Helgarpósturinn - 11.04.1996, Page 28

Helgarpósturinn - 11.04.1996, Page 28
28 F1MMTUDAGUR ±L APRÍL1996 Illa hirtir karlmcnn. Á meöan kvenleg fegurö blómstrar á vorin koma oft illa hirtir karlmenn undan snjónum á þessum árstíma. Maöur veit þaö svona innst inni að slíkt á maður ekkert aö vera að setja fyrir sig. Þaö eru .gáfurnar" — ef þær eru á annaö borö til staöar — sem skipta máli. En þaö er einhvern veg- inn ekkert sérlega „gáfulegt” aö vera illa hirtur, ilmandi af svitalykt og sérlega illa klæddur. Það hefur einhvem veginn yfirleitt veriö svo aö gáfumennin sem njóta sín á vet- urna njóta sín ekki á sumrin. Á hinn bóginn blómstra hinir (þó alls ekki allir) allan ársins hring. með Þiónninn Fegurð. Þaö er allt bókstaflega flóandi í fegurðarsamkeppnum á skerinu um þessar mundir; Elite, unglingamódelkeppnum og ungfrú landsfjóröungum, sem endar á því , aö um þaö bil þegar bjartasti mán- uöur ársins rennur upp verður feg- ursta stúlka landsins kjörin. Þaö fer enda saman að meö hækkandi sól veröa helgustu líkamspartar kvenna meira áberandi en ella og því eru væntanlega mánuðurnlr framundan þeir bestu til aö velja úr hvaö er fegurra en annaö. En þaö er ekki bara kvenleg fegurö sem sker sig úr á vorin, heldur veröa einnig hvað úr hverju valdir best ræktuöu hund- arnir í þar til geröum hundafegurö- arsamkeppnum, fegurstu kisumar (þær sætustu meö fegursta feld- inn) og gott ef ekki veröa brátt valin fegurstu svfn landsins. kalt Guðríður Haraldsdóttir, sem margir þekkja sjálfsagt betur sem Kaffi-Gurrí sem flyt- ur boðskap sinn á Aðalstöðinni um og eftir hádegisbilið á laug- ardögum, er að margra mati mesti útvarpssjarmör sem um getur, enda sérlega lagin við að „daðra“ við viðmælendur sína. Afhverju Kaffi-Gurrí? „Það kemur til af því að ég er í hugsjónabaráttu gegn vondu kaffi, ekki bara í þáttunum mín- um heldur alls staðar þar sem ég get komið að betra kaffi.“ Þú ert líka að mér skilst hugsjónakattarkona... „Já, það er rétt, ég á ekki bara hana Fjólu mína, sem er með mér á myndinni, heldur líka þau Kela og Támínu, — þrjá mjög mikla karaktera. Munurinn til dæmis á Fjólu og Támínu er sá að þegar einhver kemur í heimsókn hverfur sú síðarnefnda undir rúm á með- an Fjóla, sem á afmæli sama dag og Hitler, er alltaf góð við alla nema börn. Fjóla er einnig frekust og heldur stundum að hún sé húsbóndinn á heimilinu og er þannig í eilífri valdabar- áttu við fimmtán ára son minn,“ segir hún og bætir við: „Fyrir mér er það þrennt sem gefur lífinu gildi; kettir, karlmenn og kaffi, og stundum reyndar það fjórða — einkum á jólum og páskum — sem er Nóa-konfekt.“ Enn sem komið er segist Gurrí þó aðeins hafa tíma til að einbeita sér að kaffi og köttum. „Hitt, það er að segja karl- menn, koma þegar ég verð eldri.“ Svona að lokum Gurrí, hvort heldurðu með Oasis eða Blur? „Ég held jafnt með báðum, annars eru uppáhaldsböndin mín — eftir að ég fékk bleika fiðringinn og byrjaði að horfa á MTV — hljómsveitirnar Radio- head og Greenday. Það er bara verst að sonur minn skammast sín svo fyrir að roskin móðir hans sé að fylgjast með slíkum „unglingahljómsveitum“,“ segir Gurrí, sem spilar þó alla jafna í útvarpsþáttunum gömlu góðu lögin með aðstoð sonar síns, en hann sér um tæknihlið þátt- anna líkt og hann sé að stjórna flugmóðurskipi. -gk Bmatur AGrillinu á Hótel Sögu hefur Rafn Þorsteinsson starfað sem kokkur frá þvi hann kom heim frá Danmörku fyrir ári. Hann segir Grilliö fyrsta flokks veitingastaö. Út- sýniö yfir bæinn sé einstakt og geri andrúmsloftiö sérstakt, en jafn- framt afslappað og rólegt. Mest er aö gera um helgar á vetrum en „umferöin" jafnari yfir sumariö, þegar útlendingar eru stór hluti gesta. En hvaö býöur Grilllö gestum sínum upp á? „Viö erum meö sérréttamatseöil, a tu curte, þar sem viö bjóöum upp á fjóra forrétti, þrjá fiskrétti, fjóra kjötrétti auk fuglakjöts. 