spennufal! hjá mér að ég fékk tár í aug- un, — rétt eins og fegurðar- drottningarnar." Þess má geta að í öðru sæti varð Þor- steinn Ragnar Guðmunds- son, yfirþjónn á Grand Hót- el. og í því þriðja Ingólfur Haraldsson, yfirþjónn á Hót- el Borg. Hér kemur svo verðlauna- kokkteiilinn; Sweet Dream: 3 cl Bacardi, 2 cl Kahlua og 1 og 1/2 cl Beachcomber. Hrist. Ofan á er settur súkku- laðispænir. Ef fólk nennir að möndla við hlutina er gott að mölva niður kókoshnetu til að skreyta með glasbarm- inn. „Já, þetta er algjört dúndur," segir Rakel að- spurð, „enda ekkert nema áfengi í honum, en hann er iíka góður after-dinner- drykkur." Og þótt blaðamað- ur HP hafi ekki enn komist til að smakka hann getur hann farið á flug og imyndað sér að sopi af Draumnum komi manni hálfa leið tii Bahama- eyja. Klíkan úr Árbænum: Birgir Örn 1 Steingrimsson, Eggert Gíslason, í Daníel Þorsteinsson og Páll Ragnar Pálsson, sem saman mynda Maus. Önnur breiðskrfa hljómsveitarinnar Maus var að koma út. Og er eitthvað merkilegt við það? Jú, þessi ungsveit er svo að segja bara að gefa út fyrir erlendan markað. Útgáfutónleikar verða í Leikhúskjallaranum í kvöld. Draugasöngva r Maus Þessi plata er eiginlega bara gefin út fyrir erlendan markað, en það verður samt hægt að kaupa hana á ís- landi,“ sögðu tveir meðlimir hljómsveitarinnar Maus einum rómi, þeir Birgir Örn Stein- grimsson og Eggert Gíslason. Hinir tveir sem mynda kvartett- inn eru Daníel Þorsteinsson og Páll Ragnar Pálsson. í tilefni þessara tíðinda verða haldnir útgáfutónleikar í Leikhúskjallar- anum í kvöld. í framhaldi af því að svo ung sveit sendir frá sér aðra breið- skífuna á innan við ári velta menn eðlilega fyrir sér hvort verið sé að endurútgefa gamalt efni. „Svo er alls ekki,“ segja þessir tveir sömu aftur ein- róma. „Við vorum að spá í að endurgera gömul lög, síðan bara nenntum við því ekki, við vorum orðnir svo leiðir á að syngja sömu lögin ár eftir ár. Svo erum við bara ekki þannig tónlistarmenn.“ Meðlimir Maus halda því fram fullum fetum að mikill munur sé á þeim frá því á síðustu plötu; lögin séu orðin melódískari, lagasmíðarnar vandaðri, útsetn- ingarnar betri, aukahljóðfærin fleiri o.s.frv. „Allt þetta gerir að verkum að erfitt er að ná plöt- unni nákvæmlega á tónleikum. Það er eiginlega allt annað að heyra okkur læf en á plötu.“ Plata Maus sem kom út í fyrra heitir Allar kenningar heims og ögn meira en sú nýja hefur feng- ið nafnið Ghostsongs að enskum sið. Verður hún gefin út í Mið- Evrópu, á Norðurlöndum og á Bandaríkjamarkaði, ef vel geng- ur.“ Er búið að uinna heimauinn- una? „Já, það má eiginlega segja það, því í fyrra spiluðum við í Þýskalandi og í Prag, Tékklandi og víðar við góðar undirtektir. Við erum samt ekki með neinn stjörnuglampa í augum. Vel má vera að þetta gangi ekkert vel, en það er í lagi að prófa. Fyrir okkur er þetta heldur ekki nein fjárhagsleg áhætta, við látum bara stóru kallana um hana. Ef þetta gengur ekki, þá það...“ Hvernig skilgreinið þið efnið sem þið œtlið nú að bjóða til út- flutnings? „Bara sem okkar lög. Það má eiginlega segja að við séum allt- af að verða líkari og líkari okkur sjálfum. Við spilum líka bara orðið lög sem okkur líkar sjálf- um og hendum ruslinu. Ætli Mausrokk sé ekki nærtækasta skilgreiningin. Við höfum verið kenndir við nýrokkið en okkur finnst það vond skilgreining.