Helgarpósturinn - 16.01.1997, Síða 15

Helgarpósturinn - 16.01.1997, Síða 15
4 FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1997 15 X I i I I í < H Góð tónllst, ei meir Fagra veröld eftir Karl Ágúst Úlfsson byggð á ijóðum Tómasar Guðmundssonar Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson Hljóð: Baldur Már Arngrímsson Lýsing: Lárus Björnsson Söngstjórn, útsetningar: Jóhanna V. Þór- hallsdóttir Hljómsveitarstjórn, útsetningar: Kjartan Valdimarsson Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson Leikstjórn: Brynja Benediktsdóttir Leikarar: Þórhallur Gunnarsson, Jóhanna Jónas, María Ellingsen, Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Sóley Elíasdóttir, Pétur Einars- son, Kjartan Guðjónsson, Dofrí Hermanns- son, Ellert A. Ingimundarson, Alexander Óð- insson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Ásta Arnardóttir, Hinrík Ólafsson, Bjöm Ingi Hilm- arsson, Theodór Júlíusson, Ámi Pétur Guð- jónsson, Jón Hjartarson, Helga Braga Jóns- dóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir ★★ Það er ekki laust við að mik- illar eftirvæntingar hafi gætt á frumsýningu fyrsta nýja íslenska leikverksins í röð margra sem von er á hjá Borg- arleikhúsinu núna á afmælisár- inu. En meðan Leikfélagið með Dómínó spilaði út alvöru há- spili kom fljótlega í ljós að hér átti að lauma gosa. Eg á við að þrátt fyrir að umbúnaðurinn sé afar glæsilegur þá er vægið ekki að sama skapi hátt og innihaldið hvergi jafngjöfult. Það vantar ekki að umgjörðin öll er mikil og stór, — allt stóra sviðið lagt undir og hringsnýst án afláts með brekku og forn- bíl og sendlahjólum, kaffihúsi, hljómsveit, ljósastaurum og bryggjupollum. Þar að auki er í bakgrunni stórt „þöglumynda- tjald", sem í takt við leikinn á sviðinu birtir myndir frá tím- um Tóméisar unga. Reyndar er svo mikið að gerast oft á tíðum að maður á fullt í fangi með að fylgjast með öllum viðburðun- um á sviðinu. Hugmyndin að nýta ljóð Tómasar í leikverk eða jafnvel söngleik er langt frá því slæm og það stendur kannski ein- mitt upp á Leikfélag Reykjavík- ur að gera það, en einhvern veginn er þráðurinn í sögunni sem hér tengir ljóðin svo þunnur að innihald verksins fer alveg fyrir ofan garð og neðan. Persónurnar rista hvergi djúpt. Guðrún (Jó- hanna Jónas) og Klemenz (Hinrik Ólafsson), sem helst er möguleiki að teikna eitt- hvert drama í kringum, verða ósköp búraleg og klisjukennd túlkun á ráðvilltu sveitafólki í „borginni" (hvaða borg?). Ann- að dæmi er Bergur í túlkun Péturs Einarssonar; þegjan- dalegur maður sem flytur um- vöndunarpistla í útvarp til að byrja með en sýnir sig vera drykkjurút og allt annað en leikhus Kormákur Þráinn Bragason meö Sigríöi Theodórs- dóttur bankamanni á frumsýningu Borgarteik- hússins é Fögru veröld eftir Karl Ágúst Úlfsson. hann vildi vera láta. Þó fær hann líkt og venjulegt fólk snert af vorveiki, skemmtilega útfærðri. Leikararnir gera þó hvergi verr en efni standa til, en söngleikjarformið og allar tilfæringarnar valda því að iðu- lega fá leikararnir yfirbragð ráðvilltra staðgengla sem dott- ið hafa út úr hlutverkinu, ef svo má að orði komast. Tómas sjálfur í túlkun Þórhalls Gunn- arssonar birtist í upphafi sem stytta á stalli en verður því næst einhvers konar sjálfum- glaður spjátrungur, sem spíg- sporar glaðbeittur leikinn út í gegn. Leikararnir eru ekki öf- undsverðir af hlutverkum sín- um, enda fátt bitastætt til að takast á við hvað snertir per- sónusköpun. Leikhópurinn sjálfur virðist þó hafa gaman af öllu saman, einkum í söngnum, og það er ekki fjarri lagi að leik- Verð áður Nú Nike Max Structure (dömuskór) 11.850 9480 Adidas Stripes Lite (dömuskór) 8.990 6.990 Nike Air Digs Mid (herraskór) 8.850 6.990 Nike Air Wibe (dömuskór) 7.980 6392 Reebok Big Hurt (herraskór) 7.990 6392 Adidas Equip Wild (dömuskór) 7.550 5.990 Reebok Big Hurt (unglingastærðir) 6.990 5JS92 hann sér stóra hluti í framtíð- inni. Það