Helgarpósturinn - 16.01.1997, Side 7

Helgarpósturinn - 16.01.1997, Side 7
FiMMTUDAGUR 16. JANÚAR1997 wmm 7 Landsbréf mismuna kaupendum verðbréfa Eigin sjóðir og Sjóvá/Almennar fengu að kaupa hlutabréf á sérkjörum Landsbréf hleyptu engum utanaðkomandi í fyrstu 6-7 milljónirnar af hlutabréfum Þórshafnarhrepps í Hraðfrysti- stöð Þórshafnar þótt svo ætti að heita að bréfin væru til sölu á Opna tilboðsmarkaðnum. Þessi hlutabréf keyptu Lands- bréf ýmist fyrir eigin verð- bréfasjóði, svo sem íslenska fjársjóðinn, eða fyrir stóra við- skiptavini sína, eins og Sjó- vá/Almennar, á mjög lágu gengi, langt undir hálfvirði miðað við það sem verð sem greitt var fyrir bréfin fáum dögum síðar. Þórshafnarhreppur seldi alls hlutabréf að nafnvirði 10 millj- ónir króna í Hraðfrystistöðinni föstudaginn 6. og mánudaginn 9. desember. Þessi bréf fóru á genginu frá 1,2 upp í 2,55. Sex af þessum tíu milljónum voru seldar á genginu 1,2-1,3. Geng- ið færðist síðan upp á við með hverri einstakri sölu og hélt áfram upp á við eftir að þessar tíu milljónir voru allar seldar. Hámarki náði gengi bréfanna 13. desember þegar það komst í 4,25. Gengið fór svo aftur nokkuð niður á við en virtist um og upp úr áramótum vera að ná jafnvægi í kringum 3,3. Óþarfi að seija ódýrara en 2,5 Starfsmenn verðbréfafyrir- tækja og aðrir fjárfestar sem Helgarpósturirm hefur rætt við segjast að sjálfsögðu hafa ver- ið búnir að gera sér ákveðnar hugmyndir um raunverulegt verðmæti hiutabréfa í Hrað- frystistöð Þórshafnar. Þessir viðmælendur blaðsins voru sammála um að eðlilegt hefði verið að meta bréfin talsvert hærra í upphafi en gert var hjá Landsbréfum. Ekki voru þó allir reiðubúnir að nefna tölur í þessu sam- bandi en þeir sem það gerðu sögðust álíta að óhætt hefði verið að byrja söluna á gengi einhvers staðar á bilinu 2,5-3, engin hætta hefði verið á að bréfin lækkuðu frá því verði. Innherjakaup á lágu gengi Þegar hlutabréf í HÞ komu í sölu á Opna tilboðsmarkaðn- um að morgni föstudagsins 6. desember og verðbréfamiðlar- ar sáu tilgreindar sölur á rétt rúmu nafnverði var því ekki að furða þótt þeir sendu sjálfir inn tilboð. Engum utanaðkom- andi tilboðum var þó tekið þann daginn. Á tölvuskjánum mátti hins vegar sjá að bréf voru seld einhverjum öðrum á sama verði. Verðbréfamiðlarar sem blað- ið hefur rætt við fullyrða að þessar sölur hafi farið fram innan Landsbréfa, sem þarna hafi verið að hygla eigin verð- bréfasjóðum og stórum við- skiptavinum sínum á kostnað annarra fjárfesta. Það er athyglisvert í þessu sambandi að það var í raun ekki Þórshafnarhreppur sem ákvað upphafsgengi bréfanna. í umfjöllun HP um Hraðfrysti- stöð Þórshafnar í síðustu viku kom fram að af hálfu Lands- bréfa var talið nauðsynlegt að bréf væru boðin til sölu um leið og fyrirtækið væri skráð á markaði. HP hefur jafnframt heimildir fyrir því að starfs- maður Landsbréfa hafi talið ráðlegt að byrja á Iágu sölu- gengi. Með því móti myndi gengi bréfanna óhjákvæmilega fara hækkandi en ef í upphafi væri sett upp hátt verð, kynni gengislínan að fara niður á við og það liti illa út. Eins og greint var frá í síð- ustu viku var Þórshafnar- hreppur einn látinn bera þann fórnarkostnað að hafa hluta- bréf til sölu á lágu gengi í upp- hafi. Samkvæmt þeim upplýs- ingum sem nú liggja fyrir um „fullkomlega löglegar" aðferðir Landsbréfa við að græða pen- inga virðist sem fórnarkostn- aður hreppsins hafi orðið mun meiri en forsvarsmenn hrepps- ins gátu