Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.04.1996, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 11.04.1996, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 1± APRÍL1996 HÞráttfýrir aö kostnaöur viö heilbrigöisþjónustu á hvern ís- lending fari sífellt hækkandi viröast lýtalækningar vera mun ódýrari hér en gengur og gerist erlendis. Fegrunaraögerðir eru ein undirgreina lýtalækninga, sem fólk nýtir sérí vaxandi mæli. í samtali viö Gísla Þorsteinsson segir Knútur Björnsson, lýtalæknir og formaður Félags íslenskra lýtalækna, aö margir séu í biöröö eftir ígræöslu sílikons, andlitslyftingu eöa fitusogi í von um betra útlit... Brjósta- stækkun í tísku hjá tvítugum stúlkum Knútur Björnsson, lýtalæknir og formað- ur Félags íslenskra lýtalækna: „Konur sem fara í brjósta- stækkunaraðgerð eru flestar milli tvítugs og þrítugs, jafnvel yngri ... Ef líkami konu uppfyllir ekki þá ímynd sem búið er að skapa kann það að valda henni sárrí ang- ist. Brjóst leika líka ákveðið hlutverk í sambandi kynjanna og það er því von að kon- ur vilji að hlutföllin séu rétt samkvæmt þeirra líkamsímynd." Mynd: Jim Smart Fjöldi þess sem þarf á lýtaað- gerðum að halda hleypur á þús- undum á hverju ári og vex sí- fellt. Hér á landi hafa verið stundaðar lýtalækningar í tæplega þrjátíu ár, en þær voru fyrst iðkaðar í Skotlandi fyr- ir um fimmtíu árum. Knútur Bjöms- son er fyrsti viðurkenndi lýtalæknir- inn sem tók til starfa hér á landi. Hann opnaði stofu í Reykjavík árið 1967 og hefur starfað óslitið síðan. Til að byrja með var Knútur einn af fáum sem stunduðu ljitaaðgerðir, en með árunum hefur lýtalæknum fjölgað og eru þeir nú átta. Knútur segir að að mörgu leyti hafi aukin samkeppni ver- ið til góðs, því biðlistar voru langir og fólk þurfti oft á tíðum að bíða í nokkra mánuði eftir aðgerð. Nú er biðtíminn aðeins nokkrar vikur. Konur í meirihluta Knútur segir að fólk sé gjarnt á að misskilja orðið lýtalækningar og rugli þeim oft á tíðum saman við fegrunar- aðgerðir einar og sér. Fegrunarað- gerðir eru hins vegar aðeins eitt fag af mörgum sem rúmast innan lýtalækn- ingagreinarinnar. Lýtalæknar fást við yfirborð líkamans og endursköpun líkamsparta eins og þeir eiga að vera. Aðspurður segir hann að fegrunarað- gerðir séu að verða stór hluti vinnu sinnar. Er það ekki stór ákvörðun hjá fólki að fara í fegrunaraðgerð? „Hér áður fyrr voru þess háttar að- gerðir mikið feimnismál og fólk ræddi jafnvel ekki um þær við sína nánustu vini. Viðhorf fólks er þó aðeins að breytast, en það er langur vegur í að það sé tilbúið að láta vini og vanda- menn vita um að það hafi hug á að fara í aðgerð. Það er ekki að undra, því fegrunaraðgerðir eru haldreipi fólks í von um betra útlit. Fegrunarað- gerðir eru líka mjög umfangsmiklar. Einstaklingur sem fer í andlitslyftingu kemst til að mynda ekki til vinnu í tvær vikur, því húðin þarf tíma til að jafna sig. Þegar strekkt er til dæmis á augnlokum fylgja því alltaf glóðar- augu sem jafna sig á um það bil tveim- ur vikum.“ Nú býður mér í grun að flestir sem fara í fegrunaraðgerðir séu kvenkyns. En hvað með karlmenn? Hafa þeir nýtt sér slíka þjónustu að einhverju marki? „Það er rétt að konur eru í stórum meirihluta þeirra sem fara í andlits- lyftingu og aðrar fegrunaraðgerðir. Það slæðist þó einn og einn karl inn á stofuna til mín.