Helgarpósturinn - 28.03.1996, Side 27
FIMMTUDAGUR 28. MARS1996
Snilld Helgu Bachmann
ur verið á íslandi og vonandi
verður svo um ókomna fram-
tíð. Meðan svo er mun sam-
kynhneigt líferni teljast óeðli-
legt ... Kristnum mönnum ber
að elska og virða alla menn,
samkynhneigða sem og aðra,
en geta þó ekki lagt blessun
sína yfir kynhegðun þeirra ...
Jesús boðar mönnum lausn
undan hvers konar fjötrum og
mörg dæmi eru um að fólk hafi
með Guðs hjálp losnað undan
því oki sem samkynhneigð
vissulega er.“
Þetta er ekki eðlilegt
Samúel Ingimarsson er for-
stöðumaður Vegarins, kristins
samfélags. Aðspurður af
hverju hann setji sig upp á
móti samkynhneigðum segir
hann þetta vera skoðun ailra
kristinna manna sem vilji hafa
Biblíuna í öndvegi. „í Biblíunni
er talað mjög skýrt um að
þetta sé ekki eðlilegt, við vilj-
um hjálpa fólki með kærleika
guðs að fara út úr þessu
ástandi. Ég hef bæði lesið um
það og heyrt vitnisburði frá
fólki sem hefur losnað. Ef þetta
er eðlilegt, eins og allir segja,
og við værum þá öll eðlileg á
þennan hátt, hvað yrði þá um
mannkynið? Guð skapaði okk-
ur með þrá og löngun bara til
hins kynsins. Þetta er ekki
meðfætt heldur er mjög auð-
velt að leiðast út í þetta. Ég
þekkti einu sinni konu sem var
fædd með þeirri áráttu að
hnupla, þetta var vellauðug
kona. Ef við göngum út frá því
að þetta sé meðfædd árátta
verðum við ekki að taka tillit til
þess og sýna umburðarlyndi?
— Nei, hvorki samkynhneigð
né hnuplárátta er meðfædd.
Þess vegna er mjög hættulegt
þegar á að fara að kenna í
grunnskóla að þetta sé eðli-
legt, því börn sem eru 12-13
ára eru mjög viðkvæm fyrir
svona hlutum. Krakkar af sama
kyni eru mjög mikið saman á
þessum árum, til dæmis vin-
konur sem sofa hver hjá ann-
arri, og ef við ýtum undir að
þetta sé jafneðlilegt og gagn-
kynhneigð þá finnst mér við
vera á mjög hættulegri braut.“
En hvað varð um kristilegt
umburðarlyndi?
„Við getum ekki leyft alit í
nafni kærleika og umburðar-
lyndis. Við höfum ákveðinn
grunn að byggja á, sem er orð
Guðs, og við byggjum okkar
þjóðfélag á því. Meira að segja
setti Sjálfstæðisflokkurinn það
í sína stefnuskrá fyrir síðustu
kosningar, sem ég er afar
óhress með að þeir standi ekki
við, að þeir vildu hlú að kristn-
um lífsgildum. Það er ekki ver-
ið að gera það. Við erum
reyndar með fínan stuðnings-
mann á þingi, sem er Árni
Johnsen, hann tekur alveg upp
merki kristninnar.“
Hafið þið þá einhverjar
aðrar lausnir?
„Okkur finnst að það eigi
bara að elska þetta fólk og
hjálpa því út úr þessu ástandi.
Það gerum við í Veginum ef
þetta fólk leitar til okkar,“ segir
Samúel, sem segist þekkja
dæmi þess að samkynhneigðir
hafi gengið í Veginn og lækn-
ast.