séð fyrir. No comment! Það var Loftur Ólafsson sem fyrir hönd Landsbréfa sá um skráningu og markaðssetningu hlutabréfa í Hraðfrystistöð Þórshafnar. Hann neitaði að svara nokkru til eða frá um þau atriðl sem rakin hafa verið hér að framan og neitaði meira að segja að upplýsa hvort ein- hverjir verðbréfasjóðir á veg- um Landsbréfa hefðu keypt einhvern hlut í HÞ. HP hefur hins vegar fengið það staðfest hjá Hólmari Ást- valdssyni, fjármálastjóra HÞ, að bæði íslenski fjársjóðurinn og Sjóvá/Almennar hafi eign- ast hlut í Hraðfrystistöðinni. íslenski fjársjóðurinn er hluta- fjársjóður á vegum Landsbréfa og fjárfestir í sjávarútvegsfyrir- tækjum. Sjóvá/Almennar eru meðal stærstu viðskiptavina Landsbréfa. Sigurður K. Sigur- karlsson, fjármálastjóri Sjó- vár/Almennra, staðfesti í sam- tali við HP að félagið ætti hlut í HÞ en vildi hvorki gefa upp á hvaða gengi hlutabréfin hefðu fengist né hversu stór hlutur- inn væri. Sigurður sagði ein- ungis að hann væri „lítill í pró- sentum talinn“. Ekki á starfssvldi banka- eftírirtsins Hérlendis eru harla fá Iaga- ákvæði til um það sem al- mennt er kallað innherjavið- skipti, þegar menn nota upp- lýsingar eða aðstöðu til að hagnast á verðbréfaviðskipt- um. í þeim löndum þar sem hefð er fyrir því að hlutabréf og önnur verðbréf gangi kaup- um og sölum eru hins vegar ströng viðurlög við innherja- viðskiptum og fjölmörg dæmi þess að menn hafi verið dæmdir til langrar fangelsis- vistar fyrir misnotkun á upp- lýsingum eða aðstöðu. Fyrir tæpu ári voru þó hér- lendis sett lög um verðbréfa- viðskipti og í þeim eru ákvæði um meðferð trúnaðarupplýs- inga. Af einhverjum ástæðum sá Alþingi þó ekki ástæðu til að láta þennan kafla laganna ná til allra viðskipta með verðbréf, heldur gilda ákvæði hans ein- ungis um verðbréf „sem skráð eru á skipulegum verðbréfa- markaði". Hérlendis fellur að- eins Verðbréfaþing íslands undir þessa skilgreiningu. Eng- in lög virðast hins vegar ná yfir innherjavlðskipti á Opna til- boðsmarkaðnum. „Opni tilboðsmarkaðurinn er ekki viðurkenndur markað- ur, þar sem ákvæði laga um verðbréfaviðskipti gilda,“ sagði Þórður Ólafsson, for- stöðumaður Bankaeftirlitsins, þegar málið var borið undir hann. „Þar af leiðandi skiptum við okkur ekki af einu né neinu sem gerist á Opna tilboðs- markaðnum.“ Þannig seldust hlutabréf Þórshafnarhrepps Dagur Nafnverð Gengi Söluverð 6/12 1.000.000,- 1,20 1.200.000,- 6/12 1.000.000,- 1,21 1.210.000,- 6/12 2.000.000,- 1,25 2.500.000,- 6/12 2.000.000,- 1,30 2.600.000,- 6/12 200.000,- 1,45 290.000,- 6/12 150.000,- 1,85 277.500,- 6/12 100.000,- 1,85 185.000,- 6/12 200.000,- 1,86 372.000,- 9/12 400.000,- 1,90 760.000,- 9/12 600.000,- 1,92 1.152.000,- 9/12 600.000,- 2,10 1.260.000,- 9/12 500.000,- 2,30 1.150.000,- 9/12 400.000,- 2,25 940.000,- 9/12 200.000,- 2,38 476.000,- 9/12 200.000,- 2,41 482.000,- 9/12 150.000,- 2,51 376.500,- 9/12 150.000,- 2,53 379.500,- 9/12 150.000,- 2,55 382.500,- Þessi tafla sýnir söluverð á þeim 10 milljóna hlut sem Þórshafn- arhreppur lét Landsbréf selja. Hér sést aö langstærstu upphæö- irnar fara strax á mjög lágu gengi. Eftir þetta hækkaöi gengi bréf- anna hratt. Síöasta sala 9/12 var á genginu 3,15. Um og upp úr áramótum var meðalgengi nálægt 3,30. Innherjaviöskiptin á Þórshöfn: Odchritinn ætlaði að hlunnfara hreppinn Tægreifmn Jóhann A. Jónsson og fétagan InnheriaviA^’ í síðustu viku skýrði Helgarpósturinn frá 250 milljóna hagnaði Hængsmanna á Þórshöfn. Nú er