“ Á hvaða aldri er fólk sem fer í fegrunaraðgerðir? „Það er nú mismunandi. Konur sem fara í brjóstastækkunaraðgerðir eru flestar milli tvítugs og þrítugs, jafnvel yngri. Slíkar stúlkur eru sjálfsagt í til- hugalífinu og hafa gert sér ákveðnar hugmyndir um hvernig líkami konu eigi að líta út. Ef líkami konu uppfyllir ekki þá ímynd sem búið er að skapa kann það að valda henni sárri angist. Brjóst leika líka ákveðið hlutverk í sambandi kynjanna og það er því von að konur vilji að hlutföllin séu rétt samkvæmt þeirra líkamsímynd; Ann- ars kemur hér inn fólk á flestum aldri.“ Hefur þessi staðlaða ímynd ekki bara brenglað hugsanir fólks um útlit og líkamsburði? „Við lifum í þjóðfélagi þar sem al- menningi býðst margbreytileg þjón- usta eins og fegrunaraðgerðir. En við megum ekki gleyma því að við gerum einnig aðgerðir á fólki sem býr við ýmis lýti á andliti og líkama; lýti sem eru því til mikils ama. Hér er því ekki um að ræða neina brenglun í samfé- laginu heldur miklu frekar þróun. Fólk er fljótt að tileinka sér nýjungar og nýja tækni, sem gefur því mögu- leika á að líta betur út á einn eða ann- an hátt.“ Brjóstastækkanir vinsælar Hvers konar aðgerðir er þá mest beðið um? „Á undanförnum árum hafa brjósta- stækkanir orðið mjög vinsælar. Það má jafnvel segja að það sé í tísku að fara í slíkar aðgerðir. Að vísu minnk- aði ásóknin þegar Tryggingastofnun hætti að borga fyrir fegrunaraðgerðir árið 1991, en ég hef fundið fyrir vax- andi áhuga að nýju. í brjóstastækkun- araðgerðum eru settir sílikonpúðar inn í brjóstin og þeir geta verið af ýmsum stærðum. Efnið er ákjósanlegt því líkaminn þolir það mjög vel — síli- kon er talið vefjavingjarnlegasta efni sem hugsast getur. Annars er líkam- anum ekki vel við gerviefni. Farið var fyrst að nota sílikon á sjöunda ára- tugnum og reynslan hefur verið góð fram til dagsins í dag. Púðarnir geta vitanlega sprungið, en til þess þarf mikil átök. Það er helst að pokinn rifni ef viðkomandi lendir í umferðarslysi. Það er nú ekki vitað hvort líkaminn bíði tjón af ef púðinn rifnar, en ekkert bendir til þess. Hættan er miklu frekar sú að sílikon geti sigið úr rifnum poka og færst til í líkamanum og þá er mikil- vægt að fjarlæga það strax. Það hefur einnig komið fyrir að konur hafa kom- ið eftir 15 ár eða svo og beðið um stærri púða vegna þess að slaknað hefur á húðinni með árunum.“ Kosta slíkar aðgerðir miklar fjár- hœðir? „Því er ekki að neita að brjósta- stækkunaraðgerðir eru dýrar — kosta tugi þúsunda. Efniskostnaður við verkið er mikill, því bara sílikonpúð- arnir tveir kosta 40 þúsund. Annars eru aðgerðir misdýrar og fer það eftir umfangi og lengd aðgerðar. Taka má sem dæmi aðgerð eins og fitusog, sem getur verið misjafnlega umfangsmikil eftir einstaklingum. Dýrustu aðgerð- irnar, sem eru svo andlitslyftingar, geta kostað á annað hundrað þúsund. Slíkar aðgerðir eru ákaflega víðtækar og taka oft tvær klukkustundir eða meira.“ Fegrunar|ækningar ódýrar á Islandi Knútur segir að fegrunaraðgerðir séu annars ekki dýrar á íslandi miðað við hvað tíðkast í vestrænum löndum. Þar séu breiðir hópar fjáðs fólks sem hafi tök á að borga fyrir mjög dýrar að- gerðir. „Ætli dýrustu aðgerðirnar í Bandaríkjunum kosti ekki um hálfa milljón. Þess má geta að vegna marg- mennis geta lýtalæknar erlendis sér- hæft sig á ákveðnum sviðum og skapað sér óhemjureynslu í einni tegund að- gerða. Vegna fámennis getum við ekki sérhæft okkur á ákveðnu sviði. Engu að síður eru íslenskir lýtalæknar ákaflega færir og vel menntaðir." Hafa ekki orðið