Öll frávik óeðlileg
Friðrik Ó. Schram, formað-
v áfeli
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Alþýðuflokks, var annar
tveggja þingmanna sem gerðu
harkalegar athugasemdir við
orðalag umrædds frumvarps um
litla blöndun kynþátta.
ur Ungs fólks með hlutverk,
segir það grundvallaratriði að
siðferði þjóðarinnar byggist á
kristilegri og gyðinglegri sið-
ferðishefð sem sé 3000 ára
gömul að minnsta kosti. „Það
væri mjög óeðlilegt ef þessum
arfi væri varpað fyrir róða
núna. Við sjáum ekki ástæðu
til að gera það, það hefur ekk-
ert breyst.“
Þessi 3000 ára gömlu við-
horf hafa þá staðist tímans
tönn?
„Já. Fyrst og fremst er um að
ræða trúarviðhorf sem hefur
heilaga ritningu að grundvelli.
Þar eru sett fram meginviðhorf
sem er ekki á okkar valdi að
breyta. Það er grundvallarvið-
horf að hjúskapur er eitthvað
sem gerist milli karls og konu.
Þetta er stofnun sem kemur
fram á fyrstu síðun Biblíunnar
og er viðvarandi. Það er eitt-
hvað sem ekki má raska, eins
konar sköpunarskikkan. Þar af
leiðandi teljum við að öll frávik
frá þessu séu óeðlileg og ekki
til góðs, ekki til velfarnaðar.“
Er þetta er almennt við-
horfhjá Ungu fólki með hlut-
verk?
„Já, þetta er alveg ófrávíkj-
anlegt. Við teljum okkur alger-
lega bundna af þessum hlutum
vegna þess að hér er um horn-
stein að ræða sem verið hefur
óhaggaður um aldaraðir og
verður ekki vefengdur. Þó svo
einhverjir menn í dag vilji ekki
sætta sig við þetta þá getum
við ekki skipt um skoðun."
Hvað er það sem þið setjið
helst fyrir ykkur?
„Það er tvennt. Okkur finnst
það sorglegt ef hjónabandið er
ekki lengur rammi utan um
fjölskyldulífið og alvarlegt ef
verið er að búa til nýtt form
sem gengur þvert á það sem
við teljum hollt og gott fyrir
manneskjuna. Hitt er að við lít-
um það enn alvarlegri augum
ef kirkjan ætlar að víkja og gefa
út yfirlýsingu um að þetta sé
allt í lagi. Það er eitthvert hik á
kirkjunni en við erum að vinna
í þeim málum innan hennar."
Hvað á þá að gera?
„Ég vil undirstrika það að
fólk sem er að takast á við ein-
hvern svona vanda á samúð
okkar og við viljum á engan
hátt lýsa fordómum um slíkt
fólk. Stundum er okkur lagt í
munn að við séum fordóma-
full, en það er alrangt. Við sjá-
um enga ástæðu til að for-
dæma fólk, enda erum við sjálf
ófullkomin. En hér er um
grundvallaratriði að ræða,
sköpunarskikkan guðs, sem
við teljum okkur ekki geta vik-
ið frá. Við erum að fara út af
þeirri braut sem okkur er sett
af skaparanum. Hann veit best
hvar á að leggja vegi. Ef við för-
um að leggja okkar eigin slóðir
getur það endað með ósköp-
um. Sköpun guðs var góð í
upphafi en við sjáum í henni
ýmsa bresti núna vegna hins
illa í heiminum. Þeir geta kom-
ið fram með ýmsu móti, sem
fötlun, bæklun eða röskun á
því sem er gott. Það er ekki þar
með sagt að sá sem verður fyr-
ir því sé verri maður. Það er
okkar hlutverk að hjálpa fólki
að takast á við öll frávik. Við
höfum fengið svona fólk til
okkar og reynt að hjálpa því og
ég veit að að minnsta kosti í
einu tilfelli hætti karlmaður að
Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað-
ur Alþýðubandalags, á það sam-
eiginlegt með Össuri að hafa gert
alvarlegar athugasemdir við klúð-
urslegt orðalag í frumvarpi Þor-
steins Pálssonar.
hafa svona samskipti við karl-
menn og gifti sig.“
Hreint land, fagurt land?