1 forrétt bjóöum viö til dæmis upp á lax- og lúöusvelflu meö kóríander- sósu og reyktan lax meö vinaigrette-dressingu. Af fiskréttum er helst aö nefna skelfisk-fricasse, sem er úrval af því besta sem viö höfum hverju sinni, oggratín, sem viö höfum veriö meö í þrjátiu ár viö fádæma vinsældir. Af kjöti má nefna villiþrist sem samanstendur af svartfugli, villigæs og rjúpu. Þaö vlnsælasta hjá okkur er sennilega lambiö og nautiö, en útlendingar eru spenntastir fyrir fisklnum eða lambinu." Aö lokum má nefna aö kostnaö- ur fyrir par sem vill gera vel viö sig og fær sér þriggja rétta máltíö meö víni er tíu til tuttugu þúsund krónur. Stjáni blái og spínatið æja, þá er enn og aftur runninn upp sá árstími þegar menn nota tækifærið og auglýsa grimmt að nauðsyn- legt sé að hrista af sér spikið eftir stórsteikur og súkkulaði nýafstaðinnar páskahátíðar. Ekki nóg með það, heldur er til þess að bæta gráu ofan á svart einnig hamrað á því að fatnað- urinn verði æ minni í sniðum og þynnist óðum með hækk- andi sól, því sé nauðsynlegt að byrja ekki seinna en í gær að brenna burt allar spikörður. Gott og vel. Hreyfing er holl, maður er það sem maður etur og allt það. En ég er þeirrar skoðunar að sé maður á annað borð áhugamanneskja um lífs- ins lystisemdir geti verið stór- hættulegt að hella sér út í meinlætalifnað. Meinlætalifn- aður nautnabelgja gerir nefni- lega fátt annað en að magna upp fantasíur um eitthvað fit- andi. Þar að auki er ég alfarið á móti þeim ríkjandi hugsunar- hætti að allir eigi að vera eins í vextinum, svo ekki sé meira sagt. Það þarf nú samt ekki að fjöl- yrða um að það er hvorki hollt né gott að vera spikfeitur og það er heldur hvorki hollt né gott að éta vöfflur með rjóma í öll mál. Manni líður þar að auki ekkert sérlega vel af slíkum mat. Geti maður auðveldlega kokkað máltíð sem er í senn gómsæt og kallar fram vellíðan er í mínum huga tindinum náð. Og ekki er verra sé máltíðin holl. Til langs tíma litið skilar slík máltíð sér nefnilega í auk- inni orku. Væntanlega munið þið flest eftir sögunni af honum Stjána bláa og spínatinu sem hann gleypti. Eftir að hafa innbyrt dágóðan slatta af spínati gat hann bókstaflega lagt heiminn að fótum sér. Vissulega er þetta ýkt og skemmtileg teikni- myndasaga, engu að síður er broddur í henni. Þó að maður ráði kannski ekki við Mike Ty- son eftir eina dós af spínati er spínat eitthvert hollasta græn- meti sem um getur. Eftir því sem ég kemst næst er það ekki einasta uppfullt af járni (gott fyrir blóðið) heldur mjög stein- efnaríkt og nokkuð kalkríkt að auki. Maður þarf semsé ekki eingöngu að þamba mjólk og eta mjólkurafurðir til að fá kalkið sitt. Það er líka til þarna í jurtaríkinu. Með tilliti til þess að maður er alltaf að leita sér jafnvægis er ágætt eftir nýafstaðið kjötát að fara á smágrænmetisflipp. Þá erum við ekki að tala um tvær soðnar gulrætur, hvít- kálshaus og rófur heldur góm- sæta grænmetisrétti sem slá jafnvel bestu kjötréttum við. Það myndi ég til dæmis segja að eftirfarndi indverskir græn- metisréttir gerðu; eggaldin með tómötum og kartöflur og spínat. Þeir eru óralangt frá því að vera geldir, bragðlausir grænmetisréttir. Eggaldin með tómötum 6 msk. jurtaolta 4 hvíttauksrif 1 stór taukur, skorinn f þunnar sneiðar 2 ferskir grœnir piparóvextir, skornir í þunnar sneiðar 1 tsk. steytt kúmín túrmerík af hnifsoddi 1/2 tsk. rauður pipar 400 s tómatar í dós, safinn með salt 2 msk. ferskur saxaður kórtander • Hitið jurtaolíuna í stórum potti yfir meðalhita. Setjið hvítlauk og lauk út í og steikið uns laukurinn er mitt á milli þess að vera glær og gullin- brúnn. Setjið