Helgarpósturinn - 11.04.1996, Side 24
24
FIMMTUDAGUR11. APRÍL1996
|hlutverkaleikir
Star Wars
Heiti: Star Wars: Customizable
Card Game (SW:CCG)
Tegund: Safnkortaspil
Útgáfuár: Spiliö er nýkomið út og
hefur þegar náö töluverðum vin-
sældum; reyndar verið með sölu-
hæstu spilum á markaðnum und-
anfarið.
Útgefandi: Dacipher Inc.
Fjöldi spila: Spilið er gefið út í
324 spila setti en selt í 60 spila
byrjendapökkum og 15 spila
aukapökkum.
Fjöldi spilara: Spilarar geta ekki
verið fleiri en tveir, en vel má bú-
ast viö að á næstunni gefi útgef-
andinn út reglur eða hugmyndir
að reglum sem myndu gera fleiri
en einum kleift að spila í einu.
Spilatími: Hjá þeim sem þekkja
til ætti hver leikur að taka á bil-
inu 30-45 mínútur.
Um leikinn sjálfan: Spilið er að
miklu leyti byggt á Star Wars-
myndunum og felur í sér bardaga
milli „The Rebels" og „The Gal-
actic Empire"; þaö er að segja
nokkurs konar bardaga milli góðs
og ills. Hver spilari reynir eftir
fremsta megni að safna her sem
hann notar síðan í baráttunni við
andstæðinginn. í leiknum geta
átt sér stað stórar orrustur, ýmist
um plánetur eða hluta pláneta,
þar sem það getur hjálpað manni
töluvert í baráttunni að stjórna til-
teknum plánetum. Takmarkið er
að reyna að koma spilum and-
stæðingsins í svokallað „lost
pile" og þegar fjöldi spila sem
andstæðingurinn hefur til umráða
fer niöur fyrir ákveðið mark hefur
þú unniö sigur og öfugt. Spil sem
tilheyra hvorri hlið um sig eru ekki
þau sömu, en þeim er blandað
saman í pökkunum og svo virðist
sem útgefendurnir leggi til að fólk
geri sér stokk sem tilheyrir báö-
um hliðum.
Frumleiki: SW:CCG er byggt á
sjálfum myndunum og vísa ýmis
spil beint í þær. Kerfið við að
leggja niður spil líkist kerfinu í
„Magic: The Gathering", en ann-
ars er þetta nokkuö nýstárleg og
sniðug hugmynd.
Kostir: Þeir sem höfðu gaman af
kvikmyndunum ættu að geta
skemmt sér yfir spilinu. Spilin
sjálf eru vel hönnuö og flott og
innihalda auk þess ýmsar frægar
persónur úr myndunum. Má þar
nefna Luke, Leiu, Darth Wader,
Han Solo og fleiri. Spilið er nokk-
uð skemmtilegt og alls ekki of
flókið, sem gerir það að verkum
aö menn eru fljótir aö komast
upp á lagiö.
Gallar: Það er óþægilegt að ef þú
og andstæöingurinn eruð að spila
frá sömu hlið getiö þið ekki spil-
aö hvor á móti öörum. Ennfremur
er óhentugt að ekki skuli fleiri en
tveir geta spilaö í einu. Þegar
maöur er orðinn undir fer maður
fljótt aö missa spil og þess vegna
er hægar sagt en gert að snúa
vörn í sókn. Einnig er það galli að
mörg spil tengjast og byggjast í
raun hvert á ööru. Maöur gæti
lent í að eiga fullt af spilum sem
ekki er hægt aö nota þar sem
spilin sem virka meö þeim vant-
ar.
Útsölustaöir: Hingað til hefur
SW:CCG aöeins fengist í verslun-
inni Míþríl, Bankastræti 4, en þó
skilst mér að fljótlega muni það
einnig fást í versluninni Fáfni,
Hverfisgötu 103.
Heildareinkunn: *** Eins og áö-
ur sagði er spilið tilvalið fyrir fólk
sem hafði gaman af Star Wars-
myndunum. Þó er nokkuð um
galla sem valda erfiðleikum við
spilamennskuna, en búast má
við að útgefandinn reyni að rétta
úr þeim til að bæta spilið.
-Indriöi Stefánsson
Vorum famir
að elska þær allar“
Fyrirtækið Kjól &
Anderson hefur
staðið í ströngu und-
anfarið. í haust
sýndu þeir stutt-
mynd sína Nautn og
frá áramótum hafa
þeir verið uppteknir
af GusGus-ævintýr-
inu, þar sem fyrir-
tækið sér alfarið um
myndbanda- og
samningagerð fyrir
hljómsveitina. Þeim
til halds og trausts í
vafstri þessu hefur
verið hinn fram-
kvæmdaglaði Baldur
Stefánsson, sem
einna kunnastur er
fyrir ævintýralegar
aðgerðir sínar sem
framkvæmdastjóri
Sambands ungra
jafnaðarmanna og
kratarótari fyrr á öld-
inni. Nú hafa í öllu
falli náðst útgáfu-
samningar við
breskt fyrirtæki og sjónvarps-
áhorfendur geta vænst þess að
sjá myndbönd GusGus á er-
lendum sjónvarpsstöðvum á
borð við MTV. Forsprakkar Kjól
og Anderson eru þeir Stefán
Ámi Þorgeirsson og Sigurður
Kjartansson, en þeir stofnuðu
fyrirtækið fyrir fjórum árum.
