Helgarpósturinn - 16.01.1997, Síða 23
RMMTUDAGUR16. JANÚAR1997
23
«18
Ekki
___•_
missa
„Ég myndi vilja
ferðast í nútíman-
um og ég myndi
velja Egyptaland
eða Indland. Þetta
eru örugglega.
spennandi staðir
og ég hef ekki
komið á þessar
slóðir. Þarna er
allt önnur menn-
ing og annað en
það sem maður
hefur séð og það
væri virkilega
gaman að fá að
upplifa þessa
staði.“
Kraftaverk
Kraftaverkamyndir er heiti á
myndlistarsýningu sem nú
stendur yfir í Gallerí Horni.
Bandaríska listakonan Lulu
Yee heldur þar sína fyrstu sýn-
ingu á erlendum vettvangi. „Ég
legg áherslu á mannsandann,"
segir Lulu. „Fólk gerir ótrúleg-
ustu hluti í nafni trúar og kær-
leika. Sögurnar sem ég kýs að
segja eru allar grundvallaðar á
krafti æðri máttarvalda, sem
er að finna í okkur öllum.“ Eins
og áður segir er sýningin til
húsa í Gallerí Horni og stendur
til 22. janúar.
Verkamenn Edvards
Munch
Stöng. í fyrsta lagi verður hin
tilvonandi heimsfræga Botn-
leðja með tónleika í kvöld. Þeir
fara utan á sunnudag þannig
að þetta eru lokatónleikar
þeirra í bili. Að sögn Úlfars
Þórðarsonar, eiganda Gauks á
Stöng, troða óvæntir gestir
upp með Botnleðju eða Silt
sem er víst erlenda nafnið á
sveitinni.
Verður Botnleðja að hita
upp fyrir Blur í kvöld?
, „Ekki á Gauknum, nei,“ segir
Úlfar og hlær. „Það er ekki al-
veg svo gott. Én við fáum að
heyra það sem þeir verða að
gera með Blur á Englandi.“
Á föstudag og laugardag
verður svo á Gauknum hinn
geysivinsæli Herbert Guð-
mundsson, sem á sínum tíma
var ekki langt frá því að verða
heimsfrægur á la Björk. Hann
verður gestur hljómsveitarinn-
sjálfa í eigin persónu. Til hvers
að fara alla leið til útlanda,
eins og undirritaður gerði, til
að sjá Pink Floyd á hljómleik-
um, þegar hægt er að fara
ókeypis niður á Gauk á Stöng
og upplifa hrollinn sem fylgir
lögum meistaranna? Allir á
Gaukinn sunnudags- og mánu-
dagskvöld!
Cult í Rósenberg
Stórhljómsveitin Cult hefur
lagt upp laupana og í tilefni af
því ætla Rósenbergkjallara-
menn að hafa kveðjukvöld fyr-
ir hljómsveitina. „Við ætlum
að hafa kveðjudagskrá í tilefni
af því að uppáhaldshljómsveit-
in mín er hætt,“ segir Siguijón
Skæringsson, vert á Rósen-
berg, og grætur svolítið í sí-
mann. „Þetta er trúlega uppá-
halds-coverhljómsveit ís-
ur opnað sýningu í Ingólfs-
stræti 8 þar sem Iituðu gleri er
varpað á vegg með halógen-
ljósum. Sýningin er opin frá
klukkan 14 til 18 fimmtudaga
til sunnudaga og stendur til 16.
febrúar.
Finnskur djass-
og revíusöngur
Djass- og revíusöngur mun
heyrast á Sóloni íslandusi á
föstudagskvöldið og svo í Nor-
ræna húsinu á sunnudaginn,
þegar þrír Finnar skemmta
Iandanum upp á finnskan
djass-revíumáta. Finnarnir eru
þrír, þau Amy Aspenlund,
söngvari og djassgeggjari,
Annika Hultman, leik- og
söngkona, og Henrik
Wikström píanóleikari.
„Ég ætla nú að lýsa einum leik á sunnu-
dagskvöldið á Sýn, hörkuleik í fótbolta, Lazio
á móti Juventus, segir Hermann Gunnars-
son fjölmiðill.“
Þú ert kominn í lýsingarnar aftur?
