Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 03.04.1997, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 03.04.1997, Qupperneq 24
HELGARPOSTURINN 3. APRÍL 1997 13. TBL. 4. ÁRG. VERÐ 250 KR. Tvímenningarnir sem stýra fjölmiðlasamsteypu Stöðvar 2 og DV, þeir Eyjólfur Sveinsson, framkvæmdastjóri DV, og Jón Ólafsson, stjórn- arformaður Stöövar 2, hafa báðir sótt menntun til Bandaríkjanna — Jón að vísu aðeins sumar- kúrsa. Lærdómur sem báðir hafa dregið af kynn- um sínum af bandarisku viðskiptalífi er að lög- sækja þegar nokkur kostur er. Hvorugur virðist þó hafa fattað að í Bandarikjunum tíðkast ekki aö fjölmiðlar stefni blaðamönnum fyrir að iöka tjáningarfrelsiö. Með því að lögsækja fjölmiðla skapa eigendur fordæmi fyrir lögsókn gegn þeim sjálfum. En þeir félagar ætla kannski ekki að reka fjölmiðla með tilburði til gagnrýninnar um- fjöllunar... Sigurður G. Guðjónsson lögfræðingur stefnir Guðrúnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi rit- stjóra Helgarpóstsins, fyrir hönd Dags-Tímans en Gestur Jónsson stefnir Páli Vilhjálmssyni, nú- verandi ritstjóra HP, fyrir hönd Hreggviðs Jóns- sonar, framkvæmdastjóra Stöðvar2. Bæði Sig- urður og Gestur þjónusta Jón Ólafsson á Stöö 2 á ýmsa vegu. Sigurður m.a. meö setu í stjórn íslenska útvarps- félagsins og Gestur með þátttöku í samningunum um samruna Stöðvar 2 og Stöðvar 3... * ADVer Eyjólfur Sveinsson framkvæmdastjóri kallaöur Lilli. Nýjungar í starfsmannastjórnun sem hann hefur bryddaö á mælast misvel fyrir. Starfsmenn eru t.a.m. kallaöir fyrir einn í einu og þeim tilkynnt í hvaða flokki þeir eru eftir starfsframlag- inu sem þeir skila. Starfsmennirnir fá að vita hvort þeir eru í öörum flokki, fyrsta flokki eða úrvalsflokki, svona eins og þeg- ar sauðfé er dregið í dilka... Fyrir þremur vikum hélt Lilli ritstjórnarfund og tilkynnti aö þeir sem hefðu komist upp í úrv'alsflokk ættu von á launa- hækkun — þegar fyrirtækið hefði bolmagn til þess einhvern tímann í framtíðinni. Á fundinum vakti þaö kátinu að Lilli sagði aö nýtt fýrirkomulag yrði tekið upp til að viðhalda aga. Áformað er aö gefa þeim starfsmönnum gult spjald sem slá slöku við og er það gert til aðvörunar... Tímaritiö Húsfreyjan, sem Kven- félagasamband íslands gefur út, fékk nýjar ritstýrur í vikunni. Út- varpskonurnar Inger Anna Aik- man og Margrét Blöndal voru ráðnar til að sjá um útgáfuna, en ein fjögur til sex tölublöð koma út á ári. Þetta er ekki eini tímamótaviöburðurinn í lífi Inger Onnu um þessar mundir. í vikunni eignaðist hún dóttur. Til ham- ingjui... Birgir Leifur Hafþórsson golfari er ekki sagður í neinum uppgjafarhug þessa dagana. Hann er nýlega kominn heim frá Englandi þar sem hann náði 15. sæti á stórmóti og er á leiðinni út aftur til að vinna stærri afrek í íþróttinni. Um Birgi Leif var fyrir nokkru stofnað hlutafélag sem á aö auðvelda hon- um aö komast inn I heim atvinnumennskunnar. Aö sögn er árangur hans fram aö þessu ágætur og gefur góöar vonir þótt enn sé á hinn bóginn kannski fullsnemmt að slá því föstu að rekstur hlutafélagsins