er og trú mín að innan skams muni koma frá honum leikverk sem taka af skarið um hæfileika hans á þessu sviði. Það slær mig hins vegar að þessu verki sé ætlað að vera í anda þeirrar söngleikja- og rev- íuhefðar sem Leikfélagið er frægt fyrir og að Karl Ágúst „sjálfur“ njóti sín kannski ekki sem skyldi. Einhvern veginn skortir þetta verk þann kraft og funa sem einkenndi t.d. söng- leiki Kjartans Ragnarssonar, þótt slíkur samanburður sé ef- laust ósanngjarn. En verkið er ekki heldur gætt því skarpa háði sem Karl Ágúst hefur iðu- lega beitt fyrir sig á öðrum vettvangi með góðum árangri. Hins vegar býr leikverkið yfir möguleikum sem hljóta að vekja menn til umhugsunar um hvers vegna ekki voru nýttir. Okkur Sigríði fannst engu að síður ágætis skemmtun að þessari sýningu og hún er ekki síst góðir tónleikar. „En meðan Leikfélagið með Dómínó spilaði út alvöru háspili kom fljót- lega í ljós að hér átti að lauma gosa.“ • röðum og raun ber vitni. Jó- hanna V. Þórhallsdóttir hefur unnið mikið og gott starf ásamt hljómsveitarstjóranum Kjart- ani Valdimarssyni og Sigríður bankamaður gerði að kröfu sinni að tónlistin kæmi sem fyrst út á diski og tek ég undir það. Eins vorum við sammála um að öll tæknivinna, s.s. hljóð og þó sérstaklega lýsingin, væri með eindæmum vel unn- in. _ Af leikskrá er ljóst að Karl Ágúst er metnaðarfullur höf- undur sem hefur leitað sér menntunar í leikritun út fyrir landsteinana og vonandi ætlar Taktu þér tak! gleði hópsins smiti frá sér út í salinn. Undanbragðalaust skal það viðurkennt að þó nokkrir brandarar vöktu almennan hlátur. Sér í lagi voru þeir Ámi Pétur og Ellert A. Ingimundar góðir á peysufötunum þegar þeir tóku danssporin. Við Sig- ríður vorum hins vegar sam- mála um að tónlistin væri af- burðagóð hjá Gunnari Reyni og félli einkar vel að ljóðum Tómasar. Allur tónlistarflutn- ingur á sýningunni var til fyrir- myndar og það hlýtur að vita á eitthvað mikið í framtíðinni að Leikfélagið skuli eiga jafnmarga frambærilega söngvara í sínum Leiklistargróskan í landinu teygir anga sína víða, þar á meðal til mjög áhugasamra eldri borgara, sem nú eru að æfa verk um ástandsárin í leikgerð Sigrúnar Valbergsdóttur sem hún einnig leikstýrir. Sigrún er fyrrverandi aðstoðarleikhússtjóri Viðars Eggertssonar hjá Borgarleikhúsinu en sneri sér aftur að leikstjórn eftir að Viðari var sagt upp. Eigum einnig handlóð, grip og sippubönd o.fl.o.fl. Líttu inn í Útilíf á leið til betra lífs! htííaöi'ítiUf tMí: Glæsibæ - Sími S81 2922 Vona að LR fái byr í seglin Tilboð á þolfimi- fatnaði og skóm! Aerobic- fatnaður með 10 - 80% afslætti! Eftirtaldir Aerobic-skór eru með 20% afslætti! Eitt af aðildarfélögum Bandalags íslenskra leikfé- laga er leikfélagið Snúður og Snælda, sem þrátt fyrir ungan aldur hefur að geyma mjög há- an meðalaldur leikara, eða eldri borgara. Leikstjóri hóps- ins, Sigrún Valbergsdóttir, sem þegar hefur sett upp með þeim tvær leiksýningar, segir eftir kynni sín af eldri borgun- um að þarna fari svo snarlif- andi fólk með svo mikla orku að loks þegar það þurfi ekki lengur að ganga til vinnu fari það flest í skapandi störf á öll- um mögulegum sviðum. „Ork- unni í þessu fólki má lýsa með því að flest byrja þau á því þeg- ar þau komast á eftirlaunaald- ur að fá sér símsvara af því þau eru aldrei heima. Maður getur því horft björtum augum til framtíðar." Sigrún æfir þessa dagana af fullum krafti með eldri orku- borgurunum í húsnæði Félags eldri borga á Hverfisgötu 105, en ætlunin er að frumsýna 15. febrúar leikgerð Sigrúnar á sögum frá ástandsárunum eftir höfund sem enn um sinn kýs að fara huldu höfði. „Þetta er saga fjögurra kvenna sem voru í ástandinu. Þær segja bæði frá og leika ýmis atriði sem gerð- ust á hernámsárunum,“ segir Sigrún. Þessi tíu manna leik- hópur hefur meðal annars að geyma hinn kunna leikara Karl Guðmundsson, sem kominn er á eftirlaunaaldur, og Auði Guð- mundsdóttur leikkonu. Auk