Helgarpósturinn - 03.04.1997, Side 6
RMMTTJDAGUR 3. APRÍL1997
Meinturfjársvikari, sem sjálfur hefur veriö kæröurtil Rannsóknarlögreglu, stefnir Helgarpóstinum
fyrir aö kalla sig svindlara
j
Samkvæmt ákvörðun stjórn-
arinnar skyldu jöfnunarhluta-
bréfin gefin út þann 31. júlí.
Þetta gekk eftir. Helgarpóstur-
inn hefur undir höndum afrit af
bréfi sem fylgdi með jöfnunar-
bréfunum og skrifað var til að
tilkynna um útgáfu þeirra og
greiðslu arðs. Þetta bréf var
dagsett 31. júlí og undirritað af
Jóhanni A. Jónssyni, sem í
þessu bréfi kallar sig reyndar
forstjóra.
Ekki orð um jöfnunarbréf
Formlega var gengið frá
skiptunum á hlutabréfunum og
bílnum 2. ágúst. Afsalið fyrir
bílnum er dagsett þann dag.
Við þetta tækifæri bað Hregg-
viður um að framsalið á bréf-
unum yrði dagsett aftur í tím-
ann. Sem ástæðu fyrir þessari
beiðni tilgreindi Hreggviður að
hann vildi fá að njóta 2% arðs
af bréfunum, eða nálægt 30
þúsund króna. Það varð að
samkomulagi að Hreggviður
skyldi í staðinn láta setja út-
varp í jeppann.
Ákvörðun um arðgreiðslu
hafði þegar verið tekin, reynd-
ar á sama stjórnarfundi og
ákveðið var að gefa út jöfnun-
arhlutabréfin. Um útgáfu
þeirra og arðgreiðsluna var til-
kynnt í sama bréfi. Það virðist
því óneitanlega sérkennilegt
að Hreggviður skyldi við þetta
tækifæri vísa til arðsins sem
ástæðu en ekki nefna jöfnunar-
bréfin einu orði.
Framsal bréfanna var svo
dagsett 30. júlí, daginn áður en
jöfnunarhlutabréfin voru form-
íega gefin út og arður greiddur.
Með þessa sérkennilegu dag-
setningu í höndunum fékk
Hreggviður Jónsson ekki bara
hlutabréfin sem hann hafði
keypt og Árni taldi sig vera að
selja honum á tvöföldu nafn-
verði, heldur fékk hann nú
einnig jöfnunarbréfin afhent
hjá Jóhanni bróður sínum.
Það mun ekki vera lögfræði-
legt túlkunaratriði að hefði
framsal hlutabréfanna verið
dagsett 2. ágúst, eins og afsalið
fyrir bílnum, hefði það verið
Árni sem átti tilkall til jöfnun-
arbréfanna en ekki Hreggvið-
ur, vegna þess að hann var eig-
andi hlutabréfanna þegar jöfn-
unarbréfin voru gefin út. Það
var þannig að líkindum einmitt
meginatriði málsins frá sjónar-
miði Hreggviðs að fá að setja
ranga dagsetningu á framsal
bréfanna. Hefði hann ekki feng-
ið það í gegn er ólíklegt að Jó-
hann bróðir hans hefði getað
afhent honum jöfnunarbréfin
nema gerast sjálfur brotlegur
við lög.
Dagsetti kaup á
hlutabréfum í
Hraðfrystistöð
Þórshafnar aftur í
tímann til að fá
jöfnunarhlutabréf í
sinn hlut. Heiðarlegur?
Að sögn Árna Helgasonar,
sem átti þessi bréf, hafði hug-
ur Hreggviðs alllengi staðið til
að eignast þau. Tilboð hans
fóru þó fyrst að hækka að ráði
þegar kom fram í júlí og á end-
anum bauð Hreggviður honum
þriggja milljóna króna jeppa
fyrir bréfin. Árni hafði verið að
velta fyrir sér bílakaupum og
tók þessu boði, enda renndi
hann ekki grun í raunverulegt
verðmæti bréfanna. í því máli
gilti hið sama um Árna og fjöl-
marga aðra íbúa á Þórshöfn og
smáa hluthafa í HÞ. Árni vissi
ekki einu sinni að til stæði að
gefa út jöfnunarhlutabréf.