skili arði... Gjaldþrotaskipti geta tekiö tímann sinn. Kaupfélag Tálknfirð- inga varö gjaldþrota sumarið 1984, eða fyrir bráöum þrett- án árum. Sýslumaöurinn í Barðastrandarsýslu úrskuröaði að félagið væri gjaldþrota þann 17. júlí 1984. Jón Sigfús Sigur- jónsson var skipaður skiptastjóri hinn 5. ágúst. Ártalið var hins vegar ekki 1984 heldur 1993. Ekki var þó allt búið enn. Skiptum lauk í febrúar á þessu ári og að því er Lögbirtingablað- ið skýrir frá greiddust ríflega 432 þúsund krónur upp í sam- þykktar almennar kröfur sem samtals námu rúmum Ijórum milljónum... Meira úr Lögbirtingablaðinu. Þar er í hverju blaði fjöldi eigna auglýstur til sölu á nauðungaruppboöum. Venjan mun að vísu sú að þegar kemur til þess aö bjóöa eignir upp á nauö- ungaruppboði er búið að ganga nokkuð hart fram I innheimtu og eigendur hafa þá fengið allnokkur tækifæri til að greiða. Meðal þeirra eigna sem einmitt á að bjóöa upp í dag, hafi eig- andinn ekki verið búinn að greiöa skuldina, er jörðin Stafholt í Stafholtstungum.í Borgarfirði. Eins og svo oft þegar um jarö- eignir er að ræöa er það Stofnlánadeild landbúnaðarins sem biður um uppboöið. Upphæðin sem eigandinn skuldar er aö vísu ekki mjög há, 187.508 krónur. Það sem hins vegar vekur Amerískir livíMarstól ar Action Lane hvíldarstólarnir eru vandaÓir og smekkíega kannaÓir og fáanlegir meÓ leÓur- eÓa tauáklæÓum. MikiÓ úrval, margir litir og gott verÓ. Hvíldarstóllinn sem joú getur veriÓ stolt(ur) af í stofunni joinni. 7d. ()()(),- Leður á slitflötum Litir: Brúnn ( mynd), vínrauður, svartur (Hot Sko 4(r•(>()(),'m Tauáldæði Litir: Grænn ( mynd), vínrauður, Lrúnn (Hot Skotj (Traider Tauáklæði Litir: Rauður ( mynd), grænn /■(■!><)(), - * Leður á slitflötum Litir: Brúnn ( mynd), vínrauður ,6" ef Langkoltsvegi 111 • 124 Reykjavík Sími: 533 3500 ■ Fax: 533 3510 athygli er að eigandi jaröarinnar er eiginlega bara annar vasi á sömu flík. Stafholt er nefnilega ríkis- jörð í vörslu landbúnaöarráöuneytisins... Islenski söngheimurinn er frjór. Það sést best á því að það er ekki bara Sigrún Hjálmtýsdóttir söng- kona sem er ófrisk heldur og Margrét Pálmadóttir, hinn frækni kórstjóri Kvennakórsins. Margrét er ekki bara meö afbrigðum frjó sem tónlistarmaöur heldur einnig sem kona, því þetta barn sem bíð- ur þess að koma í heiminn verður fimmta barn Margrétar... Karlakór Reykjavíkur hefur nú I nokkur ár veriö að basla við að koma yfir sig húsi I Suðurhlíð og gengiö heldur hægt. Nú hefur aftur á móti heyrst að allar líkur séu á að Kvennakór Reykja- víkur kaupi sig inn I starfsemina og deili húsinu með körlunum. Til að þetta megi veröa að veru- leika hefur Reykjavíkurborg gefið vilyrði fyrir því að kórarnir verði styrktir af borginni. Ef þetta gengur eftir geta tónlistarunnendur fagnað, því húsiö mun fullbyggt veröa hiö glæsilegasta og með góðum tónleikasal. Þaö má því kannski bú- ast viö blómlegri tónlistarstarfsemi I Suöurhlíö- inni og hver veita nema eitthvaö fleira blómstri við samvinnu kóranna...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.