leikaranna tíu eru síðan þrjár konur sem hvísla eða hlaupa í skarðið ef svo ber undir. Sigrún segir leikaraefnin fara létt með að fara fram og aftur í tíma og enda þótt þau séu öll orkumikil sé ekki neinum prím- adonnustælum fyrir að fara heldur þvert á móti viðurkenni þau öll einræðisvald leikstjór- ans. Hvernig kom til að þú fórst að vinna með eldri borgur- „Orkunni í þessu fólki má lýsa með því að flest byrja þau á því þegar þau komast á eftirlaunaaldur að fá sér símsvara af því þau eru aldrei heirna," segir Sigrún sem sést lengst til hægri á myndinni. um? „Þau báðu mig að halda með sér námskeið fyrir nokkrum ár- um. í framhaldi tókum við þátt í samstarfsverkefni með leikfé- lagi eldri borgara í Leipzig. Síð- an báðu þau mig fyrir rúmum tveimur árum að setja upp verk eftir systurnar Krístínu og Iðunni Steinsdætur sem þær skrifuðu sérstaklega fyrir leik- hópinn, það var verkið Reim- leikar í risinu. í fyrra leikstýrði ég tveimur einþáttungum. Með annan þeirra var farið í ferða- lag um landið við geysigóðar undirtekir og einnig á einþátt- ungahátíð BIL, sem haldin var í Reykholti síðastliðið vor.“ Þú stoppaðir stutt við með Viðari Eggertssyni sem að- stoðarleikhússtjóri hans í Borgarleikhúsinu ú liðnu vori, var ekkert mól að fú vinnu aftur? „Ég var að leikstýra Gaurn- gangi á Húsavík þegar Viðar bað mig að taka að mér þetta starf í Borgarleikhúsinu. Und- anfarin sex ár hafði ég verið „frílans" leikstjóri. Ég leikstýrði reyndar töluvert á meðan ég var framkvæmdastjóri Banda- lags íslenskra leikfélaga og einnig þegar ég var deildarsér- fræðingur í menntamálaráðu- neytinu í tíð Svavars Gestsson- ar. Ég er búin að setja upp ein- ar þrjátíu leiksýningar svo það var lítið mál að snúa sér beint að leikstjórn aftur." Fyrr i vetur leikstýrði Sigrún meðal annars á Dalvík verkinu Stútungasögu, sem gekk fyrir fullu húsi til áramóta. Núna er hún að æfa leikrit Davíðs Þórs Jónssonar, Þú ert í blóma Iffs- ins fíflið þitt, með Fjölbrauta- skólanum á Akranesi og hefur ráðið sig á Blönduós til að leik- stýra nýju verki eftir Ragnar Arnalds sem frumsýnt verður í apríl og er um upphaf byggðar á staðnum. Þar fyrir utan fæst Sigrún við eitt og annað smá- legt. Hvernig kemur Borgarleik- húsið þér fyrir sjónir núna? „Ég hef ekki séð nema eina sýningu í Borgarleikhúsinu í vetur, það var Largo Desolato á vegum Leikfélags Reykjavíkur. Mér finnst það gott verk og býsna sterk sýning. Ég vildi óska að það væru oftar færð upp leikrit með heimspekileg- um pælingum af þeim toga sem eru í þessu verki. Að öðru leýti get ég lítið sagt um Borgarleik- húsið hér og nú, nema bara Í)að sama og allur þorri fólks. mynd hússins í allt haust hef- ur verið sú að það sé ekki LR sem beri uppi starfsemina, heldur séu það hópar utan LR með Bar Par, Svaninn og Stone Free. Það hefur borið meira á þessum sýningum og fólk talar um að þær gangi vel. Ég veit auðvitað að LR er í kröggum og getur þess vegna ekki sett upp fleiri sýningar eða nýtt sér fleiri sýningarkvöld. Það er löngu Ient inni í einhverjum víta- hring. Undanfarið hafa heyrst háværar kröfur um auknar fjárveitingar til þess, sem leysa skuli allan vanda. Mér finnst hins vegar skipta öllu máii þegar maður ræðir leikhús að spyrja sig hvaða erindi það eigi. Kemur mér það á einhvern hátt við sem þar er verið að sýna? Þess vegna væri gaman að heyra hvernig LR gæti hugsað sér að nýta aukna fjárveitingu til að snúa við blaðinu og breyta ímynd sinni og bjóða upp á ögrandi Ieikhús. Það væri forvitnileg umræða. Ég vona bara að félagið fái byr í seglin í kringum aldaraf- mælið og nýti sér athyglina sem að því beinist til að fara að spegla sig í núinu. Saga LR er merkileg, starfið í 100 ár er þakkarvert og á skilið hamingjuóskir, en það er sprengikraftur sýningarinn- ar í kvöld og á morgun og hinn sem réttlætir áfram- haldandi líf,“ segir Sigrún Valbergsdóttir.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.