Helgarpósturinn - 28.03.1996, Síða 24
FIMMTUDAGUR 28. MARS1996
í frá höfuöstöövunum
á Kópaskeri
Topp 10
listínn
— yfir þau fjölmörgu
verkefni sem Ólafur
Skúlason getur snúiö
sér aö ef hann segir
af sér embætti
biskups íslands.
1. Reynt aö skrifa metsölubók og
græða á hörmungum sínum
rétt eins og ónefndur alþýöu-
flokksmaöur gerði hér um áriö.
2. Boöið sig fram til forseta og
gjörsigraö meö dyggum stuön-
ingi þeirra 50% þjóöarinnar
sem enn trúa á sakleysi hans.
3. Selt húsið, bílinn og flutt meö
Ebbu til eyju í Karíbahafinu þar
sem hann virðist hvort sem er
una sér best.
4. Skrifað hádramatískt leikrit um
óvænta aðför hins illa að sér
og selt það í Áramótaskaupiö
eöa Leikhús Þórhildar.
5. Sagt sig úr lögum viö nútíma-
samfélagið og gerst bænaþylj-
andi einsetumaður á Papey,
sem saknar sinna írsku
munka.
6. Skrifaö sagnfræðirit um þær
ófrægingarherferöir sem hort-
ugir íslendingar hafa fariö gegn
biskupum frá kristnitöku.
7. Snúið sér á nýjan leik aö upp-
fræðslu fermingar- og sunnu-
dagaskólabarna, sem skortir
föðurlegar ímyndir í prestslíki.
8. Gefiö út geislaplötu fyrir næstu
jól meö úrvali bestu trúarlag-
anna að sínu mati eöa jafnvel
úrvalsræðum sínum.
9. Stofnað sjálfshjálparhóp fyrir
háttsetta ráöamenn sem hafa
sætt illri og ósanngjarnri meö-
ferö fjölmiðla og slúöurbera.
10. Söðlað um og gerst sjón-
varpsstjóri hjá Ómegu þar sem
hann myndi brillera í hópi
kunnra breyskra predikara.
Hugsanlegt framboö Davíös Oddssonar
til embættis forseta íslands gefur tilefni
til aö hafa uppi nokkrar vangaveltur um
hvaða áhrif þaö heföi á stöðu hans í
flokki og ríkisstjórn. Sæmundur Guövins-
son spáöi í þessar hugleiðingar og leit-
aöi meðal annars álits Sigurðar Líndal
lagaprófessors.
Davíð getur
áfram haldið
öllu opnu
Pari svo að Davíð Oddsson
ákveði að bjóða sig fram til
embættis forseta íslands
vakna ýmsar spurningar um
stöðu hans í flokki og ríkis-
stjórn. Getur Davíð tekið sér
leyfi frá störfum meðan hann
tekur þátt í forsetaslagnum
eða þarf hann að segja af sér?
Er vænlegt fyrir Davíð að
gegna formennsku í stjórn-
málaflokki á sama tíma og
hann býður sig fram til for-
seta? Þarf að mynda nýtt ráðu-
neyti ef hann færi fram og
næði kosningu eða getur hann
tilnefnt arftaka sinn? Þetta eru
meðal þeirra spurninga sem
kvikna þegar þessi mál ber á
góma. Hins vegar ber á það að
líta að sjálfur hefur Davíð
hvorki sagt af né á. um það
hvort hann hyggur á forseta-
framboð. En það, að hann skuli
ekki hafa lýst því yfir að hann
sé ekki til viðtals um framboð,
býður upp á svona vangavelt-
ur.
Ætti að fara frá
Innan Sjálfstæðisflokksins
eru skiptar skoðanir um hvað
Davíð ber að gera ef hann fer í
framboð. Háttsettur maður
innan flokksins sagði í samtali
við HP að Davíð ætti hiklaust
að segja af sér sem formaður
og forsætisráðherra sama dag-
inn og hann tilkynnti framboð,
ef til þess kæmi. „Þá er ég ekki
að ræða um málið út frá laga-
legum hliðum, heldur finnst
mér að hann ætti að sýna að
hann er tilbúinn að leggja allt
Davíð Oddsson: „Ef hann tæki sér bara frí frá störfum meðan á kosningabaráttunni stendur eru það um leið
skilaboð um að hann búist allt eins við að tapa og það er ekki stfll Davíðs," segir háttsettur maður innan Sjálf-
stæðisflokksins.
undir í baráttunni. Ef hann
tæki sér bara frí frá störfum
meðan á kosningabaráttunni
stendur eru það um leið skila-
boð um að hann búist allt eins
við að tapa og það er ekki stíll
Davíðs,“ sagði þessi maður.
Þeir flokksbræður Davíðs
sem blaðið ræddi við voru
tregir til að láta hafa nokkuð
eftir sér um framboðsmál for-
mannsins. Fríðrík Sophusson,
fjármálaráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins,
sagði það eitt, að hann teldi
Ýmsum finnst Gunnlaugur M. Sigmundsson,
þingmaður Framsóknarflokks, vera hallur undir
frjálshyggju og benda því til sönnunar á áhuga
hans á aö selja ríkisbankana. í viötali viö
Sæmund Guðvinsson segir Gunnlaugur þetta
alrangt. Hann hefur lúmskt gaman af eitruðum
skeytum frá Sverri Hermannssyni og les
þau meö aðstoð Njálufræöings...