Á sama tíma og tekist er á
um hvort stimpla eigi sambúð
samkynhneigðra er lagt fram
frumvarp til laga um tækni-
frjóvganir þar sem talið er rétt
að setja skilyrði um að ein-
göngu gagnkynhneigð pör eigi
aðgang að meðferðinni. Það er
ekki það eina sem frumvarpið
hefur sætt gagnrýni fyrir, því
ýmsir hafa hnýtt í orðalag
greinargerðar þess. Þar segir:
„Fyrir fámenna þjóð eins og ís-
lendinga hefur jjað verið kost-
ur að hafa notað innflutt sæði.
Með því er hætta á skyldleika
gjafa og þega hverfandi, sem
og hætta á að vitneskja eða
samband komist á milli þess-
ara aðila. Innflutningur sæðis
er því áfram fýsilegur kostur,
að því tilskildu að vinnslan
fullnægi ströngustu kröfum og
að um skyldar þjóðir sé að
ræða með lítilli blöndun kyn-
þátta.“ (Frumvarp til laga um
tæknifrjóvgun, 154. mái, þing-
skjal 184, 10. grein.)
Þetta frumvarp er lagt fram
af dómsmálaráðherra, Þor-
steini Pálssyni, en samið af
nefnd ráðuneytisins og lenti
mikill hluti vinnunnar á Dögg
Pálsdóttur, fyrrverandi skrif-
stofustjóra í heilbrigðisráðu-
neytinu. Dögg þvertekur fyrir
að um kynþáttamismunun sé
að ræða heldur sé miðað við
að sæðið sé úr þeim kynstofn-
um sem fólk vili nota. Það sé
hvíti kynstofninn en ekki sá
svarti eða asíski.
Það hefur einnig vakið at-
hygli að í umræðu á þingi
gerðu aðeins tveir þingmenn
athugasemd við orðalagið um
litla blöndun kynþátta: Bryn-
dís Hlöðversdóttir og Össur
Skarphéðinsson.
Fær í að loka augunum
Getur verið að við lítum
framhjá slíkum viðbrögðum og
orðalagi af því að það er ísland
sem á í hlut? Eina landið í
heiminum þar sem, að því er
sagt er, býr ein þjóð, af einu
kyni, í sátt og samlyndi við guð
og menn. Því hefur verið hald-
ið fram að fáir séu jafnfærir í
að loka augunum og við íslend-
ingar þegar málin snúi að okk-
ur sjálfum og okkar allraheilag-
asta. Þegar málin snerti undir-
stöður þjóðfélagsins, íslensku
fjölskylduna og kirkjuna, sem
hvorki rúmi fólk með annan lit-
arhátt né aðra kynhneigð en
reglurnar fyrirskipi. Siðferði
kirkjunnar er nefnilega óhagg-
anlegur rammi þjóðfélagsins
sem hafinn er yfir gagnrýni og
hefur að mati þeirra sem best
þekkja til fyllilega staðist tím-
ans tönn. Einn viðmælenda
Helgarpóstsins orðaði það svo
að á meðan þjóðfélagið byggð-
ist á siðferði kirkjunnar kæm-
ust engin y.tri öfi að til að
skaða það.
Ólafur Skúlason, biskup íslands.
Nefnd forsætisráöherra sem
samdi frumvarpið um staðfesta
samvist samkynhneigðra þótti
eðlilegt að spyrja kirkjuna hvort
ekki mætti skylda presta þjóð-
kirkjunnar til að taka að sér
vígslu samkynhneigðra, enda þótt
það kynni að stríða gegn sann-
færingu einstaka þeirra. í svari
biskups stóð meðal annars að
„...kirkjan [óskarj alls ekki eftir
því og telur það mjög vafasamt
að mælt verði fyrir því í lögum að
heimild sé veitt til kirkjulegrar
vígslu samkynhneigðra“.