“ Hvaðan er þessi hljómsveit sprottin? „Við erum flestir úr Árbæn- um, af stakri snillingakynslóð sem fædd er árið 1976, og það- an er meðal annars hljómsveitin Curver að nokkru sprottin. Þetta er kynslóð sem hefur að geyma ræðu- og tónlistarsnill- inga, framtíðarforseta og -ráð- herra íslands.” Það er ekkert minna. Er þetta kannski ný Útvarps Matthildar- klíka? „Við viljum ekkert fullyrða um það.“ s|ónvarp HP mælir með: Stórþjófnaöur ★★★★ (RÚV föstudagskvöld klukkan 21.50) í kvikmyndahandbók HP er eindregið mælt með þessari mynd. Robert Mitchum í hiut- verki manns sem er ranglega sakaður um glæp og þarf að elta raunverulega glæponinn. Bandarísk mynd frá 1949 og þó að þessar gömlu myndir séu iðulega ofmetnar þá er óhætt að mæla með þessari. Gamli viskíboltinn Mitchum er alltaf flottur. Guöfaöirinn III ★★★★ (Stöð 2 föstudagskvöld klukkan 21.15) Síðasta myndin í trílógíunni góðu. Hún er síst þeirra en stendur þó vel fyrir sínu. Tinnl í Tíbet (RÚV laugardag klukkan 18.00) Seinni hluti. Frábærlega vel gerð teiknimynd og ekki sakar að Þorsteinn Bachmann talar fyrir Tinna. Nær Tinni hinum unga kínverska vini sínum úr klóm Jetans? Þegar stórt er spurt... The Player ★★★★ (Stöö 2 laugardagskvöld klukkan 21.40) Fínasta paródía á Hollywood eftir Robert Altmann. Tim Rob- bins (Ekki Eric eins og kemur fram í dagskrártilkynningu) í aðaihlutverki og fer á kostum. Tennessee Wiiliams (RÚV sunnudag klukkan 15.00) Heimildamynd um eitt besta leikritaskáld Bandaríkjamanna. HP varar við: Þeytingur (RÚV laugardag klukkan 13.30) Það er í góðu lagi að við- halda afdalamennskunni en einhvern veginn þá eru Gestur Einar og Björn Emilsson ekki jjeir mínusar að þeir verði plús. Enginn friður án þróunar -— engln þróun án frlöar (RÚV sunnudag klukkan 13.00) Fyrir stuttu var sýndur alveg innilega leiðinlegur breskur þáttur um Sameinuðu þjóðirn- ar og það er ekki von á betra hér þegar Hans Kristján ræðir við dr. Gunnar Pálsson um sama efni. Bara titiilinn á þætt- inum segir allt sem segja þarf. Við skulum rétt vona, Hans Kristjáns vegna, að ekki verði unnin bók upp úr sjónvarps- þættinum eins og tíðkast. popp TLM eða Transcendental Love Machine er hluti af Unglistinni sem breytir vatni í vín þessa dagana. Þeir verða á Ingólf- skaffi í kvöld. Brimkló og slíkur fílingur á Næturgalanum í Kópavogi. Skysport í beinni útsendingu um miðjan dag; leik- ur Tottenham og Newcastle. Pó líði ár og öld verður að því er sýn- ist næstu ár og öld á Hótel íslandi. Bjöggi rifjar upp bestu lög- in. Karma tekur svo við og Magnús og Jó- hann. Sóldögg einir síns liðs á Kaffi Reykjavík. Enn eimir eftir af bjórhátíðinni. SUNNUDAGUR Teitur Guðnason er nýr trúbbi í brans- anum. Hann reynir að feta í fótspor Halla Reynis á Fóget- anum, sem reyndar skemmtir þar sjálfur á föstudags- og laug- ardagskvöld. TLM halda áfram unglist- inni á Gauki á Stöng. Hljómsveit Hjördísar Geirs leikur gömlu dans- ana að gömlum sið á Hótel íslandi. Sælgætisgerðin er enn að slípa sig saman og gengur vel á Glaumbar. Ingi og Eyfi — hvor er sætari? Ja, það er nú það. Þeir verða altént á Kaffi Reykjavík í helgar- lok. SVEITABÖLL Hótel Mælifell, Sauðárkróki Þorleifur Guðjóns og Bubbi Morthens halda enn áfram að læða inn Hauki Mort- hens. Þeir verða á Króknum á fimmtu- dagskvöld að hita upp fyrir rjúpu dag- inn eftir. Sveitasetrið, Blönduósi er nýr veitingastaður byggður á rústum gamla hótelsins þar í bæ. Bubbi og Þorleif- ur í anda Hauks, auk þess sem þeir láta sverfa til stáls. Á laugardagskvöld.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.