Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 8
8 RMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 iðT VÍ"k0na mín ' t» S&rf*'4" ",ntoí*^ »»* H, M „ «u ‘•mSKí^.SÍÍ? f Wr M tenia Mk, "'öur a aðra hæð? B Þetta annað hvert ár æsku- og ..roska- skeiðs míns eyddum við fjölskyldan viku, stundum hálfum mánuði, hér í Kaup- mannahöfn. Þá tíðkaðist ekki að fólk æddi til útlanda að ástæðulausu, enda vorum við hér lögmætra erinda: Mamma var dönsk og við vorum að heimsækja æskustöðvar hennar og fjölskyldu. Hinar fimmtíu vikur ársins hélt konan uppi áróðri fyrir allt sem danskt var af einstakri ósérhlífni. Landið var frjósamara og fegurra, veðurfar- ið betra og Danir sjálfir siðmenntaðir, siðfág- aðir og kunnu sig. Annað en íslendingar, sem í bezta falli voru bóndadurgar, en unnu títt til t)ess að vera nefndir svín og þá sér í lagi einn slendingur, okkur nákunnugur. ísland sjálft var hrjóstrugt sker sem helzt hentaði sem við- komustaður farfugla. Sumarleyfin á danskri grund voru stíluð upp á jarðarberjatímann og útsölurnar. Þetta voru dagar þrungnir íspinnum, ofdekri og innkaup- um. Búðarmenn fylgdu okkur bukkandi til dyra, í sporvögnunum var einn vagnstjóri og svo annar maður sem virtist alfarið starfa við að halda uppi móralnum um borð. Andaktin og höfflegheitin boguðu af hverjum manni. Um leið voru Danir mjúkir við ókunn- uga, nokkuð sem ekki var hægt að ásaka íslendinga um á þeim árum. Tíminn fór hákarlatönnum um þetta allt. Mamma féll frá, systkini hennar, börn þeirra og jafnvel þeirra börn hafa týnt tölunni. Það er eng- inn eftir sem ég þekkti sem barn, danski hluti minn er munaðarlaus. Á 30 árum hef ég aðeins komið þrisvar til Danmerkur. Það er langt, langt síðan klippt var á síð- asta naflastrenginn og enn lengra síðan mér varð ljóst að ég er löngu hætt að vera Dani og var það í raun aldrei. Viðhorf mitt til Kaup- mannahafnar er því ekki út- lagi sem snýr heim, en um leið er ég heldur ekki útlend- ingur. Nákvæmlega hver af- staða mín er er ég iitlu nær um, en ég væri ómannleg ef forvitnin gerði ekki öðru hverju vart við sig. Þannig að þegar ég uppgötva að hér rétt handan við húsið strekkir sig gatan sem móðurbróðir minn bjó í til dauðadags 1958, þá hjóla ég eftir henni endilangri, frá númer rúmlega 200 að dyrum hans, númer sjö. Ég veit, að frá tveggja til tíu ára aldurs hef ég margsinnis komið þarna. Þó þekki ég ekki dyrnar aftur, ekki framhlið hússins, ekki göt- una, ekkert í umhverfinu. í minningunni er gat- an dimm, dyrnar og stigagangurinn dökkbrún og myrk. Þetta er kennslustund í valminni barna, mér leiddist alltaf heima hjá þessum frænda. Hitt hróflar meira við mér, að við þessa sömu götu, svo sem hundrað húsnúm- erum fjær, stendur höll. Með hallargarði. Ég veit, að hefði ég séð þessa höll sem barn, þá hefði það verið mér ógleymanlegt. Konungs- höll, með fullum garði af kyssivænlegum froskum? Ekki vafamál. Eða litlu gottnesku kirkjuna mitt á milli kon- ungs og kotbónda? Og hvað með jurtagarðinn, handan við hornið? Af hverju hef ég aidrei séð hann í fylgd með konunni sem harmaði ís- lenzkan uppblástur ævilangt? Æst hjóla ég á ferðamannaþjónustuna og bið um tæmandi lista yfir söfn og seværdig- heder í Kaupmannahöfn. Þetta er myndarbæk- lingur. Ég hef aldrei séð neitt sem hann minn- ist á, ekkert þjóðminjasafn, ekkert málverka- safn, enga kirkju að innanverðu og fáar að ut- anverðu, ekkert leikhús, enga höll, það eina sem ég kannast við er Storkagosbrunnurinn. Hann rís á miðju Strikinu, aðalverzlunargöt- unni. Loks veit ég hver danskur menning- ararfur minn er. Daells Varehus. Épli 1 % \JlQtll han 'n-mkM,Vað,ÞÚ S<‘rð við LUOtU Og lj„tlII HvÍa “r,.Ieiðln,egur, |T] Móðirin; Han’, ^ LU Barniö: Maim,',1/ k>'n<esa,,di- °g fa,að u,» haegðir viú?iC'n ,>u S«“tir seiiö Ég hef mikinn andlegan styrk. Ósveigjanlegt siðgæðisþrek, ómælanlega festu, hopa hvergi og aldrei, botnslaust hug- rekki, dug, þor og úthald. Hæst í því sem lund mína prýðir ber þó viðnám mitt við söluvarn- ingi. Eiginlega