„Já, maður elskar það og bara kominn í
stuttbuxurnar aftur og gömlu skóna. Annar
hluti helgarinnar fer bara í það að þrífa og
laga til heima hjá mér því ég er að standa
upp úr lungnabólgu. Ég steinlá alla síðustu
viku, en er að komast á ról aftur. Það var
heppilegt að ég var veikur í hinni vikunni, því ég er með þátt núna í
þessari,“ segir hann og hlær. „Ég er frílansari og fæ ekki laun ef ég
vinn ekki.“
Ertu að lesa eitthvað sérstakt?
„Eins og kannski hefur ekki farið framhjá þér né öðrum átti ég af-
mæli í síðasta mánuði og fékk eitthvað um hundrað bækur í afmælis-
gjöf. Ég er nú ekki búinn með nema fimm, þannig að það er nú eitt
verkefnið framundan. Svo getur vel verið að ég horfi eitthvað á sjón-
varpið um helgina. Annars geri ég ekki mikið af því, — fæ mér ef til vill
góða myndbandsspólu."
Nú eru þœttirnir þínir ekki teknir beint upp. Horfirðu einhvern
tímann ú þá sjálfur?
„Nei. Það kemur jú fyrir að ég sjái brot af þessu þegar ég er heima,
en yfirleitt er ég búinn að sjá grófa mynd af þættinum. Maður er orð-
inn það rútíneraður eftir tíu ár að ég fæ ekkert sérstakt kikk af því að
horfa á sjálfan mig,“ segir Hemmi og hlær.
„Það er nú bara ekkert ákveðið," segir
Magnús Ver Magnússon kraftakarl. „Ann-
ars höfum ég og kærastan gaman af að
fara út og skemmta okkur örlítið. Uppá-
haldsstaðurinn er Astró, en kunningi
minn er einn af eigendum þar. Ég æfi
sjaldan um helgar og nota þær sem hvíld-
ardaga. Æfi bara vel alla hina dagana. Ég
er að lesa bók þessa stundina sem ég ná-
kvæmlega akkúrat man ekki hvað heitir,
en enská orðið yfir hana er trúlega The
Secret to success.“
Þú ert að pœla í að ná langt?
„Já, þýðir nokkuð annað?“
Síminn hringir og ungleg kvenmanns-
rödd kemur í símann.
Edda Heiðrún Backman, er þetta
hún?
„Já.“
Er ég nokkuð að trufla?
„Trufla, auðvitað ertu að trufla mig,“
segir leikkonan og hlær diilandi hlátri.
„Ég verð bara að vinna um helgina.
Vinnan í Þjóðleikhúsinu er mín helgar-
skemmtun. Annars ætla ég að fara í
sleðaferð með börnin mín núna um
helgina. Ég ætla að reyna að elta snjó-
inn uppi og ætla að athuga hvort ég finn
ekki smáblett með snjó á uppi í Bláfjöll-
um. En þú finnur mig ekki á börunum um helgar. Ég skemmti mér
bara heima hjá mér.“
Nú eru síðustu forvöð að sjá
hina einstöku sýningu á verka-
mannamyndum Edvards
Munch í Listasafni ís-
lands. í augum Munchs
var verkamaðurinn ut-
angarðsmaður rétt eins
og hann taldi sjálfan sig
vera í myndlist sinni.
„Alla tíð sem ég hef mál-
að hér heima (í Noregi)
hef ég stöðugt þurft að
sýna andstæðingum
mínum í fulla hnefana.
Þess vegna málaði ég
mynd af manni með
kreppta hnefa í stóru
myndinni minni af
verkafólki.“ „Sýningin
var opnuð 10. nóvember
og það hefur verið mjög
góð aðsókn að henni,“
segir Bera Nordal, for-
stöðumaður Listasafns
íslands. „Hún fer af landi
brott, þannig að það er
engin leið að framlengja
hana og þetta er síðasta
sýningarhelgin núna.
Eins og ég sagði erum
við mjög ánægð með að-
sóknina og okkur finnst
mjög merkilegt að hafa
fengið hana hingað. Það
er svo óvanalegt að fá sýningar
á verkum Edvards Munch.“
Listasafn íslands er opið alla
daga nema mánudaga frá
klukkan ellefu til fimm.“
Pink Floyd á Gauki á
Stöng?!