þá græna pipar- inn út í og steikið í mínútu í viðbót. Þá er komið að eggald- ininu, látið það malla með í fimm mínútur og hrærið öðru hverju. Setjið þá út í kúmín, túrmerík, rauðan pipar og tóm- ata ásamt salti eftir smekk. Setjið þá lok á pottinn og látið maíla í 15 mínútur. Óhætt er að bæta við kryddi eftir á ef þurfa þykir. Berið réttinn fram í skál og stráið yfir ferskum kóríander. Kartöflur og spínat 900 g spínat 5 msk. jurtaolta 2. tsk svört sinnepsfrœ 1 stór taukur, skorinn í þunnar sneiðar 2 hvíttauksrif, smdtt söxuð 500 g kartöflur, skomar í teninga rauður pipar d hnffsoddi 1/2 tsk. kórtander 2 msk. vatn • Skolið spínatið vandlega og setjið í stóran pott, aðeins með vatninu sem loðir við blöðin. Sjóðið hægt við meðal- hita þar til spínatið er orðið mjúkt. Takið af hitanum og setjið í sigti til að renni af því. Kreistið af því eins mikið af vökvanum og hægt er (ef illa gengur að komast yfir ferskt spínat má vel kaupa það í dós. Þar er það þegar soðið og þá þarf að sigta það). Saxið gróft. Hitið olíuna í þykkbotna potti yfir meðalhita. Þegar olían er orðin heit setjið þá út í sinn- epsfræin. Bætið við lauk og hvítlauk þegar sinnepsfræin byrja að hoppa (látið ekki á ykkur fá þótt nokkur reykur stígi upp og valdi hósta þegar sinnepsfræin eru að steikjast. Þetta er bráðhollur reykur sem hreinsar vitin). Steikið og hrærið í tvær mínútur. Bætið við kartöflum, belgpipardufti og kóríander. Steikið og hrær- ið í tvær mínútur til viðbótar. Bætið spínati, salti ef með þarf og vatni og látið suðuna koma upp. Setjið þétt lok á pottinn og hafið hitann mjög lágan og látið sjóða í 35 mínútur, eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Hrærið endrum og sinnum og athugið að allt vatn- ið gufi ekki upp úr pottinum. Setjið á heitt fat og berið fram. • Þar sem þetta eru fremur mildir réttir á indverskan mælikvarða er óþarft að hafa með þessu kælingu. Á hinn bóginn má vel bera fram eitthvert gott „relís“ eins og pipar- eða engifermauk. Slíkt mauk fæst venjulega tilbúið í þeim sælkeraverslunum sem á annað borð bjóða upp á efni til indverskrar matar- gerðar. Skál! - Guðnín Krístjánsdóttir Rafn á Grillinu menn... Bindindisfólk hefur löngum kvartaö sáran yfir aö vera lagt í einelti á skemmtistöðum; því finnst stundum eins og lög mæli hreinlega fyrir um aö enginn megi vera edrú á vínveitingahús- um. Aðrir hafa fundið ráö gegn þessu ei- lífa einelti með því aö hafa ávallt vatns- glas með klaka viö höndina og látast vera fullir. Það er samt ekki fullkomin lausn, því tjaldið getur auðveldlega fall- ið biðji einhver ókurteis um sopa. Með óáfengum bitter, sem bragöast næst- um eins og áfengt Campari, má hins vegar koma í veg fyrir að þaö gerist, það er að segja taki vínveitingahúsin upp á að styðja viö bakiö á bindindis- mönnum. „Vín" þetta, sem ber nafnið „Monin bitter", er nýkomið á markað hérlendis og svo skemmtilega vill til að það má nú nálgast í verslunum Hagkaups. Að auki — þar sem all- sendis óvíst er hvort Camþari verð- ur á næstunni hægt að fá í verslun- um ÁTVR — er gott til þess að vita að eitthvað áþekkt megi nálgast í hverfinu. Það er nefnilega svo að styrki maður Monin bitter með hreinum vínanda er maður næstum því kominn með ekta „Campari". ... gumarfríinu maöur getur hreinlega ekki beö- ið þegar maöur er kominn á sporið eftir dymbilvikuna. ... að allt verðl lokað um næstu páska maöur er alveg búinn aö vera eftlr þessa. ... konum með kjaft þaö þýöir ekkert að hafa eitt- hvaö sem heitir jafnrétti og leyfa svo ekki konum aö haga sér eins og þær hefur alltaf langaö til. ... enduraýjun nærfataflotans þaö er bara eitt af skylduvor- verkunum. Campari fyrir bindindis-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.