í því tilliti gegndi nokkuð
öðru máli um Hreggvið Jóns-
son. Bróðir hans, Jóhann Arn-
grímur Jónsson, er fram-
kvæmdastjóri HÞ og jafnfram
oddviti Þórshafnarhrepps. Jó-
hann virðist síðustu árin hafa
róið markvisst að því að ná
undir sig og nánustu sam-
starfsmenn sína eignarhaldsyf-
irráðum yfir fyrirtækinu. Hann,
bræður hans og nokkrir sam-
starfsmenn í HÞ hafa persónu-
lega keypt allmikið af hluta-
bréfum en auk þess stofnaði
Jóhann ásamt fleiri yfirmönn-
um HÞ einkahlutafélagið Hæng
sem keypti um fjórðung hluta-
bréfa í fyrirtækinu. Frá því máli
hefur raunar áður verið sagt í
HP.
Sérkennilegar dagsetning-
ar
Á því getur naumast leikið
nokkur vafi að Hreggviður hafi
í sumar fylgst grannt með því
sem fram fór varðandi útgáfu
jöfnunarhlutabréfanna. í
stefnu sinni á hendur Helgar-
póstinum rekur Hreggviður,
eða Gestur Jónsson fyrir hans
hönd, helstu atriði málsins og
þar er m.a. að finna nokkrar at-
hyglisverðar dagsetningar.
Þessar dagsetningar leiða
sterk rök að því að Hreggviður
hafi gert sér fulla grein fyrir öll-
um aðstæðum.
Útgáfa jöfnunarhlutabréfa í
HÞ var ákveðin á stjórnarfundi
22. júlí í sumar. Með þessari
ákvörðun var hlutafé fyrirtæk-
isins aukið úr 150 milljónum í
300. Jöfnunarbréfin voru send
hluthöfum í fyrirtækinu þeim
að kostnaðarlausu. í greinar-
gerð Gests Jónssonar með
stefnunni segir að Hreggviður
hafi samþykkt tilboð Árna
Helgasonar um jöfn skipti á
hlutabréfunum og jeppanum
21. eða 22. júlí. Með jáessu er
verið að gefa til kynna að
ákvörðun um kaupin hafi verið
tekin af báðum aðilum áður en,
— eða sama daginn og ákveðið
var að gefa út jöfnunarhluta-
bréfin.
Hreggviður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Stöð 2 og
stjórnarformaður íslenskrar
margmiðlunar (líksins af Stöð
3), hyggst gera sér peninga úr
frásögn Helgarpóstsins af því
þegar hann plataði hlutabréf í
Hraðfrystistöð Þórshafnar út
úr trillusjómanni á Þórshöfn. Á
þessum viðskiptum hagnaðist
Hreggviður um 7-9 milljónir
króna. Fyrir framgöngu sína í
þessum viðskiptum hefur
Hreggviður verið kærður til
rannsóknarlögreglu en auk
þess hefur Sigurður Skúli
Bergsson, lögmaður trillusjó-
mannsins, nú í undirbúningi
að stefna Hreggviði vegna
þessa máls.
Hreggviður heimtar 2 millj-
ónir í skaðabætur, aðrar 2 í
miskabætur, 450 þúsund krón-
ur til að kosta birtingu á dómn-
um í þremur dagblöðum og
loks krefst hann málskostn-
aðar samkvæmt málskostn-
aðarreikningi. Samtals
gæti látið nærri að þess-
ar kröfur nemi um fimm
milljónum króna. Að því
er fram kemur í stefn-
unni gera þeir Hregg-
viður og lögmaður
hans, Gestur Jóns-
son, sig ekki alls kost-
ar ánægða með þessa
peninga. Þeir krefjast
þess nefnilega jafn-
framt að Páll Vil-
hjálmsson, ritstjóri
HP, verði látinn dúsa í
fangelsi í tvö ár.
Sjálfum stefnt fyrir
fjársvik
Hreggviði verður reyndar
sjálfum stefnt fyrir rétt á
næstu dögum vegna þessa
máls. Ámi Helgason, trillusjó-
maður á Þórshöfn, hefur falið
tengdasyni sínum, Sigurði
Skúla Bergssyni héraðsdóms-
lögmanni, að höfða mál á
hendur Hreggviði fyrir fjársvik.
Hyggst Skúli byggja málshöfð-
unina m.a. á lögum um lausa-
fjárkaup og krefjast þess að
jöfnunarhlutabréfum, sem
voru gefin út áður en Hreggvið-
ur keypti hlutabréfin af Árna,
verði skilað.
Innanbúðarupplýsingar
nýttar til hins ýtrasta
Málið snýst um hlutabréf í
Hraðfrystistöð Þórshafnar,
sem fyrir útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa í sumar voru að nafnvirði
rétt um ein og hálf milljón.
Raunvirði þessara bréfa á
hlutabréfamarkaði er um þess-
ar mundir nálægt 12 milljónum
króna eða áttfalt nafnverðið
frá í sumar.