Þrátt fyrir að jólatónavertíð-
in sé yfirstaðin er ekki þar með
sagt að menn hætti að spila og
skemmta öðrum með góðri
tónlist. Nú um helgina verður
mikið að gera á því sviði á
elstu krá landsins, Gauki á
ar Hunangs. Rúsínan í pylsu-
endanum er svo tónleikar
Dúndurfrétta á sunnudag og
mánudag, en þeir verða stöð-
ugt vinsælli á Gauknum fyrir
að spila listavel tónlist Pink
Floyd og Led Zeppelin. „Þeir
koma eingöngu fram hér á
Gauk á Stöng, u.þ.b. einu sinni
í mánuði," segir Úlfar. Undirrit-
aður, sem er forfallinn og ann-
álaður Pink Floyd-aðdáandi,
datt inn á Gaukinn fyrir algera
tilviljun eitt kvöldið og ætlaði
ekki að trúa eigin eyrum því
tónlist Dúndurfréttamanna er
eins og að hlusta á meistarana
„Ég verð trúlega að vinna uppi í nudd-
skóla um helgina en það er nóg að gera
þar, enda um sextíu nemendur. Síðan
verð ég að lesa fyrir háskólanám en ég er
í félagsfræði í Háskólanum," segir Guð-
mundur Rafn Geirdal nuddari. Ef ég
læsi eitthvað væri það sennilega bók eft-
ir Dalai Lama sem heitir Friðarhöfðing-
inn. Ég hef lesið hana áður en það væri
gott að rifja hana upp, því ég er það mik-
ið inni í andlegum málum. Það er sem-
sagt nóg að gera hjá mér um helgina."
Gamalt og
nýtt í MH
L e i k f é 1 a g
Menntaskólans
við Hamrahlíð
frumsýnir nú um
helgina poppleikinn Óla 2 í
Tjarnarbíói. Poppleikurinn var
upphaflega saminn og frum-
fluttur árið 1970 af Litla leikfé-
laginu og átti gífurlegum vin-
sældum að fagna á sínum tíma,
auk þess sem tónlistin úr verk-
inu, samin af Óðmönnum, var
valin plata ársins 1970. Nú hafa
meðlimir Leikfélags MH tekið
gamla poppleikinn til endur-
skoðunar og með hjálp leikara,
leikstjóra og sérstakrar rit-
nefndar hefur hópurinn unnið
í spunavinnu senur upp úr
gamla leiknum, skapað nýjar
og haldið öðrum eftir og .þar
með mótað Poppleikinn Ola 2.
Sérstök hljómsveit í „Óð-
mannastíl" var stofnuð sér-
staklega fyrir þennan Poppleik
og mun hún flytja bæði lög úr
gamla Poppleiknum og frum-
samin lög undir stjórn Jóns Ól-
afssonar, píanóleikara og sér-
staks poppleikjasérfræðings.
Hvar værum við ef við hefðum
ekki Jón Ólafsson?
1 e n s k r a
rokkhljóm-
sveita síðari
ára. Hver
e i n a s t a
hljómsveit
sem þykist
hafa spilað
rokk á ís-
landi er með Cult á prógramm-
inu.“ Að sögn Sigurjóns verður
margt um manninn að
skemmta á kveðjukvöldinu og
hann lofar góðri stemmningu.
„Eins ætlum við að kynna nýj-
an drykk sem við bjuggum til í
tilefni dagsins. Hann heitir eft-
ir einu lagi Cult, Sweet salvati-
on eða Sæt björgun, og inni-
heldur alls lags sull.“
Litað gler og Ijósglufur
„í ljósaskiptunum hef ég
lengi starað á skammdegisblik-
in — ljósglufur himna, farvegi
skýja er stöðugt bregða litum
— augnablikið er svo dýrmætt
en hverfult um leið. Birtan var-
ir stutt og þegar fer að rökkva
og smám saman að dimma og
dimma kemur fjólublátt mjúkt
myrkur í staðinn með aðra
birtu að handan." Þetta segir
listamaðurinn Halldór As-
geirsson meðal annars í sýn-
ingarskrá sinni, en Halldór hef-
I* VM
ECSTASY
Það þai f ekki nema
EINA
piliu!
ACSVTKK
SYAVARS SICUROSSC>NAU
Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður
spurt...
Ef þú fengir að
ferðast í tíma og rúmi,
hvert myndirðu þá fara?