Helgarpósturinn - 16.01.1997, Side 6

Helgarpósturinn - 16.01.1997, Side 6
6 FIMMIUDAGUR16. JANÚAR1997 ' V Eina konan í lionsklúbbi Isafjai'ðar er aðstoðarkona bæjarstjóra Vestfirðingar eru skapmikið fólk og liggja ekkert á skoðunum sínum, segir Þórunn. Innfæddir Reykvíkingar eru stundum hallir und- ir þá skoðun að líf á lands- byggðinni hljóti að vera menningarlaust og mæðu- fullt. Ekki nóg með að leiðindin séu allt að kæfa heldur sé ekki nokkur leið að komast inn í þessu lok- uðu samfélög þar sem ætt- artengsl og vinskapur ráði öllu. Því undrast hroka- fullir borgarbúar mjög þegar rótgróinn Reykvík- ingur tekur sig upp og flyt- ur af mölinni út á land. Enn meiri verður undrun- in ef viðkomandi er glað- ur og ánægður á nýja staðnum og kemur sér að auki áfram í starfí. Þórunn Gestsdóttir er eitt þessara undrabarna. Þórunn hefur margt brallað um dagana. Hún hefur verið blaðamaður, blaðaútgefandi, ritstjóri, dagskrárgerðarmaður hjá útvarpinu, varaborgarfull- trúi, útvarpsráðsmaður, for- maður Landssambands sjálf- stæðiskvenna og að auki hefur hún alið upp fimm börn. Hún er borinn og barnfæddur Reyk- víkingur; var ekki einu sinni í sveit sem krakki eins og hún segir sjálf. Fyrir ári pakkaði borgarbúinn Þórunn öllu sínu hafurtaski ofan í ferðatösku og flutti vestur á ísafjörð. Þar tók hún við starfi upplýsinga- og ferðamálafulltrúa og var ráðin til eins árs. Árið er liðið en Þór- unn horfir enn yfir spegilslétt- an Skutulsfjörðinn og er ekki á leið til höfuðstaðarins í bráð. Hún — utanbæjarmanneskjan — er komin í nýtt ábyrgðar- starf sem aðstoðarmaður bæj- arstjóra. Því má það ljóst vera að það er ekki algilt að að- komufólki í smærri bæjum sé ómögulegt að komast áfram í starfi. Breytingarí sveitarstjórnarmálum Þórunn, fyrrverandi Reyk; víkingur, kveðst hæstánægð á ísafirði og bætir því við að hún sé alls ekki eini aðkomumaður- inn í ábyrgðarstöðu á ísafirði. Bæjarstjórinn sjálfur er fyrr- verandi bæjarstjóri á Dalvík, bæjarverkfræðingurinn er Hafnfirðingur og félagsmála- stjóri Reykvíkingur. Þórunn viðurkennir þó að líklega hafi einhverjar óánægjuraddir heyrst við ráðningu hennar sem aðstoðarmanns bæjar- stjóra, ekki síst vegna þess að starfið var ekki auglýst. „Þetta starf er auðvitað nýmæli og á sér ekki neina fyrirmynd fyrr en Ingibjörg Sólrún réð sér að- stoðarmann eða aðstoðarkonu eins og hún kýs að kalla sig. Það starf var ekki auglýst held- ur valdi Ingibjörg Sólrún sinn aðstoðarmann. Ráðherrar velja sér líka alltaf sína aðstoð- armenn, staðan er aldrei aug- lýst. Hér á ísafirði er Sjálfstæð- isflokkur í meirihluta ásamt Al- þýðuflokki þannig að ráðning mín er pólitísk og er ég bara ráðin fram að næstu kosning- um,“ segir Þórunn. Hún segir að við sameiningu sveitarfélaganna þarna vestra hafi verið farið að huga að breytingum á stjórnsýslunni. „Ákveðið var að skipta henni upp í sex svið og féll eitt þess- ara sviða undir bæjarritara. Sú staða var auglýst en að því er mér skilst voru menn ekki sátt- ir við þær umsóknir sem bár- ust. í framhaldi var ákveðið að brjóta upp bæjarritarasviðið og hluti þeirra starfa settur til fjármálastjóra og hluti til að- stoðarmanns sem er þá yfir stjórnsýslunni, starfsmanna- haldi og fleiru. Það á síðan eftir að koma reynsla á hvernig þetta virkar, en það eru vita- skuld miklar brejiingar í gangi í sveitarstjórnarmálum. Bæjar- félagið hefur stækkað mikið og því kannski eðlilegt að bæjar- stjóri þurfi á aðstoðarmanni að halda. Hvort fleiri sveitar- og bæjarfélög fylgja í kjölfarið skal ég ekki segja. Ég er engin spákona, en það mun að minnsta kosti fást reynsla hér vestra á þessu fyrirkomulagi sem aðrir geta þá lært af,“ seg- ir Þórunn. Stutt til ísaf jarðar Ferðamálin, sem drógu Þór- unni til ísafjarðar í fyrstu, verða enn undir hennar vernd- arvæng í nýja starfinu. „Ég get þá fylgt eftir því starfi sem ég byrjaði á þó svo ég sé ekki lengur í hlutverki fram- kvæmdaaðilans.