vitað að þeir gerðu tilraun til að ná 50 míllíAniim (il i/iAiintih Hængsmenn á Þórshöfn með Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóra Hraðfrysti- stöðvar Þórshafnar og odd- vita, í broddi fylkingar hugðust hlunnfara Þórshafnarhrepp um tugi milljóna með því að kaupa hlutabréf í Hraðfrysti- stöðinni langt undir því sem markaðsverð fyrirtækisins reyndist vera. Það var vara- maður á lista Jóhanns, Henrý Ásgrímsson, sem snerist á sveif með minnihluta hrepps- nefndar og kom þannig í veg fyrir að Þórshafnarhreppur seldi níu milljóna hlutafé á genginu 1,16 í desember 1995. Markaðsverð á þessari eign er nú upp undir 60 milljónir króna. Með atkvæði sínu á hreppsnefndarfundinum þann 21. desember í fyrra sparaði Henrý Ásgrímsson hreppnum þannig nálægt 50 milljónum króna. Eins og Helgarpósturinn skýrði frá í síðustu viku keyptu Hængsmenn á Þórshöfn hluta- bréf í Hraðfrystistöðinni á mjög lágu gengi allt fram undir það að nafnverð hlutabréfanna var tvöfaldað með útgáfu jöfn- unarhlutabréfa í júlí og nokkr- um mánuðum síðar, þann 6. desember sl., voru hlutir í fyr- irtækinu boðnir til sölu á Opna tilboðsmarkaðnum hjá Verð- bréfaþingi íslands. Þar seldust hlutabréf fyrir sex- til áttfalt hærra verð en Hængsmenn höfðu greitt. Átakafundur í hreppsnefnd í hreppsnefnd Þórshafnar- hrepps sitja fimm fulltrúar tveggja lista. Meirihlutann skipa Jóhann Arngrímur Jóns- son oddviti, Kristín Kristjáns- dóttir og Jónas Jóhannsson en í minnihluta eru Gunnlaug- ur Ólafsson og Jón Gunnþórs- son. Fyrir hreppsnefndarfundi 21. desember 1995 lá tillaga Kristínar Kristjánsdóttur vara- oddvita um að selja þau hluta- bréf í Hraðfrystistöðinni sem hreppurinn hafði um ári fyrr keypt af Þróunarsjóði sjávarút- vegsins og voru að nafnvirði ríflega níu og hálf milljón króna. Þeir sem óskað höfðu eftir að fá að kaupa þessi bréf voru bræðurnir Jóhann, Hreggvið- ur og Rafn Jónssynir, Gunn- laugur Hreinsson, Hólmar Ástvaldsson, Hilmar Þór Hilmarsson, Sævaldur Gunn- arsson og Jón Kristjánsson. Þessir eru allir í yfirmanns- stöðum hjá Hraðfrystistöðinni og viðriðnir Hæng ehf., nema Hreggviður, sem er búsettur í Reykjavík og starfar hjá Stöð 2. Hreggviður vildi kaupa hlutafé fyrir tólf hundruð þúsund en hinir eina milljón hver. Auk þess ætlaði Amór Karlsson að kaupa hlut fyrir 750 þúsund og Geir hf„ sem er í eigu hrepps- nefndarmannsins Jónasar Jó- hannssonar, hafði lagt inn til- boð upp á rúmar tvær milljón- ir. Á fundi K-listans, sem hefur meirihluta í hreppsnefnd, hafði Jónas Jóhannsson reynd- ar lýst sig andvígan því að hreppurinn seldi hlutabréf á þeim kostakjörum sem til stóð. Áður en þetta mál var tekið til umræðu var hreppsnefndar- fundinum lokað og þá viku einnig af fundi þeir Jóhann A. Jónsson og Jónas Jóhannsson, enda báðir vanhæfir til að taka ákvörðun um málið samkvæmt stjórnsýslulögum. Sæti þeirra á fundinum tóku varamennirn- ir Henrý Ásgrímsson og Ester Þorbergsdóttir. í fundargerð segir einungis að miklar um- ræður hafi orðið um málið og skoðanir skiptar. Tillagan var loks felld með atkvæðum minnihlutamann- anna Gunnlaugs og Jóns ásamt atkvæði varamannsins Henrýs Ásgrímssonar, sem í þessu máli lét sig hafa það að ganga á svig við vilja félaga sinna í meirihlutanum. í staðinn var samþykkt tillaga Henrýs og Jóns Gunnþórssonar um að sölu hlutabréfa í HÞ yrði frest- að þar til hlutlaust mat á gildi bréfanna hefði farið fram.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.