HP hitti þá að máli.
Fyrir það fyrsta: Hvað er-
uð þið sem sagt að bralla
þessa dagana?
„Við erum fyrst og fremst
kvikmyndagerðarmenn. Und-
anfarna mánuði höfum við ver-
ið uppteknir af GusGus-dæm-
inu, en nú eru samningar við
erlenda aðila nánast í höfn,“
segir Sigurður. „Fyrir skömmu
vorum við svo að klára að taka
upp heimildamynd um fegurð-
arsamkeppnina Ungfrú Vestur-
land 1996, sem fer á mynd-
bandamarkað í Bandaríkjunum
og víðar. Á ensku heitir myndin
Miss West Coast. Hún verður
einnig seld gegnum erlend
myndbandatímarit,“ segir Stef-
án — og Sigurður bætir við:
„Það hefur lengi verið draumur
hjá okkur að búa til mynd um
fegurðarsamkeppni og þá sér-
staklega á Vesturlandi, því það
Fegurð í bíl: Strákarnir mynduðu stelpurnar í bak og fyrir og sumt heppnaðist -
af var þó eitthvað skemmtilegt að gerast.
er fallegasti staðurinn á land-
inu. Það má því segja að við
höfum aðeins verið að uppfylla
eigin drauma.“
„Vorum farnir að
elska þær allar“
„Keppnin var haldin í félags-
heimilinu Klifi á Ólafsvík, sem
staðarmenn halda fram að sé
stærsta og flottasta félags-
heimili á landinu. Og það var
merkilegt að sjá hvernig allir í
bænum lögðust á eitt við að
gera ajlt sem glæsilegast úr
garði. Á svona stöðum gera all-
ir allt. Til dæmis var sviðslýs-
ingin í höndum tveggja sjó-
manna sem reru til fiskjar á
morgnana og gáfu stelpunum
góð ráð á kvöldin. Sigurður á
gistiheimilinu Höfða var í því
að skera niður appelsínur og
dekka borð og hljóp hreinlega
í öll störf sem sinna þurfti fyrir
keppnina. Hann spilaði svo á
bassa með hljómsveitinni
Klakabandinu eftir að keppn-
inni lauk. Þegar við komum
síðan aftur á gistihúsið eftir
djamm kvöldsins tók hann á
móti okkur og bauð í sam-
kvæmi uppi, þannig að þetta
eru orginal menn sem hafa
Fegurð í hópmynd: Stelpurnar sem kepptu um titilinn
Ungfrú Vesturland 1996 og heilluðu Stefán og Sigurð
— Kjól & Anderson — upp úr skónum.
- annað ekki. Allt-
fönguð á þennan hátt
áður. Þegar við vorum
búnir að taka yfir tólf
tíma af efni þá vorum
við í raun farnir að
elska þær allar. Mynd-
in er um einn og hálfur
tími að lengd, enda er
ekki hægt að sinna
svona frábærum
stúlkum á skemmri
tíma,“ segir Stefán.
Samhentur hópur á
föstu
Hinkrum aðeins
hér — komust þið
kannski allir á séns?
„Nei, sem betur fer
(!) voru þær allar á
föstu. Við kynntumst
hins vegar kærustum
þeirra — sem eru ekki
síður heillandi og fal-
legir einstaklingar.
Það sem var einna
skemmtilegast við
þetta var hversu sam-
heldinn hópurinn var.
um, það er að segja ef myndin
er góð. Til dæmis erum við ný-
búnir að selja stuttmyndina
Nautn í sjónvarp og GusGus er
á leið um allan heim,“ segja
þeir félagar.
Hvað er framundan hjá
ykkur?
„í haust erum við að fara að
gera spennandi stuttmynd um
íslenska krakka sem millilenda
á Heathrow-flugvelli í London
á leiðinni heim frá sólar-
strönd. Þar lenda krakkarnir í
ýmsum ævintýrum. Síðan er-
um við með í smíðum kvik-
mynd í fullri lengd sem gengur
nú undir nafninu Rautt hár. Ef
að líkum lætur verður hún
Gus-uð, eins og þar stendur.
Söguþráður hennar er aftur á
móti svo viðkvæmur að við
getum ekki sagt frá efnistök-
um. Á næstu vikum munum
við gera tónlistarmyndband
við tónverk Ragnhildar Gísla-
dóttur um búksláttarævintýr-
ið fræga í London. Einnig erum
við að gera heimildaþátt um
Sigurður Kjartansson: „Nei, sem betur fer (!) voru
þær allar á föstu. Við kynntumst hins vegar kærustum
þeirra — sem eru ekki síður heillandi og fallegir ein-
staklingar."