“ Slagorð Vest- fjarða hefur verið „Vestfirðir, nær en þig grunar!“ Þórunn segist hafa gert þá uppgötvun að þetta slagorð sé rétt og satt. „Ég fer til Reykjavíkur þrisvar til fjórum sinnum í mánuði og finnst það lítið mál. Ég stíg bara upp í flugvél og er komin á áfangastað rúmum hálftíma síðar. Vestfirðir eru stórkost- lega fallegir og að auki er hér oftast logn og því synd að hingað skuli ekki koma fleiri „Það er hægt að stíga upp í flugvél í Reykjavík og þegar komið er til ísafjarðar hálf- tíma síðar er stigið um borð í bát og eftir klukkustundar siglingu ertu komin í Aðalvík. Þaðan er hægt að ganga að Hesteyri og láta bátinn sækja sig og flytja til ísa- fjarðar. Svo stígur maður upp í flugvél og er kominn til Reykjavíkur fyrir kvöldfréttir íSjónvarpinu!“ ferðamenn. Það er hægt að stíga upp í flugvél í Reykjavík og þegar komið er til Isafjarðar hálftíma síðar er stigið um borð í bát og eftir klukkustundar siglingu ertu komin í Aðalvík. Þaðan er hægt að ganga að Hesteyri og láta bátinn sækja sig og flytja til ísafjarðar. Svo stígur maður upp í flugvél og er kominn til Reykjavíkur fyrir kvöldfréttir í Sjónvarpinu, þannig að Vest- firðir eru svo sannarlega nær en þig grunar," segir Þórunn og greinilegt er að ferðamálin og Vestfirðir eru henni hug- leikin. Kostir fleiri en gallar Þórunn segir það mikla og góða reynslu að búa úti á landi og sér finnist hún eiginlega hafa vaxið sem íslendingur. „Kostirnir við að búa í svona litlu samfélagi eru margir. Til að mynda vinnst allt svo miklu hraðar hér en í Reykjavík, þó ekki sé nema vegna þess hve miklu auðveldara er að ná í fólk. Ég hef líka sótt helmingi fleiri menningarviðburði hér en nokkurn tímann í Reykjavík. Vegalengdir eru svo litlar að maður verður miklu duglegri við að drífa sig hitt og þetta. Annars vinn ég nú mikið en ég gef mér alltaf tíma til að sækja Lionsfundi, — ein kvenna hér á ísafirði. Auðvitað hefur návígið sína mínusa en ég hef bara ekki látið þá hafa nein áhrif á mig,“ segir Þórunn. Hún segir aðjsegar hún hafi fyrst komið til Isafjarðar hafi sér hreinlega verið hent til sunds og hún hafi strax farið að vinna af krafti. „Með því að basla í þess- ari sundlaug hef ég auðvitað lært heilmikið um þetta samfé- lag,“ segir Þórunn og hlær. „Vestfirðingar eru skapmikið fólk og liggja ekkert á skoðun- um sínum. Hér ríkir engin iogn- molla — nema kannski í veðr- inu.“ -SHE Skuggaráðuneyti Framsóknarflokksins — framsóknarmönnum raðað á ríkisjötuna Halldór Ásgrímsson og Finnur Ingólfs- son raða flokks- bræðrum sínum í stöður hjá ríkinu. Meðal þeirra eru Ómar Krístjánsson og Þórður Yngvi Guðmundsson. Framsóknarflokkurinn er óspar á veitingar í opinber- ar stöður til handa flokksmönn- um sínum. Gissuri Péturssyni hefur til að mynda verið veitt staða forstöðumanns vinnu- málaskrifstofu félagsmálaráðu- neytisins. Einnig hefur Þórði Ingva Guðmundssyni verið veitt staða deildarsérfræðings í varnarmálaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins og Helga Guð- mundssyni staða bankaráðs- manns í Landsbankanum. Stöðuveiting