Þrjár konur stórar
Kjallaraleikhúsiö
Höfundur: Edward Albee
Þýðing: Hallgrímur Helgi Helgason
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Leikmynd og búningar: Elin Edda Árnadóttir
Aðalhlutverk: Edda Þórarinsdóttir, Halla
Margrét Jóhannsdóttir, Helga Bachmann,
Þorsteinn M. Jónsson
Leikstjórn: Helgi Skúlason
Frumsýnt: Sunnudaginn 24. mars
★★★★
afi menn beðið nú um
nokkurn tíma eftir að upp
kæmi sýning sem væri hrein
og ómenguð leiklist þá er hún
komin hér. í henni heyrist ekki
eitt einasta hljóð nema raddir
leikaranna, ljósin eru aldrei
hreyfð nema til að kveikja þau
og slökkva, búningar og leik-
sviðsbúnaður (að vísu bæði
vandað og úthugsað) yfirlætis-
laust og einfalt, ekkert dans-
andi stelpustóð, engin grað-
hestamúsík, engum bifreiðum,
skriðdrekum eða skipum ekið
inn á sviðið. Aðeins fimm per-
sónur, þar af tvær sem aldrei
segja orð, þar af önnur sem
ekki dregur andann.
Þessu fagnar listunnandinn.
En þetta er þó ekki atburður-
inn, það er einvörðungu réttur
grunnur handa honum að
standa á.
Atburðurinn er leikur Helgu
Bachmann.
Hér má segja að maður verði
eiginlega kjaftstopp, því þegar
list leikarans tekur þannig til
vængjanna fyrir alvöru, þá
þarf jafnmikla ritsnilld til að
lýsa því á prenti eins og leik-
aragáfu til að leika það. Liggur
beinast við að segja: Þetta er
ólýsanlegt. Þetta verða menn
að sjá.
Einkum tvennt vekur eftir-
tekt: Hversu auðvelt þetta
virðist og hversu opinskátt
Helga leikur hlutverk sitt. Það
sést hvergi átak. Það er varla
að hún hreyfi sig, varla að hún
bregði svip og orðin fljóta við-
stöðulaust, áherslulítið og
hratt (nema þegar hún man
ekki textann). Engu að síður:
allt þrungið lífi og krafti. Oft er
því hrósað að ekki sjáist að
leikari sé að leika: „Hann leikur
ekki, hann er!“ Þetta þykir höf-
uðhrós auk þess sem menn
eru oft býsna roggnir að kunna
að taka svo til orða. Helga fer
enn lengra. Það má segja: „Hún
er þessi kona sem hún er að
leika." Þar á ofan kemur að
áhorfandinn sér allan tímann
leik hennar. Hvernig hún fer
að; hvernig hún leikur sér að
hlutverkinu; hvernig hún í
aðra röndina daðrar við með-
leikendur sína, áhorfendur og
sjálfa sig; hvernig hún bíður
eftir hvíslaranum meira að
segja — og það gerir hún með
einhverri kæruleysislegri og
fisléttri ósvífni sem unun er á
að horfa. Slík léttúð er óleyfi-
leg nema þeim leikurum sem
búa yfir mikilli alvöru. Raunar
gerir Helga ýmislegt fleira
þarna sem er harðbannað. En
það er nú einmitt freistingin og
oft staðfesting leikarans á því
að hann sé þarna að gera eitt-
hvað sem ekki verður auðveld-
lega eftir leikið: að hegða sér
óleyfilega á sviðinu og komast
upp með það. Þegar vel tekst
til verða gallarnir til prýði.
Jafnvel Helga sjálf var farin að
fá kikk út úr viðureigninni við
Leiklist
Eyvindur
; Erlendsson
hvíslarann.
Af hverju leikur fólk ekki allt-
af svona? Af hverju er fólk sí-
fellt að leika illa þegar hægt er
að leika vel? Og ber ekki leikur-
um að leika svona vel? Og til
hvers er verið að eyða öllum
þessum peningum og milljóna-
fjármunum í meðalleiklist,
meðalskáldskap og þar undir?