miklar framfarir í fegrunarlœkningum þann tíma sem þú hefur starfað við þœr? „Þrátt fyrir umtalsverðar framfarir í læknavísindum á undanförnum áratug- um hafa aðferðir og tækni við fegrunar- aðgerðir lítið breyst. Framþróunin hef- ur verið í brjóstaaðgerðum hvað snert- ir gæði sílikonpúða. Hér áður fyrr hafn- aði líkaminn efninu í um það bil 30% til- vika. Slíkt heyrir nú til undantekninga og fylgikvillar eru því litlir. Langflestir sem fara í fegrunaraðgerðir verða ekki fyrir neinum óhöppum eða óþægind- um þegar til langs tíma er litið,“ sagði Knútur að lokum. Lét minnka á sér brjóstin fyrir ellefu árum „Hef ekki treyst mér til að vera með börn á briósti“ „Eftir mikla glímu við minnimáttar- kennd á unglingsárunum leitaði ég fyr- ir ellefu árum til Áma Bjömssonar lýtalæknis, þá átján ára, og fór fram á að hann minnkaði á mér brjóstin. Það fékk ég í gegn, enda bar ég við stöðugri vöðvabólgu og svo plagaði það mig einfaldiega hvað brjóstin á mér voru stór og síð miðað hvað ég er að öðru leyti smágerð," segir tveggja barna móðir, sem nú er að nálgast 30. aldurs- árið. Ákveðið var að tekin yrðu 200 grömm úr hvoru brjósti. „í dag hefði ég ekki fengið í gegn að svo lítið yrði tekið. Ég veit ekki hvort það er rétt tala, en einhvers staðar heyrði ég að þeir tækju ekki konur í brjóstaminnk- un fyrir minna en kíló á brjóst. Aðgerðin var þannig framkvæmd að skorið var undir brjóstin og upp að geirvörtunum og jrær teknar af og færðar til. „Þó að mjólkurkirtlanir hafi verið tengdir aftur hef ég til þessa ekki treyst mér til að vera með barn á brjósti. Mér var reyndar bannað það og þegar ég átti barn fyrir átta árum var ég bundin upp.“ Fyrir aðeins hálfum mánuði átti þessa sama kona annað barn sitt. „Nú fékk hins vegar mjólk að flæða í brjóstin á mér, en þar sem ég upplifði það hvað konan sem lá við hliðina á mér á fæðingardeildinni þjáðist mikið þegar mjólkin flæddi í brjóstin á henni, auk þess sem ígerð hljóp í þau, treysti ég mér ekki í þetta sinn. Þar að auki eru ekki nema helmingslíkur á að það lukkist eftir að maður er búinn að fara í svona aðgerð." Hún segist þó hafa lagt bæði börnin sín á brjóst, bara svona til að fá tilfinn- inguna, en sé hins vegar alveg sátt við að hafa þau á pela, enda hafi það geng- ið vel með það fyrra og allt bendi til að það muni ganga jafnvel með nýfædda barnið. En ertu ekki með nein ör? „Nei, það er varla hægt sjá þau nema maður rýni vel. Það er helst að það sjá- ist í þetta ör undir brjóstunum. Og vel að merkja: Þrátt fyrir að geirvörturnar hafi verið færðar til er ég enn með til- finningu í þeim, þótt margir kunni að halda annað.“ Sérðu eitthvað eftir að hafa farið í þessa aðgerð? „Alls ekki á sínum tíma, enda þurfti ég á þessu að halda fyrir sálarheill mína. I dag hefði hins vegar verið hleg- ið að mér hefði ég mætt og beðið um að það yrði tekið þetta lítið úr brjóst- unum á mér. En ég myndi, held ég, telja það óþarfa að fara í svona aðgerð í dag.“ Sérðu eftir að hafa ekki getað haft barn á brjósti? „Nja, alls ekkert frekar. Ég er ekkert svekkt eða leið yfir því, ef það er það sem þú ert að fiska eftir.“ Þurftirðu að borga eitthvað fyrir aðgerðina? „Nei, maður borgar ekki fyrir brjóstaminnkun, hins vegar þurfti ég að vera nokkuð frá vinnu auk þess sem ég mátti ekki lyfta neinu þungu lengi. En ég man ekki til þess að það hafi truflað líf mitt neitt að ráði.“ -GK

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.