Helga mun hafa valdið talsverðum titringi innan flokksins, ekki síst vegna þess að Sigrún Magnúsdóttir borg- arfulltrúi var látin víkja, þrátt fyrir tveggja ára reynslu sem fulltrúi flokksins í bankaráði. Þá hefur Ómar Kristjánsson verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðs- og kynningarsviðs flugmálastjórnar á Keflavíkur- flugvelli. Keflavíkurflugvöllur heyrir undir starfssvið Hall- dórs Ásgrímssonar, en það mun ekki hafa spillt fyrir Ómari að hann er hálfbróðir Guð- mundar G. Þórarinssonar, fyrrverandi þingmanns Fram- sóknarflokksins í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum eru stöðuveitingar flokksins á liðn- um árum taldar hlaupa á tug- um. Þessir einstaklingar í skuggaráðuneyti Framsóknar- flokksins eru sumir taldir ráða jafnvel meiru en einstakir ráð- herrar flokksins. Umdeild stöðuveiting Staða forstöðumanns vinnu- málaskrifstofunnar var veitt fyrir skömmu en umsækjendur voru nítján. Það er venja, þeg- ar ráðið er í stöðu sem þessa, að yfirmenn ráðuneytisins taki sér ekki langan tíma til ákvörð- unar. Því vakti það athygli að stöðuveitingin dróst úr hófi og er það merki um að félags- málaráðherra hafi valið í stöð- una. Ennfremur er því haldið fram að innan flokksins hafi ekki allir verið á eitt sáttir um málið og einhver átök orðið vegna þess. Er það ekki að undra, því meðal umsækjenda voru margir hæfir einstakling- ar. Gissuri var hins vegar að lokum veitt staðan, en hann hafði áður starfað fyrir Halldór Ásgrímsson í sjávarútvegs- ráðuneytinu og stutt hann lengi innan flokksins. Bróðir Gissurar, Helgi, reyndi fyrir sér í prófkjöri hjá flokknum fyrir síðustu borgarstjórnar- kosningar. Skömmu áður en talið var upp úr kjörkössum leit út fyrir að hann hefði betur en Alfreð Þorsteinsson vara- bæjarfulltrúi, en þá tóku stuðningsmenn Alfreðs við sér og tryggðu honum annað sæt- ið á lista framsóknarmanna. Og nú er Alfreð bæjarfulltrúi fyrir Reykjavíkurlistann og for- maður Veitustofnana. Þessi umskipti fóru illa í þá bræður og talið var að stuðningsmenn Alfreðs hefðu smalað fólki á kjörstað. En þó að menn kom- ist upp á kant við forystu flokksins er þeim síður en svo úthýst, eins og ráðningin í vinnumálaskrifstofuna fyrir síðustu jól ber vott um. 600 milljóna króna gjaldþrot en trygg ráðuneytisstaöa Það komum hollum fram- sóknarmönnum í opna skjöldu þegar Þórður Ingvi Guð- mundsson var valinn til starfa hjá varnarmálaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins. Þórður var áður framicvæmdastjóri hjá kaupleigufyrirtækinu Lind þar til Landsbankinn stöðvaði reksturinn og ýtti Þórði til hliðar, en Lind var í eigu Landsbankans. í fjölmiðlum hefur komið fram að Lands- banki íslands hafi tapað um 600 milljónum á starfsemi fyr- irtækisins og muni leggja það niður þegar gengið hefur verið frá öllum skuldbindingum. Þrátt fyrir gjaldþrot var Þórð- ur Ingvi hækkaður í tign og gerður að deildarsérfræðingi. Meðal framsóknarmanna — einkum í Reykjavík — var and- staða við þessa stöðuveitingu, ekki síst vegna þess að Þórður hefur ekki tekið mikinn þátt í flokksstarfi þrátt fyrir að hafa verið flokksbundinn lengi. En forystu framsóknarflokksins er ekki glýjugjarnt í embættis- veitingum. Samkvæmt upplýsingum HP hefur þó sú ákvörðun flokks- forystunnar að veita Helga Guðmundssyni stöðu banka- ráðsmanns í Landsbankanum vakið mesta athygli, enda for- veri hans, Sigrún Magnúsdótt- ir, talin hafa staðið sig þar með prýði og var gert ráð fyrir að hún sæti áfram. Þegar