Allir vita að það er vegna
svona leiklistar og ekki annarr-
ar að samþykkt hefur verið af
almenningi að halda uppi öll-
um þeim fjáraustri, umstangi
og hégómadýrð kringum leik-
hús sem raun ber vitni. Ekki
nennti ég heldur að skrifa í
blöðin um þessi mál nema von
væri um að fá fram eitthvað
þessu líkt, fyrr eða síðar. Samt
dugar ekki allt hið opinbera
stell betur en svo að Helga
verður að stofna sinn eigin
leikflokk til að koma þessu í
kring! Þó það skár sett en
margur að hún fær að vera á
kaupi hjá hinu opinbera til-
beraverki á meðan.
Ojæja. Svona getur maður
látið. Átakalaus leikur sem
þessi er ekki allur þar sem
hann er séður. Að baki honum
stendur ævilangt átak. Heljar-
átak. Og það er á einskis
manns færi, og ekkert opinbert
kerfi heldur til þess bært, að
kalla hann fram hvar og hve-
nær sem er. Hann birtist þegar
honum þóknast. „Það verður
dýrast sem lengi hefur geymt
verið, í hentugan tíma fram
borið.“ Öllu er afmörkuð
stund.
Meðleikkonur Helgu tvær
gengu að verki sínu af eftir-
fylgju og dugnaði, börðust vel
og drengilega, en áttu aldrei í
hana séns, ekki einu sinni þá
stund sem þær voru einar og
ótruflaðar af henni. Það er vor-
kunnarmál. Helga Skúlason,
sem hefur stjórnað þessu
verki í fiestu „samkvæmt ýtr-
ustu kröfum", hefi ég grunaðan
um aðeins eina synd — en
hana þó allstóra: Að hafa
hvorki valið meðleikara Helgu
af nauðsynlegri kröfuhörku né
heldur stutt þá af nægum
styrk. Til að sýningin mætti
verða það meistaraverk sem
leikrit Albees gefur tilefni til
þyrftu allar leikkonurnar að
vera af þessu sama kalíberi.
Ungi maðurinn reyndar líka.
Það sjá menn strax ef þeir
reyna, í huga sér, að setja Al-
bee sjálfan í hlutverkið. Má ég
benda síðan á að leikritið heit-
ir Þrjár (ekki Einj konur stórar.
(Hávaxnar væri raunar betri
þýðing.) Þrír slíkir gnœfandi
turnar á sviðinu segja sína
sögu um innihald leiksins út af
fyrir sig og örugglega ekki út í
bláinn sem Albee leggur málið
þannig fyrir. Hér þarf ekki bara
eina heldur þrjár stjörnur stór-
ar, sem hvorki stíga á putta
hver annarrar né gefa eftir um
eina spönn.
Orðleikni Hallgríms Helga
Helgasonar heldur áfram að
hlaða utan á sig. Hann er óefað
— ef guð lofar — maður fram-
tíðarinnar í þessari grein. Það
sést ekki síst á greininni sem
hann hefur skrifað í leikskrána,
enda þótt hann þurfi ef til vill
að afplána sitt nokkurra tuga
„erfiði í járnum" enn áður en
hann fæðir af sér sitt eigið
stóra meistaraverk. Þess hafa
fleiri þurft.
„Hafi menn beðið nú um nokkurn tíma eftir að upp kæmi
sýning sem væri hrein og ómenguð leiklist þá er hún kom-
in hér. í henni heyrist ekki eitt einasta hljóð nema raddir
leikaranna, [allt] yfirlætislaust og einfalt, ekkert dansandi
stelpustóð, engin graðhestamúsík, engum bifreiðum,
skriðdrekum eða skipum ekið inn á sviðið. Aðeins fimm
persónur, þar af tvær sem aldrei segja orð, þar af önnur
sem ekki dregur andann.“