Helgarpósturinn - 26.10.1995, Síða 32
Greiddu atkvæði!
39,90 kr. mínútan
f hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur,
sem þeir geta kosið um í síma 904 1516.
Nú er spurt:
Heldur þú að pláss sé fyrir Stöð 3
á sjónvarpsmarkaðnum?
1. Já
2. Nei
Við megum til með að láta einn fjúka í tilefni sýknu-
dómsins yfir O.J. Simpson þótt nokkuð sé um liðið.
Hvað sagði Simpson þegar hann var sýknaður? „Get
ég fengið hanskann minn aftur?“...
Úrslit síðustu spurningar:
Síðast var spurt: -
Á að leyfa ráðherru,
ogemhœttismönn
að notagreiðsluko
eigu ríkisins?
HELGARPOSTURINN
Einsog kannski einhverjir muna mátti meðal annars
finna talsverðan fjölda lækna á leynilistanum hans
Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra, þar sem
fram kom hverjir væru 250 launahæstu starfsmenn ríkis-
ins. Einn af þeim fjölmiðlum sem slógu málinu upp með
miklum látum var Stöð 2, sem til dæmis benti sérstaklega
á drjúgan hlut lækna á listanum. Nú
hins vegar þannig til að marg-
ir þeir læknar sem töldust vera í
hópi 250 launahæstu starfsmanna
ríkisins eru jafnframt langsamlega
launalægstir á sínum deildum og
þótti því afar ómaklega að sér vegið.
Ástæða hárra launa þeirra miðað við
aðra opinbera starfsmenn er sú, að
þessir læknar fá hvergi annars stað-
ar greidd laun en hjá ríkinu og eru
ekki í nokkrum íhlaupastörfum eins
og flestir aðrir læknar í tekjuhæsta flokknum. Sú stað-
reynd, að stór hópur lækna þiggur laun á nokkrum stöð-
um, hefur verið mjög til umræðu undanfarin misseri og
þeir læknar, sem hafa tekið af skarið og halda sig aifarið
hjá ríkinu, voru því ósáttir við að vera teknir út í leyni-
listaumræðunni sem „vondu kallarnir" í höpnum...
Nokkrar mannabreytingar urðu nýverið í Stjórnarráð-
inu í kjölfar þess að búin var til ný deild innan
menntamálaráðuneytisins, svokallað stjórnsýslu-
og lögfræðisvið. Skrifstofustjóri þar
var ráðin Þórunn Hafstein, en hún
var áður deildarstjóri listadeildar. í
hið gamla embætti Þórunnar kom
Karitas Halldóra Gunnarsdóttir úr
starfi hjá umhverfisráðuneytinu. Nú
bíða menn að sjálfsögðu spenntir eft-
ir að sjá hver verður ráðin(n) í stað
Karitasar Halldóru. í heitu pottunum
eru þannig veðmál í gangi um hvort
Guðmundur Bjamason umhverfis-
ráðherra muni ráða þangað framsóknarmann eða ekki.
Veðmálslíkurnar voru síðast þegar fréttist þær, að þeir
sem veðja á að Guðmundur ráði ekki framsóknarmann fá
fimmfalda upphæðina til baka ef ágiskun þeirra reynist
rétt. Það telst vera 5 á móti 1 og HPer að hugsa um að láta
slag standa og veðja 500 krónum á ekki-framsóknar-
mann...
Það verður ekki skafið af framsóknarmönnum að
þeir sjá um sína og trúir áratuga hefð gera þeir
vel við flokksins bestu börn. Þannig hafa Finnur
Ingólfsson viðskiptaráðherra og Guðmundur
Bjamason umhverfisráðherra ráðið til sín tvo sóma-
bræður sem duglega hafa látið til sín taka í Fram-
sóknarflokknum: þá Einar Kristin Jónsson og Guð-
jón Ólaf Jónsson. Einar Kristinn gegnir stöðu ráð-
herrabílstjóra Finns og mun ríkja almenn ánægja inn-
an flokksins með þá ráðstöfun og sömuleiðis þykir
Guðjón Ólafur hafa staðið sig með stakri prýði í hlut-
verki aðstoðarmanns Guðmundar — enda er staðan
sú erilsöm...
V
KORTLAUS
VISA
VIÐSKIPTI
greiðslureikningur V/SA
NYJUNG
M , ■ i
WíMÉÍM
Þú nýtur hagræðis af boðgreiðslum
án þess að hafa greiðslukort.
TILVALIÐ FYRIR YMIS FOST UTGJOLD:
ÁSKRIFTIR, AFNOTAGJÖLD, IÐGJÖLD, HITA,
RAFMAGN, SÍMA, HAPPDRÆTTI O.FL.
VISA ísland annast boðgreiðsluviðskipti fyrir einstaklinga og fyrirtæki án þess
að viðkomandi hafi sérstakt greiðslukort á sínu nafni.
í stað VISA-korts fær viðskiptavinur sérstakt reikningsnúmer og greiðsluskírteini.
Leitiö upplýsinga hjá næsta banka eða sparisjóði.
Fyrir einstaklinga og fyrirtæki
ALFABAKKA 16, 109 REYKJAVIK simi 567 1700 - fax 567 3462
Fréttaskotið
552-1900