ljóst varð að Sigrún yrði ekki áfram bankaráðsmaður sóttu fjöl- margir hæfir einstaklingar með bæði nám og reynslu í fjármálum að baki um stöð- una. Það var að lokum Helgi, sem er tryggingasölumaður hjá VfS, sem hreppti hnossið, en hann mun jafnframt hafa hug á prófkjörsslag innan flokksins fyrir næstu alþingis- kosningar. Ástæðan er talin óánægja meðal ýmissa fram- sóknarmanna með störf Ólafs Arnar Haraldssonar, sem barðist við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur um annað sætið í prófkjöri framsóknar- manna fyrir síðustu þingkosn- ingar. Ólafur hafði betur og settist inn á þing en hefur lítið borist á að sögn framsóknar- manna. Á meðan hefur Ásta flutt hvert málið á fætur öðru fyrir Þjóðvaka og þykir eftirsjá að henni úr röðum gamía bændaflokksins. Það verður hins vegar þrautin þyngri fyrir Helga að koma Ólafi úr öðru sætinu, því hann hefur á bak við sig hóp bæði flokksbund- inna og óflokksbundinna fram- sóknarmanna af Austurlandi. Kaus ekki Framsókn en var valinn Samfara fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hafa flug- vallaryfirvöld haft áhuga á að efla flugstarfsemi og stuðla að auknum viðskiptum við ferða- menn. Því var gripið til þess ráðs að búa til nýja stöðu fram- kvæmdastjóra markaðs- og kynningarsviðs. Mikill áhugi var á starfinu, en tuttugu sóttu um það. Ómar Kristjánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og aðaleigandi Þýsk-íslenska hf. og Metró, var valinn, en hann hefur þótt blendinn í af- stöðu sinni til Framsóknar- flokksins — jafnvel ekki sagður kjósa flokkinn. Hann er engu að síður talinn fylgja stuðn- ingsmönnum Guðmundar G. Þórarinssonar, bróður síns, að málum. Sá hópur virðist enn halda velli í Reykjavík og hefur styrkt sig í sessi ef eitthvað er að undanförnu. Hér er um að ræða dreifðan hóp manna sem talinn er líklegur til að mynda oddaaðstöðu í Reykjavík með styrkleika sínum gagnvart öðr- um hópum framsóknarmanna í Reykjavík — svo sem eins og Finni Ingólfssyni og stuðn- ingsmönnum. Það skal ósagt látið hvort Guðmundur G. beitti sér fyrir að Ómar hálf- bróðir hans fengi starfið, en hann og Halldór Ásgrímsson stóðu saman í fjölmörg skipti gegn Steingrími Hermanns- syni meðan hann var formaður flokksins. Steingrímur studdi einmitt Finn Ingólfsson þegar hann náði fyrsta sætinu af Guðmundi í prófkjöri fram- sóknarmanna í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 1991. Kolkrabbinn teygir sig í hugbúnadargeirann Eimskipafélag Islands er nú farið að teygja anga sína inn í hugbúnaðarfyrirtækin gegn- um dótturfyrirtæki sitt, Burðar- ás. Nýlega keyptu Tölvumyndir hf., sem aftur er dótturfyrirtæki Burðaráss, hugbúnaðarstarf- semi Verkfræðistofu Stefáns Ól- afssonar, VSÓ Mínútu. Þetta, ásamt kaupum Tæknivals á tveimur hugbúnaðarfyrirtækj- um, eru nýjustu dæmin um samþjöppun og sameiningu ís- lenskrar hugbúnaðarfram- leiðslu. VSÓ Mínúta hf. fram- leiddi einkum sérhæfðan hug- búnað og setti nýlega á markað Þingbókina, sérstakan hugbún- að fyrir fyrirtæki sem vilja fylgj- ast með þróun mála á Verð- bréfaþingi íslands og Opna til- boðsmarkaðnum. Það vekur nokkra athygli að ákveðin tengsl eru milli þessa sérstaka hugbúnaðar, Eim- skipafélagsins og Verðbréfa- þings íslands. Þorkell Sigur- laugsson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Eimskipafélags- ins, er jafnframt stjórnarfor- maður Tölvumynda hf. og situr auk þess í stjórn Verðbréfa- þings fslands.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.