„Ég er eini
vinstrisinninn
í þingflokknum“
að er kannski ekki hægt að
segja að Gunnlaugur M.
Sigmundsson sé dæmigerður
framsóknarþingmaður. Að
minnsta kosti ekki miðað við
ýmsa sem setið hafa á þingi fyr-
ir þann flokk sem fulltrúar
bænda, kaupfélaga og SÍS á ár-
um áður. Gunnlaugur er for-
stjóri Kögunar hf. sem annast
rekstur og viðhald hugbúnaðar
sem notaður er við ratsjárkerfi
sem er liður í vörnum landsins.
Hann var kosinn á þing fyrir
Framsóknarflokkinn á Vest-
fjörðum í þingkosningunum fyr-
ir ári og þykir í sumu fara eigin
leiðir. Gunnlaugur var að koma
að vestan þegar HP hitti hann
að máli.
Varstu að vísitera þarna
fyrir vestan, Gunnlaugur?
„Við Hjálmar Ámason vor-
um með opna fundi á ísafirði og
í Bolungarvík þar sem við vor-
um með blandaðan kokkteil.
Við ræddum fjögur málefni og
komum að þeim á víxl. Ég
ræddi fyrst um bankamálin og
Hjálmar síðan um nýjar tillögur
um atvinnuleysistryggingar. Þá
fjallaði ég um réttindi og skyld-
ur opinberra starfsmanna og
Hjálmar um útgerð smábáta og
fullvinnsluskipa.“
Hefur fólk áhuga á að
koma á svona fundi, rœða
við þingmenn oghlusta á þá?
„Þessir fundir voru vel sóttir.
Fólk hefur heilmikinn áhuga á
að ræða við þingmenn, en hið
hefðbundna fundarform er nú
orðið svolítið lúið. Maður finn-
ur það, að þegar engin stórmál
eru á döfinni þá hefur fólk tak-
markaðan áhuga á pólitík og ég
skil það ósköp vel.“
Sverrir móðgaðist
Þú minntist á bankamálin.
Þú vilt losa ríkið við rekstur
banka?
„Ég er formaður nefndar sem
á að gera tillögur um breytingar
á rekstrarformi ríkisbankanna
og fylgja því máli eftir. Við er-
um nánast tilbúnir með tillög-
urnar, en á þessari stundu veit
ég ekki hvenær málið verður
lagt fyrir þingið. Ég hef sagt að
það eigi að breyta ríkisbönkun-
um í hlutafélög. Ég tel hins veg-
ar að það mætti laga rekstur
bankanna mikið áður en þeir
yrðu seldir svo þeir yrðu mun
verðmætari í sölu. Á fundi hjá
viðskipta- og hagfræðingum lék
ég mér að hlutfalli sem heitir
verð deilt með hagnaði ársins
og segir hvað fjárfestar eru til-
búnir að borga margra ára
hagnað fyrir félagið. Ég velti
þar upp hlutfallinu tíu, sem ég
taldi vera eðlilegt fyrir banka.
Sverrir Hermannsson móðgað-
ist yfir því og menn töldu að út
úr þessu kæmi alltof lágt verð.
En auðvitað ræðst það bara af
því hvað hagnaðurinn er lítill.
Ef lág tala er margfölduð með
tíu kemur út lág tala en með því
að margfalda mikinn hagnað
með tíu kemur út há tala. Mín
skoðun er því sú að það mætti
laga reksturinn og koma hagn-
aðinum upp í svona fimm til sex
hundruð milljónir á ári, eins og
í Búnaðarbankanum. Þá er
komið söluverð sem nemur
fimm til sex milljörðum króna.
Reyndar var ég í New York fyrir
skömmu og leit inn í kauphöll-
ina í Wall Street. Þá sá ég að
General Motors er með hlutfall-
ið átta. Hvort Sverrir Her-
mannsson selst á meira en Gen-
eral Motors hef ég efasemdir
um. Því hef ég sennilega skotið
yfir markið með því að segja
tíu. Við getum raunar sagt að
General Motors hafi verið hálf-
slappt að undanförnu, en hitt
er maður með mikla reynslu."
Drepa mig á undan
Sverrir hefur verið að
senda þér tóninn?
„Já, ég þurfti að leita til Ólafs
Halldórssonar, Njálusérfræð-
ings og handritafræðings, til að
hjálpa mér við að stauta mig í
gegnum Morgunblaðsgrein
Sverris. Eftir að hcmn er búinn
að fjalla þar um viðskiptaráð-
herra segir hann um Gunnlaug
Sigmundsson: ... en íhonum er
veiðurínn meirí. Það mun þýða
að það beri að drepa mig á und-
an Finni Ingólfssyni. Þegar ég
komst að þessu varð ég svo
ánægður að nú hugsa ég hlýtt
til Sverris. Hafði gaman af
þessu og tók það sem hól. Það
er hins vegar sérkennilegt með
Sverri að þegar hann talar um
mig segir hann alltaf þessi
Gunnlaugur. En við höfum nú
hrotið saman í herbergi þegar
við vorum við veiðar í Hrúta-
fjarðará og þá var ég ekki þessi
Gunnlausur. Svona breytist
þetta."
Svo er það flokksbróðir
þinn, Guðni Ágústsson. Hann
er ekki hrifinn af að breyta