Helgarpósturinn - 28.03.1996, Qupperneq 6
FIMMTUDAGUR 28. MARS1396
• Þegar Friörik Sophusson
kom heim úr vikufríi frá Túnis
um daginn sendi hann ráö-
herrabílstjórann sinn meö
bæklinga frá þarlendu hóteli
til íslenskra feröaskrifstofa. í
fréttum af málinu undanfariö
hefur verið látiö í þaö skína
aö hér sé um óeölílega íhlut-
un ráöherra aö ræöa. Hvem-
ig skyldi þetta blasa viö ráö-
herra sjálfum?
„Sá fræjum
tortryggni í
minn garð“
„Ég fór, ásarnt konu rninni og
lítilli dóttur, í vikuferð til
Túnis á vegum danskrar
ferðaskrifstofu, því við höfð-
um ekki tækifæri til að fara í
sumarfrí á síðasta sumri.
Hótelið sem við dvöldum á
var mjög gott og þar var allt
til alls. Gistingin var afar
ódýr, því danska ferðaskrif-
stofan hafði sérsamninga við
hótelið. Daginn áður en við
fórum heim hitti ég svo hót-
elstjórann og spurði hann
hvort íslenskar ferðaskrif-
stofur gætu fengið svipaða
samninga. Hann taldi það
auðsólt mál og ég tók því
með mér heim nokkra bæk-
linga frá hótelinu. Ég bjóst
satt að segja við því að
þessu yrði vel tekið á íslandi
— að hjálpa til við að bjóða
upp á ódýra og góða ferða-
möguleika — en annað kom
á daginn. Ég sendi sex ferða-
skrifstofum bréf með bæk-
lingnum og þar af fóru þrjú
þeirra með ráðherrabílnum,
en hann er einnig notaður
fyrir einkaerindi ráðherrans
— enda borgar ráðherra
skatta af tilteknum notum af
bílnum. Af einhverjum und-
arlegum ástæðum sendi ein
ferðaskrifstofanna bréfið til
tiltekinna aðila sem vilja
koma höggi á mig.“
Hveijir eru að reyna að
klekkja á þér?
„Það hefur komið í Ijós að
þrátt fyrir að Ríkisútvarpið
hefði aliar upplýsingar um
málið kaus það að fjalla um
það út frá einhverjum tor-
tryggilegum spillingarvinkli,
sem ekki á við nokkur ein-
ustu rök að styðjast. Ég hef
engra hagsmuna að gæta í
þessu máli. Ég hef hins vegar
fengið þakkarbréf frá tveim-
ur ferðaskrifstofum vegna
ábendingarinnar. Eini glæp-
urinn sem ég hef framið í
þessu máli er að benda á
ódýra og góða ferðamögu-
leika fyrir Islendinga. Það er
alls ekki óeðlilegt að fjár-
málaráðherra — eins og
hver annar — reyni að
benda á hagkvæma við-
skiptamöguleika fyrir íslensk
fyrirtæki. Ákveðnum mönn-
um innan Ríkisútvarpsins
virðist hafa fundist það
snjallt að reyna að koma
höggi á mig og gera það með
þessum hætti; að gefa í skyn
að ég hafi misnotað aðstöðu
mína og jafnvel verið á ein-
hverjum sérstökum kjörum
vegna embættis míns, sem
er alger fásinna. Þetta er
greinilega gert til að sá fræj-
um tortryggni í minn garð.
Það kátlega við þetta allt
saman er svo það að frétta-
stofunni hefur, með þessum
sérkennilega fréttaflutningi,
tekist að auglýsa ferðir til
Túnis langt umfram það sem
efni stóðu til!“ - ebe
Þórhildur Þorleifsdóttir
hefur veriö ráöin leikhús-
stjóri Borgarleikhússins
eftir brottrekstur Viðars
Eggertssonar, en hún
hefurí allt sótt þrisvar
um stööuna og veriö
hafnað í öll skiptin. Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir
Stjórinn sem
húsið hreppti
Leikhúsmaður benti á að þótt Þórhildur hefði
margt sér tii ágætis gæti hún vart talist manna-
sættir og „Kiwanisklúbburinn" væri ekki búinn
að bíta úr nálinni með sína „Soffíu frænku":
„Það gæti reynst örðugra að skila henni
en Viðari Eggertssyni."