Stefán Ámi Þorgeirsson: „Við emm fýrst og fremst
kvikmyndagerðarmenn. Undanfarna mánuði höfum við
verið uppteknir af GusGus-dæminu, en nú era samn-
ingar við erlenda aðila nánast í höfn.“
vilja og áhuga á að gera sem
best,“ segir Sigurður.
En hvað er svona merki-
legt við heimildamynd um
Ungfrá Vesturland 1996?
„Náttúrlega einkum það, að
við vorum að þvælast með
stelpunum stóran hluta af und-
irbúningstímanum og náðum
þannig að kynnast þeim ræki-
lega. Þetta sérstaka samband
kemur til með að skila sér vel í
myndinni. íslensk fegurðar-
samkeppni hefur ekki verið
Þótt keppnisharkan hafi
blundað einhvers staðar undir
niðri, þá stóðu þær allar sam-
an í þessu og það leit ekki út
fyrir að þær væru að keppa.
En þrátt fyrir samheldnina
voru þær mjög ólíkar,“ segir
Stefán.
Hvernig er með fjármögn-
un á svona mynd?
„Við borgum þetta bara
sjálfir, enda er þetta ódýr
mynd. Og á nokkrum árum
borgar þetta sig — á endan-
töivuleikinn Forever interacti-
ve sem unnið er með OZ. Síð-
an hefjum við öfluga kjóla-
framleiðslu í sumar og hleyp-
um þá einnig af stokkunum
sykursætri strákahljómsveit.
Næstu fimm árin verðum við
svo vonandi í stanslausu stuði
með Gus-inu,“ segir Sigurður
að lokum og blaðamaður horf-
ir á eftir þessum grönnu og
næstum tveggja metra (!) háu
mönnum rölta töffaralegir út í
sunnanrokið.
| Tökum er nýlokið á nýrri mynd
KrfSl fýrirtækisins Kjól & Anderson, en
hún fjallar Ttarlega um fegurðar-
samkeppnina Ungfrú Vesturland 1996.
Eiríkur Bergmann Einarsson ræddi við
Stefán Árna Þorgeirsson og Sigurð
Kjartansson, forsprakka fýrirtækisins,
og komst að því að viðamiklir
dreifingar- og útgáfusamningar við
erlend fýrirtæki eru í höfn.
Tíu ár eru liðin frá því hin geysivinsæla
gleðipoppsveit Greifarnir kom fyrst
fram á sjónarsviðið. Meðlimir sveitarinnnar
hafa sundrast um víöa veröld en eru nú
aftur sameinaðir í sinni upprunalagu Mús-
íktilraunamynd, eftir fimm ára dvala. Til að
fagna þessum merku tímamótum ætlar
hljómsveitin að þeysa um landiö og halda
upp á afmælið með glæsibrag. Á morgun,
föstudag, skemmtir hljómsveitin sér og
öðrum í Sjallanum á Akureyri og á laugar-
dag verða þeir félagar komnir á Selfoss,
þar sem þeir ætia að sleppa dýrinu lausu í
veitingahúsinu Gjánni.
>*
Ikvöld verða haldnir tónleikar í Rósen-
bergkjallaranum. Hljómsveitirnar sem
þar munu tryjja lýöinn
eru: Exem, Ósk og víð-
förli trúbadorinn góð-
kunni GG Gunn, sem
numiö
hefur
bæöi á Indlandi og í Kali-
forníu. Tónlistarkonan
Ósk er húsmóðir f Breiö-
holtinu og mun hún leika
og syngja eigin tónsmíð-
ar auk laga eftir GG
Gunn. Hljómsveitina Ex-
em skipa þau Einar
Melax, Þorri Jóhanns-
son, Þórdís Claessen,
Kristrún Gunnarsdótt-
ir og Tryggvi Thyer. Þetta veröa síðustu er lagið. Seinna um kvöldiö heldur svo
tónleikar Exem á íslandi í nánustu fram- hljómsveitin Saga Klass uppi fjörinu.
tíö.
Hljómsveitin Sixties tekur aö sér að
halda uppi fjörinu á Kaffi Reykjavík
alla helgina. Þess má geta að hljómsveitin
hefur ekki spilaö í Reykjavík síðan fyrir ára-
mót. Sveitin er nú að leggja síðustu hönd
á nýja hljómplötu sem kemur út í sumar,
en þeir félagar munu fylgja henni stíft eftir
meö tónleika- og dansleikjahaldi um allt
land á sumri komanda.
ISúlnasal Hótels Sögu á laugardaginn
standa hinar óborganlegu Borgardœtur
fyrir taumlausri gleði, eins og þeim einum
Aggi Slœ og Tamla-
sveitin leika fyrir dansi
á laugardagskvöldið í Borg-
arkjallaranum. Krafist er
snyrtilegs klæðnaðar.
Finnska leikhúsið Theater Kennedy frá
Helsinki heimsækir Reykjavík um þess-
ar mundir með sýningu sína Tveirmenn í
einu tjaldi, sem fjallar um kynslóö sem
hefur úr miklum frítíma aö spila og nógum
peningum en litlu öðru. Sýningar verða í
Möguleikhúsinu við Hlemm föstudag og
laugardag klukkan 20:00.