hef ég engar veikar hliðar, nema ef vera skyldi gagnvart kaffi, tóbaki, hundum, köttum, karlmönnum yfir hundrað kíló, góðum mat, ís, súkkulaði, glerkúlum, skartgripum, postulíni, bókum, gleri og gömlu skrani. Það er því ekki að furða að ég hef sogast inn í hverja einustu fornverzlun á vegleið minni um Kaupmannahöfn og um leið ekkert undur að frá þeim hef ég komist án þess að kaupa meira en fáeina skörðótta smávasa, einn lampa, nokkrar bækur, fjórar örsmáar kristalsaltskálar sem mér er fyrirmunað að skilja hvernig mega nýtast og eitt matarstell fyrir tuttuguogfjóra. Gæfan vill, að megnið af diskunum brotnaði fyrr á öldinni, sem kemur þó ekki í veg fyr- ir að mér er nokkuð hugleikið hvernig ég kem ferðatösk- unni ofan af fimmtu hæð, engin lyfta, þegar ég er búin að pakka stellinu í hana. Allt var þetta inn- an marka velsæmis, að mínum dómi, þar til ég hjóla fram á góðgerðarstarfsemi meþódista. „Flóa- markaður í kjallara“ stendur á pappa- spjaldi í glugganum. Inn og niður, óviðráðanlega. Hvílíkt skran. Klukkutíma síðar geta meþódistar unnið hjálparstarf fyrir tíu krónur, en ég hef dgnast Borgarœttina á frummálinu og Á ferðinni frá 1884. Ekkert annað sem þig langar í? spyr konan þessum bjarta rómi sem ég held að einkenni trúboða. Möööö, segi ég, það er þarna víkinga- skip... Langar þig í það? spyr konan og hundruð watta hafa bæzt í róminn. Moooo, segi ég, það er verðmerkt 30 krónur... það er upphæð sem er óverj- andi að eyða í það (ég er líka nízk). En þér finnst það sætt? spyr Pollý- anna. Hvað get ég sagt? Ber manni ekki öðr- um fremur að vera hreinlyndur við sannanlega sannkristið fólk? Nei, segi ég þunglega. Það er svo ljótt, það er svo skelfilega ljótt, að það nær langt út fyrir landamæri ljótleikans. Veiztu bara hvað, segir konan og hall- ar höfðinu, það hafa fleiri, fleiri manns komið upp úr kjallaranum og minnst einmitt á þetta. Hvað við ættum skelfi- lega ljótt víkingaskip. 15 krónur, segi ég. Og fýrir fimmtán krónur firri ég trú- boðið skelfingunni og einhvers staðar fær eitt barn aðra máltíð. Það þarf að sjá gripinn til að trúa honum. Hann er úr leir, frá tímum brúnu-út-í-gult-leir- munanna. Ég eygi von um að hann falli saman við lit húsgagnanna og verði ekki áberandi, þeg- ar heim er komið. Skipið sjálft er eins og ólög- mætt afkvæmi siðlausra maka sósukönnu og andar, sem að auki höfðu bæði verið fórnar- lömb brjálaðra vísindamanna og því litnihga- skemmd þegar örvilnað samræði þeirra átti sér stað. Skipið er næstum kringlótt, en stefnið horf- ir niður eftir bringunni á sér. Um borð standa fimm menn í hnapp. Fjórir raða sér við borðstokkinn og er það lit styttunn- ar að þakka að þeir líkjast meira negrum en Kín- verjum. Norrænir eru þeir altént ekki, svo mikið má greina á leirandlitsfalli þeirra. Fyrir aftan þá, í úlfakreppu milli masturs og þræla, stendur einn víkingur með skegg og má glöggt sjá að hann nær ekki andanum. Hann er með sáran þjáningasvip, en það væri ég líka væri ég þátt- takandi í þessari styttu. Seglið myndar stórar, mjúkar fellingar neðst, sem kemur ekki að sök, því siglutréð er kengbogið og seglið slútir yfir áhöfnina líkt og suðrænt sóltjald. Nú hefurðu eitthvað af menningararfi þínum með þér heim, segir glaðbeitta trúboðskonan þegar hún réttir mér víkingaskipið. Eg er orðlaus. HVEll? nmm Fyrir utan glugga vinnuherbergis- ins rís Ijósaskilti ofar þökum hús- anna. Aðeins að húlfu þó, neðri hluti þess er í hvarfi handan tveggja hœða tígulsteinsþaks. Þegar rökkvar kviknar á skiltinu. Rauðu letri blikar það skilaboðum yfir Kaupmanna- höfn: „Fleiri og fleiri“ segir það. í hvert sinn sem ég sezt við rit- vinnslutœkið sendir það mér boð: Fleiri og fleiri. Á hverju kvöldi hefurþeim fjölgað. Líti ég afskiltinu slokknar það, telur, kviknar aftur og þeir eru orðnir enn fleiri. Nú, mörgum vikum síðar, er mér Ijóst að þeir eru orðnir yfirgnœfandi meírihluti. Hverjir eru þeir? Hvað eru þeir að gera? Fleiri og fleiri og fleiri...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.