Eftir stuttan fund ákvað Þjóðleikhúsráð að víkja Viðari Eggertssyni fyrir-
varalaust úr starfi leikhússtjóra og stofnaði þar með samstarfinu við borg-
ina í hættu. Núna hefur ráðið fengið Þórhildi Þorleifsdóttur til starfans, en
hún var einn af umsækjendum ásamt Viðari og kærði ráðningu hans á sín-
um tíma til Jafnréttisráðs. Sumir segja að þarna sé um að ræða klókinda-
legt bragð af hálfu leikhúsráðs til að lempa andstöðu borgarinnar við upp-
sögn Viðars, því að Þórhildur og Ingibjörg Sólrún séu persónulegar vin-
konur. „Það er kannski hugmynd sem er á kreiki innan Leikfélagsins að
vinátta okkar Þórhildar hafi þarna einhveija þýðingu fyrir samstarf borg-
arinnar við Leikfélagið, en þrátt fyrir að hún sé hin ágætasta leikhúsmann-
eskja hefði ég kosið að ráðningu hennar hefði borið að með öðrum hætti,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í samtali við Helgarpóstinn.
Enn er ekki ljóst hvaða eftirmálar verða af uppsögn Viðars Eggertssonar.
Borgin hefur óskað eftir að fá að vita kostnað við starfslokasamninga en
svör hafa ekki enn borist.
Amánudagsmorgun
klukkan ellefu var leik-
urum Borgarleikhúss-
ins tilkynnt að búið væri að
ráða leikhússtjóra í stað Við-
ars Eggertssonar, Þórhildi
Þorleifsdóttur leikstjóra, en
viðræður við hana höfðu þá
staðið nokkra hríð. Staðan var
ekki auglýst og lét fulltrúi
borgarinnar bóka að hann
hefði talið að ráða ætti Þór-
hildi til eins árs, ekki fjögurra
eins og gert var, og hefði það
ekki verið meira frávik frá lög-
um og venjum en að ráða hana
án auglýsingar. í bókuninni
segir ennfremur: „Ég hlýt því
að undirstrika þann fyrirvara
sem orðaður er í starfslýsingu
leikhússtjórans um hugsanleg-
ar breytingar í kjölfar nýs sam-
komulags Reykjavíkurborgar
og LR um rekstur Borgarleik-
húss. Ekki er unnt að ábyrgjast
að starfsvettvangur, umboð,
valdsvið og ábyrgð leikhús-
stjóra haldist óbreytt frá því
sem verið hefur.“
Kraftmikil og dugleg kona
„Við Þórhildur erum af sömu
kynslóð og höfum unnið ágæt-
lega saman í gegnum tíðina og
átt margt saman að sælda,
bæði prófessjónal og prívat,“
sagði Stefán Baldursson Þjóð-
leikhússtjóri. „Að mestu hlið
við hlið sem leikstjórar, en
Þórhildur hefur einnig leik-
stýrt hér við húsið eftir að ég
varð leikhússtjóri. Við vorum
saman um að stofna sunnan-
deild Alþýðuleikhússins á sín-
um tíma, en það var upphaf-
lega stofnað á Akureyri þar
sem það starfaði um tveggja
ára skeið. Hún er afskaplega
kraftmikil og dugleg kona og
hefur mikla reynslu sem leik-
stjóri og hefur sett upp fjöl-
margar afbragðsgóðar leiksýn-
ingar. Það er margt skylt með
starfi leikstjóra og leikhús-
stjóra, bæði hvað varðar list-
ræna og verklega þætti, og
mér finnst ekki undarlegt að
þeir skuli hafa leitað til henn-
ar. Menn geta svo haft sínar